Morgunblaðið - 01.08.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
Italir stuðla að samstarfí austur á bóginn;
Brú milli EB og fyrrver-
andi kommúnistaríkja
London. The Daily Telegraph.
Forsætisráðherrar og utanrík-
isráðherrar Italíu, Ungverjalands,
Tékkóslóvakíu, Austurríkis og
Júgóslavíu hittust í Feneyjum í
gær til að ræða aukið samstarf.
Það er Gianni de Michelis, ut-
anríkisráðherra Italíu, sem talinn
er eiga frumkvæði að samstarfi
áðurnefndra ríkja en hann er nú
í forsæti ráðherraráðs Evrópu-
bandalagsins (EB). Hugmynd De
Michelis er að tengja áðurnefnd
ríki Austur-Evrópu við Evrópu-
bandalagið og auka um leið hlut-
verk Ítalíu í mótun nýrrar Evrópu.
Ríkin fimm ganga ýmist undir
nafninu Dónár-Adríahafs-hópurinn
eða fimmhyrningshópurinn (Pentag-
onal-group). Upphaflega voru Italía, -
Ungverjaland, Austurríki og Júgó-
slavía aðilar að samstarfinu en
Tékkóslóvakía bættist í hópinn í maí
sl. í fyrstu voru markmiðin einföid
í sniðum eins og að samræma sam-
göngur og_ ýmsa aðra þjónustu en
nú vonast ítalir til þess að hópurinn
fái varanlegt form í nýrri skipan álf-
unnar. ítalskir embættismenn segj-
ast búast við að þetta samstarf verði
eins konar brú fyrir kommúnistaríkin
fyrrverandi í átt til Evrópubanda-
lagsins.
Rúmenía og Búlgaría hafa sótt
um aðild að fimmríkjahópnum en
ítalskir embættismenn segja að eng-
in áform séu uppi um að stækka
hópinn. „Okkur finnst að núverandi
stærð sé ákjósanleg vegna þess hve
nálæg hvert öðru ríkin eru, vegna
þess að lýðræðiskerfi okkar eru svip-
uð og vegna þess að við höfum þeg-
ar fundið sameiginlega hagsmuni í
utanríkismálum,“ segir Alessandro
Graffini, háttsettur starfsmaður
ítalska utanríkisráðuneytisins.
Ríkin fimm eru þegar farin að
samræma stefnu sína hjá Sameinuðu
þjóðunum og settu mark sitt á Ráð-
stefnuna um öryggi og samvinnu í
Evrópu (RÖSE) með því að leggja
fram sameiginlega tillögu um rétt-
indi minnihlutahópa á fundinum í
Kaupmannahöfn á dögunum.
Búist er við því að í Feneyjum
undirriti forsætisráðherramir yfir-
lýsingu um markmið samstarfsins
og áætlun til þriggja ára um sam-
starf um samgöngur, umhverfismál,
fjarskipti, menningarmál, uppplýs-
ingamiðlun, vísindi og tækni og um
samvinnu smárra og meðalstórra
iðnfyrirtækja.
Aðildarríkin fimm munu sjálf fjár-
magna sum verkefnin en um aðstoð
við önnur verður leitað til Alþjóða-
bankans, Fjárfestingabanka Evrópu
og Þróunar- og uppbyggingarbanka
Evrópu. Fulltrúar frá þessum aðiljum
verða viðstaddir fundinn í Feneyjum.
Reuter
Parþenon
endurbyggt
Parþenon, eitt af hofunum á
Akrópólishæð í Aþenu, er nú hul-
ið byggingarpöllum þvi unnið er
að gagngerri viðgerð á því, sem
talin er muni standa langt fram
á næstu öld. Um þrjár milljónir
ferðamanna heimsækja hofið, sem
byggt var af Períklesi fyrir 2.500
árum, á ári hveiju.
Fyrstu írjáisu þingkosningarnar í Mongólíu:
Kommúnistaflokkurínn fær
meirihluta í báðum deildum
Eftirlitsmenn verða ekki varir við svindl en kvarta undan skipulagsleysi
Ulan Bator. Reuter.
