Morgunblaðið - 10.12.1989, Qupperneq 30
'30 €
MORGUNBLAÐIÐ MENNIINIGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989
Eigi skal gráta Evítu - enn
15 leikkonur hafa komió tilgreina íhlutverkið og ekkertgerist enn
í rúman áratug hefúr
orðrómur verið á kreiki
um kvikmyndum einhvers
þekktasta söngleiks ver-
aldarinnar, „Evitu“, eftir
Andrew Lloyd Webber og
Tim Rice. Það munaði
engu að Oliver Stone gerði
hana loksins í vor með
Meryl Streep í titilhlut-
verkinu en í trilljónasta
skiptið í tíu ára píslar-
göngu kvikmyndaútgáf-
unnar varð ekkert úr
neinu. ,
Aþessum tíma hafa fjög-
ur kvikmyndafyrirtæki
haft puttana í undirbúnings-
vinnunni, sjö leikstjórar hafa
komið til álita og a.m.k. 15
leikkonur hafa verið orðaðar
við titilhlutverkið. En samt
engin mynd.
Allt í lagi. Það tók 13 ár
að koma Gaukshreiðrinu á
filmu svo þetta er ekkert
fáheyrt. En það eru sérstök
vandkvæði á því að filma
stórsöngleiki. Fyrir það
fyrsta hefur söngleikjahefð-
in næstum horfið úr bíó-
myndunum fyrir utan götu-
söngleiki eins og „Grease"
og Hárið á áttunda áratugn-
um. Þeim hefur heldur ekki
vegnað vel í miðasölunni
(„Jesus Christ Superstar",
„Godspell“, „A Chorus
Line“) auk þess sem rokk-
myndbanda-kynslóðin hefur
varla þolinmæði fyrir óperu-
formið.
Nafnarunan í tengslum
við myndina er eins og ges-
talisti á Óskarshátíð: Franco
Zeffirelli átti að leikstýra
Diane Keaton í einni útgáf-
unni, John Travolta og Oli-
via Newton-John komu til
greina í annarri með Elton
John sem Che Guevara,
Betté Midler og Pia Zadora
komu til álita sem Eva, Bar-
bara Streisand líka með Elli-
Evíta og nokkrar sem til
greina hafa komið; Diane
Keaton, Madonna, Elaine
Paige, Barbra Streisand og
Meryl Streep.
ott Gould sem Juan og Stall-
one, Meatloaf og Barry Gibb
hafa allir verið líklegir sem
Che Guevara.
Ken Russell vildi hafa
Lizu Minelli með hvíta hár-
kollu í hlutverki Evítu, Her-
bert Ross, Richard Atten-
borough, Alan Pakula og
Hector Babenco hafa allir
verið orðaðir við leikstjórn-
ina. Madonna vildi breyta
lögunum i verkinu. Það var
svo ekki fyrr en sl. vor að
Stone, sem skrifaði líka
handrit eftir söngleiknum,
og Streep voru næstum farin
til Argentínu að filma. Stone
talaði við Carlos Saul Men-
hem forseta sem ætlaði að
sjá honum fyrir 50.000 hóp-
leikurum. Allt var tilbúið.
En þá vantaði peninga.
Handrit Stone gerði ráð fyr-
ir 35 milljón dollum og Wein-
traub-fyrirtækið, sem sá um
fjármögnunina, fékk bak-
þanka. Hætt var við Arg-
entínu vegna uppþota í
landinu, Stone kvaddi og
loks Streep.
En sögunni er ekki lokið.
Litla hafmeyjan; sú besta.
Teiknimyndir,
span og spól
Hún hefúr verið sögð besta Disneyteiknimyndin í
30 ár eða síðan Þyrnirós var gerð árið 1959 og
markar afturhvarf Disneyfélagsins til fallegu ævin-
týranna. Hún heitir Litla hafmeyjan („The Little
Mermaid", og er gerð eftir hinni þekktu sögu H.
