Morgunblaðið - 19.04.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
Nýtt þak á
Bessastaði
Á Bessastöðum ganga fram-
kvæmdir samkvæmt áætlun og
er verið að klæða þakið með
pappa en síðan verða lagðar á
það steinflísar.
Að sögn Péturs Stefánssonar
verkefnisstjóra, er vonast til að
húsið verði frágengið að utan en
fokhelt að innan fyrir 17. júní.
Skipt hefur verið um glugga og
verið er að múrhúða húsið að utan
en síðan verður það málað og skem-
man, sem er utan um húsið rifin
um mánaðamótin maí og júní.
Hönnun innréttinga er að mestu
lokið og verða þær boðnar út á
næstunni. Sagði Pétur að heildar-
kostnaður vegna byggingafram-
kvæmda og fornleifarannsókna
væri um 76 milljónir, sem skiptist
þannig að unnið var fyrir um 46
milljónir árið 1989 og um 30 millj-
ónir það sem af er þessu ári. Al-
þingi hefur veitt 202 milljónir til
endurbyggingarinnar á Bessastöð-
um á þessu ári en fram er komin
tillaga um að skera þá fjárhæð
niður.
Morgunblaðið/Bjami
VEÐURHORFUR í DAG, 19. APRÍL
YFIRLIT í GÆR: Vestur af Færeyjum er 990 mb lægð á leið suð-
austur en hæðarhryggur yfir vestanverðu Grænlandshafi hreyfist
austur. Við strönd Labradors er vaxandi 985 mb lægð á leið norð-
austur.
SPÁ:Suðvestan- og sunnankaldi og skýjað suðvestan- og vestan-
lands en annarsstaðar sunnangola og hægviðri og bjartviðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Stíf sunnan- og suðvestangola i nótt.
Skýjað með köflum. Hægt vaxandi sunnanátt og smáskúrir á morg-
un. Vægt frost í nótt en allt að 5 stiga hiti á morgun.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestanstrekkingur með skúrum eða
slydduéljum um allt sunnan og vestanvert landið, en bjart veður á
Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 2—5 stig.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- j 0' Hitastig: 10 gráður á Celsius
A stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
< X Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
^ ^ ▼ A er 2 vindstig. Él
- Siénsiíi,t / / / / / / / Rigning = Þoka
A / / / = Þokumóða
' Hálfskýjað * / * 5 5 5 Súld
A QÉm Skýjað / * / * Sfydda / * / * * * oo 4 Mistur Skafrenningur
lifílls Alskýjað * * * * Snjókoma * # * K Þrumuveður »
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 1 skýjað
Reykjavik 3 hálfskýjað
Bergen 3 þrumuveður
Helsinki 13 léttskýjað
Kaupmannah. 10 hálfskýjað
Narssarssuaq 0 kornsnjór
Nuuk +8 snjókoma
Osló 9 skýjað
Stokkhólmur 9 skór
Þórshöfn 5 skýjað
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Barcelona 19 skýjað
Berlín 11 skýjað
Chicago +1 heiðskírt
Feneyjar 15 alskýjað
Frankfurt 11 skýjað
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 11 léttskýjað
Las Palmas vantar
London vantar
Los Angeles vantar
Lóxemborg vantar
Madríd 14 skýjað
Malaga 20 mistur
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal +3 snjóél
New York 4 heiðskírt
Orlando 21 heiðskírt
Paris vantar
Róm 14 haglél
Vcn 14 skýjað
Washington 4 heiðskírt
Wlrmlpeg •fl* “téttskýjað
Framboð Alþýðubandalagsins í Reykjavík;
Olafiir Ragnar hvorki
með né á móti G-lista
„ÉG TEL ekki rétt þegar sú staða kemur upp að aðeins eitt af flokksfé-
lögunum í Reykjavík stendur að G-listanum en annað félag, Æskulýðs-
fylkingin, að öðru framboði og þriðja flokksfélagið sem starfandi er á
svæðinu, Birting, hefur ekki heldur tengst G-listanum að formaður
Alþýðubandalagsins, sem er formaður flokksins á landinu öllu, taki
formlega afstöðu í því máli,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson formaður
Alþýðubandalagsins aðspurður um hvaða framboðslista hann styddi í
sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík í næsta mánuði.
„Eg vek hins vegar athygli á því
að ef litið er yfir landið allt hafa í
fyrsta lagi alþýðubandalagsmenn
mjög víða tekið höndum saman við
aðra jafnaðarmenn og féiagshyggju-
fólk og myndað sameiginleg framboð
í nánast öllum kjördæmum landsins
með einum eða öðrum hætti. Í öðru
lagi eru boðnir fram listar Alþýðu-
bandalagsins af einhuga flokskfélög-
um og svo í þriðja lagi er ágreining-
urinn í Reykjavík þar sem aðeins
eitt af þeim flokksfélögum sem til
greina kæmu stendur að G-listanum
en hin félögin hafa reynt að efla
samstöðu gegn Sjálfstæðisflokknum.
G-listinn í Reykjavík er því öðruvísi
en aðrir G-listar vegna þess að að
honum stendur bara hluti flokksins."
