Morgunblaðið - 01.08.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
13
F erðalag með Kjarval
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Kjarval var einn þeirra sem lifðu
á mörkum draums og veruleika og
verður eftirminnilegastur fyrir
drauminn sem hann miðlaði okkur,
það sem fáir sjá berum augum, er
varla af þessum heimi.
Þetta kemur glöggt fram í Vöku-
nótt fuglsins eftir Matthías Johann-
essen, útg. Almenna bókafélagið
1990, en í þeirri bók eru á einum
stað tvær bækur: Svo kvað Tómas
(2. prentun) og Kjarvalskver (3. út-
gáfa), báðar með viðaukum. Vöku-
nótt fuglsins er 5. bindi í heildarútg-
áfu Almenna bókafélagsins á verkum
Matthíasar Johannessen.
í inngangsorðum Vökunætur
fuglsins skrifar Matthías að Kjarv-
alskver sé „ólíkt öðrum samtalsbók-
um að allri gerð. Það er lýsing mín
á Kjarval einsog ég upplifði hann
í daglegri önn og hversdagslegu
basli“.
Þeir sem kynntust Kjai-val finna
hann aftur í samtölum Matthíasar.
Vissulega gat veröld hans verið
hversdagsleg, jafnvel fáránleg,
enda kemur það fram í samtölunum
að viðbrögðin eru oft í anda manns
sem hefur ofnæmi fyrir öllu saman.
Hafi menn eitthvað á móti því
að forvitnast um einn helsta listmál-
ara íslendinga er Kjarvalskver
líklega ekki rétta bókin fyrir þá,
en hún er engu að síður ein merk-
asta heimildin sem til er um Kjarv-
al. Fleiri en hann koma við sögu
og smámyndir af þeim eru hluti
heildarinnar. Svo má heldur ekki
gleyma höfundinum sjálfum sem
frá upphafi ritferils síns hefur verið
haldinn þeirri ástríðu að læra að
þekkja og skilja „verðmætt" fólk,
„ferðast inní hugsun þess og hug-
myndir og lýsa því landslagi sem
kæmi fyrir sjónir á ferðalaginu“.
Eins og ljóst má vera átti Kjarv-
al sínar erfiðu stundir, en það birti
líka í kringum hann og stundum
voru það óvenju björt leiftur. Til-
svör hans i Kjarvalskveri eru ekki
bara hnyttin heldur líka gædd
skáldlegu lífi. Stundum storkar
hann umhverfinu eða snýr baki við
því og leitar þá inn í sjálfan sig.
Að því er vikið oftar en einu sinni
að hann var mikið fyrir að gefa og
gleðja. Þetta var grundvallarþáttur
í fari hans. Þeir eru ófáir sem nutu
gjafmildinnar og margir eflaust
*
Arstíðirn-
arásumar-
tónleikum
ÞRIÐJA tónleikahelgi Sumartón-
leika í Skálholtskirkju hefst á
laugardag. Flutt verður ein skær-
asta perla tónbókmnntanna, Árst-
íðirnar eftir Antonio Vivaldi.
Skiptist verkið í fjóra aðalkafla;
vor, sumar, haust og vetur.
Flytjendur verða Bach-sveitin í
Skálholti og Ann Wallström leikur á
einleik a fiðlu. Ann kemur nú hingað
til lands í áttunda skiptið en hún
hefur verið konsertmeistari Bach-
sveitarinnar frá stofnun hennar árið
1986. Einleikur á sembal verður
einnig á dagskrá þessa helgi og mun
Helga Ingólfsdóttir flytja verk eftir
Johann Sebastian Bach og Leif Þór-
arinsson. M.a. mun hún frumflytja
sónötu eftir Leif en sónatan er hug-
leiðing um mynd Gunnars Arnar
Gunnarssonar, Ferðalag inn í ævin-
týri. Um þessar mundir stendur yfir
sýning á verkum Gunnars í Sumar-
hótelinu í Skálholti.
Tónleikarnir eru á laugardögum
klukan 15 og 17, sunnudögum klukk-
an 15 og að þessu sinni verða einnig
tónleikar á mánudaginn klukkan 15
enda um verslunarmannahelgi að
ræða.
Við messu klukkan 17 á sunnu-
daginn veða flutt atriði úr efnisskrá
helgarinnar. Aðgangur er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
óverðugir. Hann vildi hlúa að og
gleðja hvern einstakling jafnt sem
þjóðina alla.