Kommúnistaflokkurinn vann
sigur í þingkosningum í Mong-
ólíu sem haldnar voru tvo síðast-
liðna sunnudaga. Samkvæmt
bráðabirgðatölum fékk flokkur-
inn 60% sæta í neðri deild þings-
ins en 85% fulltrúa í efri deild-
inni. Að sögn erlendra eftirlits-
manna varð kosningasvindls ekki
vart en víða gætti skipulagsleysis
í framkvæmd kosninganna.
Kommúnistar hafa verið einráðir
í Mongólíu frá árinu 1921 þegar
Rauði herinn réðst inn í landið. í
desember síðastliðnum fór að bera
á andófi í landinu í kjölfar umbylt-
ingar í Austur-Evrópu. Smám sam-
an tókst lýðræðishreyfingu landsins
að knýja stjómvöld til að gefa eftir
og fallast að lokum á fijálsar kosn-
ingar. í kosningabaráttunni boðuðu
bæði kommúnistar og þrír stjórnar-
andstöðuflokkar fijálst markað-
skerfi en þá greindi á um hversu
hratt breytingarnar ættu að ganga.
Það hefur torveldað talningu að
kommúnistar gátu boðið sig fram
fyrir stjórnarandstöðuna án þess
að segja sig úr flokknum.
Stjórnmálaskýrendur bjuggust
almennt við því að kommúnistar
myndu vinna kosningamar. Flokk-
ur þeirra fékk enda mikinn meiri-
hluta í efri deild þingsins þar sem
sitja 430 fulltrúar. Ekki er þó enn
búið að útdeila nema 403 sætum
vegna kröfu um endurtalningu í
sumum kjördæmum. í neðri deild-
inni, hinni eiginlegu löggjafarsam-
kundu, era 53 fulltrúar. Er talið
að þau 40% sæta sem stjórnarand-
staðan fær í neðri deildinni dugi til
þess að hafa nokkur áhrif á stjóm-
arfar og tryggi íjölræði í einhverri
mynd.
Um ein milljón manna var á kjör-
skrá og greiddu 91,9% þeirra at-
kvæði. Kosningarnar drógu dám af
hinum frumstæðu þjóðfélagshátt-
um. Til dæmis ferðuðust embættis-
menn um með kjörkassana á drátt-
arvélum.
Úkraína:
Sjálfstæðissinmim vex ásmegin
Kænugarði. Reuter.
FORSETI Ukraínu, Leoníd Kravtsjúk, varaði landsmenn við því í
gær að krefjast of snöggra umbóta, slíkt gæti leitt til árekstra við
Moskvuvaldið. Þing landsins, þar sem sjálfstæðissinnar hafa um þriðj-
ung sæta, samþykkti á mánudag að allir Úkraínumenn, er gegndu
herþjónustu í öðrum Sovétlýðveldum, yrðu kallaðir heim fyrir 1.
desember nk.
Þingmenn kröfðust þess einnig
með miklum meirihluta atkvæða að
fyrir 1. október yrðu úkraínskir
hermenn kallaðir frá átakasvæðum
á borð við Kákasuslöndin Armeníu
og Azerbajdzhan. Þjóðemissinnar í
Rukh-hreyfingunni töldu að sam-
þykktir þingsins jafngiltu fyrstu
skrefum í þá átt að mynda sjálf-
stæðan herafla Úkraínu. I nýlegri
fullveldisyfirlýsingu þingsins var
lýst rétti landsmanna til að stofna
eigin her og gjaldmiðil. Einnig var
mælt með því að landið lýsti yfir
hlutleysi.
Þjóðernissinnar telja Kravtsjúk
lítt fúsan til baráttu fyrir réttindum
landsmanna gagnvart Sovétstjórn-
inni en hann vísar gagnrýninni á
bug. „Of mikill hraði er hættuleg-
ur. Við ættum ekki að gera þau
mistök að flýta okkur við hluti sem
þarfnast tíma,“ sagði forsetinn.
Hann tók undir kröfurnar um heim-
flutning hermanna. „Við viljum
ekki að börnin okkar láti lífið í þjóð-
ernisátökum í öðrum lýðveldum,"
sagði hann. Kravtsjúk sagði að ekki
stæði til að stofna innlendan Úkra-
ínuher en hins vegar vildu stjórn-
völd styrkja vopnaðar sveitir inn-
anríkisráðuneytisins í lýðveldinu.
