Morgunblaðið - 01.08.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
27
Flugbj örgunar-
sveitin fær stórgjöf
FLUGBJÖRGUNARSVEITINNI í Reykjavík var nýlega færð einnar
milljónar króna gjöf til styrktar starfí sveitarinnar. Það var Orlofs-
dvöl hf. sem gaf þessa gjöf til minningar um Alfreð Eliasson, fyrrver-
andi forstjóra Loftleiða, en á þessu ári hefði Alfreð orðið sjötugur.
Orlofsdvöl hf. er félag starfsfólks
sem starfaði hjá Loftleiðum fyrir
sameiningu Loftleiða og Flugfélags
íslands, en Alfreð heitinn studdi
dyggilega við bakið á starfsmanna-
félaginu.
Árið 1950 var Flugbjörgunar-
sveitin í Reykjavík stofnuð og er
því fjörutíu ára á þessu ári. Hún
telur nú um 120 félaga og var Al-
freð Elíasson einn af stofnendum
sveitarinnar.
Afhending gjafarinnar fór fram
á heimili Kristjönu Millu Thorsteins-
son, ekkju Alfreðs heitins, og víst
er að peningarnir munu koma sér
vel, þar sem verið er að taka í notk-
un nýja björgunarmiðstöð, auk þess
sem rekstur sveitarinnar, þjálfun
leitar- og björgunarmanna, ásamt
öflun og viðhaldi tækjakosts, er
mjög kostnaðarsamt.
(Fréttatilkynning)
Frá afhendingu gjafarinnar, talið frá vinstri: Sigurður Gunnsteinsson, Haraldur Baldvinsson, Búi Snæ-
björnsson og Aðalmundur Magnússon, allir frá Orlofsdvöl lif., Ólafur Agnar Jónasson, formaður stjórn-
ar Orlofsdvalar hf., Óskar Sigurðsson frá Orlofsdvöl hf., Kristjana Milla Thorsteinsson, ekkja Alfreðs'
Elíassonar, Jón Gunnarsson, formaður Flugbjörgunarsveittirinnar í Reykjavík, Hilmar Leósson frá Or-
lofsdvöl hf., Grímur Laxdal, varaformaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík og Haukur Hallgríms-
son, stjórnarmaður og einn af stofnendum Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík.
Sæunn Halldórsdóttir að verki
við nýja súrefnismeðferð á and-
litshúð.
■ FYRIR skömmu tók Sæunn
Halldórsdóttir, fótaaðgerða- og
snyrtifræðingur, við rekstri Snyrti-
stofunnar Snótar á Þinghóls-
braut 19 í Kópavogi. Sæunn hefur
unnið við þessar greinar í 14 ár og
sérhæft sig við notkun franskra
snyrtivara frá Sothys. Sothys býð-
ur nú meðal annars nýjar húðmeð-
ferðir eða kúra, svo sem súrefnis-
meðferð. Snót hefur verið rekin í
Kópavogi í 10 ár og leggur sem
fyrr áherslu á fjölbreytta og per-
sónulega þjónustu. Eins og áður
býður stofan elstu kynslóðinni mjög
sérstök kjör vegna fótsnyrtingar.
Þá tekur stofan einnig að sér snyrt-
ingu og förðun af sérstökum tilefn-
um.
K/ELI-
SKAPUR
140 lítra, með klakakubbafrysti
TILVALINN FYRIR
SUMARBÚSTADI
FYRIRTÆKI
SMÆRRIHEIMIU
ÞÚ GETUR TREYST
PHILIPS
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI69 1520
, í sattauK^utK
Utígfr!
Landnemar vió Laugarvatn.
Kvennalisti á krossgfttum?
, T1 Olí k j <1 - AÍVfr,—■,
TÍMASKEKKJA
Inger Anna Aikman hefur vakið at-
hygli fyrir óvenjulega útvarpsþætti.
Hún hefur mikinn áhuga á andleg-
um málefnum og ýmsir mannlegir
eiginleikar eru henni hugleiknir.
Sjálf segist hún vera tímaskekkja.
LANDNEMAR VIÐ LAUGARVATN
Jódís Vilhjálmsdóttir og Jón Pét-
ursson hafa ekki látið sér nægja að
rækta garðinn sinn heima við hús.
Þau hafa gróðursett þúsundir trjáa
í landareign sinni við Laugarvatn
og stefnt lífi sínu í nýjan farveg.
UtigrTI
Landnemar við Laugarvatn.
Kvennalisti á krossgötum?
kekkja - i.
Utigrtl
Landnemar viö Laugarvatn.
M Kvennatisti á krossgötum?
- > \> , f'm^okekkja
Nýtt Líf - blad í takt við tímann
Tryggðu þér eintak í sumarfríið
Utígr
Landnemar við Laugarvatn
nnalisti á krossgöturn?
kja .
KVENNALISTI Á KROSSGÖTUM?
Af hverju hafnaði Kvennalistinn
þátttöku í myndun ríkisstjórnar
1987? Hvers vegna tóku Kvenna-
listakonur ekki þátt í sameiginlegu
framboði sl. vor? Er tilvistarkreppa
í uppsiglingu hjá samtökunum.
Ingibjörg Sólrún gerir upp málin.
Tk-ite
FRODI
BÓKA r. BLAOAUTCAFA