Morgunblaðið - 01.08.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú munt hafa áhyggjur af ein-
hverju varðandi vinnuna en leysir
málið með hugkvæmni síðdegis.
Nú er rétti tíminn til að láta reyna
á eigin hæfileika!
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú átt í deilum við einhvern sem
vill gefa þér góð ráð í dag. Það
er hyggilegt að reyna að sinna
einhverju óvenjulegu til að bæta
skaðann. Mögulegt að þú eignist
nýtt áhugamál.
/ Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
íhugaðu gaumgæfilega þá kosti
sem þér bjóðast núna og þá
muntu finna leið út úr tíma-
bundnum vanda. Nýtt sjónarhorn
gefur þér tækifæri til að standa
þig vel.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HI8
Taktu ekki að þér fleiri verkefni
en þú ræður við í vinnunni í dag.
Reyndu að meta hæfíleika þína
af raunsæi, einnig þann tíma sem
þú hefur aflögu núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
^ Þér gæti leiðst eitthvað sem þú
vinnur við núna en jafnframt
hlakkað til að fást við verkefni
sem bjóðast í dag. Þú getur stað-
ið þig vel með því að sýna hug-
kvæmni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Gakktu úr skugga um að þú haf-
ir staðið við ioforð sem þú gafst
vini þínum. Eitthvað sem virtist
geta orðið vandamál snemma
dags reynist skemmtilegt áður
en dagurinn er allur. Óvænt sam-
skipti við hóp fólks reynast bráð-
skemmtileg.
vög ~T
(23. sept. - 22. október)
Eitthvað gengur ekki sem skyldi
í vinnunni þrátt fyrir tilraunir til
að leysa málið. Þú færð bestu
hugmyndirnar núna í einrúmi.
Sporddreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9((j0
Farðu varlega í innkaupum núna
annars gætirðu þurft að skila
einhverjum vamingi. Samskipti
þín við vin munu batna í dag.
Óllu skiptir að velja réttan tíma
til að leysa málið.
Bogmaóur
^ (22. nóv. — 21. desember)
Forðastu að steypa þér í skuldir
í dag. Þú færð snjalla hugmynd
í vinnunni. Þú ert reiðubúinn að
reyna eithvað nýtt; treystu á eig-
ið innsæi í þeim efnum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir verið að velta fyrir þér
námskeiði af einhverju tagi. Það
togast á í þér löngun til að vera
með öðrum og vera einn.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Vinnan og ijölskyldan eiga allan
hug þinn núna. Skoðanir þínar á
fjárhagslegu öryggi eru að breyt-
ast.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það er óheppilegt að reyna að
tengja saman starf og afþreyingu
í dag. Þér gætu einnig leiðst svo-
lítið hefðbundin störf þín. Það er
þrátt fyrir allt í lagi að skemmta
sér með óvenjulegum hætti.
AFMÆLISBARNIÐ er í senn
sjálfstætt og á auðvelt með að
vinna með öðrum en getur átt
erfitt með að samræma þessa tvo
eðlisþætti. Það þarf að forðast
-v að láta þörfina fyrir fjárhagslegt
eða tilfinningalegt öryggi koma
í veg fyrir að það vinni sjálf-
stætt. Það á að sýna frumleika
og þá getur það reitt sig á stuðn-
ing annarra. Það hefur mikla list-
ræna hæfileika en getur einnig
náð langt í viðskiptalífinu. Yfir-
leitt gengur því vel að efnást.
Stjörnuspána á aó lesfi setn
* dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
TOMMI OG JENNI
Jenn/, tomsm/ Herutf ,
£/ckzt étM/k&HÐ OtCktuX. /
HLLAN OA6 ?
LJOSKA
É66BT EKK/ PA0D A FÆTUK
ALirS£AtÉG AtUNGFKA t'PAí
EeéGAúlHM /40
FERDINAND
SMAFOLK
BEETHOVEM NEVER W0N
THE FREHCH 0PEN, WIMBLEP0N,
0R.THE 5TANLEY CUP...
Beethoven vann aldrei Opnu
frönsku keppnina, Wimbledon eða
Stanley-bikarinn ...
PROBA0LY COULPN'T
5TAND CRITICI5M, EITMER...
6-/6
Gat líkast til ekki heldur þolað
gagnrýni ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þeir sem spila MULTI 2 tígla
beita gjarnan stökki í 3 hjörtu
og 3 spaða til hindrunar í LIT
MAKKERS. Slík stökk lofa því,
strangt til tekið, samlegu við
hvorn hálitinn sem er.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ Á74
VÁSG105
♦ ÁD64
*8
Vestur Austur
* 965 .. ♦ KD10832
V3 ¥K84
♦ KG95 ♦ -
+ D9652 + 10743
Suður
♦ G
¥9762
♦ 108732
+ ÁKG
I fyrri leik íslands og Finn-
lands í opnum flokki opnaði Þor-
lákur Jnosson í austur á MULTI
2 tíglum.
Vestur Norður Austur Suður
— — 2 tíglar Pass
3 hjörtu Dobl 3 spaðar 4 hjörtu
4 spaðar 6 hjörtu Dobl Pass
Pass pass
Útspil: lauftvistur.
MULTI-spekingar halda því
margir fram að nóg sé að eiga
tvílit til að stökkva í þrjá, því
erfitt sé fyrir mótherjann að
finna sekt þegar hún á við.
Dálkahöfundur ákvað að útfæra
þessa kenningu örlítið, enda
hætturnar hagstæðar. En
Finnarnir voru fljótir inn í sagn-
ir og skömmu síðar þurfti ofan-
ritaður að velja útspil eftir
Lightner-dobl Þorláks.
Það var kvalafullt að horfa á
blindan koma upp eftir útskotið
í laufi. Og ekki bætti úr skák
þegar safnhafi, Vitasalo, fékk
ódýran slag á laufgosa. Vitasalo
leið nú nokkuð vel. Hann spilaði
hjarta og svínaði, og sýndi engin
svipbrigði þegar Þorlákur drap
á kóng. Drap síðan spaðakóng
Þorláks með ás, trompaði spaða
og spilaði hjarta. En nú var hon-
um brugðið, enda engin leið að
vinna spilið í 3-1-legunni. Hann
trompaði hinn spaðahundinn,
tók ÁK í laufi og svínaði tígli
með vonleysissvip. Einn niður.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á millisvæðamótinu í Manila
kom þessi staða upp í skák hinna
öflugu stórmeistara Nigel Short
(2.610), Englandi, sem hafði hvítt
og átti leik, og Yasser Seirawan
(2.635), Bandaríkjunum. Short
hafði fórnað peði fyrir yfirráð yfir
c-línunni og lauk nú skákinni með
hróksfórn:
Jí . fS úB' I
m m M m
1 s ■ ■
33. Hgl! og Seirawan gafst upp,
því hann er mát eftir 33. — Hxc7,
34. Hg8+ - Ke7, 35. He8.
Þetta var mjög mikilvæg skák,
tefld í 10. umferð. Seirawan náði
sér ekki á strik aftur en eftir jafn-
tefli í næstu tveimur skákum við
þá Dreev og Korchnoi, varð Short
að vinna Mikhail Gurevich með
svörtu í síðustu umferð. Það tókst
honum, því Sovétmaðurinn var
alveg heillum horfinn, það á
greinilega ekki vel við hann að
tefla til jafnteflis,
I i • « r . • í tt í, iT