Morgunblaðið - 01.08.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990 43
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Blikum skelh
í Gríndavík
Fylkir á toppinn, Víðir í annað sætið
GRINDVÍKINGARgerðu sér lítiðfyrir ígærkvöldi og unnu Breiða-
blik, sem var í efsta sæti í 2. deild fyrir leikinn, með einu marki
gegn engu. Fylkir sigraði á Ólafsfirði og fór á toppinn og Víðis-
menn, sem unnu á Siglufirði, fóru upp fyrir Blikana, í 2. sæti.
skrifarfrá
Grindavík
ikil barátta var strax í byrj-
un leiksins í Grindavík og
heimamenn sýndu að þeir ætluðu
ekkert að gefa eftir. Á 17. mínútu
■Bi kom eina mark
Frímann leiksins. Hjálmar
Ólafsson Hallgrímsson
Grindvíkingur- tók
homspymu og Ein-
ar Ásbjöm Ölafsson skallaði að
marki UBK. Varnarmönnum tókst
ekki að hreinsa frá og Guðlaugur
Jónsson læddi sér milli þeirra og
skallaði boltann í netið án þess að
Eiríkur Þorvarðarson í marki UBK
kæmi neinum vörnum við. Eftir
markið sóttu Breiðabliksmenn öllu
meira án þess þó að skapa sér
færi.
Grindvíkingar byijuðu seinni
hálfleik af miklum krafti og sóttu
fast að marki UBK. Blikamir vörð-
ust hinsvegar vel og komust betur
inn í leikinn eftir því sem á leið.
Besta færi þeirra kom á 62.
mínútu er skot Arnars Grétars-
sonar smaug framhjá stöng
Grindavíkurmarksins.
Grindavíkurliðið var mjög jafnt
og góð barátta þess virtist slá
Blikana út af laginu og einhvern
veginn læðist sá grunur að manni
að þeir hafi mætt full sigurvissir
til leiks. Arnar Grétarsson var
sprækur í fyrri hálfleik en enginn
skaraði fram úr í seinni hálfleik.
Fylkir aftur á toppinn
Fylkismenn komust aftur á topp
2. deildar í gærkvöldi með 3:1
sigri á Leiftri á Ólafsfírði. Fylkir
var betra liðið í leiknum og Krist-
inn Tómasson skor-
aði á 10. mín. Þor-
valdur markvörður
náði ekki til knatt-
arins eftir fyrirgjöf
og Kristinn skoraði af stuttu færi.
Leiftur jafnaði á síðustu mínútu
fyrri hálfleiksins og var Jón Helga-
son þar að verki.
Fylkismenn komust yfir á ný
strax á 5. mínútu síðari hálfleiks
er Þórhallur Jóhannsson skoraði
af stuttu færi. Síðasta markið gerði
svo Indriði Einarsson. Fylkir fékk
aukaspyrnu á vítateigshomi, og
Frá Tryggva
Sigurössyni
á Olafsfiröi
Rögnvaldur
Þórðarson
skrifarfrá
Siglufirði
Indriði skallaði í netið af markteig
eftir góða sendingu.
Gísli Guðmundsson dómari
sýndi tveimur leikmönnum rauða
spjaldið, Erni Torfasyni, Leiftri og
Ifylkismanninum Gunnari Þór Pét-
urssyni.
Víðir í 2. sæti
Víðismenn sigruðu Siglfirðinga
í gær á malarvellinum á Siglu-
firði, 2:1 og náðu þarmeð 2. sæti
deildarinnar. Víðismenn sóttu
meira og uppskáru
mark á 22.
mínútu. Klemenz
Sæmundsson tók
aukaspyrnu en bolt-
inn fór í Bjöm Sveinsson, varnar-
mann KS, og þaðan í netið.
Á 73. mínútu fengu Víðismenn
hornspyrnu, boltinn barst til Vil-
hjálms Einarssonar. Markvörður
KS varði skot hans en hélt ekki
boltanum og Vilhjálmur skoraði af
stuttu færi.
Siglfirðingar fengu nokkur góð
færi það sem eftir var leiksins og
Hafþór Kolbeinsson náði loks að
minnka muninn á 91. mínútu.
