Morgunblaðið - 01.08.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
21
■ JEDDAH. Háttsettir embættis-
menn frá Irak og Kúvæt komu til
Jeddah í Saudí-Arabíu í gær til að
reyna að jafna ágreining ríkjanna
um olíu og landamærasvæði. Irakar
lýstu því yfir að þeir myndu ekki
sýna biðlund, Kúvætar yrðu að
ganga að kröfum þeirra þegar í
stað. Bandaríska dagblaðið Was-
hington Post skýrði frá því í gær
að nær 100.000 írakskir hermenn,
með allt að 500 skriðdreka, stór-
skotavopn og færanlegar brýr,
væru við landamæri ríkjanna. Vest-
rænn stjórnarerindreki í Kúvæt
sagði hins vegar við fréttaritara
Reuters að 30-40.000 hermenn
væru við landamærin. Viðræðunum
hafði verið frestað í þijá daga og
efnt var til þeirra vegna mikils
þrýstings frá leiðtogum annarra
arabaríkja. Dagblað í írak, a 1-
Thawra, gaf til kynna að Saddam
Hussein, forseti Iraks, vænti þess
að litla en auðuga nágrannaríkið í
suðri gengi að kröfum hans um
milljarða dala skaðabætur. „írakar
koma til fundarins til að tryggja
rétt sinn, ekki til að hlusta á frek-
ara mas um „bræðralag og sam- ■
stöðu“, sem ekkert hefur upp á sig,“
sagði í málgagni stjórnarinnar í
írak, al-Jumhuiya.
Lögreglumenn rannsaka slysstaðinn við heimili Gows á þriðjudag.
lands en var neitað því ekki þótti
sannað að hann hefði verið ofsóttur
í heimalandi sínu. Annar ungur
sovéskur flugræningi, Mikhaíl
Vorfolomejev, er ennþá í haldi
eftir að hafa snúið flugvél til Finn-
lands en hann hefur getað sannað
að hann hafi verið ofsóttur. Míkha-
ílenko hafði sagt í réttarhöldum að
hans biði hugsanlega dauðadómur
í Sovétríkjunum ef hann yrði fram-
seldur, því hann hefði verið virkur
í þjóðernishreyfingunni í Úkraínu '
og að hann hefði vikist undan her-
þjónustu. Mona Sahlin, starfandi
dómsmálaráðherra, sagði að sænsk
yfirvöld, hefðu verið fullvissuð um
að Míkhaílenko yrði aðeins ákærður
fyrir flugrán og að þau fengju að
fylgjast með afdrifum hans. „Mjög
mikilvægt er að gera öllum ljóst
að Svíþjóð er ekki sælureitur flug-
ræningja," sagði Sahlin en þremur
sovéskum flugvélum var snúið til
Svíþjóðar á tæpum mánuði.
EB boðar minni land-
búnaðamiðurgreiðslur
Dromoland-kastala, írlandi. Reuter.
Á TVEGGJA daga fundi ráðherra frá Ástralíu, Kanada, Japan, Banda-
ríkjunum og Evrópubandalaginu (EB) þokaðist nokkuð í samkomulags-
átt í deilum um niðurgreiðslur og aðra styrki til framleiðslu Iandbún-
aðarvara en um ieið kom vel í ljós hversu mikið ber í milli. Ray Mac-
Sharry, sem fer með landbúnaðarmál fyrir EB, sagði á mánudag að
EB væri tilbúið að leggja til við GATT (alþjóðaviðræður um tolla- og
viðskiptamál) að niðurgreiðslur til landbúnaðar í EB-löndunum yrðu
þriðjungi minni 1996 en þær voru 1986.
Clayton Yeutter, landbúnaðar- vilja mun lægri styrki en ríkisstjórn-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði að
tilboðið væri sannarlega af hinu
góða en það væri aðeins góð byij-
un. GATT-viðræðurnar eru svo að
segja komnar í strand vegna ágrein-
ings Bandaríkjamanna og EB-ríkj-
anna um þetta mál. Bandaríkja-
menn, dyggilega studdir af fjöl-
mörgum löndum þriðja heimsins,
ir EB-landanna hafa hingað til vilj-
að samþykkja.
Neal Blewett, ráðherra viðskipta-
samninga í Ástralíu, sagði frétta-
mönnum Reuters að tilboðið gerði
ráð fyrir mun minni minnkun á nið-
urgreiðslum en vonir hefðu staðið
til.
■ BONN. Vestur-þýsku skæru-
liðasamtökin Rauða herdeildin
hafa heitið því að heyja stríð við
sameinað Þýskaland, sem þeir segja
að muni breytast í fasískt „Fjórða
ríki“. í bréfi til fjölmiðla í Vestur-
Þýskalandi, sem lögregla segir vera
ófalsað, segist Rauða herdeildin
hafa komið fyrir sprengju sem
sprakk á föstudag og særði Hans
Neusel, sérfræðing í baráttu við
hryðjuverkamenn. í bréfinu er
Neusel sagður vera ímynd þýsks
fasisma frá þriðja ríkinu til „Stór-
þýskalands". „Vestur-Þýskaland og
hið nýja stórveldi Austur-Þýskaland
eiga sér sömu heimsveldamarkmið
og nasistar," sagði í bréfi Rauðu
herdeildarinnar. „Við munum beij-
ast gegn þessari þróun af öllum
kröftum því það er hlutverk okkar
í alþjóðlegri stéttabaráttu að sjá til
þess að þessar áætlanir mistakist,“
sagði ennfremur í bréfinu.
■ HELSINKI. Finnar framseldu
á föstudag Oleg Kozlov, 19 ára
Sovétmann, sem rændi sovéskri
flugvél á leið frá Riga, höfuðborg
Lettlands, til Helsinki í síðasta
mánuði. Svíar hafa einnig ákveðið
að framselja Anatoly Míkha-
ílenko, 19 ára sovéskan flugræn-
ingja. Finnar og Svíar hafa sett þau
skilyrði flugræningjarnir verði að-
eins ákærðir fyrir flugrán, ekki fyr-
ir að fara úr landi án leyfis. Kozlov
H LONDON. frski lýðveldisher-
inn, IRA, hefur lýst ábyrgð á morði
Ians Gows á hendur sér og sagt
ástæðuna hafa verið þá að Gow
hafi verið einn nánasti vinur Marg-
aret Thatcher forsætisráðherra og
einn helsti höfundur stefnu bresku
stjórnarinnar í málum Norður ír-
lands. Gow, sem var harður gagn-
rýnandi IRA, lést þegar bíll hans
var sprengdur í loft upp við heimili
hans á mánudag. í yfírlýsingu sem
IRA sendi frá sér í Dublin í gær
sagði að herinn bæri ábyrgð á morði
Gows og að hann myndi grípa til
vopna hvar og hvenær sem tæki-
færi gæfist.
sótti um hæli sem pólitískur flótta-
maður strax við komuna til Finn-
GALANT stallbakur
5 manna lúxusbíll
Sjálfskiptur - handskiptur
Eindrif - sítengt aldrif (4WD)
Verð frá kr. 1.233.040
GALANT hlaðbakur
HF
Laugavegi 170-174 Simi 695500
Sjálfskiptur - handskiptur
Eindrif - sítengt aldrif (4WD)
5 manna fólksbíll, breytan-
legur í 2 manna bíl meö
gríðarstórt farangursrými
Sannkallað augnayndi
hvar sem á er litið
Verð frá kr. 1.244.166