C. Andersens.
Teiknimyndir eru aftur
komnar í tísku í Holly-
wood þökk sé að miklu leyti
mynd Robert Zemeckis,
Hver skellti skuldinni á
Kalla kanínu? Teiknurum
Disneyfélagsins h'efur
fjölgað á undanförum árum
um tæp fimm hundruð og
bíómyndir eins og Ástin,
ég smækkaði krakkana
og„Dick Tracy“, nýja
Warren Beatty-myndin
sem frumsýnd verður í
sumar, hafa skemmtilega
Kalla kanínu-Beibí Her-
man teiknimynd á undan
til að koma áhorfendum í
rétt form.
Disney ætlar að fram-
leiða a.m.k. eina stóra
teiknimynd á ári í framtí-
ðinni en við fáum að sjá
þá fyrstu í röðinni, Oliver
og félagar, sem gerð var í
fyrra, í Bíóhöllinni/Bíó-
borginni um jólin.
■ NOKKRAR heimsfrum-
sýningarhafa verið haldn-
ar hér á landi á Banda-
rískum myndum og nú
bætist „Family Business"
eftir Sidney Lumet í þann
hóp. Hún verður frumsýnd
þann 12. desember í Regn-
boganum en ekki fyrr en
tveimur dögum seinna í
Bandaríkjunum.
MÞREMENNINGARN-
ÍRJames Ivory, Ismail
Merchant og Ruth Praw-
er Jhabvala (Herbergi
með útsýni) vinna saman
að nýrri bíómynd með hjón-
unum Paul Newman og
Joanne Woodward í aðal-
hlutverkunum. Hún heitir
„Mr. and Mrs. Bridge“
og er drama um miðaldra
hjón sem hægt og bítandi
laga það sem aflaga hefur
farið í þeirra sambandi.
IGRÍNARINN Bill
Murray leikstýrir sinni
fyrstu mynd þessa dagana.
Hún heitir „Quick
Change“og er með
Murray sjálfum í aðal-
hlutverki en aðrir leikarar
eru Geena Davis, Randy
Quaid, Jason Robards og
Philip Bosco.
■ FJÖRUTÍU ogtveim-
ur árum eftir útkomu Plág-
unnar eftir Albert Camus
stefnir hún á hvíta tjaldið.
Myndin verður tekin í Arg-
entínu næsta sumar en
handritshöfundur og leik-
stjóri verður Luis Puenzo,
sem gert hefur hina nýlegu
„Old Gringo" með Greg-
ory Peck og Jane Fonda
og „La historia oficial“,
oskarsverðlaunamynd frá
’85. Verið er að athyga
hvort William Hurt sé til-
búinn í aðalhlutverkið.
IBIO
Kvikmyndagerðarmenn
á íslandi hafa af því
djúpar áhyggjur að gert er
ráð fyrir virðisaukaskatti á
sýningar á íslenskum bíó-
myndum. - Miðaverðið á
íslenska mynd er nú sölu-
skattlaust en með virðis-
aukaskatti munu leggjast
24 prósent oná miðann sem
setur hann nánast í óperu-
klassa. Eru þverslaufur og
•kvöldkjólar það sem koma
skal á sýningum íslenskra
mynda? íslenskir kvik-
myndagerðarmenn tapa
unnvörpum á myndum
sínum og ekki batnar það.
Fyrirtæki hafa hingað til
ekki séð ástæðu til að
styrkja íslenska kvik-
myndagerð. Það gæti
breyst því jafnframt er ver-
ið að ræða breytingar á
skattalögum sem heimila
fyrirtækjum að draga frá
skatti tvöfalda þá upphæð
sem þau setja í innlendar
bíómyndir. Er þetta framt-
íðin? Flugleiðir og Eim-
skipafélag Islands kynna:
Land og synir. II.
