Morgunblaðið - 01.08.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
Neytendafélag og Kaupmannafélag:
Deilt um merkingar
og geymslu eggja
DEILA hefur komið upp milli Neytendafélags Akureyrar og nágrenn-
is og Kaupmannafélags Akureyrar vegna könnunar, sem Neytendafé-
lagið gerði á meðferð eggja í nokkrum verzlunum á félagssvæði sínu.
Neytendafélagið telur að merkingum og geymslu eggjanna sé viða
mjög ábótavant, eri Kaupmannafélagið telur ómaklega að sér vegið.
I niðurstöðum könnunar Neyt-
* endafélagsins, sem birtar voru í
síðustu viku, segir að það hafi vakið
athygli að í nokkrum verzlunum
hafi egg hvorki verið dagstimpluð
né höfð í kæli. „Þegar þannig er
staðið að málum er verið að spilla
eggjunum, leyna neytandann raun-
verulegum aldri þeirra og auka hætt-
una á fúleggjum. Neytendur ættu
að sneiða hjá slíkum söluaðilum við
eggjakaup," segir í tilkynningu frá
Neytendafélaginu. Þar segir jafn-
framt að sumir framleiðendur merki
eggin með pökkunardegi, en sleppi
síðasta söludegi, sem þó ætti einnig
að tíunda, þar sem mislangt geti
verið á milli varpdags og pökkunar-
dags. „Ekki er heldur ólíklegt að
þessir framleiðendur sleppi upplýs-
ingum um síðasta söludag, vegna
þess hve misvel verzlanirnar með-
höndla eggin, og þeir treysti sér ein-
faldlega ekki til að ábyrgjast gæði
framleiðslu sinnar í eðlilegan tíma,“
segir í tilkynningunni.
Neytendafélagið mælir með einni
verzlun, Valbergi á Olafsfirði, þar
sem það telur meðferð eggjanna til
fyrirmyndar. í Svarfdælabúð, Nettó
og ÚKE á Ólafsfirði segir félagið
að eggin séu geymd stöðugt í kæli,
en merkingunum sé ábótavant. Fé-
lagið mælir hins vegar ekki með
eggjakaupum í Hagkaupi, Hrísa-
lundi, Matvörumarkaðnum, Plús-
markaðnum og ÚKE á Grenivík.
Kaupmannafélag Akureyrar sendi
frá sér yfirlýsingu, þar sem segir
að misskilnings gæti hjá Neytenda-
félaginu. „í fyrsta lagi er ekki í gildi
reglugerð um að það beri að geyma
egg í kæli. Að meðaltali stoppa egg
aðeins þijá til íjóra daga í verzlunum
og er því geymslutími verzlana mjög
skammur. Talið er að geymsluþol
eggja í stofuhita sé 1 mánuður.
Væri það tilskilið, að egg verði
geymd í kæli í verzlunum, myndi
verð þeirra hækka til muna," segja
kaupmenn.„í öðru lagi má benda á
að ekki er heldur skylt að merkja
egg með síðasta söludegi. Kaup-
menn kaupa egg sem aðrar vörur
frá framleiðendum eða umboðs-
mönnum þeirra og er það því í þeirra
verkahringi að sjá um að uppfylla
ákvæði um þær merkingar, sem til-
skilið er.“
í yfirlýsingunni segir að Kaup-
mannafélagið telji málflutning Neyt-
endafélagsins spilla góðu samstarfi
kaupmanna við félagið, og eðlilegra
Iðnþróunarfélagið;
Iðnaðarráð-
'herraáfimd
JÓN Sigurðsson iðnaðarráðherra
hefur orðið við ósk Iðnþróunarfé-
lags EyjaQaröar um að funda með
Eyfirðingum vegna álversmála.
Fundurinn verður haldinn næst-
komandi föstudag, 3. ágúst, á
Akureyri.
