Morgunblaðið - 01.08.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
31
ísland og Evrópubandalagið
eftir Grétar H.
*
Oskarsson
Við íslendingar stefnum hraðbyri
inn í Evrópubandalagið. En viljum
við það? Viljum við gangast undir
lög samin af öðrum þjóðum og vilj-
um við láta þær taka ákvarðanir í
okkar málum? Viljum við verða út-
kjálkahérað evrópsks stórveldis sem
stjómað er með hagsmuni stórveld-
isins í huga en ekki þeirra 250 þús-
und sálna sem hér búa? Er það þetta
sem við viljum?"
Stefna stjórnvalda
íslensk stjórnvöld stefna leynt og
ljóst að innlimun íslands í Evrópu-
bandalagið. Virðast ráðamenn allra
fiokka og fjölmargir forystumenn
atvinnurekenda og launþegasam-
taka vera nokkuð sammála um það
og ekki er að sjá nema blæbrigða-
mun á gerðum þeirra og afstöðu.
Ástæður hinna ýmsu hópa fyrir því
að vilja ganga í Evrópubandalagið
virðast þó vera af ýmsum mismun-
andi toga spunnar og ærið misjafn-
ar.
Skoðanakannanir
Til þess að réttlæta þessa stefnu
eru gerðar skoðanakannanir og
spurt hvort íslendingar ættu að
ganga í Evrópubandalagið. Svörin
verða að sjálfsögðu markiaus sem
og niðurstöðurnar, því í sömu skoð-
anakönnunum kemur fram að fólkið
sem spurt er veit ekki hverju það
er að svara, og meira en helmingur
aðspurðra getur ekki nefnt eitt ein-
asta EFTA- eð EB-land. Þessar
„vísindalegu" niðurstöður eru svo
birtar sem einhver sannleikur í fjöl-
miðlum með útlistunum og hlutfalls-
breytingum frá fyrri skoðanakönn-
unum með einum ef ekki fleiri auka-
stöfum!
Djöfullinn danskur
í mínu ungdæmi var „djöfullinn
danskur“. Það voru leifar af gamla
Danahatrinu sem á sínum tíma sam-
einaði þjóðina í sjálfstæðisbaráttu
hennar. Nú stefnir allt í það að við
afsölum okkur af fúsum og frjálsum
vilja ákvörðunarvaldi og sjálfstjórn
í fjölmörgum málum og flestum
þeim sem gera okkur að sjálfstæðri
þjóð. Við stefnum að því, á hálfrar
aldar afmæli íslenska lýðveldisins,
að verða hluti af Evrópubandalaginu
um 1994 líkt og Eistland, Lettland
og Lithaugaland urðu, gagnstætt
þjóðarvilja, hluti af Sovétríkjunum
1940. Nú eru þessi Eystrasaltslönd
að reyna að losna undan ofurvaldi
sovéska stórveldisins, en losnum við
nokkurn tíma undna ofurvaldi evr-
ópska stórveldisins ef við göngumst
því á vald af fúsum og frjálsum vilja?
Kostir og gallar
Hverjir skyldu vera kostir þess
að ganga Evrópubandalaginu á
hönd og hveijir skyldu vera gallar
þess? Kostirnir hljóta að vera marg-
ir og yfirgnæfa alla galla eða skyldi
ekki vera óhætt að ætla svo? Kost-
irnir virðast meira að segja svo
miklir að í aivöru er rætt um að
fórna okkar aðal- og grundvallar-
auðlind, fiskimiðunum, fyrir mál-
staðinn. Rétt væri af ráðamönnum
þessa lands að upplýsa okkur, sem
er þessi „sannleikur" ekki ennþá
fuilkomlega ljós, í auðskildu máli,
hvað við vinnum og hvað við töpum
á aðild að Eyrópubandalaginu?
Þekking okkar íslendinga á þeim
málum virðist nær engin svo sem
skoðanakannanir sýna.
