Morgunblaðið - 01.08.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
25
■ SKIPULAGÐAR ferðir um
verslunarmannahelgi á vegum
Ferðafélags Islands eru margar.
Fyrst mætti nefna Þórsmerkur-
ferð og í þeirri ferð verður boðið
upp á gönguferð um Fimmvörðu-
háls. Gengið verður frá Skógum
til Þórsmerkur og tekur um átta
klukkustundir að ganga þessa leið.
Gist verður í tjöldum í Langadal
og í Skagfjörðsskála fyrir þá sem
vilja gista í húsi. Boðið verður upp
á gönguferðir um Mörkina alla
dagana. Ferðafélagið tekur tak-
markaðan fjölda fólks inn á umsjón-
arsvæði sitt í Þórsmörk og eru
tjaldstæði þegar fullbókuð um
verslunarmannahelgina._ Ferð verð-
ur inn að Lakagígum. í þeirri ferð
verður gist í svefnpokaplássi á
Kirkjubæjarklaustri og farnar
dagsferðir þaðan inn að Lakagíg-
um annan daginn og hinn að Öðul-
brúará, meðfram henni að Mikla-
felli. Fornt gljúfur Hverfísfljóts
verður einnig skoðað. Með í þessari
ferð verður Jón Jónsson, jarð-
fræðingur, en hann hefur stundað
rannsóknir á þessu svæði um ára-
bil og þekkir það flestum betur. Á
mánudag verður ekið um Fjalla-
baksleið syðri til Reykjavíkur
með viðkomu við Álftavatn. Há-
lendisferð verður að miðju landsins
þar sem gist verður í sæluhúsi
Ferðafélagsins við Nýjadal á
Sprengisandi. í þessari ferð verður
annan daginn gengið um Vonar-
skarð en hinn er gönguferð á
Trölladyngju sem er stærsta gos-
dyngja landsins. Venjuleg helgi er
of skammur tími fyrir skoðunarferð
af þessu tagi og ætti fólk að athuga
þetta einstaka tækifæri til þess að
skoða sig um á þessu forvitnilega
hálendissvæði vestan Vatnajökuls.
Hefðbundin ferð til Landmanna-
lauga er í boði þessa helgi. Þar er
gist í sæluhúsi Ferðafélags ís-
lands í Laugum og farnar dags-
ferðir þaðan. Ekið verður að Eldgjá
og gengið inn eftir gjánni að
Ófærufossi. Fleira verður skoðað
á sjálfu Laugasvæðinu, en af nógu
er að taka á þessu litríkasta fjall-
lendi landsins. Brottför í allar ferð-
irnar er frá Umferðarmiðstöðinni
klukkan 20 föstudaginn 3. ágúst
og komutími á mánudag er milli
klukkan 18 og 19.
■ SKEMMTISTAÐURINN
Tveir vinir og annar í fríi efnir
til tónleikahátíðar um verslunar-
mannahelgina. Það verður byijað á
miðvikudagskvöld, því þá skemmtir
Rokkabillyband Reykjavíkur.
Fimmtudagskvöldið verður blús-
kvöld sem endranær og leika þá
Blúskjammar ásamt Sigurði Sig-
urðssyni, söngvara og munnhörpu-
leikara. Föstudagskvöldið skemmtir
svo sveiflusveitin íslandsvinir og
koma aftur fram á laugardags-
kvöldið því þá skemmta tvær hljóm-
sveitir, Islandsvinir og hljómsveitin
Sprakk. Sprakk heldur svo uppi
Ijörinu á sunnudagskvöld og verður
þá opið til klukkan 3.
Svanurínn
fór fyrstur
Svanurinn, kaupskip skipafélags-
ins Ness hf., hefur að öllum líkind-
um verið fyrsta íslenskra skipið sem
sigldi suður fyrir Afríku, en ekki
Hvalvíkin eða Saltnes, eins og hald-
ið hefur verið fram í Morgunblað-
inu. Svanurinn fór fyrir Góðrarvon-
arhöfða 1974. Þá mun ísborgin
hafa farið þessa leið á undan
Hvalvík og Saltnesi og aftur síðar
eftir eigendaskipti og þá undir nafn-
inu Suðri. Þá hefur blaðinu verið
bent á að Mánafoss hafi siglt undir
íslenskum fána til Ástralíu fyrir
mörgum árum, að líkindum fyrst
íslenskra skipa.