Aðspurður hvorn listanna, G-list-
ann eða lista Nýs vettvangs, hann
teldi standa nær sínum sjónarmiðum
ítrekaði Ólafur Ragnar Gímsson að
hann teldi ekki rétt að formaður
flokksins tæki afstöðu með öðrum
listanum eða á móti hinum. „Hins
vegar þarf ekki mikla kunnáttu í
stjórnmálaþróun síðustu ára til að
átta sig á því að mikið af mínum
vinum og samherjum í stjórnmálum
hafa kosið að standa acj framboði %
Nýs vetttvangs og ég hef almennt
verið þeirrar skoðunar um áraraðir
að því víðtækari samvinna sem tekst
með jafnaðarmönnum og félags-
hyggjufólki því betra." Aðspurður
kvaðst Ólafur Ragnar engin ráð
mundu gefa aiþýðubandalagsfólki í
Reykjavík um það hvorn listann því
bæri að kjósa. Hann var spurður
hvort hann teldi að með atkvæði
greiddu hvorum listanum sem er
gæti falist stuðningur við sjónarmið
Alþýðubandalagsins. „Ég tel að það
sé staðreynd að mikill fjöldi alþýðu-
bandalagsfólks styður og tekur þátt
í framboði Nýs vettvangs og á þeim
lista verður mikill fjöldi af ágætu
alþýðubandalagsfólki svo að alþýðu-
bandalagsfólk í höfuðborginni hefur
um það að velja hvort það vill kjósa
G-listann, sem Alþýðubandalagsfé-
lagið í Reykjavík stendur eitt að, eða
hvort það vill velja það samvinnuform
sem aðrir flokksmenn hafa valið. Það
er mér persónulega hins vegar mikil
ánægja að geta kosið og stutt þann
breiða og glæsilega lista sem boðinn
verður fram í nafni Nýs afls á Sel-
tjarnarnesi," sagði hann.
Sigurjón Pétursson oddviti G-listans:
Landsfundur flokksins
kjósi nýjan formann
„ÉG TEL það mikil tíðindi þegar formaður stjórnmálaflokks neitar að
lýsa yfir stuðningi við framboð flokksins í höfuðstaðnum. Og þó að
hann lýsi því jafhframt yfir að hann ætli ekki að lýsa yfir stuðningi
við önnur framboð þá fínnst mér það engin tíðindi, venjulega lýsa for-
menn stjórnmálaflokka ekki yfir stuðningi við önnur framboð en eigin
flokks," sagði Sigurjón Pétursson, oddviti G-listans við sveitarstjórnar-
kosningar í Reykjavík, aðspurður álits á ofangreindum ummæium form-
anns Alþýðubandalagsins.
„Eg tel að með þessu sé formaður-
inn orðinn viðskila við stærsta flokks-
félagið í landinu og mér finnst full
ástæða til að kalla saman landsfund
og kjósa til formennsku alþýðu-
bandalagsmann, sem styður flokkinn
og félagið." Aðspurður hvort hann
vildi að Ólafur Ragnar yrði rekinn
úr flokknum sagðist Siguijón engan
sérstakan áhuga hafa á að reka
menn úr flokknum. „En ég tel óeðli-
legt að þeir menn veiti stjómmála-
flokki forystu sem ekki geta stutt
hann. Það er enginn vafi á að G-list-
inn er ákvarðaður af þeim aðila sem
samkvæmt flokkslögum á að ákvarða
hann með þeim hætti, mjög lýðræðis-
legum, sem gert hefur verið við und-
angengnar kosningar. Það var tekist
á um það hvort ætti að fara í sameig-
inlegt framboð með öðrum. Þeir sem
þar urðu undir og kenna sig gjarnan
við lýðræði þoldu ekki það lýðræði
að vera í minnihluta og ruku á dyr.“
Aðspurður um sín næstu skref í
þessu máli sagði Siguijón landsfund-
arkröfuna vera seinni tíma verkefni.
„Verkefnið núna er að beijast fyrir
því að flokkurinn lifi, ég tel að þegar
ástandið sé svona þá snúist málin
ekki aðeins um hvort Alþýðubanda-
lagið fær fleiri eða færri borgarfull-
trúa heldur snúist þetta beinlínis um
tilvist flokksins,“ sagði hann.
Steingrímur J. Sigfússon, vara-
formaður Alþýðubandalagsins, vildi
í samtali við Morgunbalðið ekki tjá
sig umfirlýsingu fonnanns flokksins
eða viðbrögn Siguijóns Péturssonar
við henni. Hann ítrekaði þó fyrri yfir-
lýsingu sína við blaðið um stuðning
við G-listann enda væri þar „100 %
flokkslisti" á ferð. Hann sagði að
vissulega væri komin upp óvenjuleg
staða innan flokksins en innanflokks-
mál ætti að ræða á vettvangi flokks-
ins en ekki í fljömiðlum.
Pétur Sigurðsson
kaupmaður látinn
LÁTINN er í Reykjavík Pétur
Sigurðsson, kaupmaður í Herra-
deild P&Ó, á 72. aldursári.
Hann fæddist í Reykjavík 23. júní
1918, sonur hjónanna Sigurðar
Árnasonar og Þuríðar Pétursdóttur.
Að loknu námi við Verslunarskóla
íslands starfaði hann við Verslun
Haraldar Ámasonar uns hann stofn-
aði árið 1959 Herradeild P&Ó ásamt
Ólafi Maríussyni.
Pétur Sigurðsson var formaðut-
Kaupmannasamtaka íslands 1968-
1971 og varaformaður Verslunar-
ráðs var hann um tveggja ára skeið.
Pétur Sigurðsson kvæntist árið
1945 eftirlifandí eiginkonu sinni,
Soffíu S-Ó.-Axelsdóttur. Þau eignuð-
ust tvö börn.
Pétur Sigurðsson