Morgunblaðið - 21.04.1990, Qupperneq 30
^30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990
AKUREYRI
ÚTIHURÐIR
Mikið úrvai. Sýningarhurðir á staðnum.
Tré-x búðin, Smiðjuvegi 30, s. 670777,
Brúnás, Ármúla 17, Rvík, s, 84585 og
84461, Tré-x, Iðavöllum 6, Keflavík, s.
92-14700, Trósmiðjan Börkur, Frosta-
götu 2, Akureyri, s. 96-21909.
Styrktartón-
Jeikar íAkur-
eyrarkirkju
AÐRIR styrktartónleikar fyrir
Minningarsjóð Þorgerðar S.
Eiríksdóttur verða haldnir í Akur-
eyrarkirkju í dag, laugardag og
heljast þeir kl. 17.30.
A tónleikunum munu nemendur
og kennarar Tónlistarskólans leika
verk eftir Bellmann, Corelli, Deb-
ussy, Hándel, J.S. Bach, Max Reger,
Uber og César Frank. Flutt verða
einleiksverk fyrir orgel, selló, bary-
ton, fiðlu og söngrödd, en einnig
kemur fram blásarakvintett.
Minningarsjóðurinn var stofnaður
árið 1973 og hefur hann það mark-
mið að styrkja efnilega nemendur frá
Tónlistarskólanum á Akureyri til
framhaldsnáms og hafa þegar yfir
20 nemendur hlotið styrk út sjóðnum.
Allt sem ég átti er ónýtt
og ég hef misst aleiguna
segir Elva Ágústsdóttir dýralæknir, eigandi hússins
„ÉG VAR að vinna úti í sveit, sem betur fer var ég ekki heima,“
sagði Elva Ágústsdóttir dýralæknir, en síðdegis í gær féll stór
og kröftug aurskriða á hús hennar við Aðalstræti 18 á Akur-
eyri. Skriðan færði húsið af grunninum og um tvo metra fram á
götuna. Þriggja ára gamall drengur var að hjóla á gangstéttinni
handan götunnar þegar fyrsta aurgusan fór af stað, en nágranni
náði að bjarga honum áður en aurinn spýttist yfir götuna. Næstu
hús sunnan við voru rýmd, þar sem hætta þótti á að fleiri skrið-
ur féllu.
Enginn var í húsinu þegar aur-
skriðan féll um kl. 17.30 í gær-
dag. Húsið, sem er hæð, kjallari
og ris, lyftist af grunninum er
skriðan féll á það og færðist það
fram um tvo metra út A^ötuna.
Aurskriðan var um 10 metra
breið. Hæðin hálffylltist af aur
er skriðan féll á húsið og gekk
aurinn út um glugga austan meg-
in, út á götu og lokaði henni.
Veður var afar gott á Akureyri í
gær, 10,5 stiga hiti, og mikil
hláka. í norðausturhorni kirkju-
garðs Akureyrar, sem er um 30
metrum ofan við húsið, var geysi-
mikið stöðuvatn og er talið líklegt
að það hafi fossað niður brekkuna
og spýtt jarðveginum fram með
fyrrgreindum afleiðingum.
Elva Ágústsdóttir, eigandi
hússins, sagði húsið ónýtt sem og
allt sem í því var. „Allt sem ég á
er ónýtt eftir þetta. Ég hef misst
aleiguna. Ég átti mikið af bókum,
svo var talsvert af málverkum
þarna inni, antikhúsgögn og fjöld-
inn allur af minjagripum sem ég
hef safnað að mér á ferðalögum
víðs vegar um heim. Þetta er til-
finnanlegt tjón,“ sagði Elva. Hún
bjó ein í húsinu og var hún að
störfum úti í sveit þegar skriðan
féli, en Elva er dýralæknir. „Ég
var úti í sveit að vinna þegar
hringt var í mig og mér sögð
tíðindin. Ég ætlaði í fyrstu ekki
að trúa þessu, þetta hús hefur
staðið hér í Aðalstrætinu frá árinu
1895, eða í tæp 100 ár, og mér
þótti óraunverulegt að heyra að
það hefði tekið sig upp og færst
úr stað. Mér brá mjög mikið að
sjá hvernig hér var umhorfs,"
sagði Elva.
