Morgunblaðið - 01.08.1990, Blaðsíða 44
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Eins og sjá má er vélin gjöró-
nýt. Brak úr henni dreifðist
yfir næsta nágrenni flaksins.
Þrír menn sluppu ómeiddir er þyrla brotlenti við Hafursfell:
Gátum okkur varla hreyft
og- bensínið lak yfir okkur
- sagði Helgi Kristinsson, einn þremenninganna
ÞRÍR menn, flugmaður og tveir farþegar, sluppu ómeiddir að kalla
er þriggja sæta þyrla af gerðinni Hughes 269 brotlenti og stór-
skemmdist við Hafursfell, skanimt norðan Snæfells, rétt fyrir klukk-
an 9 í gærmorgun. Um 2 'h tíma akstur er á staðinn frá Egilsstöðum.
yfir Jón Gunnar, sem fékk það í
andlitið," sagði Helgi. „Það tókst
ekki að drepa á hreyflinum en hann
stöðvaðist fljótt. Flugmaðurinn
komst fyrstur út en Jón Gunnar
gat ekki losað sig og ég lá skorðað-
ur undir honum. Þegar okkur hafði
tekist að losa hann komst ég út.
Við sluppum ómeiddir og gengum
að tjöm skammt frá þar sem við
þrifum af okkur bensínið og geng-
um svo upp á veg. Við vorum með
talstöðvar og samstarfsmaður okk-
ar kom og flutti okkur til Egils-
staða þar sem við fórum í læknis-
skoðun til öryggis," sagði Helgi.
Flugmaðurinn, Þorkell Jóhanns-
son, vildi í gær lítið tjá sig um
óhappið og aðdraganda þess. Hann
sagði þá félaga heppna að hafa
aðeins þurft tvo plástra til að binda
um þær skrámur sem þeir hlutu.
Ásamt flugmanninum, Þorkatli
Jóhannssyni, voru í þyrlunni tveir
starfsmenn verkfræðistofunnar
Hnits í Reykjavík, Jón Gunnar
Guðlaugsson og Helgi Kristinsson,
sem voru við mælingar við Eyja-
bakkalón vegna kortagerðar. „Við
vorum að leita að mælipunkti og
lækkuðum flugið niður í 2-3 mann-
hæðir,“ sagði Helgi. „Þegár flug-
maðurinn ætlaði að hækka flugið
aftur var eins og vélin missti afl
og hann beindi henni niður eftir
barði þar sem þyrluna tók niðri.
Hún rann nokkra metra niður eftir
flagi og steyptist fram á nefið. Það
gaf undan svo höggið varð líklega
ekki jafnmikið og það hefði orðið
ef við hefðum lent á klöpp.
Þyrlan fór á hliðina og yfir sig.
Við gátum ekki hreyft okkur og
bensín lak inn í vélina, aðallega
Morgunblaðið/Einar Falur
Helgi Kristinsson og Jón Gunnar Guölaugsson nýlentir á
Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi.
„Þyrlan er í maski,“ sagði hann.
Mennirnir komu til Reykjavíkur
í gærkvöldi. Þyrlan var skráð hér-
lendis fyrir 10 dögum. Hún var í
eigú Erlendar Halldórssonar en
rekin á flugrekstrarleyfi Þyrluþjón-
ustu Albinu Thordarson.
Starfsmenn loftferðaeftirlits
Flugmálastjórnar fóru á vettvang
í gær ásamt lögreglu á Egilsstöð-
um. Skúii Jón Sigurðarson deildar-
stjóri rannsóknardeildar loftferða-
eftirlitsins vildi í gau'kvöldi ekkert
segja um hugsanlega orsök
óhappsins þar sem rannsókn væri
skamrnt á veg komin, en niðurstöð-
ur fengjust vonandi fljótlega.
Ríkisstjórnin náði ekki samkomulagi um bráðabirgðalög í gærkvöldi;
Fulltrúar stjórnarflokka og
vini íu markaðar á næturfundi
EKKI NÁÐIST samkomulag í ríkisstjórninni í gærkvöldi um efni bráða-
birgðalaga vegna 4,5% launahækkunar til BHMR-félaga. Alþýðubíinda-
lagið niun mótfallið því að afnema hækkunina með lögum, en aðrir
stjórnarflokkar vilja setja lög sem afnema þessa hækkun og samsvar-
andi hækkun sem fylgja muni í kjölfarið til annarra launþega. Ríkis-
stjórnin hefur verið boðuð til fundar kl. 14 í dag.
Stöð 2 sameinuð
Islenska útvarps-
félaginu:
Á fjórða tug
starfsmanna
sagt upp
ÍSLENSKA útvarpsfélagið og
Islenska sjónvarpsfélagið efndu
til hluthafafundar í gær þar sem
formlega var gengið frá samein-
ingu félaganna. Hlutafé hins nýja
félags verður aukið um 310 millj-
ónir eða í 815 milljónir þannig
að eigið fé verður 109 milljónir
þegar hlulafjáraukningin hefur
náð fram að ganga. Á fundinum
var samþykkt að nýja félagið
fengi heitið Islenska útvarpsfé-
lagið hf. Nýjar samþykktir voru
ákveðnar og tveir viðbótarmenn
kosnir í stjórn ásamt tveimur
varamönnum.