Leiðrétting
í FRÉTT Morgunblaðsins af gjöf
þýska bjórframleiðsju-fyrirtækisins
„Becks Beer“ til „Átaks um land-
græðsluskóga 1990“ misritaðist
ijárupphæðin. Hið rétta er að hún
var krónur 500 þúsund og hyggst
fyrirtækið veita sömu upphæð aftur
næsta ár.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
31. júlí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 77,00 59,00 73,44 47,699 3.502.986
Þorskur/st. 94,00 94,00 94,00 0,789 74.166
Smáþorskur 30,00 30,00 30,00 1,338 40.140
Ýsa 85,00 65,00 75,70 54,024 4.089.823
Karfi 31,00 29,00 29,12 3,899 113.551
Ufsi 31,00 18,00 25,24 11,626 293.480
Steinbítur 80,00 80,00 80,00 2,705 216.440
Langa 38,00 38,00 38,00 0,100 3.819
Lúða 180,00 110,00 162,50 0,020 3.250
Grálúða 17,00 17,00 17,00 0,006 102
Koli 39,00 39,00 39,00 0,208 8.112
Keila 18,00 15,00 15,02 0,542 8.151
Skata 4,00 4,00 4,00 0,027 108
Skötuselur 180,00 180,00 180,00 0,163 29.340
Kinn/gel. 160,00 160,00 160,00 0,018 2.880
Smáufsi 12,00 12,00 12,00 2,545 30.540
Samtals 66,95 125,712 8.416.888
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskursl. 60,00 24,04 77,31 34,132 1.773.719
Ýsa sl. 135,00 45,00 71,11 0,935 66.487
Karfi 30,00 15,00 24,21 45,940 1.112.357
Ufsi 37,00 15,00 27,17 42,087 1.143.442
Hlýri/Steinb. 77,00 61,00 63,43 3,949 250.490
Langa 46,00 20,00 35,92 0,962 22.919
Lúða 300,00 140,00 196,24 0,666 130.695
Skarkoli 57,00 20,00 32,44 0,651 21.117
Keila 20,00 20,00 20,00 0,106 2.120
Skata 65,00 15,00 41,09 0,069 2.835
Skötuselur 360,00 360,00 360,00 0,023 8.280
Grálúða 59,00 49,00 56,32 3,335 187.875
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,039 570
Undirmál 30,00 10,00 29,10 2,433 71.229
Samtals 360,00 10,00 38,39 125,261 4.609.035
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 106,00 56,00 74,58 19,283 1.438.277
Ýsa 71,00 50,00 68,86 17,735 1.221.176
Karfi 26,00 23,00 25,70 3,610 92.779
Ufsi 50,00 15,00 ‘19,20 7,971 153.094
Steinbítur 30,00 30,00 30,00 0,033 990
Hlýr/Steinb. 57,00 57,00 57,00 0,950 54.140
Langa 47,00 40,00 41,39 0,724 29.968
Lúða 330,00 220,00 259,33 0,126 32.675
Skarkoli 71,00 69,00 70,00 0,709 49.631
Keila 20,00 11,00 11,25 1,291 14.525
Skata 50,00 50,00 50,00 0,330 16.500
Skötuselur 355,00 90,00 148,00 0,072 10.720
Öfugkjafta 10,00 10,00 10,00 0,214 2.140
Hlýri 57,00 57,00 57,00 0,066 3.762
Grálúða 39,00 39,00 39,00 0,131 5.109
Undirmál 70,00 31,00 43,72 1,666 72.838
Samtals 58,24 54,912 3.198.334
Þverá/Kjarrá rauf 1000 laxa
múrinn
ÞVERÁ í Borgarfirði varð fyrst
laxveiðiáa til að íjúfa 1000 laxa
múrinn. „Það gerðist í gærmorg-
un og útlitið er nokkuð gott ef
vatnið eykst í ánni á næstunni,
áin er orðin ansi vatnslítil, en það
er talsvert af fiski í henni og allt-
af eitthvað að ganga,“ sagði Jón
Olafsson einn leigutaka árinnar í
samtali við Morgunblaðið. Þverá
og efri hluti hennar Kjarrá gáfu
rétt um 1300 laxa allt síðasta
sumar, því eru horfur á því að
gagnstætt því sem stefnir í víðast
hvar um landið, muni Þverá gefa
meira í ár en í fyrra.
Laxá í Kjós í öðru sæti
„Hér eru komnir um 900 laxar
á land og hefur gengið vel að
undanförnu. Þó mætti fara að
rigna, áin er að bytja að verða
of lítil. Flugan hefur verið sterk
síðustu vikurnar,“ sagði Ásgeir
Heiðar staðarleiðsögumaður við
Laxá í Kjós í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði talsvert vera
af laxi og hann væri dreifður um
alla á. Svæði 1, 2 og 4 hefðu þó
verið sýnu líflegust að undanf-
örnu.
