Morgunblaðið - 01.08.1990, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
GOLF / LANDSMOTIÐ A AKUREYRI
Keppni í meistara- og 1. flokki hefst í dag:
Meistaramir tá harða keppni
Úlfarog Karen þurfa að hafa mikið fyrir titilvörninni
KEPPNI í meistara- og 1. flokki
karla og kvenna hefst á Lands-
mótinu á Jaðarsvelli á Akureyri
í dag. Flestir spá því að ís-
landsmeistararnir Lllfar Jóns-
. son GK og Karen Sævarsdóttir
verji meistaratitilinn en víst er
þau fá harða keppni. Útlit er
fyrir spennandi keppni í meist-
araflokki og mikla baráttu.
ÆT
Ulfar hefur sigrað þrisvar á
Landsmóti síðustu fjögur ár-
in. Fyrsta íslandsmeistaratitlinum
náði hann á Akureyri og varð þar-
með yngsti meistarinn í sögu móts-
ins. Síðan þá hefur hann haft tölu-
verða yfirþurði.^Sigurður Sigurðs-
son GS náði þó að stöðva sigur-
göngu Úlfars í Grafarholtinu fyrir
tveimur árum en þá höfðu svo að
segja allir spáð öruggum sigri Úlf-
ars.
Einvígi Úlfars og Sigurjóns?
„Ég veit að staðan er mjög svip-
uð núna og fyrir mótið í Grafar-
holtinu. Þá var mikii pressa á mér
og ég tók hana of alvarlega. Núna
er ég tveimur árum eldri og vona
að mér takist að leiða slíkt hjá
mér,“ sagði Úlfar. Hann hefur
leikið mjög vel í sumar, hafnaði í
2. sæti á Norðurlandamótinu og
í 9. sæti á Evrópumótinu. „Miðað
við árangur í sumar get ég verið
bjartsýnn en það er aldrei hægt
að vera öruggur á Landsmóti. Ég
reyni bara að einbeita mér og
hugsa fyrst og fremst um að leika
eftir bestu getu en spá minna í
andstæðingana," sagði Úlfar.
Siguijón Arnarson þykir líkleg-
astur til að veita Úlfari keppni,
enda leikið mjög vel í sumar. Hann
sigraði örugglega á stigamótunum
og Meistaramóti GR. „Mótið
leggst vel í mig og ég er bjart-
sýnn. Völlurinn er góður og ég
hef trú á því að úrslitin ráðist
á flötunum," sagði Sigutjón. Hon-
um hefur reyndar aldrei gengið vel
á Landsmóti og besti árangur
hans er 8. sætið í fyrra. „Nú er
kominn tími til að gera eitthvað
og ég ér ákveðinn í að standa
mig,“ sagði Siguijón.
Úlfar og Siguijón eru alls ekki
þeir einu sem eiga góða möguleika
á titlinum. Sigurður Sigurðsson
GS, íslandsmeistari 1988, hefur
leikið vel og sama má segja um
Ragnar Ólafsson og Sigurð Pét-
Hvaleyrarholtsvöllur
Stórleikur í 3. deild
/i
r - Dalvik
í kvöld kl. 20.
50 fyrstu gestirnir fá Stjörnupopp.
HOLTANESTI, SKÚTAN,
Hvaleyrarholti, Dalshrauni 15,
BJARMI sf vélaverkstæði, Trönuhrauni 3.
Nú mæta allir Haukar ó völlinn.
VP-MOTID
Hraðmót í knattspyrnu fer fram á Víkurvelli í
Vík laugardaginn 11. ágúst nk.
Keppt verður í karla- og kvennaflokki, 7 í liði
og frjálsar skiptingar.
Upplýsingar og skráning í síma 98-71279
(Steinþór).
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn
8. ágúst.
VÍKDRPRJÓN - U.S.V.S.
ursson GR. Heimamaðurinn Kristj-
án Gylfason hefur leikið mjög vel
á síðustu mótum en hefur litla
reynslu af Landsmótsbaráttu.
Fleiri mætti telja til en líklega
stendur baráttan á milli þessara
kylfinga.
