Morgunblaðið - 01.08.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
9
Innilegar þakkir ykknr, sem glöddu mig á
nírœðisafmœli mínu og þér, Jón minn, Matti
og Lína, fyrir umhyggju ykkar og umönnun.
Megi sól hamingjunnar lýsa ykkur öllum um
ókomin ár.
Jóney M. Jónsdóttir.
w-
Þú getur greitt
spariskírteini
ríkissióðs
140 Greiddar atvinnuievsisbætur
98|
891
jan.
Greiðslur til atvinnulausra janúar-júni 1990: 660
milljónir króna (485 m.kr. á sama tíma 1989).
Tveir milljarðar í at-
vinnuleysisbætur 1990
Aætlun Atvinnuleysistryggingasjóðs
stendur til þess að greiddir verði tæpir
tveir milljarðir króna í atvinnuleysisbætur
í ár. A skortir tekjur sjóðsins 846 m.kr.
í áætlaðar og lögbundnar greiðslur til
atvinnulausra.
Orð og efndir
Stefnuyfírlýsing ríkis-
stjómar Steingríms Her-
mannssonar [28. septem-
ber 1988] leggur áherzlu
á nokkrar meginheit-
strengingar: „að treysta
atvinnuöryggi í Iandinu “,
„bæta atkomu atvinnu-
vegaima “, „bæta lífskjör
hinna tekjulægstu“ og
„framfylgja árangurs-
ríkri byggðastefnu".
Arið, sem í hönd fór
[1989], var í senn mesta
gjaldþrotaár og mesta
atvinnuleysisár síðustu
tveggja áratuga. Kaup-
máttur landverkafólks í
ASÍ rýmaði um 10% frá
fyrsta ársQórðungi 1989
til jafnlengdar 1990. Og
stijálbýlið hefur sjaldan
sætt meiri byggðaröskun
en síðustu misseri.
Atvinnuleysi 1990
mælist jafnvel enn meira
en 1989; sjá meðfylgjandi
samanburðartöflu um
greiddar atvinnuleysis-
bætur á fyrstu sex mán-
uðum þessara tveggja
ára.
2.900
atvinmilausir
Islendingar
Fjöldi Islendinga
stundar um þessar mund-
ir, sem oft áður, atvinnu
[og nám[ erlendis. Þrátt
fyrir það er gert ráð fyr-
ir því í áætlunum At-
vinnuleysistrygginga-
sjóðs að nálægt 2.900 ein-
staklingar á vinnualdri
verði að jafhaði atvinnu-
lausir í mánuði hveijum
1990. Það er meira at-
vinnuleysi en mælst hef-
ur hér á landi síðastliðin
tuttugu ár, eða frá því
að farið var að skrá það
með svipuðum hætti og
nú er gert.
Atvinnuleysi er mis-
munandi eftir mánuðum.
Fjöldi atvinnulausra var
tæplega Qögur þúsund í
janúarmánuði sl. Hann
var yfír tvö þúsund í
sumarönnum júnímánað-
ar og hefur ekki áður
verið meiri á þeim
árstíma.
AætUuiir gera ráð fyr-
ir að greiðslur úr At-
vinnuleysistrygginga-
sjóði til atvinnulausra
verði um 1.929 m.kr. á
þessu ári. Greiðslur til
sjóðsins nema á hinn bóg-
hm aðeins 1.083 m.kr.
Þá vantar 846 rn.kr. til
að standa við áætlaðar
og lögbundnar atvinnu-
leysisbætur.
Gengið
á eignir
Sem kunnungt er hef-
ur þann veg verið búið
að atvinnuvegunum
næstliðin ár, ekki sizt
atvinnugreinum sem bú-
seta í stijálbýli grund-
vallast á, að þær hafa
sætt viðvarandi tapi,
gengið á eignir og safnað
skuldum. Einka- og sam-
vinnufyrirtæki liafa ver-
ið knúin til samdráttar,
sem ýtt hefúr undir en
ekki eytt atvinnuleysi, á
sama tima og ríkisbú-
skapurinn hefúr haldið
áfram að tútna út á
kostnað skattgreiðenda
og með vaxandi ríkis-
sjóðshalla og -skuldum.
Nú er svo komið fyrir
Atvinnuleysistrygginga-
sjóði að liami á vart ann-
an kost en að ganga á
eignir sínar.
Eignir Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs voru um
sl. áramót nálægt- 1.450
m.kr., mestpart í verð-
bréfum, einkum í bréfum
Byggingarsjóðs rikisins.
Trúlegt er að ríkið verði
að leysa til sín bréf í eigu
sjóðsins, eða hlaupa und-
ir bagga með beinu ríkis-
framlagi, ef sjóðurinn á
að geta staðið við áætl-
aðar og lögbundnar
greiðslur til atvinnu-
lausra. Leysi rikissjóður
til sín bréf hans [1.450
m.kr.] og gangi andvirðið
að hluta til upp í áætlað-
ar greiðslur umfram
telqur [850 m.kr.] rýmar
varasjóðurinn í 600 m.kr.
Það væri því illt i efhi
ef sú framvinda í at-
vimiumálum, sem ein-
kennt hefúr feril „félags-
hyggjustjórimr" A-
flokka, Framsóknar- og
Borgaraflokks næði
fram á komandi ár, 1991.
Þetta stóra vandamál
lilýtur að setja svip á við-
ræður verkalýðshreyf-
ingarinnar við ríkisvald-
ið.
Ríkisstjómin
erfiðasta
vandamálið
Rétt áður en „huldu-
fólksstuðningur" Borg-
araflokksins við ríkis-
stjórnina varð að tveimur
ráðherrum [11 ráðherrar
í stað 9] mældist sljómar-
fylgið 30% í skoðana-
könnun. Fylgi Borgara-
flokksins mældist á sama
tima vel innan við 1%.
Með því að draga það
pólitíska hornsili upp á
dekk stjómarskútunnai',
sem var létt verk o.s.frv„
tryggði minnihluti þjóð-
arinnar sér meirihluta á
Alþingi.
Eftirleikinn þekkir
þjóðin. Veruleikinn, sem
áætlanir Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs sýna
svartan á hvítu, er aðeins
hluti „uppskemnnar".
Eftirleikurinn spannar
sem fyrr er rakið fjölda-
gjaldþrot einstaklinga og
fyrirfækja, samdrátt í
verðmætasköpun og lífs-
kjömm og meiri fólks-
flótta úr stijálbýli en oft-
ast áður.
Hækkandi verð sjávar-
vöm á erlendum mörk-
uðum og þjóðarsátt, sem
aðilar vinnumarkaðarins
knúðu fram til að hemja
verðbólgu, hafa forðað
þjóðarbúinu frá enn
stærri vanda en orðinn
er. En jafhvel í þjóðar-
sáttinni hefur ríkis-
sljómarklúðrið verið erf-
iðasta vandamálið.
í áskriít með
greiðslukorti
Áskriftar- og þjónustusímar:
91-62 60 40 og 91-69 96 00
Metsölublað á hverjum degi!
S J Ó Ð U R 5
Viltu njóta öiyggis og
eignarskattsfrelsis á sparifé þínu
- auk ágætra raunvaxta?
Þá er Sjóður 5 valkostur fyrir þig. Hann fjárfestir ein-
göngu í verðbréfum með ábyrgð Ríkissjóðs Islands;
spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisvíxlum og húsbréfum.
Sjóðsbréf 5 eru undanþegin eignarskatti og þú nýtur
öruggra raunvaxta.
Sjóður 5 hóf göngu sína 12. júlí 1990.
Verið velkomin í VÍB.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26