KVIKMYNDIR
Eru Korpúlfsstabirgott kvikmyndaverf
Verkstæðið fer íklippingu
Eina íslenska bíómyndin sem búið er að kvikmynda
þessa stundina er Verkstæðið undir leikstjórn Lárus-
ar Ýmis Óskarssonar en myndin er gerð eftir leik-
riti Ólafs Hauks Símonarsonar, Bílaverkstæði Badda.
Sagan gerist að mestu á
verkstæði sem reist var
við Kalmanstjörn sunnan
Hafna á Reykjanesi og segir
frá fólki Badda verkstæðis-
eiganda og ógeðfelldu saka-
máli úr fortíðinni, sem kem-
ur upp á yfirborðið þegar
óvæntan gest ber að garði.
Með aðalhlutverkin fara
Bessi Bjarnason, Sigurður
Sigurjónsson, Egill Ólafs-
son, Þórhallur Sigurðsson,
og nýliðarnir Stefán Jónsson
og Christine Carr, sem leika
börn Badda.
Umgjörð leikritsins hent-
aði mjög vel ódýrri íslenskri
framleiðslu að mati Lárusar
Ýmis, upphafsmanns mynd-
arinnar, en Verkstæðið er
fyrsta íslenska bíómyndin
hans, kostar 39 milljónir og
verður frumsýnd næsta
haust. L'árus Ýmir hefur
gert bíómyndir í Svíþjóð og
tekist mjög vel upp (kvik-
myndatökumaður hans þar,
Göran Nilsson, tekur Verk-
stæðið) en hér heima hefur
hann næstum eingöngu
fengist við að færa íslensk
leikverk (Stalín er ekki hér,
Dagur vonar) í sjónvarps-
búning með góðum árangri.
En af hvetju ekki íslensk
bíómynd fyrr?
„Líklega er meginástæð-
an sú að ég hef aldrei átt
neitt til að veðsetja og ég
hef ekki hjarta í mér eða
aðstöðu til að veðsetja eigur
ættingja minna,“ sagði Lár-
us Ýmir í stuttu samtali. „En
ég hef aldrei farið á veruleg-
an bömmer út af peninga-
málum því mér bauðst að
gera tvær myndir í Svíþjóð."
Hann bætti því við að það
væri óneitanlega^ gaman að
gera bíómynd á íslandi og í
því lægi framtíðin. Tökum á
Verkstæðinu lauk fyrir rúm-
um mánuði eftir sjö vikna
skothríð og nú er myndin á
leið í klippingu en Lárus
Ýmir hyggst klippa hana á
myndbandi, sem býður uppá
óendanlega meiri möguleika
en gamla aðferðin. „Tökur
gengu mjög vel og efnið lítur
vel út. Að baki liggur mikil
og ströng vinna eins og vill
verða.“
En hvernig hefur leikritið
Leikstjórinn, Lárus Ýmir Óskarsson, í hópi leikara og
kvikmyndagerðarmanna við upptökur.
sónum.“
Innitökur fóru fram á
þeim óvenjulega stað Koip-
úlfsstöðum undir nyrstu
burstinni en Lárusi Ými
finnst tilvalið að þar verði
komið upp varanlegri að-
stöðu fyrir kvikmyndagerð-
armenn.' „Þarna er að vísu
kuldi en það þarf ekki mikið
til að einangra staðinn fyrir
bæði kulda og utanaðkom-
andi hljóðum. Korpúlfstaðir
hafa skemmtilegan karakt-
er, þar er skemmtilegt and-
rúmsloft."
Úr Verkstæðinu; Sigurður Siguijónsson og Stefán
Jónsson takast á.
breyst í meðförum kvik-
myndagerðarmannanna? „í
grófum dráttum má segja
að helmingurinn af texta
myndarinnar hafi ekki verið
í leikritinu. Verkið hefur ver-
ið endurbyggt tii að henta
kvikmyndinni, sem gefur
meiri möguleika en sviðið.
Hugmynd Ólafs Hauks þró-
aðist áfram þangað til í
rauninni var komið allt ann-
að verk byggt á sömu grunn-
hugmyndinni og sömu per-
11 'X I ft 1 1 1