Langá í góðu lagi
Þeir Runólfur Ágústsson veiði-
vörður við Langá og Ingvi Hrafn
Jónsson voru sammála um að
veiðin væri alveg hreint skamm-
laus í Langá, þar veiddust þetta
15 til 30 laxar' á dag og væru
komnir um 600 laxar á land og
er það sérstaklega gott með tilliti
til slapprar byijunar í ánni í vor.
Fjórði hver fiskur til þessa er
heimt seiði úr gönguseiðaslepp-
ingu í fyrra og þykir mönnum það
vera góð tíðindi. Veiðin skiptist
þannig í Langá, að 360 voru
komnir af neðsta svæðinu, 160
af miðsvæðum Ingva Hrafns og
um 60 fiskar af Fjallinu sem er
furðu gott, en skýringin mun vera
hið ákjósanlega ástand árinnar
og jafnt rennsli hennar og hita-
stig í sumar, þökk sé náttúrunni
og vatnsmiðlunarstíflunni í
Langavatni. Horfur í Langá eru
góðar, því þeir Runólfur og Ingvi -
segja smágöngur koma á hveiju
flóði.
Sólargeisli fyrir norðan
„Þetta liefur gengið vel hjá
okkur, en smálaxinn mætti fara
að skila sér í ríkari mæli. Alls
munu komnir milli 150 og 160
laxar á land og meðalþunginn til
þessa er trúlega um 12 pund og
sá stærsti vóg 20,3 pund,“ sagði
Sigurður Hafliðason stjórnarmað-
ur Stangaveiðifélags Siglufjarðar
um veiðina í Fljótaá í Fljótum það
sem af er sumri. í fyrra gaf áin
329 laxa og var það met. Menn
velta nú fyrir sér hvort að metið
haldi, en meðalveiði í þessari á
hefur alla tíð verið innan við 150
laxar á sumri. „Hér hafa gerst
ævintýri í sumar. Einn þurfti að
veiða standandi á hækjum og fékk
6 laxa á hálfum degi, engan und-
ir 10 pundum. Og um daginn
komst ég ekki út í á og sendi
konu mína eina. Hún kom heim
að kvöldi með þrjá 13 punda
fiska!,“ sagði Sigurður. Ágætlega
hefur einnig aflast í Flókadalsá í
Fljótum að sögn Sigurðar og hafa
nokkrir laxar um 20 punda veiðst.
GG
Enn er veiðin í Rangánum lygasögu líkust og nú er það smálax-
inn sem gengur á degi hverjum. Þessir kappar voru nýlega eina
helgi og drógu 20 laxa, f.v. Þórarinn Sigþórsson, Aðalstcinn Pét-
ursson, Þröstur Elliðason og Stefán Jón Hafstein.
Þjóðhátíð Vestmannaeyja:
Undirbúningur á lokasturi
Vestmannaeyjum. 11 ' ■ **
ÞJOÐHÁTIÐ Vestmannaeyja verður haldin um verslunarmannahelg-
ina að vanda. Það er Iþróttafélagið Þór sem stendur fyrir hátíðinni
að þessu sinni og verður vel vandað til allra þátta hátíðahaldanna.
Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu vikurnar og þessa dagana
er verið að leggja lokahönd á alla mannvirkjagerð í Heijólfsdal.
Iþróttafélögin í Eyjum, Þór og
Týr, skiptast á að halda hátíðina.
I fyrra voru það Týrarar sem sáu
um hátíðina en nú eru það Þórarar
og hafa þeir því haft í nógu að
snúast nú. Allt undirbúningsstarf
fyrir hátíðina er unnið í sjálfboða-
vinnu sem hefst í byijun júlí og
stendur fram að Þjóðhátfð. Þessi
vinna fer að mestu fram á kvöldin
og um helgar nema síðustu dagana
þegar unnið er myrkranna á milli.
Leiðinlegt veður í júlí hefur tor-
veldað undirbúning Þjóðhátíðar og
hefur austanáttin reynst Þórurum
erfið. Þrisvar sinnum hefur þurft
að byija frá grunni við smíði mann-
virkjanna því allt hefur fokið um
koll í Dalnum. Þórarar hafa þó ekki
látið þetta á sig fá og halda ótrauð-
ir áfram í þeirri trú að veðurguðirn-
ir breyti um takt og láti hátíðar-
gesti í Heijólfsdal njóta veðurblíðu
um verslunarmannahelgina.
