Morgunblaðið - 25.10.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÖKTÓBER Í99Ö
35 v
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Togarinn Börkur NK að koma í land með loðnuna.
■ FYRSTA loðr.an á þessari
vertíð barst hingað sl. sunnudag
er Börkur NK kom með um 1.100
lestir sem skipið veiddi um 40
sjómílur norðaustur af Laugarnesi
en þaðan er um 9 tíma sigling hing-
að. Þá kom Hilmir hingað um
kvöldið einnig með um 1.100 tonn
af sama veiðisvæði. Loðnan sem
skipin komu með var mjög blönduð
að sögn Helga Geirs Valdimars-
sonar skipstjóra á Berki. Virtist
vera töluvert af loðnu þarna á litlu
svæði og talsvert líflegt en þar sem
svo fáir bátar voru á miðunum var
lítið leitað nema á mjög takmörkuðu
svæði. Löndun hófst hjá Berki um
leið og hann kom að landi og hélt
hann á miðin á ný um leið og henni
lauk. - Ágúst
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn ' Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 123,00 86,00 108,39 4,957 537.290
Þorskur(óst) 97,00 90,00 95,32 0,412 39.272
Ýsa 139,00 103,00 118,82 5,023 596.872
Ýsa (ósl.) 120,00 83,00 118,21 2,165 255.992
Lúða 150,00 150,00 150,00 0,002 300
Koli 63,00 63,00 63,00 0,007 441
Keila 45,00 45,00 45,00 0,171 7.695
Smáþorskur 71,00 71,00 71.00 0,474 33.654
Skata 40,00 40,00 40,00 0,013 520
Langa 73,00 73,00 73,00 0,150 '10.994
Karfi 49,00 45,00 47,19 7,525 355.158
Ufsi 50,00 38,00 49,82 3,722 185.434
Steinbítur 87,00 78,00 81,57 1,020 83.872
Smáþorsk. (ósl.) 59,00 59,00 59,00 0,022 1.298
Steinb. (ósl.) 79,00 79,00 79,00 0,008 632
Lýsa (ósl.) 59,00 59,00 59,00 0,009 531
Langa (ósl.) 65,00 65,00 65,00 0,034 2.210
Keila (ósl.) 45,00 45,00 45,00 0,035 1.575
Blandað 59,00 - 59,00 59,00 0,021 1.239
Samtals 82,04 25,773 2.114.374
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 121,00 94,00 115,52 8,423 973,054
Þorskur(ósl.) 115,00 82,00 106,92 2,346 250.842
Ýsa 149,00 117,00 135,61 1,976 267.974
Ýsa (ósl.) 144,00 87,00 118,94 2,768 329.348
Karfi 42,00 40,00 40,74 25,168 1.025.459
Ufsi 52,00 46,00 48,31 38,967 1.882.590
Steinbítur 79,00 70,00 75,07 4,655 348.427
Langa 82,00 74,00 — 0,605 49.610
Lúða 485,00 295,00 352,14 0,175 61.625
Keila 49,00 11,00 35,83 2,185 78.279
Gellur 360,00 360,00 360,00 0,014 5.040
Lýsa 59,00 59,00 59,00 0,085 5.015
Síld 45,00 36,00 39,75 0,193 7.671
Skarkoli 30,00 30,00 30,00 0,032 960
Tindabykkja 5,00 5,00 5,00 0,012 60
Reykturfiskur 310,00 215,00 285,96 0,130 37.175
Blandað 100,00 5,00 83,91 0,170 14.265
Undirmál 78,00 78,00 78,00 0,761 59.358
Samtals 485,00 5,00 60,88 88,666 5.397.812
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 133,00 70,00 105,46 0,985 103.879
Þorskur ósl. 133,00 78,00 108,22 22,024 2.383.384
Ýsa 117,00 40,00 114,78 1,390 • 159.550
Ýsa ósl. 107,00 50,00 101,78 31,712 3.227.581
Karfi 50,00 50,00 50,00 0,410 20.500
Ufsi 37,00 29,00 35,37 0,300 10.610
Steinbítur 78,00 59,00 76,72 0,370 28.385
Langa 78,00 49,00 74,00 3,965 293.420
Lúða 520,00 415,00 443,51 0,057 25.280
Skarkoli 86,00 86,00 86,00 8,880 247.680
Koli 52,00 52,00 52,00 0,010 520
Síld 9,50 9,50 9,50 1,510 14.345
Keila 48,00 30,00 46,03 4,176 192.240
Skötuselur 145,00 145,00 145,00 0,004 580
Lýsa 52,00 46,00 47,73 0,281 13.412
Blandað 32,00 32,00 32,00 0,040 1.280
Samtals 95,88 70,114 6.722.646
Selt var úr dagróðrabátum. Á morgun verður selt úr Búrfelli og Sveini Jóns-
syni, ufsi og karfi.
