Morgunblaðið - 01.08.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
Bandaríski ísbrjóturinn Polar Sea, sem kemur hingað til lands í dag.
Viðurkenningar til ís-
lenskra skipafélaga
BANDARÍSKA strandgæsluskipið Polar Sea, sem er 13 þúsund tonna
ísbrjótur, kemur til Islands í dag í þriggja daga heimsókn og leggst
að bryggju í Keflavíkurhöfn. A meðan á dvöl þess stendur verða
ijögur íslensk skipafélög heiðruð fyrir stuðning þeirra við svokallað
AMVER-kerfi bandarisku strandgæslunnar, eða sjálfvirkt kerfi gagn-
kvæmrar aðstoðar við björgun skipa.
Um borð í skipinu í kvöid taka að kaupskip senda inn siglingaáætl-
fulltrúar frá ísskipum, Skipadeild
Sambandsins, Eimskipafélagi ís-
lands og Jöklum hf. á móti viður-
kenningum fyrir hönd samtals átta
skipa, sem tekið hafa þátt í AM-
VER-kerfinu. Kerfið byggir á því
anir og skýrslur um staðsetningu
og komutíma tii bandarísku strand-
gæslunnar. Þegar um neyðartilfelli
á sjó er að ræða er björgunarsveit-
um send skrá yfir þau skip, sem
ferð eiga um viðkomandi svæði.
Bj örgxuiametið Markús
er selt til sextán landa
t >
„VIÐ SELDUM um 200 Markúsarnet í fyrra og ég reikna með að
salan verði þrisvar til fjórum sinnum meiri í ár en í fyrra,“ sagði
Pétur Th. Pétursson, framkvæmdastjóri Björgunarnetsins Markúsar
hf. Pétur sagði að fleiri net hefðu verið seld í ár en á öllu síðast-
liðnu ári og erlendir aðilar keyptu nú meirihlutann af framleiðsl-
unni. Hann sagði að Markúsarnet hefðu verið seld til 16 landa, til
dæmis Óman, Astraliu, Bandaríkjanna og Kanada, og nú væri skylda
að hafa netin í íslenskum, dönskum, færeyskum og grænlenskum
fiskiskipum.
Pétur Th. Pétursson sagðist vera
kominn með umboðsmenn fyrir
Markúsarnetið víða um heim. Hann
sagði að markaðurinn fyrir björgun-
amet væri mjög stór, þar sem fiski-
skip stærri en 100 tonn væru um
200 þúsund talsins í heiminum og
kaupskip um 17 þúsund. Þá væru
til dæmis breskir smábátar um ein
og hálf milljón talsins og sænskir
skemmtibátar um 300 þúsund.
„Við værum vel settir með 10%
af markaðinum á Vesturlöndum.
Við höfum fengið einkaleyfi í þó
nokkuð mörgum löndum og Danir
hafa lagt til að þess verði krafist
að björgunarnet verði í öllum fiski-
skipum Evrópubandalagsins árið
1992. Undirbúningsvinnan hefur
kostað á þriðja tug milljóna en iðn-
aðarráðuneytið, sjávarútvegsráðu-
neytið og Iðnlánasjóður hafa styrkt
okkur til þessa verkefnis, auk þess
sem til dæmis björgunarsveitir hafa
aðstoðað okkur við að þróa netið,“
sagði Pétur.
Hann sagði að framleiddar væru
tvær tegundir af Markúsarnetum,
annars vegar stór net fýrir skip og
hins vegar lítil net fyrir hafnir og
litla báta en Markúsarnet væru
komin í langflestar hafnir á landinu.
„Stóru netin kosta um 40 þúsund
krónur en þau litlu um 30 þúsund
krónur. Stóru netin eru hins vegar
okkar aðalvara en með netunum
fylgir 12 blaðsíðna fræðsluhefti um
björgun."
Pétur sagði að Markúsárnetið
væri viðbót við önnur björgunar-
tæki en kæmi ekki í staðinn fyrir
þau. „Siglingamálastjóri stóð fyrir
kynningu á Markúsarnetinu í aðal-
stöðvum Alþjóðasiglingamálastofn-
unarinnar í London í maí síðastliðn-
um, þegar þar var haldinn fundur
nefndar, sem setur alþjóðareglur
um öryggi á hafinu, en fundinn
sóttu um 320 manns frá um 60
löndum. Viðbrögðin voru mjög já-
kvæð og mönnum þótti netið vera
merk nýjung,“ sagði Pétur.
Hann sagði að netið yrði einnig
kynnt á sjávarútvegssýningunni,
sem haldin verður í Laugardalshöll
í september næstkomandi.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 1. ÁGÚST
YFIRLIT f GÆR: Um 800 km suðsuðvestur af Vestmannaeyjum
er 992ja mb lægð á hreyfingu norðaústur.
SPÁ:
Norðaustankaidi eða stinningskaldí á annesjum vestanlands, en
annars staðar austan og suðaustan gola eða kaldi. Súld eða smá-
skúrir á Suðausturlandi og norður með austurströndinni og senni-
lega norðantii á Ströndum. Síðdegisskúrir á stöku stað suðvestan-
lands. Hiti á biiinu 9 til 17 stig
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAQ: Vestan- og norðvestanátt með skúra-
veðri vestanlands og við norðurströndina, en björtu veðri á Aust-
ur- og Suðausturlandi.
