Morgunblaðið - 25.10.1990, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990
53
Signrbjíirtur Vil-
hjálmsson, húsasmíða-
meistari - Minning
Fæddur 2. nóvember 1908
Dáinn 18. ok'tóber 1990
í dag er jarðsunginn tengdafaðir
minn Sigurbjartur Vilhjálmsson
húsasmíðameistari.
Sigurbjartur fæddist 2. nóv. 1908
í Grænagarði í Leiru. Foreldrar
hans voru hjónin Bergsteinunn
Bergsteinsdóttir og Vilhjálmur
Guðmundsson. Bergsteinunn átti
ættir að rekja til Keflavíkur og um
Suðurnes, en Vilhjálmur var ættað-
ur austan úr Holtum í Árnessýslu.
Árið 1915 flytja þau hjón til Hafn-
arfjarðar. Alls áttu þau hjón 11
börn sem komust öll til fullorðins
ára og eru 6 þeirra ennþá á lífi.
Sigurbjartur var sendur austur í
sveit á sumrin að gæta búsmala
ásamt öðru sem til féll. Á sextánda
aldursári fór Sigurbjartur að vinna
í ullarverksmiðjunni Álafossi ásamt
systur sinni Hallberu. Seinna fór
Sigurbjartur til sjós og var á síld
norður á Siglufirði. Ekki mun sjó-
sókn hafa átt við hann enda hneigð-
ist hugur hans til smíða. Árið 1927
byrjaði hann að nema húsasmíði
hjá Þóroddi Hreinssyni og Árna
Siguijónssyni. Eftir að námi lauk
fóru þeir Sigurbjartur og Vigfús
Sigurðsson að vinna saman við
húsasmíðar í Hafnarfirði, samstarf
þeirra hefur verið gott í gegnum
árin.
Árið 1934 ganga þau í hjónaband
Sigurbjartur og Þuríður Magnús-
dóttir frá Dysjum í Garðahreppi.
Foreldrar hennar voru Ragnheiður
Þorbjömsdóttir og Magnús Brynj-
ólfsson sem þar bjuggu. Þau Sigur-
bjartur og Þuríður byggðu sér heim-
ili á Skúlaskeiði 10, á friðsælum
og fallegum stað í Hafnarfirði.
Eignuðust þau tvær dætur, Sigrúnu
f. 31.jan. 1936, sem gift er undirrit-
uðum og eiga þau þrjú börn, og
Ragnheiði f. 23. sept. 1942, gift
Ingólfi H. Ámundasyni skipasmíða-
meistara og eiga þaujrjögur börn.
Barnabarnabömin eru orðin sjö
talsins.
í október 1941 stofnuðu 12 aðil-
ar í Hafnarfirði fyrirtækið Dröfn
hf., sem sá um skipasmíðar og við-
hald skipa. Seinna var byggingarfé-
lagið Þór stofnað, þá til að hasla
sér völl við húsbyggingar. Sigur-
bjartur var einn af þessum mönnum
sem stofnuðu þessi fyrirtæki, og
vann hann ötullega að uppbyggingu
þeirra.
Eg var þeirrar ánægju aðnjótandi
að fá að vinna með Sigurbjarti við
byggingar hér í bænum, og ég held
að ég megi fullyrða að ég hafi aldr-
ei unnið með manni sem hafði jafn
gott verkvit og hann. Sigurbjartur
var oft með marga menn í vinnu
og aldrei sá maður hann bregða
skapi, enda hreif hann alla með sér
og dró ekki menn í dilka. Sigur-
bjartur var hjálpsamur og greiðvik-
inn maður.
Mér verður það ávallt minnis-
stætt þegar systkini Sigurbjarts og
fjölskyldur komu saman og gerðu
sér dagamun, þá var uppi glens og
grín og sagðar smellnar sögur. Það
er skarð fyrir skildi að einn af gleð-
innar mönnum fjölskyldunnar sé
genginn til feðra sinna. Sigurbjart-
ur átti við erfiðan sjúkdóm að stríða
síðastliðin þrjú ár. Ég vil fyrir hönd
aðstandenda þakka starfsfólki á
fjórðu hæð Sólvangs fyrir umönnun
og hjúkrun.
Nú lætur þú drottinn þjón þinn
í friði fara, blessuð sé minning Sig-
urbjartar Vilhjálmssonar.
Halldór Hjartarson
í dag fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju útför afa okkar, Sigurbjarts
Vilhjálmssonar, sem Iengst af bjó á
Skúlaskeiði 10 í Hafnarfirði. Síðast-
liðin þijú ár hefur hann verið heimil-
ismaður á Sólvangi í Hafnarfirði.
Þar andaðist hann að kvöldi 18.
október, eftir að heilsu hans hafði
farið hægt hnignandi. Amma okk-
ar, Þuríður Magnúsdóttir, lifir mann
sinn og er einnig til heimilis að
Sólvangi.