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu átta vikur,
28. ág. - 23. okt., dollarar hvert tonn______
ÞOTUELDSNEYTI 500 n
/ \
\
' s
400 r 375 §
orn Jff l
350 354/
325 ~~ 351
275
31.Á 7.S 14. 21 28. 5.0 12. 19.
Neytendasamtökin opnuð
öðrum félagasamtökum
Á Landsþingi Neytendasam-
takanna, sem haldið var í Rúg-
brauðsgerðinni á laugardag, var
samþykkt að opna samtökin fyrir
félagasamtökum en hingað til
hafa samtökin verið lokuð öðrum
félögum en Neytendafélögum.
Fulltrúar á þinginu samþykktu
ályktun þar sem því var beint til
aðildarfélaga samtakanna að efna
til umræðu um uppstokkun í land-
búnaðarmálum. Jóhanncs Gunn-
arsson var endurkjörinn formaður
samtakanna.
„Á þinginu var samþykkt sú breyt-
ing á lögum samtakanna að opna
þau stuðningsaðilum. Stuðningsaðil-
arnir eru til dæmis kvenfélög og
verkalýðsfélög sem óskað hafa eftir
því að sýna samtökunum stuðning.
Hvert þessara félaga hefur svo, sam-
kvæmt lagabreytingunni rétt til að
senda tvo fulltrúa á þing Neytenda-
samtakanna,“ sagði Jóhannes Gunn-
arsson, formaður samtakannna og
bætti við að með breytingunni fetuðu
Neytendasamtökin í fótspor Neyt-
endasamtaka á hinum Norðurlönd-
unum.
Fulltrúar á þinginu voru sammála
um að stokka þyrfti upp í landbúnað-
armálum. Samstaða náðist þó ekki
um innflutning á landbúnaðarvörum
og komu fram þjár tillögur um það
mál. Nefnd, skipuð af fráfarandi
stjórn samtakanna, vildi gefa inn-
flutning á búvöruip frjálsan eftir
þriggja ára aðlögunartíma, Neyt-
endasamtök Suðurlands vildu áfram
banna allan innflutning á búvörum
en Steinar Harðarsson, úr stjóm
Neytendasamtakanna, bar fram til-
Leiðrétting
Þau mistök áttu sér stað að nafn
Finnborgar Scheving ráðgjafar-
fóstru misritaðist í fréttatilkynn-
ingu um fund Foreldrafélags mis-
þroska barna. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
lögu þar sem gert er ráð fyrir inn- •
flutningi á svokölluðum iðnaðarvör-
um (kjúklingum, eggjum og svína-
kjöti) en ekki á hefðbundnum búvör-
um.