Risastór reknet í Atlantshafi
Fiskur festist í netunum er tálknin
] i: iVi i i [ n 11 [V, i í
ÍtUttWMUmty
skoröast i þeim en skjaldbókur,
höfrungar og fleiri sjávarspendýr
sleppa ekki heldur
Reknetin f At-
lantshafi sjást
illa, eru allt að
20 km löng og
15 m á hæð
Franskir togarar
til Biscayafloa
ATLANTS-
HAF
Azoreyjar
Frakkar gagnrýndir
fyrir rekneta,veiðar
Brussel. Reuter.
MIKILL styrr stendur nú um veiðar franskra sjómanna á túnfiski í
reknet á hafsvæðinu milli Azoreyja og Biscayaflóa. Grænfriðungar
hafa barist hatrammlega gegn veiðunum og segja að bæði höfrungar
og skjaldbökur flækist í nctunum og drepist. Baskneskir sjómcnn eru
einnig æfir því Frakkarnir veiða túnfiskinn áður en hann gengur inn
í spænska landhelgi í Biscayaflóa. I fyrsta skipti á þessari vertíð, sem
stendur frá júní fram í september, hefur komið til ofbeldisaðgerða
vegna veiðanna.
Fyrr í þessum mánuði eyðilögðu
baskneskir sjómenn 674 reknet sem
Frakkar höfðu lagt 250 mílur norð-
vestur af Jarðarendahöfða en
spænsk stjórnvöld leyfa ekki rek-
netaveiðar. Frönsk stjómvöld sendu
spænskum stjómvöldum opinber
mótmæli vegna þessa. Margir óttast
að Spánveijar fari sjálfir að nota
reknet ef Frakkar hætta ekki yeiðun-
um.
Netin sem frönsku sjómennimir
nota eru að sögn grænfriðunga allt
að 20 km löng og 15 km djúp. Þau
era nær ósýnileg í sjónum og því er
haldið fram að ekkert kvikt sleppi í
gegnum netin, hvorki fiskur, sjávar-
spendýr né sjófuglar. Andstæðingar
reknetaveiðanna segja einmitt að
helsti galli þeirra sé hversu afkasta-
miklar þær séu.
Grænfriðungum hefur orðið nokk-
uð ágengt í baráttu sinni gegn rek-
netunum. Sameinuðu þjóðirnar hafa
ákveðið að banna reknetaveiðar í
Suður-Kyrrahafi fráogmeð júlí 1991
og alls staðar á alþjóðlegu hafsvæði
frá og með júli 1992 nema gerðar
hafi verið úrbætur á þessari veiðiað-
ferð. Það era einkum Japanir, Tæ-
vanar og Suður-Kóreumenn sem
stundað hafa reknetaveiðar í Suður-
Kyrrahafi.
Frakkar og aðrar Evrópubanda-
lagsþjóðir greiddu atkvæði með
banni við reknetaveiðum hjá Samein-
uðu þjóðunum. Það skýtur því
skökku við að franski reknetaflotinn
hefur stækkað að undanfömu. Um
30 togarar stunduðu veiðarnar árið
1989 en núna era þeir á milli 40 og
50. Frökkum tókst hins vegar að
koma í veg fyrir að framkvæmda-
stjórn EB bannaði reknetaveiðar í
þeim hluta Atlantshafs sem heyrir
undir bandalagið.
Andre-Yves Legroux, aðstoðar-
maður Jacques Mellicks, sjávarút-
vegsráðherra Frakklands, ver notkun
Frakka á reknetum og segir að
möskvamir séu mun minni en þeir
sem notaðir eru í Kyrrahafinu. Þetta
valdi því að stærri sjávardýr en tún-
fiskur festist síður í netunum. Einnig
heldur hann því fram að frönsku
netin séu ekki lengri en fjórir til fimm
km. Greenpeace-menn segjast hins
vegar hafa fundið 20 km löng net
franska flotans nú í júnímánuði.