Að sögn Sigurðar P. Sigmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Iðnþróun-
arfélagsins, munu forsvarsmenn
sveitarfélaga á Eyjafjarðarsvæðinu
skiptast á upplýsingum við ráðherra
á fundinum. Einnig segir Sigurður
r að Eyfirðingar vilji fá að vita hug
ríkisstjómarinnar til staðarvals fyrir
álver og hvort hún hyggist hafa
áhrif á staðarvalið.
Vegna anna getur Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra ekki
komið til fundar við Eyfirðinga en
Iðnþróunarfélagið hafði einnig óskað
eftir fundi með honum. Norðanmenn
munu hitta forsætisráðherra í
Reykjavík 14. ágúst en þá verður
fundur með Atlantsál-hópnum.
sé að kaupmenn, forsvarsmenn neyt-
enda og heilbrigðisfulltrúi setjist nið-
ur og ræði málin.
Þessu svaraði Neytendafélagið
um hæl og segir í nýrri tilkynningu
að niðurstöður könnunarinnar byggi
á reglugerð nr. 408/1988, auk mats
á því hvemig meðferð eggja eigi að
vera, með hagsmuni neytenda að
leiðarljósi. Félagið bendir á bækiing
hollustuverndar um merkingu mat-
væla, þar sem meðal annars segir:
„Vörur, sem hafa minna geymsluþol
en 3 mánuði, skal merkja með
síðasta söludegi."
„Egg, sem framleiðandi hefur
merkt sem kælivöru, eiga seljendur
að hafa í kæli, jafnframt er þeim
óheimilt að selja egg frá framleið-
endum sem ekki uppfylla skilyrði
reglugerðarinnar um merkingu um-
búða,“ segir í tilkynningunni, sem
undirrituð er af Vilhjálmi Inga Árna-
syni, formanni Neytendafélagsins.
Sumarsýningu lýkur 6. ágúst
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sumarsýningu fjögurra listamanna á Akureyri lýk-
ur um verzlunarmannahelgina, mánudaginn 6.
júní. Sýningin er haldin í húsakynnum Myndlistar-
skólans og hér standa listamennirnir á tröppunum.
Þeir eru, frá vinstri: Guðmundur Ármann Sigur-
jónsson, sem sýnir grafíkverk, Helgi Vilberg, sem
sýnir vatnslitamyndir, Kristinn G. Jóhánnsson með
olíumálverk og Jón Laxdal Halldórsson, sem á
klippimyndir á sýningunni. Að sögn listamannanna
hefur sýningin verið vel sótt, einkum af innlendum
og erlendum ferðamönnum, sem leið eiga um
bæinn.
Álagningarskrá Norðurlands eystra lögð fram:
KEA greiðir 113 milljónir
Oddur C. Thorarensen gjaldahæstur einstaklinga
KAUPFÉLAG Eyfirðinga greiðir
hæsta skatta allra gjaldenda í
Norðurlandsumdæmi eystra, eða
tæpar 113 milljónir króna, sam-
kvæmt álagningarskrá sem lögð
var fram í gær. Næsthæst gjöld
greiðir Álafoss hf., tæpar 80
milljónir króna. Af einstakling-
um er mest lagt á Odd C. Thorar-
ensen á Akureyri, rúmlega 5,3
milljónir króna. Næstmest greið-
ir Önundur Kristjánsson á Rauf-
arhöfn, rúmlega 4,3 milljónir.
Heildarálagning í ár er 4.316
milljónir króna. Þar af greiða ein-
staklingar 3.163 milljónir, börn 5,5
milljónir og félög 1.147 milljónir.