Afi ólst upp í stórum systkina-
hópi þar sem kjörin voru stundum
kröpp og húspláss lítið. Hann fór
snemma að vinna fyrir sér, lærði
húsasmíði og tók þátt í byggingu
fjölmargra opinberra bygginga og
húsa í Hafnarfirði. En beint fyrir
ofan Hellisgerði, með útsýni yfir
bæinn og höfnina, byggði hann fal-
legt hús sem var heimili þeirra afa
og ömmu í hálfa öld. Þar fæddust
dætur þeirra tvær, Sigrún árið 1936
og Ragnheiður árið 1942.
Afi var geðgóður maður, við
sáum hann aldrei skipta skapi, þó
svo hann hljóti að hafa átt misgóða
daga eins og allir. Hann hafði gam-
an af söng og ósjaldan bauð hann
okkur upp í dans á stofugólfinu,
undirleikurinn var söngurinn hans
og hláturinn. Hann hafði einnig
unun af ferðalögum og þó svo utan-
landsferðirnar yrðu aðeins tvær, þá
voru ferðirnar um landið okkar Is-
land fleiri. Vinnusemi, sparsemi og
reglusemi voru honum í blóð borin,
en leti, bruðl og óhóf voru orð sem
ekki fundust í orðabókinni hans.
Hann er nú lagður af stað í ferðina
löngu, laus við þreytu og þjáningu.
Eftir sitjum við og lítum um öxl
og minningarnar flögra um hugann,
um mann sem mátti muna tímana
tvenna.
Blessuð sé minning hans.
Aldís og Helga
Sigurbjartur Vilhjálmsson lést
18. þ.m. tæplega 82 ára að aldri.
Hann lærði trésmíðaiðn og vann
allan sinn starfsaldur við trésmíðar.
Hann var einn þeirra 12 félaga sem
stóðu að stofnun Skipasmíðastöðv-
arinnar Drafnar hf., árið 1941 en
10 stofnendanna voru iðnaðar-
menn. Sömu aðilar stofnuðu síðan
Byggingafélagið Þór hf. Skömmu
eftir stofnun Drafnar hf., hóf Sigur-
bjartur störf hjá fyrirtækinu og
vann alla tíð síðan hjá fyrirtækjun-
um báðum og hafði jafnan verk-
stjórn á hendi. Hann var góður
smiður, vandvirkur og afkastamik-
ill. Hann var mjög hagsýnn og góð-
ur verkstjóri og var einkar laginn
á að stilla alla þætti verka saman
þannig að þau gengu vel og snurðu-
laust. Og það var eins og þetta
gerðist meira og minna af sjálfu
sér og þeir sem hann þurfti að
vinna með og stjórna urðu samhent-
ur hópur sem kappkostaði að koma
verkum áfram og þau væru vel af
hendi leyst.
Sigurbjartur sat í stjórnum félag-
anna um langt árabil. Hann hafði
mikinn áhuga á því að hagur þeirra
yrði sem bestur og lagði mikið af
mörkum til að svo mætti verða.
Hann var ávallt boðinn og búinn
að ganga í þau verk sem leysa
þurfti og var það ekki dregið á lang-
inn.
Sigurbjartur var hógvær maður
og traustur. Hann var léttur í lund
og skapgóður og því gott að eiga
hann að vinnufélaga. Góður sam-
starfsmaður, góður og heilsteyptur
drengur er kvaddur með þökk í
huga. Blessun fylgi minningu hans
og við biðjum honum velfarnaðar á
nýjum vegum. Eftirlifandi konu
hans, Þuríði Magnúsdóttur, og fjöl-
skyldu flytjum við innilegar samúð-
arkveðjur.
Páll V. Daníelsson
Þann 18. október sl. lést í hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi í Hafnar-
firði, vinur minn og samstarfsmað-
ur í sextíu ár, Sigurbjartur Vil-
hjálmsson húsasmíðameistari,
Skúlaskeiði 10, Hafnarfirði.
Útför hans fer fram í dag,
fimmtudaginn 25. október, frá
Hafnarfjarðarkirkju.
Sigurbjartur var fæddur í
Grænagarði í Leiru 2. nóvember
1908 og var því tæpra 82 ára er
hann lést. Foreldrar hans voru hjón-
in Bergsteinunn Bergsteinsdóttir
og Vilhjálmur Guðmundsson. Flutt-
ist hann með foreldrum sínum og
eldri systkinum til Hafnarijarðar
árið 1915. Alls urðu þau systkin
11, ólust þau upp í Hafnarfirði, oft
við þröngan kost, eins og títt var
á þeim tíma hjá barnmörgum fjöl-
skyldum. Öll urðu þau systkin
dugnaðar- og mannkostafólk. Sig-
urbjartur var hamingjumaður í sínu
ijölskyldulífi, hann kvæntist 27.
október 1934 sinni ágætu konu,
Þuríði Magnúsdóttur frá Dysjum í
Garðabæ. Þau eignuðust tvær dæt-
ur, þær eru: Sigrún Ásta, gift Hall-
dóri Hjartarsyni tollþjóni, og Ragn-
•heiður, gift Ingólfi H. Ámundasyni
skipasmíðameistara, báðar búsettar
í Hafnarfirði.
