Morgunblaðið - 10.12.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 10.12.1989, Síða 17
C 17 MORGUNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989 MATIJR OG DRYKKUR///vers mega sín síldin ogeplinf Máttur trúarinmr? ALLUR desembermánuður einkennist af hamagangi vegna ná- lægð jólanna. Þeir eru áreiðanlega ekki margir sem gefa sér tíma til trúarlegra umþenkinga af þessu gefna tilefni sem jólin eru, nema ef vera skyldi á sviði matar og drykkjar. Um daginn hitti ég til dæmis konu að austan sem trúir á síld. Hún nelhdi mér Qölmörg kraftaverk sem síldin hafði gert á sér og sínum. Þannig hefði sonur hennar fjórtán ára orðið hinn ásjálegasti piltur eftir að hann hafði borðað eitt kryddsíldarflak daglega í nokkrar vik- ur — síldin hefði hreinsað allar unglingabólur af andliti hans, enda sé hún eitthvert besta fegrunarmeðal sem um getur. eftir Jóhönnu Sveinsdóttur Austfirska konan trúir á síld og ekki að ástæðulausu. Aðr- ir trúa á ginseng, enn aðrir á púrrur, epli, sveskjur, súrdeigs- brauð, lýsi. Þá hafa margir þá bjargföstu sann- færingu að örlít- ill snafs á fastandi maga styrki og við- haldi kröftum líkamans og fögru útliti, út- rými eitruðum og skaðlegum vessum. Flestir gera hvort tveggja í senn: Stunda sjálfstortímingu leynt eða ljóst með óhollum lifnað- arháttum og reyna svo að vinna gegn eðlilegri líkamshrörnun, t.d. með því að finna upp — alltént að verða sér úti um — lífselexír af einhveiju tagi. Draumurinn er gamall. Gull- gerðarmenn fortíðar reyndu ekki aðeins að finna formúluna fyrir gulli, heldur líka formúlu að lífselexír sem gæti skotið náttú- runni ref fyrir rass; yngt þá upp. Þessi markmið fóru saman hjá Kínveijum til forna: Þeir trúðu því að gull það, sem þeir ættu eftir að sjóða saman úr óæðri málmum, myndi lengja líf mann- anna, já, gera þá ódauðlega. Sá draumur rættist náttúrlega ekki. Ogerlegt reyndist að sjóða saman gull og enn deyjum við drottni okkar í fyllingu tímans, hvort sem við trúum á síld, hvítlauk, lýsi eða morgunsnafs. Aftur á móti fundu alkemistarnir upp púðrið — sem ekki varð nú beinlínis til að lengja líf eins eða neins. En jafnframt ber að minn- ast þess að út úr eimingartækjum arabískra alkemista tóku að streyma býsna lífseigir dropar: al kohl. Latneska nafnið aqua vitae, lífsvatn, kemur betur heim og saman við stefnuskrá gullgerðar- mannanna. Löngu fyrir daga epla- brennivíns gegndu epli hlutverki lífselexírs meðal norrænna víkinga, rétt eins og helsta vörn Ása gegn hrukkum og æðakölkun voru eplin sem gyðjan Iðunn lét þeim í té. Ekki út í bláinn. Síðari tíma tilraunir með hamstra og síðar menn hafa leitt í ljós að kólesterólið dvínar í blóði þeirra sem borða að staðaldri tvö epli á dag. Þar með ættu vísindin að hafa staðfest sannleiksgildi enska máltækisins: „An apple a day keeps the doctor away.“ Ef marka má reynslusögur austfirsku kon- unnar gerir síldin það líka, enda er ijölómettuð fita 77% af heildar- fitu. Jólasíld að hætti málfræðingsins Samkvæmt þessum bollaleggingum ætti síldarsalat með eplum að vera sérdeilis hollt og kem ég því á framfæri uppskrift að afar ljúf- fengu síldarsalati, úr fór- um Jörgens Pind mál- fræðings. Hún er svo- hljóðandi: Skerið í bita 4 maríner- uð síldarflök, 3 epli, 1-2 paprikur, 1-2 lárperur (avókadó) eða u.