I næsta húsi sunnan við hús
Elvu búa þær Lagrimas Flora
Valtýsson og Hellen Ducusin og
voru þær heima þegar skriðan
féll. „Eg var að sauma og heyrði
skyndilega mikinn hávaða og leit
þá út um gluggann. Þá sé ég jörð-
ina hreyfast, snjó og aur ryðjast
fram og niður brekkuna. Ég fraus
af hræðslu,“ sagði Hellen Ducus-
in. „Ég var inni í eldhúsi að baka,
þegar skriðan fór af stað, ég sá
hana koma æðandi niður brekk-
una og varð mjög hrædd. Ég
flýtti mér að taka frystikistuna
og ísskápinn úr sambandi og svo
hlupum við út til að forða okkur,
við vissum ekki nema skriða félli
á húsið okkar,“ sagði Lagrimas
Flora Valtýsson.
Þriggja ára gamall drengur,
Baldvin Dagur, var að hjóla á
gangstéttinni á móts við húsið í
þann mund sem fyrsta aurgusan
skall á húsinu. Drengurinn hljóð-
aði upp yfir sig af hræðslu og
nágranni, sem var skammt undan,
kom strax hlaupandi að og sá þá
hvað verða vildi. Náði hann að
bjarga barninu rétt áður en aur-
skriðan spýtti aurnum yfir göt-
una.
Húsið var rifið í gærkvöldi. Að
sögn Gunnars Randverssonar,
varðstjóra lögreglunnar, var
mælst til þess við fólk sem bjó í
næstu húsum sunnan við húsið
númer 18, að það yfirgæfi hús
sín um stundarsakir, eða fram til
dagsins í dag.
Lissy heldur tón-
leika í N-Þing’
KVENNAKÓRINN Lissy heldur
tvenna tónleika í Norður-Þing-
eyjarsýslu á laugardag.
Fyrri tónleikarnir verða í Skúla-
garði og hefjast þeir kl. 16. á laugar-
dag og hinir seinni verða í félags-
heimilinu á Raufarhöfn, en þeir hefj-
ast kl. 21. Kórinn er skipaður um
60 konum úr kvenfélögum í Þingeyj-
arsýslu.
Á efnisskránni eru kirkjuleg og
veraldleg kórlög, m.a. eftir Handel,
Pergolesi, Schubert, Pál ísólfsson,
Árna Thorsteinsson og Þorkel Sigur-
björnsson. Einsöngvarar eru þær
Þuríður Baldursdóttir og .Hildur
Tryggvadóttir, Guðrún A. Kristins-
dóttir leikur á píanó, en stjórnandi
kórsins er Margrét Bóasdóttir.
Kvennalistinn:
Valgerður Magnús-
dóttir í efsta sætinu
Morgunblaðið/SB
Sjálfboðaliðar hafa síðustu vikur unnið að endurbótum á félagsheimil-
inu Tjarnarborg í Ólafsfirði, en ætlunin er að taka húsið til gagn-
gerra endurbóta.
Ólafsfjörður:
Endurbætur á Tjarnarborg
NÚ ER verið að gera miklar endurbætur á félagsheimilinu Tjarnar-
borg. Húsið var tekið í notkun árið 1961 og er í eigu ÓlafsQarðarbæj-
ar og ýmissa félagasamtaka.
Áformað er að vinna við húsið
fyrir 4-5 milljónir króna og þar af
mun bæjarsjóður leggja fram 2,8
milljónír.
Fyrir nokkrum árum var salur á
efri hæð hússins endurgerður en
nú er ætlunin að gera gagngerar
endurbætur á aðalsal og veitingasal
á neðri hæð auk þess sem salernis-
aðstaða og anddyri verður lagað.
