Morgunblaðið - 19.04.1990, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Litla VÍS - keppnin í handbolta:
Vel heppnuð hátíð
hjá 700 keppendum
Ípáskavikunni fór fram fjölmenn-
asta handknattleikshátíð yngstu
flokkanna í handknattleik, sem
haldin hefur verið hér á landi —
Litla Vís - keppnin. Um 700 kepp-
endur í 61 liði léku 260 leiki í
íþróttahúsi Hagaskólans í
^Jteykjavík, íþróttasölum KR og í
Laugardalshöll á fjórum dögum.
Sigurvegarar í hveijum flokki fengu
bikar að launum og auk þess voru
veittir verðlaunapeningar til allra
keppenda í gull- og silfurliðum.
Verið er að útbúa viðurkenninga-
skjöl, sem verða send til allra þátt-
takenda.
Að lokinni riðlakeppni völdu
þjálfarar tvö úrvalslið úr 5. flokki
kvenna annars vegar og úr 6. flokki
karla hins vegar og léku liðin inn-
byrðis „landsleiki" í Laugardalshöll.
Auk keppni var boðið upp á
ýmsa aðra dagskrá. Krakkarnir
fóru á kvikmyndasýningu í Há-
skólabíói og skemmtu sér á kvöld-
vöku í Glym. Héðinn Gilsson, lands-
liðsmaðurinn ungi í FH, mætti þar
og var önnum kafinn við að gefa
eiginhandaráritanir. Höfðu sumir á
orði að hann hefði ofreynt sig við
það og því hefði FH tapað í bikar-
keppninni kvöldið eftir!
Tilgangurinn með hátíðinni var
fyrst og fremst að efla áhuga þeirra
yngstu á íþróttinni. Handknatt-
leiksdeild KR sá um framkvæmd-
ina, Vátryggingafélag Islands gaf
öll verðlaun og íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur var móts-
höldurum innan handar. Skipu-
leggjendur hátíðarinnar voru án-
ægðir með hvernig til tókst, en
stefnt er að því að þessi keppni
verði árlegur viðburður í páska-
vikunni.
Sigurvegarar KR í 6. flokki a-liða. Fremri röð frá vinstri: Númi
Tómasson, Jóhann Eiríksson, Árni Pjétursson, Óðinn Spencer, Búi Bendtsen,
Pétur Jónasson, Ágúst Karl Karlsson, Brynjar Agnarsson og Alfreð Örn Finns-
son. Aftari röð frá vinstri: Ágúst Jóhannsson liðsstjóri, Björgvin Vilhjálmsson,
Ásgrímur Sigurðsson, Örn Þorsteinsson, Guðjón Sigurðsson, Guðni Þorsteins-
son, Daníel Bjarnason, Agnar Möller og Karl Rafnsson þjálfari.
AÐALFUNDUR
Aöalfundur Verslunarbanka íslands hf. verður haldinn
í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 28. apríl 1990
og hefst kl. 13-30.
■
-
Dagskrá:
Aðalfundarstörf samkvæmt 33. grein
samþykkta félagsins.
Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Tillaga að nýjum samþykktum fyrir félagið.
Önnur mál löglega fram borin.
Reykjavík, 3. apríl 1990.
Verslunarbanki Islands hf.
VíRSLUNflRBflNKINN
A - úrvalslið drengja
Pétur Snorrason, Gróttu, Viðar Guðjónsson, Fram, Ingimundur Ingimundarson, ÍR, Finnur Bjamason, Ægir Jónsson
og Birgir Guðmundsson úr Fram, Bjarki Hvannberg, Gróttu, KR-ingarnir Búi Bendtsen, Björgvin Vilhjálmsson og
Ágúst Karl Karlsson, og Sveinn Magnússon, Stjörnunni.
Óðinn Spencer, KR, Baldvin Samúelsson, ÍR, Brynjar Agnarsson og Árni Pjetursson, KR, Halldór Hákonarson og Guð-
brandur Lúðvíksson, ÍR, Gottskálk Ágústsson, Gróttu, Óttar Sigurðsson, ÍR, Ottó Sigurðsson og Hilmar Sveinsson,
Stjömunni.
A - úrvalslið stúlkna
Guðrún Bachmann, Stjömunni, íris Ellenberger, Fram, Nína Björnsdóttir, Stjörnunni, Kristín Guðjónsdóttir, Gróttu,
Valdís Fjölnisdóttir, KR, Lilja Þórðardóttir, Stjörnunni, Hrafnhiidur Skúladóttir, ÍR, Þóra Helgadóttir, FH, Guðrún
Harðardóttir, Haukum, og Ragnheiður Kristinsdóttir, Fram.
B - úrvalslið stúlkna
Laufey Ómarsdóttir, FH, Ingibjörg Kristinsdóttir, Gróttu, Guðlaug Arnarsdóttir, Fram, Guðrún E. Haraldsdóttir, Gróttu,
Ellen Gunnarsdóttir, Gróttu, María Rúnarsdóttir, Víkingi, Rut Steinsen, Stjörnunni, Rakel Þorsteinsdóttir, Fram, Elín
Gúðmundsdóttir, FH, og Ása Ingibergsdóttir, ÍBV.