Morgunblaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990
Bjóst alls ekkí
við að vinna
*
segir Asta Sigríður Einarsdóttir,
Fegurðardrottning Islands 1990
ÁSTA Sigríður Einarsdóttir, 18 ára nemandi í Menntaskólanum
í Reykjavík, var kjörin Fegurðardrottning- Islands laust eftir
miðnætti s.l. miðvikudag, þ.e. á fyrstu mínútum hins nýbyrjaða
sumars. Keppnin fór fram á Hótel íslandi. Húsfyllir var og hin
nýja fegurðardrottning var hyllt lengi og innilega. Með sigri
sinum hefur Ásta tryggt sér þátttökurétt í fegurðarsamkeppni
erlendis.
Ásta Sigríður býr í Garðabæ,
dóttir Einars Sveinssonar fram-
kvæmdastjóra Sjóvár-Almennra
og Birnu Hrólfsdóttur kennara.
Hún sagði við Morgunblaðið, eft-
ir keppnina, að úrslitin hefðu
komið sér verulega á óvart. „Eg
bjóst alls ekki við þessu og var
ekki undir það búin að vinna
þótt mig iangaði auðvitað til
þess innst inni.“
Ásta Sigríður stundar nám á
eðlisfræðibraut MR og er í miðj-
um prófum. Hún sagðist ekki
gera sér grein fyrir því hvort
sigurinn í fegurðarsamkeppninni
breytti framtíðaráætlunum
sínum, fyrst á dagskrá væri að
ljúka prófunum.
Hugrún Linda Guðmundsdótt-
ir, Fegurðardrottning íslands
1989 krýndi arftaka sinn
skömmu eftir miðnættið á að-
faranótt sumardagsins fyrsta en
þá hafði dómnefnd keppninnar
valið úr hópi 22 stúlkna sem
kepptu í lokakeppninni.
Fyrst voru valdar 10 stúlkur
sem kepptu til úrslita. Þær voru,
auk Ástu Sigríðar, Dís Sigur-
geirsdóttir, Vestmanneyjum, Ey-
gló Ólöf Birgisdóttir, Reykjavík,
Herdís Dröfn Eðvarðsdóttir,
Sandgerði, Hugrún Ester Sig-
urðardóttir, Egilsstöðum, Inga
Kristín Guðlaugsdóttir, Rangár-
vallasýslu, Linda Björk Berg-
sveinsdóttir, Reykjavík, Sigríður
Stefánsdóttir, Kópavogi Sigrún
Eiríksdóttir, Reykjavík og Þórdís
Steinsdóttir, Reykjavík.
Á miðnætti opinberaði dóm-
nefndin niðurstöðu sína. Linda
Björk Bergsveinsdóttir hlaut 5.
sætið, Dís Sigurgeirsdóttir varð
í 4. sæti, Sigriður Stefánsdóttir
í 3. sæti, Þórdís Steinsdóttir varð
í 2. sæti og Ásta Sigríður Einars-
dóttir var kjörin Fegurðardrottn-
ing íslands. Blaðaljósmyndarar
völdu Sigríði Stefánsdóttur bestu
ljósmyndafyrirsætuna og stúlk-
unar sjálfar völdu írisi Eggerts-
dóttur vinsælustu stúlkuna í
hópnum.
Allar stúlkurnar sem tóku
þátt í lokakeppninni voru leystar
út með gjöfum frá fjölda fyrir-
tækja. Verðmæti gjafanna sem
fegurðardrottning Islands hlaut
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
Fegurðardrottning Islands 1990, Ásta Sigríður Einarsdóttir með foreldrum sínum, Birnu Hrólfsdótt-
ur og Einari Sveinssyni, og bræðrum sinum, þeim Hrólfi Einarssyni og Benedikt Einarssyni.
var um ein milljón króna. Að
auki munu stúlkurnar [ efstu
sætunum keppa fyrir íslands
hönd í fegurðarsamkeppnum um
víða veröld.
í dómnefnd keppninnar voru
Ólafur Laufdal veitingamaður,
Erla Haraldsdóttir formaður
Danskennarasambands íslands,
Sigtryggur Sigtryggsson fr^tta-
stjóri, Linda Pétursdóttir Ungfrú
heimur 1989, Magnús Ketilsson
verslunarmaður, SvavaJohansen
kaupmaður og Kristján Zophaní-
asson framkvæmdastjóri. Gróa
Ásgeirsdóttir var framkvæmda-
stjóri keppninnar, en alls komu
yfir 80 manns við sögu við undir-
búning.
Þórdís Steinsdóttir, sem varð í 2. sæti, með móður sinni, Eddu
Þorsteinsdóttur og systur sinni, Fanndísi Steinsdóttur.
Sigríður Stefánsdóttir, sem varð í 3. sæti, með foreldr- Dís Sigurgeirsdóttir varð í 4. sæti. Hún er hér með
um sínum, Stefáni Þór Jónssyni og Auði Hauksdóttur. systur sinni, Dögg Láru Sigurgeirsdóttur.