Karen I góðri æfingu
Karen Sævarsdóttir sigraði ör-
ugglega á Landsmótinu í fyrra
aðeins 16 ára. Hún hefur sýnt
mikið öryggi í sumar og náði þriðja
sæti í Norðurlandamótinu sem er
besti árangur íslands í kvenna-
flokki. „Mér líst vel á mótið og
vona að við fáum gott veður,“ sagði
Karen en vildi sem minnst segja
um keppnina sjálfa. „Það er betra
að segja ekkert fyrren eftir mótið.“
Þórdís Geirsdóttir GK hefur
ieikið vel í sumar og ætti að kunna
vel við sig á Jaðarsvelli enda sigr-
aði hún þar 1987. Ragnhildur Sig-
urðardóttir er einnig mjög sterk
og búast má við að slagurinn
standi á milli þessara þriggja.
Keppni í dag hefst kl. 8 en þá
fara út kylfingar í 1. flokki kvenna
og karla. Fyrstu kylfingarnir í
meistaraflokki fara svo út kl. 15
og ljúka keppni laust fyrir kl. 21.
Karen Sævarsdóttir veltir fyrir
sér stöðunni á síðasta hring
Landsmótsins í fyrra . . .
Adolf
Qskarsson
IBV (1)
Júlíus
Tryggvason
Sigurður B.
Jónsson
IA (1)
Janni
Zilnic
Vikingi (3)
Pétur
Arnþórsson
Fram (3)
Steinar
Guðgeirsson
Fram (3)
Hafstein
Jakobsson
KA(1)
Snævar
Hreinsson
Val (1)
Bjarni
Sveinbjörnsson
Þór (2)
Andri
Marteinsson
FH (2)
Ragnar
Margeirsson
KR (1)
LIÐ11. UMFERÐAR
11. umferð lauk í fyrrakvöld er ÍBV sigraði Þór 1:0 á Akureyri en leikn-
um hafði verið frestað. Önnur úrslit í umferðinni voru þau að Fram sigr-
aði Akranes 2:0 á útivelli, FH og Víkingur gerðu jafntefli 1:1, Valur
sigraði KA á Akureyri 1:0 og KR sigraði Stjörnuna 1:0.
. . . og Úlfar Jónsson er einn-
ig þungt hugsi ef marka má
svip hans.
ÍHémR
FOLK
■ PALL Arnar, körfuknattleiks-
maður leikur með úrvalsdeildarliði
ÍR næsta vetur.Hann he|ur undan-
farin tvö ár leikið með ÍS í fyrstu
deild, en var þar áður í Val.
■ URSLITALEIKURINN í hinni
árlegu Ríó-keppni í knattspyrnu,
sem fram fór í Ríó de Janeiro í
Brasillíu um helgina, var heldur
betur sögulegur. Botofogo og Vasco
áttust við og eftir 90 mínútna leik
var staðan 1:0 Botafogo í vil. Leikur-
inn átti þó að halda áfram því bras-
ilska knattspyrnusambandið hafði
ákveðið að ef Botafogo sigraði fengi
Vasco annað tækifæri í framleng-
ingu. Þetta var rökstutt með þeim
hætti að Vasco hefði þurft að hafa
mun meira fyrir því að komast í úr-
slitin! Þessu vildu leikmenn Bota-
fogo ekki una, gengu af velli, þrátt
fyrir að dómarinn hefði flautað til
framlengingar og tóku bikarinn og
hlupu sigurhring. Á meðan beið dóm-
arinn ásamt andstæðingunum á miðj-
um vellinum og eftir skamma stund
flautaði hann leikinn af. Þá hlupu
Vasco-menn sigurhring, að vísu án
bikarsins sem var tryggilega læstur
inní í búningsklefa andstæðinganna.
Botafogo hefur kært knattspyrnu-
sambandið og öfugt og fleiri kærur
eiga eftir að berast en þetta þykir
eitt undarlegasta mál sem upp hefur
komið í litríkri knattspyrnu sögu
Brasilíu.
I
S/Wjö*
MUNDU EFTIR
OSTINUM
BAHCO
(Tjohnson uiax
MJOLKURBIKARINN
Undanúrstit
Valur - Vikingur
í kvöld kl. 19 á Hlíðarenda
VISA ÍSLAND
MlðlK
&?GÓO
/WKLIG4RDUR