Álagning á einstaklinga skiptist
þannig: Tekjuskattur 1.677 milljón-
ir, eignarskattur 71,2 milljónir,
slysatryggingagjald vegna heimilis-
starfa 1,4 milljónir, kirkjugarðs-
gjald 1,4 milljónir, slysatrygginga-
gjald 7,8 milljónir, lífeyristrygg-
ingagjald 13,6 miiljónir, atvinnu-
leysistryggingagjald 1,9 milljónir,
sérstakur eignarskattur 5,3 milljón-
ir, vinnueftirlitsgjald 1,8 milljónir,
aðstöðugjald 61,9 milljónir, útsvar
I. 280,8 milljónir, iðnlána- og iðnað-
armálagjald 1,9 milljónir, skattur
af verzlunar- og skrifstofuhúsnæði
2.3 milljónir og gjald í fram-
kvæmdasjóð aldraðra 34 milljónir.
Skattaafsláttur til greiðslu út-
svars einstaklinga var 274,2 millj-
ónir, til greiðslu eignarskatts 14,4
milljónir, til greiðslu sérstaks eign-
arskatts 0,6 milljónir, barnabóta-
auki 104,9 milljónir, húnæðisbætur
57,6 milljónir og vaxtabætur 123,7
milljónir.
Á böm eru lagðar 3,6 milljónir
í tekjuskatt og 1,8 milljónir í eignar-
skatt.
Á félög eru lögð eftirfarandi
gjöld: Tekjuskattur 406,7 milljónir,
eignarskattur 55,7 milljónir, kirkju-
garðsgjald 8,5 milljónir, slysatiygg-
ingagjald 37,8 milljónir, lífeyris-
tryggingagjald 207,1 milljón, at-
vinnuleysistryggingagjald 21,8
milljónir, sérstakur eignarskattur
II, 6 milljónir, vinnueftirlitsgjald
8,1 milljón, aðstöðugjald 333,3
milljónir, iðnlána- og iðnaðarmála-
gjald 35,9 milljónir og skattur af
verzlunar- og skrifstofuhúsnæði
20.3 milljónir.
Skattskráin liggur frammi á
skattstofunni á Akureyri í hálfan
mánuð og er kærufrestur 30 dagar.
Einstaklingar með hæstu álagn-
ingu samanlagt í Norðurlands-
umdæmi eystra 1990.
1. OddurC.Thorarensen
Akureyri 5.340.934
2. Önundur Kristjánsson
Raufarhöfn 4.368.655
3. Stefán Óskarsson
Rein, Öngulsstaðahr. 4.089.657
4. Pétur Bjarnason
Akureyri 3.700.770
5. Þorsteinn Thorlacius
Akureyri 3.398.594
6. Magnús Stefánsson
Akureyri 3.310.089
7. Vigfús Guðmundsson
Húsavík 3.295.433
8. Gissur Jónasson
Akureyri 2.937.634
9. ValmundurEinarsson
Akureyri 2.819.594
Félög
Kaupfélag Eyfirðinga
Aðstöðugj.
10. Hreiðar Valtýsson Akureyri 56.470.050
Akureyri 214.971 2. Útgerðrafélag Akureyringa hf.
Akureyri 16.280.210
3. Álafosshf.
Einstaklingar Aðstöðugj. Akureyri 12.000.000
1. Jón Þorgrímsson 4. Samheijihf.
Húsavík 1.625.000 Akureyri 8.175.180
2. Þorsteinn Thorlacius 5. Samb. ísl. samvinnuf. SVF
Akureyri 1.300.000 7.667.200
3. Júlíus F. Arason 6. K. Jónsson og co. hf.
Akureyri 1.300.000 Akureyri 7.415.600
4. Jónas Halldórsson, Sveinbjarnar- 7. Istesshf.
gerði, Svalbarðsstr. 830.540 Akureyri 6.728.930
5. Oddur C. Thorarensen 8. Fiskiðjusaml. Húsav. hf.
Akureyri 786.520 Húsavík 6.423.940
6. Sveinbjörn S. Herbertss. 9. Slippstöðin hf.
Akureyri 683.830 Akureyri 6.358.590
7. PéturBjarnason 10. KaupfélagÞingeyinga
Akureyri 650.920 Húsavík 7.184.600
8. Stefán Hallgrímsson
Akureyri 650.000
9. Tómas P. Eyþórsson
Akureyri 638.830
10. Helgi Gunnarsson
Skútustaðahr. 598.470
Félög Telgusk.
