Morgunblaðið - 19.04.1990, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ iÞRorrm FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1990
63
KNATTSPYRNA / EVROPUMOTIN
Amór og samherjar í úrslit
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Þorsteinn til FH
Þorsteinn Bjarnason, sem hefur lengst
af varið mark Keflvíkinga, gengur
frá félagaskiptum í FH á morgun. „Við
úrðum að hafa snör handtök vegna
meiðsla Halldórs Halídórssonar og Þor-
steinn er tilbúinn að hlaupa í skarðið,“
sagði Þórir Jónsson, formaður knatt-
spyrnudeildar FH, við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Eins og greint hefur verið frá meiddist
fyrirliði FH í æfingaleik í Portúgal í
síðustu viku og er óvíst hvenær hann
getur byijað að æfa á ný, en ljóst er að
hann getur ekki leikið næstu mánuði.
Þorsteinn et- 33 ára og með leikreynd-
ustu mönnum ÍBK, en að auki á hann
28 landsleiki að baki.
Eyjamaðurinn Valþór Sigþórsson, sem
hefur leikið með Suðurnesjaliðum á und-
anfömum árum og síðast tneð Keflavík,
hefur einnig ákveðið að skipta yfir Í_FH.
Sennilegt er að hann taki leikstöðu Ólafs
Jóhannessonar, þjálfara, sent lotbrotnaði
fyrir skömmu á gervignpjiiþ j ^Laugardal. ,
Oorsteinn Bjarnason
■:.,L.i;,iii.r.LLi.,u:La.L:.t„t_
ARNÓR Guðjohnsen og sam-
herjar í Anderlecht leika til úr-
slita gegn ítalska liðinu Samp-
doria í Evrópukeppni bikarhafa
í Gautaborg 9. maí. Anderlecht
tryggði sérfarseðilinn með 1:0
sigri gegn Dinamo Búkarest í
Rúmeníu í gærkvöldi, en
belgiska liðið vann fyrri leikinn
með sama mun. Anderlecht
sigraði í keppninni 1976 og
1978, en tapaði í úrslitum 1977.
Marco van der Linden gerði
eina mark leiksins eftir
skyndisókn, er stundarfjórðungur
var liðinn af seinni hálfleik. Gestirn-
ir fengu aðeins þtjú umtalsverð
marktækifæri og átti Arnór eitt
þeirra, en Bogdan Stelea, mark-
vörður, varði vel gott skot hans.
Mircea Lucescu, þjálfari heima-
manna, var óánægður með hol-
lenska dómarann. „Það er út í hött
að Hollendingur dæmi svona leik
með það í huga að þjálfari annars
liðsins er Hollendingur og í liði
hans eru hollenskir leikmenn. Við
gerðum löglegt mark í fyrri hálf-
leik, en það var ekki dæmt.“
Arnór lék allan leikinn og stóð
sig vel. Hann byrjaði á miðjunni,
en fór fljótlega í vörnina fyrir Griin,
sem fór meiddur af velli á 12.
mínútu, og bjargaði _ m.a. á
marklínu. Hann er fyrsti íslending-
urinn til að tryggja sér sæti í úrslit-
um Evrópukeppni bikarhafa, en
hefur áður leikið í úrslitum Eyrópu-
keppni félagsliða. Það gerði Ásgeir
Sigurvinsson einnig með Stuttgart
í fyrra og hann var varamaður Iijá
Bayern Múnchen í úrslitum meist-
arakeppninnar 1982.
Heimamenn sóttu stíft fyrstu
mínúturnar; áttu þá m.a. skot í slá
og tvívegis var bjargað frá þeim á
marklínu. „Mótherjarnir eyddu of
miklum krafti í fyrri hálfleik og það
var okkar ián,“ sagði Aad de Mos,
þjálfari Anderlecht. „En þeir skor-
uðu ekki og leikmennirnir létu mót-
lætið fara í skapið á sér.“
Sampdoria vann Mónakó 2;0 og
leikur til úrslita í keppninni annað
árið í röð — tapaði 2:0 fyrir Baree-
lona í fyrra.
„Verður erfitl“
Benfica gerði sér lítið fyrir, s%
Marseille út úr meistarakeppninni
og leikur gegn AC Mílanó, sem
hefur titil að verja, í úrslitum. „Það
verður erfitt, en allt getur gerst,“
sagði Sven Eriksson, þjálfari
Benfica. „Við erum mjög ánægðir,
en vorum heppnir að skora.“ Gerard
Gili, þjálfari Frakkanna, sagði að
Marseille hefði átt að gera út um
úrslitin í fyrri leiknum. „Við vorum
óheppnir, en ég óska Benfica alls
hins besta.“
„Höfðum alK að vinna“-
- sagði Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals, eftir sigur á Stjörnunni
Arnór Guðjohnsen leikur með liði sínu í úrslitum Evrópukeppni bikarhafa.
