Morgunblaðið - 01.08.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
17
Oft er þörf — en
nú er nauðsyn!
eftir Ragnheiði
Davíðsdóttur
„Ungmenni slösuðust alvarlega í
umferðarslysi". Hver kannast ekki
við fréttir af þessu tagi? Fréttir, sem
reglulega birtast í fjölmiðlum; frétt-
ir, sem fæstir láta sig nokkru skipta
— þar til þeir sjálfír eða þeirra nán-
ustu verða þátttakendur. Undanfar-
in ár hefur undirrituð haft mikið
og farsælt samstarf við félaga í
samtökum endurhæfðra mæn-
uskaddaðra. Allir eiga þeir það sam-
eiginlegt að þurfa að eyða því sem
eftir er ævinnar í hjólastól. Flestir
af völdum umferðarslyss. Þeir fylltu
eitt sinn hóp lífsglaðra ungmenna
sem héldu af stað í ferðalag sem
endaði á þennan afdrifaríka hátt.
Þetta fólk tilheyrði eitt sinn lítilli
frétt á innsíðu einhvers dagblaðs-
ins; frétt sem fæstir tóku eftir.
Ragnheiður Davíðsdóttir
Nú, þegar verslunarmannahelgin
er framundan vaknar sú spurning
hversu margar slíkar „fréttir" verða
staðreynd þriðjudaginn 7. ágúst
eftir að þúsundir ungmenna hafa
lagt undir sig þjóðvegi landsins.
Eitt er víst að umferðin á þjóðveg-
unum verður mikil þessa helgi.
Strax á föstudagseftirmiðdag held-
ur æska þessa lands af stað í leit
að ævintýrum; lífsglöð og full af
orku. Farskjótinn er bíllinn; vélknú-
ið ökutæki sem orðið hefur svo
mörgum að fjörtjóni.
Heima sitja áhyggjufullir foreldr-
ar sem krossa fingur og biðja þess
í hljóði að ekkert komi fyrir þeirra
barn. Og víst er það heitasta ósk
okkar allra að þau verði bænheyrð.
En þó eðlilegt sé að leita til almætt-
isins á slíkum stundum er ekki síður
nauðsynlegt að gefa börnum sínum
holl r áð í upphafi ferðar. Segið
þeim hversu vænt ykkur þykir um
þau og hvað þið óskið þess heitt
að þau komi heil heim. Segið þeim
að akstur sé ábyrgðarhluti og þau
sem aka beri einnig ábyrgð á lífí
og heilsu farþega sinna og sam-
ferðamanna í umferðinni. Segið
þeim að aldrei sé of varlega farið
og betra sé að komast örlítið seinna
á áfangastað en komast alls ekki.
Biðjið þau um að hugsa sig tvisvar
um áður en þau taka óþarfa áhættu
Heima sitja áhyggju-
fullir foreldrar sem
krossa fingur og biðja
þess í hljóði að ekkert
komi fyrir þeirra barn.
við framúrakstur. Brýnið fyrir þeim
að spenna bílbeltin og hvetja aðra
í bflnum til þess að gera slíkt hið
sama. Og umfram allt; gerið þeim
grein fyrir að það sé undir þeim
sjálfum komið hvort eða í hvaða
ásigkomulagi þau koma aftur heim.
„Okkar örlög eru ykkar vörn“
eru slagorð sem mænuskaddaðir
félagar okkar hafa slegið fram í
baráttunni gegn umferðarslysun-
um. Ef einhver veit hvað hörmung-
ar umferðarslysanna eru þá eru það
þeir. Þeirra vegna, ykkar vegna,
ástvina ykkar vegna og allra vegna
— verum minnug þess að akstur
er dauðans alvara. Þess vegna sam-
einumst við um að fækka „fréttun-
um“ í fjölmiðlum og komum öll
heil heim.
Höfundur er þátttakandi í
áhugahópi um bætta
umferðarmenningu.
yskw
þessa mánaðar
ergjakklagi virðisaukaskatts
5
Fkýrslum til greiðslu, þ.e. þegar
útskattur er hærri en innskattur, og
núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða
eða pósthúsa. Einnig má gera skil hjá
innheimtumönnum ríkissjóðs en þeireru
tollstjórinn í Reykjavík, bæjarfógetar og
sýslumenn úti á landi og lögreglustjórinn á
Keflavíkurflugvelli.
Athygli skal vakin á því að bankar,
sparisjóðir og pósthús taka aðeins við
skýrslum sem eru fyrirfram áritaðar af
skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna
sjálfur eða breytir áritun verður að skila
henni til innheimtumanns ríkissjóðs.
/n
fnneignarskýrslum, þ.e. þegar
innskattur er hærri en útskattur, skal skilað
til viðkomandi skattstjóra.
Beri gjalddaga upp á helgidag eða
almennan frídag færist hann á næsta
virkan dag á eftir. Til þess að komast hjá
álagi þarf greiðsla að hafa borist á
gjalddaga.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
UTSALA - UTSALA
Alltad ( o afsláttur
Opiö f östudag til kl. 21.00
Lokaö laugadaginn 4. ágúst
og mánudaginn 6. ágúst
Allt í einni ferð
HA6KAUP
í eivutt