Morgunblaðið - 19.04.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.04.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990 45 Kveðjuorð: Gunnar Jónsson Breiðabólsstað vegna hins að slíkt tillitsleysi sem veldur því að maður særir annan mann spillir sjálfum þér. Að þvinga sig á móti samviskunni og fram- kvæma verk sem særir, eyðir lífi eða eyðileggur aðra til þess eins að fylgja straumnum, ónæmir á helgi lífsins, er mikil misþyrming á sjálfum sér. Það þarf mikið þrek, heiðarleika og andlegan þroska til þess .að þora að vera ávallt sér sam- kvæmur, jafnvel þegar maður gefur aðra mynd af sér en til er ætlast, þar að segja tiifinningaríkari og næmari á lífið sjálft og tilveruna.“ Afi var lífsreyndur maður eins og fyrrnefnd tilvitnun gefur vitni um og hans lífsmáti var fagur. Honum varð aldrei orðfall. Mikil sorg ríkir í hjörtum dætra hans og ástvina sem missa hjart- kæran föður og vin. Er afa því sárt saknað af öllum þeim sem hann þekktu því slíkur vinur er vandfund- inn. Blessuð sé minning afa míns. Ég skelfist ei, þótt sígi sól í æginn og svartri blæju veíjist moldin gljúp og þótt ég margoft syrgi sólskinsdaginn er sólin fegurst bak við hafsins djúp. (D.S.) Þorvaldur Kristjánsson Fæddur 2. janúar 1927 Dáinn 9. apríl 1990. Við börnin ætlum að senda nokkur fátækleg orð sem kveðju til afa. Hann sem alltaf var svo þolinmóður og góður við okkur. Þú hefur sýnt mér sumar, sól og bjartar leiðir.. Hjá þér urðu og eru allir dagar heiðir. Himins birtu bláu barstu í augum þínum. Ljós sem æ mun lýsa leiðum yfir mínum. (Páll S. Pálsson.) Við minnumst allra góðu dag- anna hjá afa og ömmu fyrst að Breiðabólsstað og síðar í Bólstað- arhlíðinni þar sem afi hafði alltaf tíma til að setjast niður og spila á spil eða tefla við okkur. Og ekki fannst honum mikið mál að keyra okkur um borgina þvera og endi- langa. „En hve skjótt getur sól brugðið sumri.“ Nú verða ekki fleiri ánægju- stundirnar með afa en við vitum að nú er hann kominn til fegurri heima þar sem skín hið eilífa sól- skin. Við kveðjum afa með hjartans þökk fyrir allt og allt. Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður, og þú munt sjá að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Úr Spámanninum) Með hjartans kvéðju og þökk fyrir allt. Barnabörnin Heba Aurtbrrkku 14. Kópavogi Simi 642209. Heba heldur við heil- sunni. Hressið sál og líkama. Dansleikfimi, meorunarleikfimi, trimmform. Vornámskeið 23. apríl. < \n Þarna sérðu Helgu. Hún veit hvað hún vill og getur leyft sér það. Helga er ein þeirra kvenna sem vill fá sem mest út úr lífinu, áhyggjulaus um fjárhagslega afkomu sína. En hún ger- ir sér þó engar grillur um tilveruna og er með báðar fætur á jörðinni. Og það er einmitt þess vegna sem hún getur í dag og um ókomna framtíð veitt sér hluti sem ýmsir hefðu flokkað undir skýjaborgir fyrir 5 árum. Þá keypti hún Kjarabréf fyrir 2.000.000 kr. á núvirði hjá Verðbréfamarkaði Fjár- festingarfélagsins. Vaxtatekjur umfram verðbætur hafa að meðaltali verið 260.000 kr. á ári að núvirði og þær hef- ur hún notað til að skoða sig um í heiminum: Kynnast fjarlægum lönd- um og þjóðum, sleikja sólina á heims- ins bestu sólarströndum og stunda hið nýja áhugamál sitt - seglbrettin. Hið stórkostlega er þó að milljónirnar 2, þ.e. höfuðstóllinn og verðbæturnar, eru enn ósnertar og í öruggri vörslu Verðbréfamarkaðar Fj árfestingarfél- agsins. Þar halda þær áfram að fjár- magna hið skemmtilega áhugamál Helgu. <n> VERÐBRÉFAMARKAÐU R FJÁRFESTING ARFÉLAGSINS HF HAFNARSTRÆTl 28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYRl 11100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.