Morgunblaðið - 19.04.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
51
MÚSÍKTILRAUNIR
LOKA tilraunakvöld Músíktilrauna og Rásar 2 er í kvöld, og
keppa þá fimm hljómsveitir um rétt til þátttöku í úrslitunum sem
haldin verða í Tónabæ á morgun. Sveitirnar sem þátt taka í
kvöld eru allar utan af landi, tvær að norðan, tvær að austan
og ein af Suðurlandi. Tónlistin sem sveitirnar leika er einnig úr
ýmsum áttum, allt frá „speed-metal" í létt popprokk. Með einni
sveita kvöldsins syngur söngkona og er það þriðja söngkonan
sem treður upp í Músíktilraunum að þéssu sinni, en þær tvær
sveitir sem státað hafa af söngkonum náðu báðar í úrslit. Það
verður því fróðlegt að sjá hvort svo fer og í kvöld. Gestahljóm-
sveit kvöldsins, sú sveit sem leikur áður en tilraunirnar hefjast
og á meðan atkvæði eru talin í lokin, er Todmobile. Þess má
geta hér að í síðustu upptalningu hljómsveitameðlima var farið
rangt með nafn bassaleikara Nabblastrengja, en hann heitir
Starri Sigurðarson. Einnig má geta þess að hljómsveitin Ber
að ofan heitir einmitt það, en ekki Berir að ofan eins og
missagt var. Vert er og að geta verðlguna, en þau eru: 1. verð-
laun, 40 hljóðverstímar í Stúdíói Stemmu, einu fullkomnasta
hljóðveri landsins og 2. verðlaun, 30 hljóðverstímar í Stemmu.
Einnig gefur Hljóðfæraverslun Steina hljóðnema og Hljóðfæra-
verslun Pouls Bernburgs gefur tónbjögunarbox. Einnig mun sig-
urhljómsveitin taka upp lag sem verður á plötu Krísuvíkursamtak-
anna, sem kemur út í vor, en það er útgefandi þeirrar plötu,
Stöðin, sem gefur. Samantekt: Árni Matthíasson
Trassarnir
Trassarnir komu frá Eiðaskóla í síðustu Músíktilraunum og náðu
þá í úrslit. Þeir mæta nú til leiks með nýjan bassaleikara, en
sveitina skipa Björn Þór Jóhannsson gítarleikari, Rúnar Þór
Þórarinsson gítar leikari og söngvari, Benedikt Páll Magnússon
bassaleikari og Ásgrímur I. Ásgrímsson trommuleikari. Trassarn-
ir segjast vera undir áhrifum af mæðrum sínum og spila
kröftugt þungarokk. Meðalaldur sveitarmeðlima er rúm sautján
ár.
Sauðfé á mjög undir högg að
sækja í landi Reykjavíkur
Hljómsveitin með þessu óþjála nafni kemur frá Selfossi og hana
skipa Valur Arnarson söngvari, GuðmundurTorfi Heimisson
trommuleikari, Kári Örlygsson gítarleikari, Jón Örlygsson bassa-
leikari og Jón Aðalsteinn Bergsveinsson gítarleikari. Meðalaldur
sveitarmanna er tæp átján ár og þeir segjast vera nýbylgjurokk-
arar.
I Hreinir sveinar
Hreinir sveinar eru flestir að norðan, frá Akureyri og úr
Eyjafirði, en einn kemur úr Reykjavík. Sveitina skipa Jón Aðal-
steinn Björnsson bassaleikari og söngvari, Hjörleifur Árnason
trommuleikari, Brynjólfur Brynjólfsson gítarleikari og Atli Már
Rúnarsson gítarleikari og söngvari. Meðalaldur sveitarmanna
er rétt rúm tuttugu ár og sveitarmenn segjast leika létt og
skemmtilegt popprokk.
Blöndustrokkarnir
Blöndustrokkarnir koma úr Eiðaskóla líkt og önnur sveit sem
einnig tekur þátt í Músíktilraunum að þessu sinni. Á síðasta
ári voru líka tvær sveitir úr Eiðaskóla, en bassaleikari Blöndu-
strokka er einmitt úr annarri sveitinni. Hann heitir Benedikt
Páll Magnússon, en aðrir í sveitinni eru Jónas Sigurðsson tromm-
uleikari, Björn Þór Jóhannsson gítarleikari og Ester Jökulsdóttir
söngkona. Meðalaldur þeirra er sautján ár, en Blöndustrokkar
leika nýbylgjutónlist „hráa, en samt ekki“.
Smaladrengirnir úr Neðrakoti
(SÚNK)
Smaladrengirnir úr Neðrakoti, eða SÚNK, eru Guðmundur Sva-
varsson, Eggert Hilmarsson gítarleikari, Hjálmar Snorrason
söngvari, Heimir Kristinsson bassaleikari og Haraldur Steingr-
ímsson trommuleikari. Sveitin kemur frá Húsavík, en ekki hefur
sveit þaðan tekið þátt í Músíktilraunum síðan Greifarnir sigruðu
1986. Meðalaldur smaladrengjanna er rúm sautján ár, en tónlist-
in sem þeir spila er að eigin sögn, „flakk ráp og sveim", enda
segjast þeir hlusta á allt frá 10.000 Maniacs til Ham.
Grípandi
málning
á gmpandi
vapði