Valkostir og niðurstaða
Eigum við nokkurra annarra
kosta völ en að ganga í Evrópu-
„Ég held að við ættum
að flýta okkur hægt í
samningum við Evrópu-
bandalagið, það eru
fleiri valkostir.“
bandalagið þegar EFTA leysist nú
upp í frumeindir sínar og ríki þess
ganga eitt af öðru í Evrópubanda-
lagið? Vel má það vera ef grannt
er skoðað. Heimurinn er ekki tak-
markaður við Evrópu. Japan er nú
þegar mikilvægt viðskiptaland okk-
ar og fleiri lönd í Asíu stefna hrað-
byri til hagsældar og framfara svo
sem Singapore. Handan Atlants-
hafsins eru svo tvö voldug ríki sem
ekki girnast fiskimið okkar og auð-
lindir, Bandaríkin og Kanada. Þessi
ríki hafa gert með sér fríverslunar-
bandalag og stefnir Mexíkó nú einn-
ig á þátttöku í því. Ég minnist þess
ekki að á Alþingi hafi verið hreyft
við hugmynd um fríverslunarbanda-
lag við Bandaríkin síðan Gunnar
G. Schram viðraði það fyrir allmörg-
um árum. Ég held að við ættum að
flýta okkur hægt í samningum við
Evrópubandalagið, það eru fleiri
valkostir.
Höfundur er
flugvélaverkfræðingur og
framkvæmdastjóri
loftferðaeftirlitsins.
Grétar H. Óskarsson
Vestfirðir: Rafbúð Jónasar Þór, Patreksfirði *,Bjarnabúð, Tálknafirði • Edinborg, Bíldudal • Verslun Gunnars Sigurðssonar, Þingeyri
Einar Guðfinnsson, Bolungarvík • Straumur, ísafirði • Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík • Kf. Húnvetninga, Blönduósi
<o m
® V.
_ «
2.«o
Æ -
cc o
J3
- 3
O) U)
>'<
03 •
OO
. 03
— u
*o c
O 3
1= c
o
(/)
pc: o)
> E
03 'iZ
* 05
O *
ÍT 3C
O *9
ta:
O 'u
3 C
(J cTS
. V)
D .9
r o
X
li
F E
o
CCQ
03 •
PL‘c/j
E?CD
Q) C
to fe
c S»
“ o
(D CQ
O O)
jQ- C
o
k—
fep
i«8
isi
fE .
♦=T‘ö)
o
c
05
f* £
><
03 _
>»03
32 0)
tL o
„ c
í=:o
o)-e-
c 03
G O)
S.E
‘ _c
'03
hf
ÍT *
® >
£ 03
„TJ
(2o
03 w
9> O)
* O
JQ
‘S
oc
•
Scg
þI
cLz=
teco
AEG
Uppþvottavél, Favorit 775 U-W.
Áður kr. 64.200.-. Nú kr. 54.900,- stgr.
Örbylgjuofn, MC 155 L-W.
Áður kr. 30.908.-. Nú kr. 23.970.- stgr.
Ryksuga, Vampyr 402.
Áður kr. 10.141.-. Nú kr. 8.975.- stgr.
VELDU ÞER TÆKI SEM ENDAST!
Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér góð og örugg tæki, á sérstöku sumarverði!
Verð miðast við staðgreiðslu, með VSK.
Bræðurnir Ormsson hf. Umboðsmenn Reykjavík og nágrenni:
BYKO, Kópavogi • BYKO, Hafnarfirði • Byggt og búið, Reykjavík
i i 3 t 11 2 tk i
&.&.€ S ð Ik Í t £& U
BRÆÐURNIR
CBMSSQNHF
Lágmúla 9. Sími 38820
gj, •
~c/>£
CD 0)
•< CQ
9!^
o
3* ZD
0) i
S »
l'S
Pl'
mo-
Ö5'~
“ • :
_ 7C
o m
S >
íí
■§■<
5T ~!
S * 5
03
u°:
3 CT
(D C'
O
Sg?
fi-i
0<(Q
if
1.3
o •
i*a>
o* 9.
3"“
ro ?
0) v^:
T1 S
ÍD'S-
cn 3
7T CP
EȒg
||.
o* *
7 3
5 5
0)5
^CQ
■* CD
X'S.
9: 3
t'CQ 5
0)
íi
0) =!.
3 ^
Q. •
>
>5
Je
ÍI2.
3 fi)
3 3
® co
o <
8 §•
3
J3 (?)
0
O
xr 3
o c
3_ 3
‘ CL
O)
co
2;§
3 ”
m
o c/>
C£ W
CD O:
= o
I!
3 o"
3*0
CD 3
W =í;
2,tQ
3 »
s<
g-8
œ 3'
t<.
I S