I ályktun, sem samþykkt var á
þinginu, er því beint til aðildarfélaga
að efna til umræðna um uppstokkun
í landbúnaðarmálunum og stjórn
samtakanna falið að efna til ráð-
stefnu um málið innan tveggja mán-
uða, en að sögn Jóhannesar vilja
félagar í Neytendasamtökunum
komast út úr miðstýrðu kvótkerfi
sem geri það að verkum að íslending-
ar borgi nánast hæsta verð í heimi
Bandaríski sálfræðingurinn
dr. N.S. Kalsa kynnir andlitslest-
ur á opnum fyrirlestri að Hall-
veigarstíg 1, Iðnaðarhúsinu, ann-
að kvöld, föstudag. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 20 og er opinn al-
menningi. Laugardag og sunnu-
dag heldur hann námskeið í and-
litslestri.
„Þetta er kerfí til að greina per-
sónuleikaþætti, viðhorf og vænting-
ar fólks,“ sagði Helga Ágústsdóttir
hjá Hugræktarhúsinu, en hún
skipulagði komu dr. Kalsa til lands-
ins. „Andlitslestrarkerfi dr. Kalsa
byggir á því að læra að greina notk-
un hinna ýmsu vöðva í andlitinu,
en þeim er stjórnað af heilahvelun-
um tveimur. Heilahvelin fást við
mismunandi starfsemi og með því
að „lesa af andlitinu“ notkun
ýmissa vöðva þess og greina mynd-
ir sem þar birtast, má sjá vænting-
ar fólks til sjálfs sín og annarra,
viðhorf, lífssýn og sjálfsmat.“
Dr. Kalsa er fyrrverandi prófess-
or við Columbia-háskóla og hefur
að auki starfað sem „klínískur“
fyrir landbúnaðarafurðir á sama tíma
og framleiðendumir eigi sífellt erfð-
ara með að lifa af sinni framleiðslu.
Nýkjörna stjóm Neytendasam-
takanna skipa: Jóhannes Gunnars-
son, formaður, María E. Ingvadóttir,
varafomiaður, Þuríður Jónsdóttir,
gjaldkeri, Steindór Karvelsson, rit-
ari, Biyndís Brandsdóttir, Drífa Sig-
fúsdóttir, Gunnar Pétursson, Jónas
Bjamasson, Kristján Valdimarsson,
Sigrún Steinþórsdóttir, Steinar
Harðarsson og Vilhjálmur Ingi Árna-
son.
Um 20.000 félagsmenn eru í Neyt-
endasamtökunum.
Dr. Narayan Singh Kalsa, banda-
ríski sálfræðingurinn sem heldur
fyrirlestur og námskeið í andlits-
lestri.
sálfræðingur í tæp 30 ár. Nýlega
kom út bók hans, „Loving Thy
Neighbour," en hann hefur einnig
skrifað fleiri bækur um sálfræðileg
og andleg málefni. Auk námskeiðs-
ins um helgina, gefur Dr. Kalsa
kost á einkatímum.
Btom.
Námskeið og fyrirlest-
ur um andlitslestur
„Sjúkraganga“ nemenda á Núpi
LAUGARDAGINN 27. október
verður hin árlega áheitasöfnun
nemenda í Héraðsskólanum að
Núpi. í fyrravetur ýttu þeir bíl
frá Núpi til Þingeyrar og söfn-
uðu áheitum meðal Vestfirðinga,
en árið þar áður réru þeir á báti
nokkrar ferðir yfir Dýrafjörð-
inn.
Að þessu sinni ætla nemendur
að tengja áheitasöfnunina því mál-
efni sem brennur hvað heitast á
Vestfírðingum - læknaþjónustunni
og því ófremdarástandi og öryggis-
leysi sem ríkir í þessum málum á
Vestfjörðum. Er það ætlun nem-
enda að reyna að vekja ráðamenn
ærlega til umhugsunar um þessi
mál þannig að tekið verði á þeim
af festu og einurð og þau leyst í
eitt skipti fyrir öll en ekki með ein-
hveijum skyndimeðulum. Sú lækna-
þjónusta sem nú er hvað víðast við
lýði hér á Vestfjörðum er engan
veginn góð, segir í fréttatilkynningu
frá nemendum á Núpi. Þau skipti
sem tekist hefur að útvega lækna
í byggðarlögin á Vestfjörðum, sem
er allt of sjaldan, hafa þeir staldrað
hér við einungis einn til tvo mánuði
í senn og eru síðan horfnir á braut.