Útgerðarfélag Norður-Þing.
Þórshöfn 62.500.000
Álafoss hf.
Akureyri 50.000.000
10. Þorsteinn Vilhelmsson ó. ívianvmeni.
Akureyri 2.757.740 Húsavík 4. Hreifihf. 37.743.028
Einstaklingar Tekjuskattur Útsvar Húsavík 25.000.000
1. Önundur Kristjánsson, Raufarhöfn 3.144.114 886.513 5. Sparisjóður Ólafsfjarðar
2. Oddur C. Thorarensen, Akureyri 2.784.622 703.213 7.038.415
3. Magnús Stefánsson, Akureyri 2.628.711 666.766 6. Súlurhf.
4. Stefán Óskarsson, Rein, Öngulsstaðahr. 2.559.550 627.105 Akureyri 6.300.284
5. Valmundur Einarsson, Akureyri 2.240.434 576.000 7. Kaupfélag Langnesinga
6. Gissur Jónasson, Akureyri 2.240.434 576.000 Þórshöfn 6.250.000
7. PéturBjamason, Akureyri 2.104.371 544.193 8. Sigurbjörn sf.
8. Þorsteinn Vilhelmsson, Akureyri 2.063.380 604.367 Grímsey 5.000.000
9. Elías I. Elíasson, Akureyri 1.976.324 549.688 9. Fraktsf.
10. Vigfús Guðmundsson, Húsavík 1.974.962 535.356 Akureyri 5.000.000
10. Vélsmiðja B.G. sf.
Einstaklingar Eignarsk. Þau félög sent greiða hæstu Dalvík 5.000.000
sérstakur heildargjöld í Norðurlandsum- Félög Eignarsk.
eignarsk. dæmi eystra 1990 1. KaupfélagEyfirðinga
1. Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri 11.870.922
1. Haukur Þ. Adolfsson Akureyri 112.901.314 2. Kaupfélag Þingeyinga
Akureyri 554.500 2. Álafosshf. Húsavik 2.131.958
2. Oddur C. Thorarensen Akureyri 79.364.738 3. Súlurhf.
Akureyri 481.937 3. Útgerðarfélag Norður-Þing. Akureyri 1.977.845
3. Sverrir Ragnars Þórshöfn 68.490.819 4. Utgeröartelag Akureynnga hí.
Akureyri 424.744 4. Manvillehf. Akureyn 1.963.231
4. Kristján Gunnarsson Húsavík 37.834.569 5. Kaffibrennsla Akureyrar hf. •
Akureyri 334.500 5. Útgerðarfélag Akureyringa hf. 1.301.158
5. Sveinn E. Jónsson Akureyri 36.554.040 6. Hreifihf.
Ytra-Kálfsk. Ársk.hr. 302.240 6. Hreifihf. Húsavík 1.200.000
6. Svanhildur D. Karlsd. Húsavík 26.662.807 7. Kaupfélag Langnesinga
Akureyri 281.946 7. Akureyrarkaupstaður 18.113.555 Þórshöfn 1.200.000
7. Hildur Eiðsdóttir 8. Slippstöðin hf. 8. Sigvaldi Þorleifss. hf.
Akureyri 246.224 Akureyri 17.778.051 Ólafsfirði 1.200.000
8. Ása Marinósdóttir 9. Samheijihf. 9. Slippstöðin hf.
Ytra-Kálfsk. Ársk.hr. 245.760 Akureyri 17.683.768 Akureyri 1.100.370
9. FreyjaJónsdóttir 10. Kaupfélag Þingevinga 10. Gjögurhf.
Akureyri 240.473 Húsavík 16.272.119 Grenivík 1.082.789