HORFUR Á FÖSTUDAG:Sunnan- og suðvestanátt um mest allt
land. Rigning og síðar skúraveður vestanlands, en úrkomulítið og
öliu bjartara veður um landið austanvert. Hiti á bilinu 10 til 18 stig
báða dagana.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að f$l, tíma
hlti veður
Akureyri m alskýjað
Reykjavik 16 skýjað
Bergen 17 skýjað
Helsinki 20 skýjað
Kaupmannahöfn 23 léttskýjað
Narssarssuaq 12 heiðskírt
Nuuk 9 léttskýjað
Óstó 24 skýjað
Stokkhólmur 19 skýjað
Þórshöfn 15 skúr
Algarve 29 heiðskírt
Amsterdam 25 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Berlín 25 léttskýjað
Chteago 16 léttskýjað
Feneyjar 26 skýjað
Frankfurt 28 iéttskýjað
Glasgow 19 skýjað
Hamborg 25 hálfskýjað
Laa Palmas 26 léttskýjað
London 26 skýjað
LosAngeles 17 léttskýjað
Lúxemborg 27 hólfslöfjað
Madrid 32 heiðakírt
Malaga 29 helðskírt
Mallorca 29 féttskýjað
Montreal 22 skúr
NewYork 23 léttskýjað
Orlando 26 heiðskirt
París 30 léttskýjað
Róm 28 skýjað
Vfn 29 heiðskírt
Washington 24 skúr á sfð. klst
Winnipeg 11 helðskfrt
Atvinnumálanefnd Akureyrar:
Tomas Ingi til verk-
eftia er tengjast álveri
TOMAS Ingi Olrich, mennta-
skólakennari á Akureyri, hefur
verið ráðinn til að sinna tíma-
bundnum verkefnum, fyrir hönd
atvinnumálalanefndar Akur-
eyrar, er tengjast álveri í Eyja-
firði.
Sigurður P. Sigmundsson, for-
stöðumaður Iðnþróunarfélags Eyja-
íjarðar, sagði að stefnt væri að því
af hálfu stjórnvalda að undirrita
bráðabirgðasamning við Atlantal-
hópinn 20. september nk. og væri
því komið að endasprettinum í
þessu máli. Tómas Ingi ætti að
starfa í samvinnu við Iðnþróunarfé-
lagið sem aftur starfaði fyrir hér-
aðsnefnd Eyjafjarðar en hún væri
formlegur viðræðuaðili við stjóm-
völd um þessi mál.
Á vegum sveitarfélaga á Suður-
nesjum hefur um nokkurt skeið
starfað Samstarfshópur um stóriðju
sem Oddur Einarsson, fyrrum bæj-
arstjóri í Njarðvík veitir forstöðu.
Þriðji staðurinn sem kemur til
greina varðandi staðsetningu álvers
er Reyðaríjörður. Hörður Þórhalls-
son, sveitastjóri á Reyðarfirði sagði
Reyðfirðinga ekki hafa tekið neina
ákvörðun um að ráða mann til
kynningarstarfa. Átti hann síður
von á að það yrði gert.
Stöð 2:
Tónleikar Madonnu sýnd-
ir í beinni útsendingu
STOÐ 2 mun sýna í beinni útsendingu tónleika með söngkonunni
Madonnu, sem haldnir verða í Barceiona á Spáni í kvöld, miðvikudags-
kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og eiga að vera 110 minútna
langir, að sögn Jónasar R. Jónssonar dagskrársljóra Stöðvar 2.
Jónas R. Jónsson sagði að Stöð 2
hefði verið boðið að sýna tónleika
Madonnu með mjög skömmum fyrir-
vara, eða síðastliðinn mánudag. Tón-
leikarnir verða í læstri útsendingu
en þeim verður einnig útvarpað á
Stjörnunni, FM 102. Fyrirtækin
Steinar hf. og Eva-Gallerí styrkja
útsendinguna. „Það er vonlaust að
gera þetta án þess að fá kostun, þar
sem útsendingin kostar hundruð
þúsunda króna fyrir utan alla
vinnu,“ sagði Jónas.
Yerðlækkun á blómkáli og
sveppum fram að helgi
SÉRSTAKT verslunarmanna-
helgartilboð verður á blómkáli
Trilla dreg-
in til hafnar
TILKYNNT var um bilaða vél í
triilunni Sæsmala RE klukkan
2.30 aðfaranótt þriðjudags en
trillan var þá við Kjalarncs.
Björgunarbáturinn Jón E. Berg-
sveinsson dró trilluna til hafnar í
Reykjavík og voru bátarnir komnir
þangað um klukkan 4.30 um nótt-
ina. Þrennt var um borð í trillunni
en ekkert amaði að þeim, að sögn
Tilkynningaskyldunnar.
og sveppum frá Sölufélagi garð-
yrkjumanna fram að helgi.
Blómkálið lækkar um þriðjung
en minni verðlækkun er á
sveppum.
Að sögn Níelsar Marteinssonar
sölustjóra hefur rrtlkið af blómkáli
komið á markaðinn og er verðið
lækkað til að reyna að örva söluna.
Heildsöluverð á blómkáli lækkar
um 101 krónu í dag, úr 299 í
198. Algengt útsöluverð úr búð
gæti orðið eftir lækkun 310-320
krónur kílóið.
Sveppirnir lækka úr 429 í 370
krónur kílóið og smásöluverðið
gæti orðið 590 til 600 krónur kíló-
ið.