Daníel Einarsson og Gísli Heið-
arsson voru bestu menn Víðis.
Hafþór Kolbeinsson var bestur í
liði KS en Mark Duffield barðist
einnig vel.
ÍR-völlurinn vígður á viðeig-
andi hátt
MT
IR-ingar vígðu nýjan og
stórglæsilegan grasvöll sinn í
Mjódd í Breiðholti í gærkvöldi á
mjög viðeigandi hátt — með sigri
á Tindastól 3:1.
Þórmundur Leikurinn var ekki
Bergsson með skemmtileg-
skrifar asta móti en tvö
glæsimörk heima-
manna yljuðu örfáum áhorfendum.
Leikurinn var varla hafinn er
Bragi Björnsson hirti boltann af
markverði Tindastóls og skaut í
stöngina. Heimamenn voru mun
atkvæðameiri í upphafi og rétt
eftir miðjan fyrri hálfleik skoraði
Tryggvi Gunnarsson mark af stuttu
færi, 1:0, sanngjarnt. Gestirnir
Danir lagðir að velli
Guðmundur Benediktsson skoraði tvívegis þráttfyrir að
vera í strangri gæslu allan tímann
ÍSLENDINGAR sigruðu Dani,
3:2, á opnu Norðuriandamóti
drengjalandsliða 16 ára og
yngri íknattspyrnu í Finnlandi
í gær. „Við erum mjög ánægðir
með leikinn. Strákarnir léku
virkilega vel og voru lengst af
sterkari aðilinn. Þetta var fyrst
og fremst sigur liðsheildarinn-
ar“ sagði Sigmundur Stefáns-
son, fararstjóri, við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Ísland komst í 2:0. Einar Baldvin
Árnason, KR, skoraði fyrst á
16. mín. Skallaði fallega í mark
af stuttu færi eftir hornspyrnu.
Mjög vel gert. Guðmundur Bene-
diktsson, Þór, skoraði svo annað
markið. Fékk góða sendingu inn
fyrir vörn Dana og afgreiddi knött-
inn í netið. Guðmundur skoraði
reyndar annað mark fljótlega, en
það var dæmt af vegna rangstöðu,
sem íslendingarnir töldu afar hæp-
inn dóm.
Danir minnkuðu muninn í 2:1 á
35. mín. og jöfnuðu úr vítaspyrnu
á fyrstu mín. síðari hálfleiks,
þeirri 41. Það var svo á 80. mín.,
síðustu mínútu leiksins, að sigur-
markið kom. Brynjólfur Sveinsson,
KA-maður, vann þá knöttinn af
miklu harðfylgi við endalínu, gaf
fyrir á hinn Akureyringinn í liðinu,
Þórsarann Guðmund Benediktsson,
sem skoraði af stuttu færi, annað
mark sitt í leiknum.
Guðmundur, sem að sögn Sig-
mundar átti stórleik gegn Eng-
lendingum, var hvað eftir annað
sparkaður niður gegn Finnum í
fyrrakvöld (ekki Frökkum eins og
ranghermt var í blaðinu í gær) og
var svo í strangri gæslu allan leik-
inn í gær. „Það var einmitt rætt
á dómarafundi að hart yrði að
taka á slíku. Það væri ekki hægt
að láta það viðgangast að svona
ungir leikmenn væru teknir fyrir
eins og gert hefur verið,“ sagði
Sigmundur, og sagði að tveir leik-
menn á mótinu hefðu sérstaklega
verið nefndir í því sambandi, og
væri Guðmundur annar þeirra.
Sérstakir leikmenn hafa verið sett-
ir þeim til höfuðs í leikjunum.
Ónnur úrslit í gær urðu þau að
Finnland og Svíþjóð skildu jöfn,
1:1, en Svíar sigruðu eftir víta-
spyrnukeppni, og Englendingar
unnu Norðmenn 4:0.
England er efst á mótinu með
4 stig, Danmörk og Finnland hafa
einnig 4 en lakari markatölu, Nor-
egur er með 3 stig, ísland 2 og
Svíþjóð, Norðurlandsmeistarinn
frá þvf í fyrra, rekur lestina með
1 stig. ísland mætir Svíþjóð í dag.
