Morgunblaðið - 01.08.1990, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
PAeOgUMMfcll’
PAL/ MESECAM ;
SSÍSÍ^IiSÍiijÍfiHÍ
■
Metsölublað á hverjum degi!
Höfundur er einn afþingmönnum
Sjálfstæilisflokksins í
Reykjaneskjördæmi.
HANZ
Ongþveiti í hús-
næðismálum
eftir Hreggvið
Jónsson
Hreggviður Jónsson
„Félagsmálaráðherra,
Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, hefur tekist að mis-
muna æ fleiri húsbyggj-
endum með hverjum
deginum, sem hún hef-
ur setið á valdastóli.“
lengingu laga um húsnæðisbætur
til þeirra húsbyggjenda, sem hefðu
öðiast rétt til húsnæðisbóta fyrir
14. júní 1989, en þá voru lögin um
vaxtabætur birt í Stjórnartíðindum,
en þau_ tóku gildi 15. nóvember
1989. Átti þessi framlenging að
gilda til ársins 1995, svo þeir hús-
byggjendur, sem í góðri trú hefðu
reiknað með þessum bótum, væru
ekki sviknir af ríkisstjórninni, eins
og raunin varð. Ekki heyrðist í þing-
mönnum annarra flokka við um-
ræðu um þetta frumvarp og félags-
málaráðherra sá ekki ástæðu til að
ómaka sig í þingsal við umræðu
málsins. Það grundvallaratriði í
skattarétti, að skattar séu ekki
hækkaðir eða skattþegnum íþyngt
með afturvirkum hætti var brotið
með lögunum um vaxtabætur nr.
79/1989 og með lögum nr.
117/1989, þar sem ákveðin var ný
og þrengri skilgreining á vaxta-
gjöldum ársins 1989, hvað varðar
áfallnar verðbætur af yfirteknum
lánum af húsnæðisviðskiptum. Af-
greiðsla frumvarpsins var síðan
stöðvuð í fjárhags- og viðskipta-
nefnd neðri deildar af stuðnings-
mönnum ríkisstjórnarinnar.
Félagsmálaráðherra tekur
menn fram fyrir í biðröðinni
Með ótal breytingum á lögum
um húsnæðismál á þessu kjörtíma-
bili hefur félagsmálaráðherra mis-
munað fólki stórlega eftir því inn í
hvaða kerfi þeir eru og með því
tekið menn fram fyrir í biðröðinni.
Harðast bitnar þetta á þeim, sem
byggja sjálfir og hafa með ráðdeild
og spamaði orðið sér úti um eigið
fé. Vegið er með rótum sjálfseignar-
stefnunnar í húsnæðismálum. Með
ýmsum breytingum á skattalögum
er núverandi ríkisstjórn að koma á
frekari rniðstýringu í húsnæðismál-
um, en nú er. Þar ganga vængstífð-
ir krataleiðtogar fremstir í flokki,
þeir vita sem er að fijálsbornir
menn kjósa ekki krata. Nýfélags-
hyggja þessarar ríkisstjórnar í hús-
næðismálum stefnir að því, að mis-
muna fólki sem mest. Lama skal
frumkvæði einstaklingsins til að
bjarga sér sjálfur. Enginn má
standa öðrum fremri, né eignast
með sparnaði eða harðri vinnu
meira en sá sem lakar stendur sig,
allt skal jafnað út.
Þessa dagana eru menn senn að
taka á móti skattseðlunum, sem
berast inn úr dyragættinni. Margir
munu þá fyrst átta sig á því, að
vaxtaafslátturinn hefur verið strik-
aður út og þeir njóta heldur ekki
vaxtabóta vegna húsakaupa eða
húsbygginga. Þá fá fjölmargir nú
lægri greiðslu, en samkvæmt eldri
lögum. Ofan á þetta allt bætist, að
biðin í húsnæðiskerfinu lengist
sífellt og með margs háttar skatta-
og lagabreytingum er fólki mismun-
að með æ fleira móti.
Félagsmálaráðherra
mismunar fólki
Félagsmálaráðherra, Jóhönnu
Sigurðardóttur, hefur tekist að mis-
muna æ fleiri húsbyggjendum með
hveijum deginum, sem hún hefur
setið á valdastóli. Það fólk, sem
taldi að það gæti treyst lagasetn-
ingu Alþingis í húsnæðismálum og
keypti það eða.hóf byggingu íbúðar-
húsnæðis með þau lög að leiðar-
Ijósi, sem giltu áður en núverandi
félagsmálaráðherra fór að hræra í
þeim, hefur verið svikið illilega af
núverandi ríkisstjórn. Sú ríkisstjórn
nýtur óbilandi stuðnings þing-
manns, eins og Alexanders Stefáns-
sonar.
Verkalýðshreyfingin sefur
Það er athyglisvert, að verkalýðs-
hreyfingin hefur sofíð værum
blundi, hvað varðar húsnæðislána-
kerfið, þar til nú á dögunum, að
miðstjón ASÍ lét í sér heyra um
þessi mál. Margir eru þeirrar skoð-
unar, að ítök verkalýðsleiðtoga Al-
þýðuflokksins og Alþýðubandalags-
ins innan ASÍ skýri þennan þyrni-
rósarsvefn. Og ekki má gleyma
tveimur þingmönnum Alþýðu-
flokksins í forystusveit ASÍ, sem
styðja ríkisstjórnina við öll tækifæri
í atkvæðagreiðslum á Alþingi.
Frumvarp um framhald
húsnæðisbóta stöðvað
Á það má minna nú að síðastlið-
ið vor fluttum við Geir H. Haarde
ásamt fleiri þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins frumvarp um fram-
PHILlPS
Fullkominn
íslenskur
leiftarvísir
fylgir.
-
Glæsilegt tæki, þægilegt í notkun
og Mt af nýjungum
Við framleiðslu myndbandstækja hefur Philips tvennt að leiðarljósi;
Að bjóða þér hágæða tæki, búið ölium fulikomnustu tækninýjungum
en samt svo einfalt og þægilegt í notkun að það þjóni þér fyrirhafnariaust.
Einfalt og fullkomið.
- Engin furða að Philips myndbandstæki hafa slegið í gegn.
PHILIPS
■
PHILIPS VR 6349 HO (High Quality)
tryggir fullkomin myndgæði. ,
Skýr kyrrmynd án hljóðs.
Hægur hraði.
Leitarhnappur.
Fullkomin sjálfvirkni í gangsetningu,
endurspólun og útkasti á snældu.
Sjálfvirk endurstilling á teljara.
♦ Fjarstýring á upptökuminni.
♦ 365 daga upptökuminni.
♦ Upptökuskráning í minni samtímis fyrir 8
dagskráratriði.
♦ Sextán stöðva sjónvarpsmóttakari.
e Innrauð fjarstýring.
♦ 20 mínútna öryggisminni.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI69 1515 ■ KRINGLUNNI SÍMI69 15 20
f/íd e/umsSveúya/éegA í SamuH^uftv