Hann var einnig með Anderlecht árið 1984, er liðið tapaði gegn Tottenham í
úrslitum Evrópukeppni félagsliða eftir vítaspyrnukeppni, en þá lauk báðum
leikjunum með 1:1 jafntefli.
ÚRSLIT
Knattspyrna
EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Undanúrslit, seinni leikir:
B. Miinchen—AC Mílanó, ....2:1 (e. franil.)
(Strunz 60., Mclnally 107. — Borgonovo
101.). Áhorfendur: 70.000.
■ AC Milanó vann fyrri leikinn 1:0 og fer
í úrslil á markinu á útivelli.
Benfica, Portúgal—Marseille, Frakkl..l:0
(Vata Garcia 84. —).
Áhorfendur: 110.000.
■ Benfica í úrslit á markinu á útivelli.
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Undanúrslit, seinni leikir:
Sampdoria, ftalíu—Mónakó, Frakkl. ...2:0
(Vierchowod 8., Attilio Lombardo 11.)
Áhorfendur: 39.000.
I Sampdoria vann 4:2 samanlagt.
D. Búkarest, Rúmeniu—Anderlecht, ..0:1
f— Mark van der Linden 59.).
Áhorfendur: 60.000.
BAnderiecht vann 2:0 samanlagt.
EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Undanúrslit, seinni leikur:-
Köln, V-Þýskal.—Juventus, Ítalíu.0:0
Áhorfendur: 55.000.
B Juventus vann 3:2 samanlagt.
ENGLAND
1. deild:
Arsenal — Liverpool............1:1
(Merson 41. — Barnes 86.).
Áhorfendur: 33.395.
2. deild:
Plymouth — Oldham..............2:0
(McCarthy 18. og 45.). Áhorfendun 8.146.
SKOTLÁND
Úrvalsdeild:
Aberdeen — Dundee United.......1:0
VINÁTTULANDSLEIKIR
Mexíkó—Kólombía................2:0
(Perea 2. sjálfsm., Pelaez 39.). Áhorfendur:
30.385.
faémR
FOLX
■ VIGNIR Baldursson, þjálfari
1. deildar liðsins SIF í Færeyjum,
leitar nú að miðherja fyrir lið sitt.
Markakóngur liðsins fótbrotnaði í
æfingaleik í vikunni, og ætla Fær-
eyingarnir að reyna að fá íslensk-
an mann í staðinn, en með SIF
hafa m.a. leikið Jóhannes Sigur-
jónsson, Hjörtur Gíslason, Ágúst
Hauksson og Stefán Stefánsson.
■ PÁLL Björnsson, markakóng-
ur Grindvíkinga í knattspymu,
missir líklega af meirihluta keppn-
innar í 2. deild íslandsmótsins í
sumar. Hann sleit liðbönd í ökkla
í æfingaferð Grindvíkinga til
Hannover.
■ JOE Nieuwendyk, sem gerði
45 mörk fyrir Calgary Flames í
NHL-deildinni í íshokkí, var kall-
aður til liðs við landslið Kanada
ásamt þremur félögum sínum eftir
að Los Angeles Kings hafði slegið
Flames út úr úrslitakeppninni. Fé-
lagrnir mættu í Sviss skömmu fyr-
ir leik Kanada og Bandaríkjanna
í HM, en Nieuwendyk meiddist á
hné í byijun leiks — og tók fyrsta
flug aftur heim!
BARÁTTA Valsmanna og sigur-
vilji færði þeim öruggan sigur
á Stjörnunni, 24:20, og sæti í
úrslitaleik bikarkeppninnar.
Valsmenn léku án þriggja lykil-
manna en það var ekki að sjá
að það kæmi að sök. Keppnis-
skapið bætti það upp sem
vantaði. Stjörnumenn voru
hinsvegar langt frá sínu besta
og engu líkara en að þeir héldu
að sigurinn kæmi af sjálf u sér.
Eg átti ekki von á sigri en ég
hafði þó trú á að við gætum sigr-
að,“ sagði Jakob Sigurðsson, fyrirliði
Vals. „Við höfðum allt að vinna og
HBBiBBB það var tnikið skap
Logi Bergmann og barátta í liðinu.
Eiðsson Það var frábært að
skrífar sj4 hvernig strákam-
ir komu inní liðið og
hve vel við náðum samam."