Deildir félaganna verða samein-
aðar á næstunni að því undanskyldu
að sérstök dagskrárdeild verður
rekin fyrir útvarp. í kjölfar endur-
skipulagningar sem staðið hefur
yfir hjá Stöð 2 verður fækkað um
30 stöðugildi hjá félaginu en þar
af hefur 20 manns verið sagt upp.
Þá hafði tveimur verið sagt upp hjá
íslenska útvarpsfélaginu. Þarna er
um að ræða fólk úr dagskrárdeild-
um, tæknideild, fréttastofu og skrif-
stofu. Sömuleiðis er hafinn undir-
búningur að hagræðingu vegna
kaupa Stöðvar 2 á hlutabréfum í
Sýn.
Þorvarður Elíasson, sjónvarps-
stjóri, sagði að sameiningin fæli það
í sér að íslenska útvarpsfélagið
kæmi inn í Islenska sjónvarpsfélag-
ið. Það yrði með þeim hætti að sér-
stök dagskrárdeild yrði í félaginu
fyrir dagskrá útvarps. Aðrar deildir
útvarpsfélagsins sameinuðust þeim
sem fyrir væru í sjónvarpsfélaginu.
Fréttadeildir yrðu sameinaðar og
rekin sameiginleg fréttastofa fyrir
útvarp og sjónvarp.
Varðandi afkomu hins nýja fé-
lags sagði Þorvarður að stefnt væri
að því að háfa jákvæða afkomu á
þessu ári. „Sú hagræðing sem við
erum nú að fara í gegnum kemur
fyrst og fremst tii framkvæmda frá
og með næsta hausti og frá þeim
tíma gerum við ráð fyrir að hagnað-
ur fari vaxandi. Þó svo að ekki
verði tap á þessu ári þá er afkoman
engan veginn viðunandi," sagði
Þoi-varður.
Jóhann J. Ólafsson, stjórnar-
formaður Stöðvar 2, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ekki hefði
fengist ráðrúm til að skoða málefni
Sýnar. Vilji væri fyrir því að setja
þessa rás í loftið í einhverri mynd
t.d. bíórás þijú kvöld í viku.
Auglýsend-
ur athugið
Athygli auglýsenda er vakin
á því að síðasta blað fyrir versl-
unarmannahelgi kemur út laug-
ardaginn 4. ágúst. Auglýsingar,
sem birtast eiga í blaðinu, þurfa
að berast auglýsingadeild Morg-
unblaðsins fyrir kl. 16, fimmtu-
daginn 2. ágúst.
Fyrsta blað eftir verslunar-
mannahelgi kemur út miðviku-
daginn 8. ágúst og þurfa auglýs-
ingar í það blað að berast fyrir
kl. 17 föstudaginn 3. ágúst.
Á mánudagskvöld slitnaði upp úr
viðræðum fjármálaráðherra og
BHMR, um breytingar á kjarasamn-
ingum, og kom ríkisstjórnin saman
klukkan 14 í gær, til að ræða aðgerð-
ir. Klukkan 17 hófust fundir í þing-
flokkum Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags, en annar ríkisstjórnar-
fundur var boðaður klukkan 21. Sá
fundur hófst ekki fyrr en laust fyrir
kl. 22, en áður sátu formenn ríkis-
stjórnarflokkanna á fundi. Ríkis-
stjórnarfundinum var svo frestað,
skömmu eftir klukkan 23. Eftir sátu
formenn ríkisstjórnarflokkanna og
komu forvígismenn ASÍ, VSÍ og
VMSS á þeirra fund. Stóð sá fundur
enn um eittleytið í nótt.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
sögðu eftir ríkisstjórnarfundirin, að
setning bráðabirgðalaga hefði í för
með sér flókin lagatæknileg atriði
sem enn væru óleyst. En á þing-
flokksfundi Alþýðubandalagsins í
gær, mun hafa komið fram sterk
andstaða gegn því að setja bráða-
birgðalög, sem afnæmu 4,5% hækk-
un BHMR, og samsvarandi hækkun
í kjölfarið til ASÍ og BSRB.
Hins vegar kæmi til greina, að
setja lög um að allir fengju 4,5%
hækkun en svo ekki meir út samn-
ingstímabilið, eða þá að setja lög, til
áð afnema þau ákvæði í samningi
BHMR-félaga, sem tryggja þeim þær
launahækkanir sem verða á almenn-
um markaði. Hjörleifur Guttormsson
lýsti sig þó alfarið andvígan laga-
setningu, og sagðist telja að reyna
ætti til. þrautar samningaleiðina til
að stöðva þá víxlhækkun kaupgjalds,
sem yfirvofandi er vegna launahækk-
unar BHMR.
Að sögn Árna Gunnarssonar vara-
formanns þingflokks Alþýðuflokks-
ins var ráðherrum flokksins gefið
umboð til að ganga frá bráðabirgða-
lögum sem afnæmu 4,5% hækkun
til allra launþega. Skriflegt svar
vinnuveitenda til ASÍ í gær var talið
næg sönnun þess að sú hækkun
kæmi til allra og lögin beijidust þá
ckki aðeins gegn BHMR. í svarinu
segjast vinnuveitendur ekki eiga
annarra kosta völ en tryggja viðsemj-
endum sínum hliðstæða launaþróun
fái BHMR hækkunina.
Sjá fréttir á miðopnu.