Þór Vilhjálmsson, formaður Þórs,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann væri bjartsýnn á góða Þjóð-
hátíð. Veðrið færi að lagast og um
miðja viku yrði komin dúndrandi
blíða. Hann sagði að svo virtist sem
mikill straumur yrði á hátíðina, ef
marka mætti fyrirspurnir sem þeim
hefðu borist. Hvassviðri drægi ekk-
ert úr þeim. „Við erum alltaf fegn-
ir þegar Þjóðhátíðin er búin að
fjúka, eins og við köllum það þegar
allt fer til íjandans hjá okkur, því
það hefur aldrei brugðist að ef hún
er búin að fjúka einu sinni á meðan
undirbúningur varir þá fýkur hún
ekki aftur á meðan hátíðarhöldin
standa yfir. Nú er hún búin að fjúka
þrisvar svo þetta hlýtur að vera
pottþétt."
Gunnar Andersen, framkvæmda-
stjóri Þjóðhátíðarnefndar, sagði að
það væri í mörg horn að líta rétt
fyrir Þjóðhátíðina. Þjóðhátíðar-
nefnd hefði starfað síðan um ára-
mót en nú væri lokahnykkurinn í
starfinu. “Við heijum yfirleitt und-
irbúning snemma árs. Þá er farið
að huga að skemmtikröftum og
þvíumlíku en undirbúningur í Daln-
um hefst ekki fyrr en mánuði fyrir
Þjóðhátíð. Við erum með topp
skemmtikrafta í ár. Aðalhljómsveit-
in er Stjórnin, með Sigríði Beinteins
og Grétar Örvarsson í fararbroddi.
A litla danspallinum eru það Gömlu
brýnin sem halda uppi fjörinu. Auk
þess þá verða hljómsveitirnar,
Kombó Karls Örvarssonar, Sterti-
menn, Mömmustrákar og fleiri. Af
öðrum skemmtikröftum má nefna
Bubba Morthens, Bjartmar Guð-
laugsson, eftirhermur, brúðubílinn
FYRSTA rekustungan að við-
byggingu við Safnahúsið á
Húsavík var tekin síðastliðinn
miðvikudag, af Finni Kristjáns-
syni, safnverði, að loknu ávarpi
formanns safnstjórnar, Halldóri
Kristinssyni, sýslumanni.
Hin nýja bygging á að hýsa sjó-
minjasafn, landbúnaðai-véla- og
tækjasafn og er byggingin að gólf-
fleti um 600 fermetrar.
Lausafé Safnahússins, sem er að
miklu leyti arfur frá upphafsmanni
byggingar Safnahússins, Jóhanni
heitnum Skaptasyni, fyrrv. sýslu-
manni, og konu hans, Sigríði Víðis
Jónsdóttur, hrekkur langt til að
greiða þann áfanga, sem nú er
hafinn, sem er neðri hæð bygging-
arinnar og milligangur að hinni
eldri byggingu. Samið hefur verið
og svo mætir Arni Johnsen með
gítarinn og stjórnar brekkusöng. “
sagði Gunnar.
Gunnar sagði að flugfélögin
væru búin að setja upp margar ferð-
ir til Eyja um helgina og einnig
yrði Heijólfur i stanslausum ferðum
milli Eyja og Þorlákshafnar. Hann
sagði að forsala aðgöngumiða væri^
hafin og hefði gengið vel en einnig
væri að hefjast sala á pakkaferðum,
hjá Flugleiðum, Arnarflugi og BSÍ,
þar sem fólk gæti keypt ferðir og
aðgöngumiða í sama pakkanum á
góðu verði.
. „Það er ekki dýrt á Þjóðhátíðna
í ár. Við hækkuðum aðgangseyrinn
ekkert frá því í fyrra og kostar
aðgöngumiðinn 6000 krónur. Inni-
falið í því er öll skemmtun, tjald-
svæði og önnur þjónusta sem veitt
er á svæðinu. Eg held að það megi
því með sanni segja að þetta er
ódýrasta útiskemmtunin um helg-
ina,“ sagði Gunnar.
við verktakann, Stefán Óskarsson,
,Rein, en hann vinnur verkið fyrir
22,8 milljónir króna og á að skila
því að ári liðnu. — Fréttaritari
Morgunblaðið/Silli
Halldór Kristinsson (lengst til
vinstri), Helgi Bjarnason og
Finnur Kristjánsson við fyrstfP
rekustunguna að viðbyggingu
Safnahúss á Húsavtk.
- Grimur.
Byrjað á viðbyggingu Safnahúss
Húsavík.