Skapar þetta mikið öryggisleysi og
óvissu meðal Vestfirðinga.
Nemendur Hérðasskólans að
Núpi ætla að vekja athygli á þessum
málum með því að ganga með sjúkl-
ing í sjúkrabörum frá heilsugæslu-
stöðinni á Flateyri eða um 53 kíló-
metra vegalengd. Jafnframt þessu
munu nemendur senda heilbrigðis-
yfirvöldum áskorun um skjótar og
varanlegar úrbætur í heilbrigðis-
þjónustunni á Vestijörðurn.
Er það von nemenda Héraðsskól-
ans að Núpi að Vestfirðingar styðji
þetta framtak og heiti á nemend-
urna í þessari löngu og ströngu
sjúkragöngu. Nemendur munu
safna áheitum meðal Vestfirðinga
og fyrirtækja á Vestfjörðum nú á
næstunni sem síðan verða rukkuð
inn með gíróseðlum.
Þeir peningar sem safnast munu
í þessari áheitasöfnun verða notaðir
til uppbyggingar á félags- og æsku-
lýðsaðstöðu að Núpi í Dýrafirði.
Einleikstónleik-
ar í Seljakirkju
HINN ungi fiðluleikari Eva
Mjöll Ingólfsdóttir hélt sína
fyrstu opinberu tónleika á Is-
landi í Ytri-Njarðvíkurkirkju sl.
sunnudag við hrifningu áheyr-
enda. Fyrri tónleikar hennar í
Reykjavík verða í Seljakirkju í
kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Seljakirkja er óþekktur hljóm-
leikastaður hingað til en margt
bendir til að hljómburður sé þar
mjög góður og betri en í flestum
öðrum nýjum kirkjum á höfuð-
borgarsvæðinu og henti vel fyrir
kammertónlist og einleik, en úr
því ætti að fást skorið í kvöld.
Form kirkjunnar er óvenjulegt,
einkum þak hennar, sem er með
pýramídalögun og viðarklætt inn-
an. Engin teppi eru á gólfi, sæti
einföld en þægileg, með áklæði
sem dregur til sín álíka mikinn
hljóm og klæðnaður kirkjugesta,
svo að hljómburðurinn er svipaður
í tómri kirkjunni og fullskipaðri.
Hún rúmar 300-400 manns í sæti.
Efnisskrá Evu Mjallar er fjöl-
breytt og spannar tímabilið frá
J.S. Bach til Béla Bartóks, kröfu-
hart, forvitnilegt og sýnir flestar
hliðar fiðluleiksins. Hinn ungi ein-
leikari hefur sérstöðu meðal
íslenskra fiðluleikara af ungu
Eva Mjöll Ingólfsdóttir fiðlu-
leikari.
kynslóðinni að því leyti að hún
hefur sótt nám sitt til Evrópu og
notið leiðsagnar ýmissa þekktra
kennara af rómanska og austur-
evrópska skólanum, meðan flestir
íslenskir fiðlunemendur hafa sótt
nám sitt til Bandaríkjanna á seinni
árum. Auk Spánveija og ítala
hafa kennarar Evu Mjallar verið
Rúmenar, Ungveijar og Rússar,
en með þeim þjóðum þykir fíðlu-
leikur hafa náð einna mestri full-
komnun. Síðari tónleikar Evu
Mjallar og Douglas Poggioli verða
í íslensku Operunni á sunndag
kl. 16.00. Aðgöngumiðar fást hjá
Ferðamiðstöðinni Veröld og við
inngang. (Fréttatílkynninpr) -*