VALGERÐUR Magnúsdóttir sálfræðingur skipar fyrsta sæti á lista
Kvennalistans til bæjarstjórnarkosninganna á Ákureyri. Framboðslisti
ilokksins var birtur í fyrradag.
Gólf í sölum verða brotin upp og
sett verður á þau nýtt parket og
flísar. Innrétt.ingar verða endurnýj-
aðar í veitingasal og húsið málað.
í tengslum við sérstakt fegrunar-
átak hefur lóð félagsheimilisins ver-
ið skipulögð og er ætlunin að síðar
verði þar góð aðstaða til útisam-
komuhalds.
SB
Í 2. sæti iistans er Sigurborg
Daðadóttir, dýralæknir, Lára Ell-
ingsen, ritari í 3. sæti, Hólmfríður
Jónsdóttir, bókavörður i 4. sæti,
Gunnhildur Bragadóttir, sjúkraliði í
5. og Halldóra Haraldsdóttir, skóla-
stjóri í 6. í 7. sæti er Elín Stephen-
sen, kennari, Sigurlaug Arngríms-
dóttir, hjúkrunarfræðingur í 8., Elín
Antonsdóttir, nemi í 9. og Þorgerður
Hauksdóttir, kennari í 10. í 11. sæti
er Vilborg Traustadóttir, húsmóðir,
Rannveig Guðnadóttir, hjúkrunar-
fræðingur í 12. Guðrún Hallgríms-
dóttir, ritari í 13, Ragna Finnsdóttir,
setjari í 14., Aldís Lárusdóttir, nudd-
kona í 15., Olga Loftsdótfir, verka-
kona í 16., Jónína Marteinsdóttir,
verkakona í 17., Hilda Torfadóttir,
talkennari í 18., Stefanía Arnórsdótt-
ir, kennari í 19. Sigurlaug Skafta-
dóttir, málaranemi í 20. Guðný Gerð-
ur Gunnarsdóttir, safnvörður í 21.
og Valgerður H. Bjarnadóttir, fé-
lagsráðgjafi í 22. sæti.
K. Jónsson:
Einar Eyland
markaðsMltrúi
EINAR Eyland hefnr verið ráðinn
markaðsfulltrúi hjá niðursuðu-
verksmiðju K. Jónsson og Co.
Einar starfar sem framleiðslustjóri
í fatadeild Álafoss, en mun heija
störf hjá K. Jónsson í sumar. Fyrir-
tækið hyggst stofna eigin markaðs-
og söludeild sem annast mun sölu á
framleiðsluvörum þess, en eins og
áður hefur verið sagt frá í blaðinu
hefur fyrirtækið sagt sig úr Söjusam-
tökum lagmetis.
Kröftug aurskriða gjöreyðilagði hús við Aðalstræti:
^Grenivík:
Frystihúsið
í gangi um
helgidagana
MIKIL vinna hefur verið hjá frysi-
húsi Kaldbaks á Grenivík og var
unnið alla frídagana í dymbilviku
utan fbstudaginn lauga og á
páskadag. Vinna hófst kl. 6 að
morgni og var unnið fram á kvöld.
Starfsmenn unnu á sumardaginn
fyrsta en fengu frí í gær.
Sjöfn og Frosti komu að landi
skömmu fyrir páska, Sjöfn með 62 'A
tonn og Frosti með 90 tonn. Um 30
tonn af afla Frosta fór í gáma. Sjöfn
fór út í stuttan túr fyrir páskana og
Frosti var á veiðum yfir hátíðina.
Skólakrakkat' lögðu fram krafta
sína í fríinu svo unnt væri að vinna
allan þann afla sem borist hafði að
landi. __ ,
Haukur
Húsið gjöreyðilagðist, það hálffylltist af aur og allt innbú Elvu
er ónýtt, bækur, málverk, fiölmargir minjagripir og antikhúsgögn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Öflug aurskriða féll á húsið númer 18 við Aðalstræti seinni part-
inn í gær, grófst hún undir húsið og færði það um tvo metra út
á götuna. Húsið var talið gjörónýtt og var það rifið í gærkvöldi.