Morgunblaðið - 01.08.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
41
Nemendur!
Þessir hringdu . .
Mjög slæmt ástand vega
Þorsteinn Kjartansson
hringdi:
„Eg var á ferð í Stykkishólmi
og nágrenni og var ástand vega
þar vægast sagt mjög slæmt. Eg
skemmdi tvö ný dekk á þessum
vegum. Það eru hættulegar holur
í malbikinu og malarvegum er
illa við haldið.“
Gott framtak lögreglunnar
Páll hringdi:
„Það er gott framtak lögregl-
unnar í Reykjavík að taka háv-
aðasöm vélhjól úr umferð. Það
er oft sem eigendur slíkra hjóla
halda fyrir manni vöku. Ég hélt
að vélhjólaeigendur væru það
skynsamir að þeir legðu metnað
sinn í að ónáða ekki hinn al-
menna borgara um hánætur með
hávaða sem fylgt getur keyrslu
vélhjóla."
Þarf ekki veðurfræðinga í
fréttatímum
Sigrún hringdi:
„Eg las frétt þess efnis að
veðurspár í fréttatíma ríkissjón-
varpsins myndu kannski leggjast
niður vegna þess að veðurfræð-
ingar hefðu sagt upp störfum og
vilja hærri laun. Það er allt í lagi
þó veðurspárnar birtist ekki með
þeim hætti sem þær eru nú. Það
er löngu tímabært að breyta til
— og myndi nægja að fréttamenn
læsu upp spá morgundagsins,
það þarf ekki veðurfræðinga til
þess. Stöð 2 þarf ekki á sérstök-
um veðurfræðingum að halda en
birtir samt veðurfréttir öll kvöld.“
Kettlingar
Þrír svartir kettlingar fást gef-
ins á góð heimili. Upplýsingar í
síma 37687.
Orðiðfulltstarf
að ná sambandi
Helgi Gunnarsson úr Mý-
vatnssveit hringdi:
„Ég hef þurft núna í nokkra
mánuði að hafa samskipti við
Húsnæðisstofnun ríkisins. Síma-
samband og þjónusta sem maður
fær þama er gjörsamlega óþol-
andi. Ef skiptiborðið svarar, sem
er endrum og eins, þá má maður
bíða og bíða. Það er orðið fullt
starf að ná sambandi við þessa
menn þarna fyrir sunnan og er
hlutur sem maður er engan veg-
inn sáttur við. Nú er þetta þjón-
ustuaðili sem á að þjóna lands-
byggðinni eins og höfuðborgar-
svæðinu. En við sem búum fyrir
utan höfuðborgarsvæðið þurfum
að sækja allt okkar í gegnum
síma. Þeir aðilar sem maður þarf
að ná til eru ekki alltaf við og
stundum ekki nema á vissum tím-
um. Maður þarf að fá frí í vinn-
unni til að komast í símann og
svo kostar þetta sitt. Nú í morg-
un hef ég eytt einum og hálfum
klukkutíma í það að bíða eftir
einum aðila. Ég taldi mig vera
kominn nálægt því að komast að,
eftir mikla bið en þá slitnaði. Ég
hringdi aftur en þá voru fjórir
komnir á undan mér svo biðin
lengdist enn meir.“
Patti týndur
Grábröndóttur köttur með
hvíta bringu og hvítar lappir
týndist í Langagerði fyrir rúmri
viku. Kötturinn sem heitir Patti
var með rauða ól um hálsinn.
Þeir sem vita um hann hringi í
síma 29004 eða 34375.
I verkahring kirkjunnar
að mótmæla eldmessum
Til Velvakanda.
Nýverið héldu Hólmvíkingar upp
á að 100 ár eru liðin síðan staður-
inn fékk verslunarleyfi. Gleðskap-
urinn stóð yfir í eina helgi og fór
hið besta fram. Ibúafjöldi bæjarins
sexfaldaðist meðan herlegheitin
stóðu að sögn viðstaddra. Margt
var þar til gamans gert og einnig
boðið upp á ýmis skemmtiatriði og
eitt atriðið þarna var eldmessa.
Hún er raunar ástæða fyrir þessu
pári mínu. Þannig er mál með
vexti að kristni var lögleidd hér
fýrir rúmum 1000 árum og heiðni
þar með niðurlögð. Eldmessur,
galdrabrennur og önnur álíka at-
hæfi iðkuðu heiðingjarnir til dýrðar
Ásum. Kristindómurinn bannar
hinsvegar alla slíka dýrkun. Þess
vegna hlýtur það að vera í verka-
hring kirkjunnar að mótmæla slík-
um gerningum þegar þeir gerast.
Nema því aðeins að kristin trú sé
búin að taka þá í sátt og ef svo
er þá er hún líka komin í andstöðu
við sjálfa sig og boðskap Biblíunn-
ar. Áf þeirri ástæðu að orð Guðs
stendur óbreytt um aldir alda. Orð-
ið stendur einnig af sér hverskyns
tískusveiflur.
Enginn má skilja orð mín svo
að ég sé að agnúast út í íbúa áður-
nefnds bæjarfélags. Öðru nær,
heldur er ég fremur að benda á
það að mönnum verður að vera
eitthvað heilagt í lífinu þrátt fyrir
allt frelsið sem þekkist í dag, þar
sem öllum er heimilt að gera nán-
ast hvað sem þeim sýnist. Og það
er nú einu sinni svo að kristni er
okkar þjóðtrú. Inn í hana eru börn-
in skírð o.s.frv. Þessu hefur ekki
verið breytt að mér vitandi.
Að endingu vil ég segja þetta,
mér fínnst það vera skylda kirkj-
unnar að fjalla um málið í fullri
alvöru og ekki til að dæma einn
né neinn heldur til að áminna og
veija um leið það sem er gott.
Konráð Friðfinnsson
Stórkost/egtti/boð ti/ykkar.
CST 386 SX tölva.
1. Mb. innra minni.
40. Mb. harður diskur, 25 ms.
2. samhliðatengi.
1. raðtengi.
1. stýripinnatengi.
1. "5 1/4 diskadrif.
1. "3 1/2 diskadrif.
"14 Einlitaskjár.
(Hægt að fá VGA litaskjá)
MS-DOS 4,01 & GW-BASIC.
Kr. 158,500.-
Þetta einstæða verð er í tilefni af 5. ára afmæli Pegasus hf. og gert í samvinnu við
CST. verksmiðjurnar. Tilboðið gildir til 15. ágúst, eða á meðan þetta takmarkaða
magn endist, því er nauðsynlegt að hafa snör handtök og staðfesta pöntun strax.
Pegasus hf. Ármú/a 38 105 fívk. Sími 91-688277.
MANSTU UTS0LUNA 0KKAR I FYRRA?
UTSALANT
FULLUM GANGI
BÆTUM Á
ÚTSÖLUNA
ÚTSALA
Skólavörðustíg 14 - Símar: 24 5 20 & 1 70 54