Morgunblaðið - 01.08.1990, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
iiTifmMii a i jrzii Y^IKICGAR
Bókhald
Viðskiptafræðingur eða aðili sem hefur góða
starfsreynslu á tölvum óskast til starfa nú
þegar til að hafa umsjón með bókhaldi hjá
stóru viðskiptafyrirtæki.
Umsóknir merktar: „Framtíð - 4144“ sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudaginn 3.
ágúst nk.
Starfsmaður
í mötuneyti
Mötuneyti Samvinnuháskólans á Bifröst
óskar að ráða starfsmann til að annast mat-
reiðslu og daglegan rekstur mötuneytis
skólans. Þarf að geta hafið störf 25. ágúst nk.
Ódýrt húsnæði á staðnum.
Umsóknum ber að skila á auglýsingadeild
Mbl. merktum: „Mötuneyti-13365" fyrir 8.
ágúst nk.
Starfsfólk
Óskum að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa
í verslunum okkar. Yngra en 19 ára kemur
ekki til greina.
Um er að ræða heils- og hálfsdagsstörf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Væntanlegir umsækjendur vinsamlega hafið
samband við skrifstofuna, Laugavegi 42, frá
kl. 17.00-19.00 föstudaginn 3. ágúst
(upplýsingar ekki gefnar í síma).
Rennismiður
óskast sem fyrst.
VÉL.VÍK
Dugguvogi 19,
sími 35795.
Skólastjóri
- organisti
Skólastjóra og kennara vantar við Tónskóla
Patreksfjarðar. Jafnframt þarf viðkomandi að
geta tekið að sér starf organista og kór-
stjóra við Patreksfjarðarkirkju. í kirkjunni er
nýuppgert 8 radda Walcker pípuorgel.
Umsóknum skal skilað fyrir 10. ágúst nk. til
neðanritaðra sem gefa nánari upplýsingar:
Sigurður Jónsson, sóknarprestur, Aðalstræti
57, í síma 94-1324 og Sigurður Viggósson,
formaður skólanefndar, Sigtúni 5, í síma
94-1389 á Patreksfirði.
?|l BORGARSPÍTALINN
Starfsfólk
- röntgendeild
Starfsfólk óskast til aðstoðarstarfa á rönt-
gendeild. Um er að ræða 100% starf.
Upplýsingar gefur hjúkrunarstjóri í síma
696433.
Meiraprófsbílstjóri
Óskum eftir meiraprófsbílstjóra til afleysinga
sem fyrst.
Upplýsingar í síma 672904.
Kennararathugið
Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru lausar
nokkrar stöður. Kennslugreinar meðal ann-
ars enska, danska og raungreinar.
Ódýrt húsnæði til staðar ásamt leikskóla-
plássi fyrir börn 2ja-5 ára.
Fámennar bekkjardeildir og gott kennsluhús-
næði. Flutningsstyrkur greiddur.
Upplýsingar gefa formaður skólanefndar,
Kjartan Reynisson, í vinnusíma 97-51240 eða
heimasíma 97-51248 og skólastjóri í vinnu-
síma 97-51224 eða heimasíma 97-51159.
Skólanefnd.
Góðir tekjumögu-
leikar 7.-25. ágúst
Atvinnumiðlun námsmanna og Félag
íslenskra hugvitsmanna óska eftir að ráða
starfsmenn til skrifstofu- og sölustarfa vegna
fjáröflunarherferðarinnar „Hresstaskan".
Umsóknareyðublöð og upplýsingar liggja
frammi hjá Atvinnumiðlun stúdenta í húsi
Félagsstofnunar stúdenta v/Hringbraut, sími
622080, dagana 1.-3. ágúst.
Atvinnumiðlun námsmanna.
Félag íslenskra hugvitsmanna.
BÁTAR — SKIP
Til sölu
Gáski 1000. Til sölu mjög góður 9,9 tonna
bátur. Tvær kraftmiklar vélar. Einn sá flott-
asti í flotanum.
Kvóti til sölu
Höfum til sölu síldarkvóta.
Kvóti óskast
Höfum fjársterkan kaupanda að miklu magni
af kvóta.
Vantar báta
11 -20 tonna bát. Má vera með lítinn kvóta.
100-120 tonna góðan vertíðarbát, má vera
með lítinn kvóta.
Húsafell ^
■ FASTEIGNASAIA Langhoksvegi 11S
(Bsejarteiiahúsinu) Simi:681066
Kvóti - kvóti
Okkur vantar kvóta fyrir togarana okkar Arn-
ar og Örvar.
Upplýsingar í símum 95-22690 og 95-22620.
Skagstrendingur hf.,
Skagaströnd.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Byggingameistarar
- verktakar
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen óskar
eftir kauptilboði fyrir hönd viðskiptamanns
síns í notað byggingatimbur.