Vörn Vals og skynsamlegur sóknar-
leikur lögðu grunninn að sigrinum.
Finnur Jóhannsson, Ingi Rafn Jónsson
og „sá gamli,“ Þorbjörn Jensson, voru
mjög sterkir og Páll Guðnason góður
í markinu í síðari hálfleik. í sókninni
var leikið róiega og beðið eftir rétta
tækifærinu. Þar voru Jakob Sigurðs-
son og Valdimar Grímsson fremstir í
flokki og Sigurjón Sigurðsson gerði
mikilvæg mörk.
„Þeir spiluðu eins og við gerðum
gegn FH; börðust og lögðu síg meira
fram. Ég veit ekki hvaft var að hjá
okkur, en þetta var afar slakt,“ sagði
Skúli Gunnsteinsson, fyrirliði Stjörn-
unnar.
Skúli og Gylfi Birgisson voru bestir
í liði Stjörnunnar. Aðrir voru ekki eins
og þeir eiga að sér og liðið ætti að
geta miklu betur. En Garðbæingar
höfðu ekki baráttu í jafn ríkum mæli
og Valsmenn og því fór sem fór.
Mörk Síjörnunnar: Skúli Gunnsteinsson 6,
Gylfi Birgisson 4, Sigurður Bjarnason 4, Axel
Bjömsson 2, Einar Einarsson 2/1, Hafsteinn
Bragason 1 og Patrekur Jóhannesson 1.
Mörk Vals: Jakob Sigui'ðsson 5, Sigurjón Sig-
urðsson 5, Finnur Jóhannsson 4, Valdimar
Grimsson 4/3, Theódór Guðfmnsson 3 og Ingi
Rafn Jónsson 3.
Bjarki frábær
- gerði 13 mörk þar af 10 í síðari hálfleik
BJARKI Sigurðsson átti frábær-
an leik fyrir Víking er hann
skoraði 13 mörk, þar af 10 í
síðari hálfleik, er lið hans sigr-
aði ÍBV, 29:26, í undanúrslitum
bikarkeppninnar í Laugardals-
höll í gærkvöldi. Víkingur hafði
yfir f leikhléi, 13:10.
Bjarki var óstöðvandi í síðari
hálfleik og eins varði Hrafn
Margeirsson mjög vel. Það var fyrst
og fremst frammistaða þessara
leikmanna sem skóp
ValurB. sigur Víkinga. Það
Jónatansson Var aðeins fyrsta
skrifar stundarfjórðunginn
sem jafnræði var á
með liðunum, on síðan tóku Víking-
ar frumkvæðið og létu það ekki af
hendi eftir það.
„Ég hef aldrei gert svona mörg
mörk í meistaraflokki áður. Eg man
eftir að hafa gert 16 mörk.með 2.
, flokki. Það.er stórkostlegt .að vera
kominn í úrslit eftir frebgrualaki
gengi á Íslandsmótinu. Það viB
meiri léttleiki yfír leik okkur en oft
áður,“ sagði Bjarki Sigurðsson.
Leikur liðanna var ekki í góður
framan af en eftir að Víkingar
fundu lyktina af bikarúrslitaleikn-
um í síðari hálfleik sýndu þeir á sér
nýja hlið. Það gekk bókstaflega
allt upp hjá liðinu og Eyjamenn
brotnuðu við mótlætið.
Hjá Víkingum voru Bjarki og
Hrafn, sem varði 17/2 skot, bestir.
Birgir, Siggeir, Guðmundur og Ingi-
mundur áttu þokkalegan leik. Hjá
ÍBV var Hilmar bestur, sérstaklega
í fyrri hálfleik. Sigurður Friðriksson
og Þorsteinn Viktorsson komust
einnig vei frá leiknum. Eins varði
Sigmar Þröstur ágætiega á köflum.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurdsson 13, Birg-
ir Sigurðsson 7, Siggeir Magnússon 5, Ingi-
mundur Helgason 2, Dagur Jónasson 1 og
Guðmundur Guðmundsson 1.
Mörk ÍBV: Sigurður Friðriksson 7, H.ilmar
Sigurgíslason 5, Sigui*ður Gunnarsson 4, Þor-_
steinn Viktorsson 4, Guðmundur Albertsson
2/1; \J6hann Pétureson 2 og Óskar Brvnjars-
ð;^)tiB2í )1Í9Í íiuj-bh'ÁSTfnu i abluvrrgöH
Ungur nemur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, lék með gegn Stjörnunni. Hér stappar
hann stálinu í Finn Jóhannsson en þeir áttu báðir góðan leik í vörn Vals.
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN