Morgunblaðið - 25.10.1990, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990
11
Eva Mjöll Ingólfsdóttir, fiðia
DPUglaS Poggioli, píanó.
í Seljakirkju, Breiðholti, fimmtud. 25. okt. kl. 20.30
í íslensku óperunni sunnud. 28. okt. kl. 16.00
Aðgöngumiðar hjá Veröld, Austurstræti 17 og við inngang^
Konsertumboöiö OPUS
Mikið hrap féll úr suðurenda Reynisfjalls.
Vík:
Island að minnka
Vík.
LAUGARDAGINN 1. apríl 1989
kl. 3.30 um nóttina féll mikið
hrap úr suðurenda Reynisfjalls,
á móts við svokallaðan Klakk.
Þar sem áður var sjór að
Klakknum og ófært að ganga
fyrir hann er nú kominn gijót-
skriða og unnt að ganga þar
fyrir fjallið og vestur í Reynis-
hverfið.
Ekki er vitað hvort þessi grjót-
skriða hefur getað breytt sjávar-
straumnum næst landinu hér
austan við fjallið, en af einhverjum
ástæðum hefur sjórinn stöðugt
verið að vinna á fjörunni austan
við Reynisfjallið og færast nær
Víkinni síðan.
Gamlir sjóvarna- og sand-
græðslugarðar sem staðið hafa
hér í áratugi 50-100 metra uppi
í landi eru nú horfnir og þar sem
áður voru uppgræddir melgras-
hólar er nú þverhníptur sandbakki
sem stöðugt grefur úr í brimum.
Ekki er fjarri lagi að ísland
hafi minnkað hér til suðurs frá
Víkinni um eina 100 til 200 metra.
Ef til vill er náttúruöflunum
farið að ofbjóða framkvæmdaleysi
okkar Sunnlendinga í hafnargerð
fyrir Suðurlandi og tekin til sinna
ráða í að gera hér höfn.
Það er verst ef náttúruöflin
hafa tekið þá ákvörðun í leiðinni
að fylla upp höfnina á Höfn í
Hornafirði.
Þá vaknar sú spurning hvort
náttúran meinti eitthvað sérstakt
með því að hefja þessa landeyð-
ingastarfsemi hér í Vík á okkar
fræga gabbdegi 1. apfíl.
- R.R.
Tímaritið 2000
NÝ RÖDD í ÍSLENSKRI TÓNLIST
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
Það var með sanni fyrirferðar-
mikið tímarit um listir, er hóf út-
komu sína í sumar og mér barst í
hendur með tilmælum um umsögn,
enda skarar það sjónlistir.
Tímaritið nefnist því táknræna
nafni 2000, því að nú er stutt til
aldamótanna og má geta ráð fyrir
umbrotasömum áratug fram undan.
Hitt er svo auðvitað persónulegt
mat og umdeilanlegt, hvort alda-
mótin byiji árið 2000 eða 2001, en
menn hafa lengi deilt um, hvort
miðað skuli við árið eitt eða núll.
Máli sínu til fulltingis segja þeir,
sem aðhyllast kenninguna um eitt,
að sagan hermi af árinu eitt fyrir
Krist og eitt eftir Krist en hvergi
komi fram viðmiðun við núllið!
Samkvæmt því er níundi áratug-
inn enn í fullu gildi og nefna skal
að á sýningu Norræna listabanda-
lagsins á núlistum sjöunda áratug-
arins, voru nokkrar myndanna með
áratalið 1971. Hitt er svo annað
mál, að ártalið 1972 kom einnig
fyrir og jafnvel 1974, en hvað leyf-
ist ekki vísum, þegar tilgangurinn
helgar meðalið!
Brot þessa listtímarits minnir
einna helst á dagblað, en það er
með þykkara móti, svo að það leið-
ir hugann að helgar- eða viðhafnar-
útgáfum stórblaða heimsborganna,
en til útlanda er fyrirmyndin auðvit-
að sótt.
Það er dirfskan og stórhugurinn
á bak við framkvæmdina, sem fyrst
og fremst vekur athygli og aðdáun,
en hins vegar stingur það einnig í
augu, hve byijendabragurinn er
mikill, svo á köflum minnir einna
helst á skólablað í stækkuðu formi.
Nefni ég helst máli mínu til
stuðnings hinar klisjukenndu,
flennistóru myndir, er prýða blaðið
En vissulega má hafa mikið gam-
an af því að fletta slíku tímariti og
það inniheldur heilmikinn fróðleik,
þótt ýmsar greinanna séu heldur
stuttar og rýrar í roðinu miðað við
ábúðarmiklar myndir og feitletrað-
ar fyrirsagnir.
Fjölbreytnin er mikil og satt að
segja er það ótvíræður styrkur rits-
ins og það, sem helst er í takt við
tímann, sem eru opin og víðsýn
skoðanaskipti.
Auðvitað er það á skjön við þau
öfl, sem þekkja aðeins eina mið-
stýrða skoðun, og að allar andstæð-
ar séu af hinu vonda og því beri
að halda „sannleikanum eina“ fram
hvað sem það kostar. Þau kerfi, sem
hafa viðhaft slík viðhorf, riða alls
staðar til falls og svo mun einnig
verða hvað listpólitíkina snertir á
næstu árum, því að nýr heimur
krefst nýrra viðhorfa á öllum
vígstöðvum.
Því meir sem maður flettir ritinu,
því betur verða manni ljósir allir
hinir miklu og margvíslegu mögu-
leikar, sem fólgnir eru í fram-
kvæmdinni og það er von mín, að
aðstandendunum auðnist að halda
útgáfunni áfram og að hnökrar
verði miskunnarlaust sniðnir af
næsta eintaki. Ritið verði í samræmi
við nútímann allt um kring, en ekki
einungis af því, sem mest er haldið
að okkur í fjölmiðlum og ljósvaka-
miðlum.
Einmitt vegna sérstöðu ritsins
hefur það möguleika á að ná til
stórs lesendahóps og þar með verða
eftirsóknarvert á auglýsingamark-
aðnum, en mörg veglegustu
listtímarit heimsins eru einmitt fjár-
mögnuð með glæsilegum og hug-
myndaríkum auglýsingum frá stór-
fyrirtækjum, sem sumar hveijar eru
fagurfræðilegt augnayndi.
Málarinn Henri Matisse sagði
eitt sinn, að menn ættu ekki að
rembast við að vera frumlegir, því
að ef leyndist neisti af frumleika í
manni, þá kæmi hann fram.
Þannig mætti og einnig skjóta
að þeim sem eru í forsvari tímarits-
ins 2000; reynið ekki að vera snið-
ugir, því að ef þið eruð það, þá
kemur það fram, eðlilega og
áreynslulaust...
DEBUT—TÓNLEIKAR
KOSNINGA-
SKRIFSTOFA
EyjólfsKonráðs
Jónssonar
er í Sigtúni 7,sími 29600
Höfum opið frá
kl. 10-22 alla daga
l/f
Eyjólfur Konráð Jónsson
eins og t.d. af stjórnmálamönnum
og goðum í poppheiminum, sem
allir, sem grannt fylgjast með mál-
um og blöðum og tímaritum fletta,
eru búnir að sjá 2001 sinnum og
gott meir.
Frumleg getur það því ekki talist
og ei heldur hinar mörgu nektar-
myndir né hin ólystuga teikni-
myndasaga „nakinn hádegisverð-
ur“ sem er ekki par fyndin.
Ekki trúi ég öðru en að íslenzkt
þjóðfélag búi yfir svo gróskumiklu
og sérstæðu mannlífi, að óþarfi sé
að fyggja upp útjaskaðar lummur
frá útlandinu, þótt múgsefjunaröfl-
in vilji telja mönnum trú um, að
þetta sé hinn eioi og sanni tónn.
Hann er það nefnilega aðeins svo
lengi sem „réttir“ menn hagnast á
æðinu.
Upplýstir útlendingar leita
tvímælalaust fyrst og fremst eftir
hinu sérstæða í íslenzku þjóðfélagi
og brosa vorkunnsamlega, er þeir
reka sig á allar eftirlíkingar stærri
þjóðfélagsheilda, sem staðfesta ein-
ungis minnimáttarkennd og smæð
okkar.
FJÖLBREYTT
EFNISSKRÁ
Verk eftir
Kreisler, Bartók,
Wieniawsky, Ravel,
Bach og Brahms.