Morgunblaðið - 21.04.1990, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 21. APRIL 1990
51
SPANN
Kristján
ogTeka
á toppinn
KRISTJÁN Arason gerði þrjú
mörk og átti mjög góðan leik,
er Teka vann Barcelona 18:16
í fyrrakvöld. Teka tók þar með
forystu í deildinni, er með 39
stig, stigi meira en Barcelona,
en sjö umferðir eru eftir og á
Teka eftir þrjá erfiða útileiki,
gegn Caja Madrid, Atletico
Madrid og Sidasoa.
Gífurlegxir áhugi var á leik efstu
liðanna. 4.000 áhorfendur
troðfylltu höllina og 3.000 stóðu
fyrir utan. Leikurinn var mjög góð-
ur og voru yfirburðir
heimamanna meiri
en tölurnar gefa til
kynna. Gestirnir
komust reyndar I
3:1, en Teka var fjórum mörkum
yfir í hálfleik, 11:7, og náði mest
sex marka forystu, 13:7.
Mats Olsson átti frábæran leik í
marki Teka, fékk fjóra ása í ein-
kunn, sem er mjög sjaldgæft, og
var maður leiksins. Kristján, Melo
(6/2) og Ruiz (3) fengu allir þijá
ása. Hjá Barcelona fékk Vujovic (6
mörk) þijá ása, en Cerrano (7/5)
og Rico, landsliðsmarkvörður tvo
ása.
Teka leikur í undanúrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa og fer fyrri
leikur liðsins gegn Vezspren fram
í Ungveijalandi á morgun. Liðið
leikur síðandeildarleik ' amiðviku-
dag og seinni Evrópuleikinn eftir
viku.
Frá
Atla
Hilmarssyni
á Spáni
HANDKNATTLEIKUR / SPANN
Birgir Sigurðsson kominn framhjá Tútsjkin og skorar í landsleik gegn
Sovétmönnum. Leikur hann á Spáni næsta keppnistímabil?
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Heimsmeistaramir koma
Svíartaka þátt í sterku sex þjóða móti í Hafnarfirði
íjúní. Sjö leikmenn bætastvið Noregshópinn
HEIMSMEISTARARNIR íhand-
knattleik, Svíar, koma til ís-
lands í lok júní og taka þátt í
sterku sex þjóða móti í hand-
knattleik. Auk þeirra og íslend-
inga munu Vestur-Þjóðverjar,
Danir, Kúvaitbúar og líklega
Norðmenn taka þátt í mótinu
sem verður haldið í nýja
íþróttahúsinu í Hafnarfirði.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
við mótið verði um fimm millj-
ónir króna.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari íslands, segir að
þetta mót verði fyrsta skrefið í
tveggja ára áætlun fyrir B-keppn-
ina í Austurríki 1992. „Það er mjög
mikilvægt að leika gegn þjóðum á
borð við Dani, Norðmenn og Vest-
ur-Þjóðveija. Þetta eru sterkustu
b-þjóðirnar og auðvitað er einnig
gott að mæta Svíum," sagði Þor-
bergur.
Landsliðsþjálfarinn hyggst bæta
verulega við hópinn sem lék tvo
leiki við Norðmenn fyrir skömmu.
Meðal þeirra sem bætast í hópinn
eru Hrafn Margeirsson, Páll Guðna-
son, Einar Sigurðsson, og Magnús
Sigurðsson. Þá mun hann einnig fá
Geir Sveinsson, Jakob Sigurðsson
og Gunnar Gunnarsson en þessir
leikmenn voru ekki með í Noregs-
förinni.
„Stefnan er að gefa yngri leik-
mönnum tækifæri en ég mun samt
ræða við alla þá sem voru í heims-
meistarakeppninni og eru ekki í
þessum hópi og kanna hug þeirra
HANDKNATTLEIKUR
Alþjóðlegt félagsliðamót í haust:
Bidasoa til í slaginn
ALFREÐ Gíslason og sam-
herjar í Bidasoa á Spáni eru
spenntir fyrir íslandsferð í
haust. „í vetur bauð HSÍ fé-
laginu að taka þátt í móti
næsta haust og er mikill
áhugi fyrir því. Við höfum hins
vegar ekki heyrt neitt meira
um þetta, en ef af verður
munum við einnig leika á
Akureyri eða Húsavík til að
fá meira út úr ferðinni," sagði
Aifreð við Morgunblaðið.
Guðjón Guðmundsson hjá HSÍ
sagði að hugmyndin .væij að
haldá ’hiot með'þátttokú'fjÖ^hrrá1
erlendra liða og ijögurra
íslenskra. Því hefði verið haft
samband við nokkur félög og
nefndi hann sérstaklega „íslend-
ingaliðin" á Spáni, Bidasoa, Teka
og Granollers, og sovéska meist-
araliðið SKA Minsk, en með því
leikur m.a. stórskyttan Tútsjkin.
„Á þessari stundu vitum við
ekki hvernig mótafyrirkomulagið
verður næsta vetur og meðan svo
ei' getum við ekki fastsett þessa
keppni," sagði Guðjón.
Keppni í 1. deild á Spáni hefst
um miðjan september og sagði
Alfreð að heppilegasti tíminn fyr-
ir, spænsku liðin væri því um
máhaðhrmótin 'ág'ust - sé'þtember.
Biitjir á óska-
lista Bidasoa
til landsliðsins. Auk þess er ekki
útilokað að fleiri leikmönnum verði
bætt við hópinn,“ sagði Þorbergur.
íslenski landsliðshópurinn í mót-
inu verður því líklega skipaður eft-
irtöldum leikmönnum:
Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson
(FH), Leifur Dagfinnsson (KR), Berg-
sveinn Bergsveinsson (FH), Hrafn Mar-
geirsson (Víkingi) og Páll Guðnason
(Val).