Þegar Kjarval hefur, að ósk
Matthíasar, lokið við að teikna há-
tíðarforsíðumynd Morgunblaðsins í
tilefni 15 ára afmælis lýðveldisins
(á hvítan umbúðapappír inni í
leigubíl, myndefni m.a. blóm og
þröstur), segir hann:
„Þetta ætti að duga, góði, segir
hann ánægður, það tilkynnist yður
hér með. Farðu með myndina til
fólksins. Skilaðu þökk minni fyrir
vinnustund. Látið blómin tala og
þrestina syngja. Við skulum ekki
vera að tvínóna við þetta, herra
Matthías, ég er ekki að gefa fólkinu
annað en það, se'm það á hjá
mér . . .“
Spurningunni um hvort hann sé
meistari svarar hann ekki út í hött
eins og hún getur gefið tilefni til
heldur neitandi:
„en ég er alltaf að leitast við að
sanna mér að meistarinn hafi rétt
fyrir sér. Ég er ekki meistari sjálf-
ur, ég er fjósamaður hans . . .“
Meðal þess harmræna í Kjarvals-
kveri (gáskinn og kátínan ráða ekki
alltaf ferð) er frásögn af samskipt-
um þeirra Kjarvals og Tove, konu
hans, ekki síst draumur hennar sem
rætist með táknrænum hætti þegar
Kjarval sendir henni í veikindum
hennar málverkið Reginssund.
Þessi hluti bókarinnar dýpkar hana
mjög, leiðir hugann að því hvernig
staðreyndir og skáldskapur fléttast
löngum saman í samtalsbókum
Matthíasar. Eilífð og dul eru til
dæmis endurtekin minni í Kjarvals-
kveri.
„. . . Samtöl eru harla kröfu-
hörð; jafnvel miskunnarlaust list-
form með köflum, þótt ánægjan
yfirskyggi erfiðið að verki loknu.“
Þetta stendur í inngangsorðum
Vökunætur fuglsins og líka það að
Kjarvalskver sé líklega erfiðasta
verkefni höfundar af þessu tagi.
Það er með ólíkindum hve vel
hefur tekist að ná samræðulist
Kjarvals og það án allra hjálpar-
tækja annarra en minnisins. Ég
nefni þættina úr Þingvallaferð,
vinnustofurabb (við Austurstræti
og Sigtún) og einræðurnar á sjúkra-
húsinu að lokum þegar „eilífðin
breiðir út faðminn sinn djúpa“.
Samtöl eru sjaldan listform nú
orðið þótt ýmislegt sé vel gert og
sumt afburðavel. Fæst samtöl skilja
þó eitthvað eftir og fá eiga erindi
í bók. Samtöl Matthíasar eru í nán-
Kjarval
um tengslum við hans eigin skáld-
skap og um leið mikilvæg samtíma-
sasra.
MUNAR ÞIG UM 340.000.- krónur?
Brimborg hf. hefur náð samningum við VOLVO um að sérsmíða þessa glæsilegu og ríkulega
útbúnu lúxusbifreið fyrir íslenskan markað. Við köllum bifreiðina VOLVO 740 GLTi þar sem hún
er byggð á VOLVO 740 GLi og síðan útbúin öllum þeim aukabúnaði sem prýðir VOLVO 740 GLT.
Einnig er í bifreiðinni búnaður sem pantaður er sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður.
Aukabúnaður er m.a.:
mmm Sjálfskipting
mmm Læsivarið "ABS" hemlakerfi
mtm Læst drif (auðveldar vetrarakstur)
mm Álfelgur
mm VOLVO hljómflutningstæki með fjórum hátölurum
mm Pluss innrétting
am Upphituð sæti
■rSamlæsing á hurðum
■rRafdrifnar rúður og speglar
Þessi búnaður gerir bifreiðina bæði öruggari og margfalt þægilegri í akstri við hvers konar
aðstæður. Þaðsem kemur hvað mestáóvart, við jafn vel útbúna bifreiðog hér um ræðir, ertvímæla-
laust mjög hagstætt verð: kr. 2.069.000 stgr. á götuna.
Þettafrábæra verðfékkst aðeins átakmarkað magn og með þvíað panta allan aukabúnaðinn íeinu
lagi. Sem dæmi má nefna aö þetta verð er 340.000 krónum hagstæðara en verð á VOLVO 740 GLi
sem keypturyrði meðsamaaukabúnaðisamkvæmtverðlista. Viðhvetjumeinnigtil verðsamanburðar
við aðrar bifreiðar með sambærilegum búnaði.
VOLVO
— Bifreið sem þú getur treyst!
Kynnið ykkur glæsilega bifreið á einstöku verði.
Brimborg hf.
Faxafeni 8, sími 685870