þ.b. 150 g af sveppum, 3-4 harð- soðin egg og u.þ.b. 100 g af valhnetukjörnum. Dreifið sítrónusafa yfir lárperubitana. Búið til sósu úr 180 ml af sýrðum ijóma, 200 g af majónesi, 1 tsk. karrýi, 'A tsk. af salti, '/a tsk. af sinnepi, 1 tsk. af smátt söxaðum perlu- lauk, sítrónusafa og súr- mjólk eftir smekk. Hræ- rið saman við síldina, epl- in og allt hitt. Fyrirtak ofan á maltbrauð. Geisladiskar — ryk hefur eng- in áhrif og suð af öðrum orsökum er útilokað. TÆKTSOJStafnsn tónlist: Hvers vegnaf Um geisladiska (TEKIÐ skal fram að orðið stafrænn notar yfirritaður ekki nema í neyð. -rænn þýðir -ættar. Er tónlist stafaættar? En því miður er þetta orð almennt notað, og einnig hér vegna skorts á öðru betra.) Ageisladiski er nokkurra kíló- metra löng rák sem nægir til rúmlega klukkustundar leiktíma. Allt að fjörutíu þúsund sinnum á sekúndu les ljósgeisli úr stafamerkj- um, og það nægir til að koma til skila fínustu blæbrigð- um sem'mannlegt eyra nemur og mannlegur heili túlkar. Talnaröðin er löng runa taln- anna núll og einn, sem lýsa sér í því, að annaðhvort endurkastast ljósið á réttan stað eða ekki. Tónlistin er hljóðrituð í venjulegu „stúdíói". Þar eru hljóðmerkin þeg- ar geymd i talnalykli. í siíkum lykli er tónlistin allsendis ónæm fyrir alls konar bjögun. Hún er aðeins í formi upplýsinga, og hana má af- rita á alls konar minni án þess að gæðin breytist. Leysir umritar hana í merki á Ijósnæmri glerplötu. Hvert 0 þýðir að leysirinn sendir frá sér ljós. Hver 1 þýðir að leysirinn er óvirkur. Eftir nokkurra þrepa ferli, sem felst í að festa merkin varan- lega á viðkomandi plötu, liggur fyr- ir frumplata sem er notuð til að prenta aðrar piötur eftir. Sú plata sem fer á markað er prentuð í plast eftir frumplötunni, og á henni er rákin spírallaga eins og á venjulegri grammófónplötu, en með dældum fyrir hljóðmerkin sem eru aðeins um tugþúsundasti hluti millimetra á dýpt. Ljósgeislinn les af plötunni með því að hann endurkastast öðruvísi úr dældunum en þar sem þær eru ekki fyrir hendi. Móttökutæki neytandans þýðir stafamerkin að nýju yfir í hljóðmerki og enn án bjögunar, og þessi geymsluaðferð er nær alls- endis laus við gallana sem einkenna gömlu plötuaðferðina. Ryk hefur engin áhrif, og suð af öðrum orsök- um er útilokað. Erfitt er að hugsa sér að tæknilega sé hægt að kom- ast nær þyí að endurspila fullkom- lega sama hljóð og var fyrir hendi í hljómleikasalnum eða „stúdíóinu". eftir Egil Egilsson HINN NÝI ÍSLENSKI ÞJÓÐSÖNGUR SVERRIS STORMSKERS Auk titillagsins, Hins nýja íslenska þjóð- söngs, fyrirfinnast 8 hressileg popplög og tregablandnar ballöður á þessari nýju hljómplötu Sverris, sem tvímœlalaust er hans besta og vandaðasta til þessa, að sjálfsögðu. Meösöngvarar hans eru öngvir aukvisar og hlandaular frekar en fyrri daginn: Richard Scobie, Gildrusöng- varinn Birgir Haraldsson, Jóhanna Linnet, en hún syngur á plötu þessari lagið „Þú leiddir mig í ljós“, síðasta júróvisjonlag Sverris, og Alda Björk Ólafsdóttir, sú er söng með Sverri hið vinsœla lag „Bless“ á síðustu plötu hans. Sem sé: Engin skítalykt af mál- inu. Fáðu þér eintak í einum eit- urgrœnum. Dreifing: Steinar hfi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.