Dagur jarðar á morgun, sunnudag:
Ef menn ganga ekki vel um
garðinn sinn er illt í efiii
- segir Júlíus Hafstein formaður
umhverfísmálaráðs Reykjavíkur
„EF MENN ganga ekki vel um garðinn sinn er illt í efni,“ sagði
Júlíus Hafstein, formaður Umhverfismálaráðs Reykjavíkur, í samtali
við Morgunblaðið, en ráðið efnir til sérstakrar dagskrár um umhverf-
ismál í Borgarleikhúsinu, svo og stuttrar skemmtigöngu um Öskjuhlíð
á Degi jarðar, sem er á morgun, sunnudag. I tilefhi af Degi jarðar
standa ýmsir aðilar í yfir 100 löndum fyrir átaki, sem miðar að því
að hvetja fólk til umhverfisverndar.
„í tilefni af Degi jarðar hefur
Reykjavíkurborg ákveðið að vekja
borgarbúa til umhugsunar í um-
hverfismálum almennt," sagði Júl-
íus Hafstein. Júlíus sagði að hægt
væri að leggja inn tillögur um um-
hverfísmál í hugmyndabanka hjá
Umhverfismálaráði Reykjavíkur,
Skúlatúni 2, og athyglisverðustu
tillögurnar yrðu kynntar opinber-
lega.
„Reykjavíkurborg hefur gert
margt varðandi umhverfismálin,
sem ég held að geti orðið öðrum
til eftirbreytni," sagði Júlíus. Hann
sagði að Reykjavíkurborg hefði til
dæmis keypt sérstaka bifreið til að
mæla loftmengun í borginni og bif-
reiðin kæmi til landsins á næst-
unni. Júlíus sagði að í samvinnu
við hverfafélögin í borginni yrðu
gróðursett tré í öllum hverfum
borgarinnar, sem væru ígildi um
20 þúsund græðlinga. í upphafi
þessa kjörtímabils hefði verið
ákveðið að gróðursetja 250-300
þúsund tré í borgarlandinu á ári.
Hins vegar yrðu gróðursett þar
500-600 þúsund tré í ár.
Hann sagði að Reykjavíkurborg
hefði kostað^ 700-800 milljónum
króna til hreinsunar á strandlengj-
unni við Reykjavík á undanförnum
árum og kostnaðurinn við hreinsun-
ina yrði kominn upp í um 3.500
milljónir króna á núvirðí um næstu
aldamót, eða um það leyti sem verk-
inu lyki. „Eftir eitt ár verður sorp-
böggunarstöð komin í gagnið og
þá heyra sorphaugamir við
Reykjavík sögunni til,“ sagði Júlíus.
Umhverfismálaráð Reykjavíkur
efnir til dagskrár um umhverfismál
í Borgarleikhúsinu á morgun og
hefst hún klukkan 17. Davíð Odds-
son ávarpar samkomuna én erindi
flytja Matthías Johannessen rjt-
stjóri og Hulda Valtýsdóttir formað-
ur Skógræktarfélags íslands. Þá
flytja Sigfús Halldórsson og Elín
Sigurvinsdóttir lög eftir Sigfús og
kór Árbæjarskóla syngur undir
stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur.
Umhverfismálaráðið stendur
einnig fyrir skemmtigöngu um
Júlíus Hafstein
Öskjuhlíð, sem hefst klukkan 14 á
morgun. Stutt hringferð verður far-
in um hlíðina undir leiðsögn göngu-
stjóra frá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur og garðyrkjudeild
borgarinnar. Að því loknu verður
haldin veisla við útsýnishúsið á
Öskjuhlíð, þar sem boðið verður upp
á grillaðar pylsur og gosdrykki,
farið í leiki og tónlist leikin. Einnig
verður almenningi gefinn kostur á
að virða fyrir sér útsýnið úr útsýnis-
húsinu.
Samtökin Barnaheill:
Ráðstefina um
málefni barna
SAMTÖKIN Barnaheill standa
fyrir ráðstefnu í Borgartúni 6 um
málefiii barna á íslandi íostudag-
inn 27. apríl næstkomandi. Ráð-
stefnan hefst klukkan 13 og verð-
ur opin öllum áhugamönnum um
málefni barna.
Á ráðstefnunni flytur Baldur
Kristjánsson sálfræðingur erindi
um aðstæður íslenskra forskóla-
barna. Erindið er byggt á könnun,
sem gerð var á vegum menntamála-
ráðuneytisins og þar kemur fram
samanburður á aðstæðum barna á
íslandi og öðrum Norðurlöndum.
Þá verður flutt erindi byggt á könn-
un Sigrúnar Júlíusdóttur félagsráð-
gjafa á aðstæðum íslenskra fjöl-
skyldna.
Málshefjendur í umræðum eftir
framsöguerindin verða Svavar
Gestsson menntamálaráðherra,
Birgir Isleifur Gunnarsson alþingis-
maður, Guðrún Agnarsdóttir al-
þingismaður og Jóna Ósk Guðjóns-
dóttir bæjarfulltrúi. Að lokum verða
pallborðsumræður með þátttöku
allra á mælendaskrá og svarað
verður fyrirpurnum ráðstefnugesta.