Morgunblaöið/Einar Falur
Jón G. Bjarnason. IR-ingur, kann greiniiega vel við sig á nýja grasvellinum. Hér er hann að sleppa inn fyrir
varnarmann Tindastóls.
Undanúrslitaleikur
Mjólkurbikarkeppninnar
íkvöld kl. 19.00
Forsala aðgöngumiða
íKR-heimilinu, Reykjavík.
Keflavíkurvöllur
ÍBK-
KR
sóttu í sig veðrið í lok fyrri hálf-
leiksins og Hólmar Astvaldsson
átti sannkallað dauðafæri sem Þor-
steinn varði vel.
I síðari hálfleik virtist sem leik-
urinn ætlaði að detta algjörlega
dauður niður eins og flatur bjór
en Bragi Björnsson hélt athygli
áhorfenda vakandi með skemmti-
legu marki eftir tíu mínútna leik.
Hann lék í gegnum vörn Tinda-
stóls og skoraði örugglega. Sauð-
krækingar virtust vera að komast
inní leikinn eftir miðjan síðari
hálfleik en þá skoraði Tryggvi
annað mark sitt á mjög glæsilegan
hátt. Hann tók niður sendingu
Njáls Eiðssonar og renndi boltan-
um í netið. Þar með var leikurinn
úti og þrátt fyrir að Sverrir Sverr-
isson minnkaði muninn úr víti á
næstu mínútu var sigur heima-
manna ekki í hættu.
F|.leikja u j T Mörk Stig
FYLKIR 11 7 2 2 25: 8 23
VÍÐIR 11 6 4 1 16: 11 22
BREIÐABLIK 11 6 3 2 17: 9 21
ÍR 11 6 0 5 16: 18 18
SELFOSS 10 5 1 4 20: 14 16
KS 11 4 1 6 14: 17 13
GRINDAVÍK 11 3 2 6 13: 21 11
TINDASTÓLL 11 3 2 6 10: 19 1 1
ÍBK 10 3 1 6 7: 12 10
LEIFTUR 11 1 4 6 9: 18 7
BIKARKEPPNI KSI
Undanúrslíta-
leikimir í kvöld
Undanúrslitaleikirnir í bikar-
keppni KSÍ fara fram í
kvöld og hefjast klukkan 19, en
ekki 20 eins og áður hafði verið
ákveðið. Á Valsvelli taka heima-
menn á móti Víkingum og í
Keflavík leika ÍBK og KR. Með
sigri gegn KR yrði IBK fyrsta
liðið úr 2. deild tíl að leika til
úrslita í 18 ár en þrívegis í 30
ára sögu bikarkeppninnar hafa
lið úr 2. deild náð í úrslit og
einu sinni lið utan deilda, KR-b
árið 1968.
KR-ingar hafa oftast sigrað í
bikarkeppninni, sjö sinnum, Valur
fimm sinnum, ÍBK og Víkingur
einu sinni hvort félag.
3. deild
í 3. deild er heil umferð Þróttur
Reykjavík leikur við nafna sinn frá
Neskaupstað í Reykjavík, Haukar
og Dalvík á Hvaleyrarholtsvelli, BÍ
og ÍK á ísafirði, Reynir Á. og TBA
á Árskógsstrandarvellí og Völs-
ungur og Einheiji á Húsavík. Leik-
irnir heQast kl. 20.
í 4. deild eru 11 leikir. Grótta—
Fjölnir, Reynir S,—Snæfeli, Ernir—
Njarðvík, Víkveiji—Augnablik,
Afturelding—Víkingur Ól., Hvera-
gerði— Arvakur, Geislinn—Korm
akur, Umf. Neisti—Hvöt, Höttur—
KSH, Valur Rf,—Leiknir F. og Umf.
Stjaman—Neisti D.
Frjálsar íþróttir
Kvennamót UMFK verður haldið
í dag og hefst með keppni í spjót-
kasti kl. 17. Kl. 17:20 verður 100 m
hlaup og langstökk kl. 17:35. Keppn-
in fer fram á íþróttavellinum í
Keflavík og fer skráning fram á
staðnum til kl. 16.
OPNA NORÐURLANDAMOTIÐ U-16