Aðrir lcikmcnn: Jakob Sigurðsson
(Val), Valdimar Grímsson (Val), Bjarki
Sigurðsson (Víkingi), Gunnar Beinteins-
son (FH), Konráð Olavson (KR), Geir
Sveinsson (Granollers), Birgir Sigurðs-
son (Víkingi), Júlíus Jónasson (Racing
Asnieres), Héðinn Gilsson (FH), Sigurður
Sveinsson (Dortmund), Óskar Ármanns-
son (FH), Jón Kristjánsson (Val), Ólafur
Gylfason (ÍR), Magnús Sigurðsson (HK),
Einar Sigurðsson (Selfossi) og Gunnar
'Gunnarsson (Ystad).
KORFUBOLTI
Hoop leikur
fjóra leiki
Bandaríska úrvalsliðið Hoop frá
Boston kemur til íslands um helg-
ina og leikur fjóra leiki við íslensk lið.
í liðinu er Bandaríkjamenn sem vilja
leika í Evrópu.
Fyrsti leikurinn verður í dag, kl.
14, í Grindavík, gegn styrktu liði
heimamanna. Næsti leikurinn er svo
á Akureyri á mánudagskvöld, þar sem
liðið mætir sameiginlegu liði Þórs og
Tindastóls. Þessi lið mætast að nýju
á þriðjudaginn á Sauðárkróki.
Síðasti leikurinn verður svo í Laug-
ardalshöllinni á miðvikudagskvöld,
gegn íslenska landsliðinu, sem leikur
síðasta leik sinn undir stjórn Laszlo
Nemeths.
Með liðinu koma sex dansmeyjar
og munu þær styðja iiðið í leikjunum
■og að auki sýoa.á.lokaþófi’KKL sem
haldíð verður í Glym í kvöld.
Birgir Sigurðsson er ofarlega
á óskalista hjá spænska
handboltaliðinu Bidasoa, sem Al-
freð Gíslason leikur með. Félagið
vantar línumann og verði ákveðið
að leyfa iiðum að leika með þijá
erlenda leikmenn, er Birgir sterk-
lega inni í myndinni.
„Ég hef heyrt lauslega af
bessu, en félagið hefur ekki haft
samband við mig,“ sagði Birgir
aðspurður urn málið. „Það er svo
iangt í hugsanlega breytingu að
ég er ekkert að hugsa um betta,
heldur einbeiti rnér að því ad ijúka
dæminu með Víkingi.“
Félögum á Spáni er heimilt að
vera með tvo erlenda leikmenn
innan sinna raða, en að undan-
förnu hefur mikið veríð rætt um
að leyfa beri hverju féíagi að vera
með þijá erlenda leikmenn. Verið
er að kanna hug félaganna og eru
skoðanir skiptar, en máiið vei’ður
tekið fyrir í tengslum við bikarúr-
slitin á Spáni í júní.
KNATTSPYRNA
Ellert kjörinn
í stióm UEFA
ELLERT B. Schram, heiðurs-
formaður KSÍ, var kjörinn í
stjórn knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, á aðalfundi
sambandsins, sem fram fór á
Möltu ífyrradag. Formenn
knattspyrnusambanda á Bret-
landseyjum og Norðurlöndum
tilnefndu Ellert sem fulltrúa
sinn í nóvember s.l. Næsti að-
alfundur verður í Gautaborg
25. júní 1992.
Ellert var einn af varaformmönn-
um UEFA 1984 til 1986. Hann
hefur verið formaður eftirlitsnefnd-
ar leikvanga og í stjórn aganefndar.
Á fundinum var Svíinn Lennart
Johansson kjörinn formaður. Hann
sagðist styðja endurkomu enskra
liða í Evrópumótin næsta haust, en
stjórnin tæki málið fyrir í næsta
mánuði. „Það verður aldrei hægt
að útiloka ólæti 100% og við leysum
engan vanda með því að halda ensk-
um liðum utan mótanna,“ sagði
formaðurinn. Áfram verður unnið
að því að koma í veg fyrir ólæti og
í Evrópukeppninni 1996 verða ein-
göngu seldir miðar í sæti.
Færeyingar voru teknir formlega
inn í Evrópusambandið. ísrael átti
áheyrnarfulltrúa á fundinum og var
samþykkt að ísrael. fái að taka þátt
í Evrópumótum landsliða U-16,
U-18 og U-21.
Auk Ellerts voru Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ, og Elías Her-
geirsson, gjaldkeri sambandsins,
þingfulltrúar frá íslandi.
Laugardagur kl.13: w. w 55
''■imk <7) R I /IKA 21. i iprfl 1990 §i§ X 2
Leikur 1 C. Palace - Charlton
Leikur 2 Derby - Norwich
Leikur 3 Man. City - Everton
Leikur 4 Q.P.R. - Sheff. Wed.
Leikur 5 Southampton - Nott. For.
Leikur 6 Tottenham - Man. Utd.
Leikur 7 Wimbledon - Coventry
Leikur 8 Brighton - Leeds
Leikur 9 Oldham - West Ham
Leikur 10 Plymouth - Newcastle
Leikur 11 Sunderland - Portsmouth
Leikur 12 Swindon - W.B.A.
Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá : LUKKULÍNUNNI s. 991002
P •refald ur pottur II iil
Framherji óskast
Knattspymufélagið SÍF í Færeyjum vantar fram-
herja til að leika með félaginu á keppnistímabilinu
sem nú er að hefjast.
Liðið leikur í 1. deild og á eigin gervigrasvöll.
Upplýsingar gefa Vignir Baldursson þjálfari í
síma 90 298 33368 og Jóhannes Nilsen í síma
90 298 33361 í Færeyjum.