Upplýsingar eru gefnar í síma 91-84499.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Wélagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
IIÚTIVIST
GRÓFINNÍI • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI H60Í
Um verslunarmanna-
helgina. 3/8-6/s
Básar í Goðalandi
Það eru rólegheit í Básum um
verslunarmannahelgina jafnt
sem aðrar helgar. Náttúrufegurð
og fjallakyrrð, tilvalinn staður til
þess að slappa af og safna orku
til nýrra átaka. Fararstjóri Ingi-
björg Ásgeirsdóttir.
Fimmvörðuháls-Básar
Fögur gönguleið upp með
Skógaá, yfir Fimmvörðuháls,
milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjalla-
jökuls, og niður á Goðaland. Gist
í Útvistarskálanum í Básum.
Núpsstaðarskógar
Gróðurvin í skjóli jökla í hlíðum
Eystrafjalls. Skemmtilegar
gönguleiðir m.a. að Tvílitahyl.
Fararstjóri Sigurður Sigurðar-
son.
Langisjór-Sveinstindur-
Lakagfgar
Svefnpokagisting. Gengið um
Lakagígasvæöiö, farið í Eldgjá,
og gengin fögur leið niður með
Hellisá sem skartar ótal blæju-
fossum. Fararstjóri Þorleifur
Guðmundsson.
Spennandi
gönguskíðaferð
Sólheimajökull - Mýrdalsjökull
Farið upp Sólheimajökul með
skíðalyftu, gengið vestur Mýr-
dalsjökul og gist á Fimmvörðu-
hálsi. Ferðinni lýkur að sjálf-
sögðu í Básum.
Sjáumst.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Ferðafélag íslands
- ferðir um verslunar-
mannahelgi 3.-6. ágúst
Brottför í ferðirnar er
kl. 20.00 föstudag 3. ágúst
1. Þórsmörk - Langidalur.
Gist í Skagfjörðsskála eða tjöld-
um. Gönguferðir um Mörkina við
allra hæfi. Ferðir til baka sunnu-
dag og mánudag. Ódýr helgar-
dvöl í Langadal/Þórsmörk.
2. Þórsmörk-Fimmvörðuháls.
Gengið frá Skógum yfir Fimm-
vörðuháls (8 klst.) til Þórsmerk-
ur. Gist í Þórsmörk og samein-
ast helgarferðinni.
Tjaldstæði Ferðafélagsins í
Þórsmörk eru þegar fullbókuð
en laus pláss fyrir þátttakendur
í helgarferðinni með FÍ.
3. Lakagígar - Öðlubrúará -
Miklafell - Fjallabaksleið syðri.
Fjölbreytt ferð. Lakagígar skoð-
aðir (gos 1783), ekið að Mikla-
felli um lítt kunnar ferðamanna-
slóðir, fornt gljúfur Hverfisfljóts
skoðað, steinbogi á Öðulbrúará
o.fl. Jón Jónsson, jarðfræðingur,
verður með í ferðinni, en hann
hefur stundað rannsóknir á
þessu svæði um árabil og þekk-
ir það flestum betur. Svefnpoka-
gisting.
4. Nýidalur - Vonarskarð -
Trölladyngja.
Áhugaverð hálendisferð að
miðju landsins. Gengið um Von-
arskarð og á Trölladyngju,
stærstu gosdyngju landsins.
Gist í sæluhúsi FÍ í Nýjadal.
5. Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi FÍ í Laugum.
Margrómuð litadýrð blasir hvar-
vetna við á Torfajökulssvæðinu.
Eldgjá er mikil gossprunga, sem
gengið verður um og að Ófæru-
fossi.
Nánari upplýsingar og farmiða-
sala á skrifstofu Fi.
Ferðafélag islands.
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma í kvöld kl. 20.30. í
kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58. Ræðumaður: Baldvin
Steindórsson.
Allir velkomnir.
Ðútivist
GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI1460«
Kvöldganga
1.8. kl. 20.00 Bringur - Helgu-
foss. Létt ganga á Mosfells-
heiði. Brottför frá BS( - bensín-
sölu. Stansað við Árbæjarsafn.
Sjáumst.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Kvöldferð miðvikudag-
inn l.ágúst
Kl. 20.00 Kvöldferð í Blá-
fjallahella
Nauðsynlegt að hafa með vasa-
Ijós og hjálm eða húfu. Spenn-
andi hellaferð um fjölbreyttasta
hellasvæöi I nágrenni Reykjavík-
ur. Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Farmiö-
ar við bíl. Frítt fyrir börn að 15
ára aldri I fylgd fullorðinna.
Ferðafélag íslands