Sigurbjartur Vilhjálmsson hóf
nám í húsasmíði 1927, hjá húsa-
smíðameisturunum Árna Siguijóns-
syni og Þóroddi Hreinssyni, sem
voru á þeim tíma umsvifamiklir
byggingaverktakar, sveinsprófi
lauk hann árið 1931. Að námi loknu
starfaði hann næstu árin með
meisturum sínum og undirrituðum
að ýmsum byggingaframkvæmdum
í Hafnarfirði og víðar. Það kom
fljótt í ljós að hann var gæddur
hæfileikum til að stjórna verkum,
enda varð hann fljótlega verkstjóri
og kennari iðnnema. A þeim árum
var venja að verkstjórar í bygginga-
riðnaði ynnu með starfsmönnum
sínum, en svo létt fórst honum verk-
stjórnin, að hann skilaði auk hennar
fullri vinnu og vel það, enda var
hann mjög eftirsóttur til hverskonar
smíða, því saman fór dugnaður,
■^pndvirkni og útsjónarsemi og sér-
lega góð skapgerð. Verkstjórn Sig-
urbjarts var ekki framkvæmd með
eftirrekstri eða hörðum fyrirmæl-
um, heldur með lipurð við undir-
menn sína, hann hafði lag á að
vekja áhuga þeirra á verkefnunum
með góðlátlegu, léttu og örvandi
tali, sem orkaði þannig á starfs-
menn, að þeir voru ávallt reiðubún-
ir að fylgja honum eftir.
Nemendur í húsasmíði, sem æði-
margir hafa gegnum árin unnið
undir stjórn Sigurbjarts, minnast
þess oft hversu gott hafi verið að
vinna undir hans stjórn og telja.
ómetanlegt hvað mikið þeir hafi af
honum lært og hafi orðið þeim
gagnlegur leiðarvísir, þegar þeir
sjálfir fóru að stjórna verkum og
þurftu að standa á eigin fótum.
Sigurbjartur var sem kallað er fé-
lagslega sinnaður maður og átti
gott með að starfa með öðrum,
hann var stofnandi og starfaði í
ýmsum félögum, hann var um ára-
bil formaður í Trésmiðafélagi Hafn-
arijarðar og var oft fulltrúi þess á
iðnþingum, hann gekk í Iðnaðar-
mannafélagið í Hafnarfirði, var
lengi formaður í skemmtinefnd þess
þótti sæti hans þar vel skipað sem
annars staðar, hann var kosinn
heiðursfélagi þess 26. október 1978
í tiiefni af 50 ára afmæli félagsins,
voru honum þá þökkuð ágæt störf
í þágu félagsins.
Sigurbjartur var einn af tólf
stofnendum Skipasmíðastöðvarinn-
ar Drafnar hf. 25. október 1941
og Byggingafélagsins Þórs hf. 16.
júlí 1944, hann var lengi í stjórn
þeirra og starfsmaður frá stofnun
þeirra og eins lengi og heilsa hans
leyfði, lengst af verkstjóri.
Ég tel mér það mikið happ að
hafa á unglingsárum kynnst Sigur-
bjarti, leiðir okkar lágu saman þeg-
ar ég hóf nám í húsasmíði hjá sömu
meisturum og hann nam hjá. Allt
frá þeim tíma eða full sextíu ár
höfum við verið starfsfélagar og
vinir. Betri samstarfsmann get ég
ekki hugsað mér, öll þessi ár hefur
ekki fallið skuggi á samstarf okkar
og tel ég að þar hafi miklu ráðið
hæfileiki hans til samstarfs við aðra
að ógleymdri hans góðu skapgerð,
sem ekkert fékk raskað.
Þau hjónin Sigurbjartur og Þuríð-
ur byggðu í upphafi hjónabands
síns íbúðarhús nr. 10 við Skúla-
skeið ofan við Hellisgerði á einum
fegursta stað í bænum. Á þeim tíma
þótti hús þeirra vera með stærri
húsum, miðað við þeirra tíma
venju, en síðar bættu þau við húsið
allmyndarlega. Áttu þau hjónin þar
glæsilegt heimili og bjuggu þar allt
til þess að heilsa þeirra bilaði, þá
fluttu þau í hjúkrunarheimilið Sól-
vang og hafa dvalið þar hátt í þijú
ár.
Við Ásta minnumst margra
ánægjulegra stunda á heimili þeirra
hjóna og margra skemmtilegra
ferða á sjó og landi, sem við höfum
farið saman á liðnum árum. Við
sendum Þuríði, dætrum, tengdason-
um, dætrabörnum og ættfólki okkar
innilegustu samúðarkveðjur og biðj-
um Sigurbjarti Guðs blessunar í
nýjum heimkynnum.
Vigfús Sigurðsson
Andlát afa míns, Sigurbjarts Vil-
hjálmssonar, fylgdi í kjölfar veik-
inda síðustu ára. Þær minningar
sem ég á um afa og eru mér kærast-
ar eru þó frá æskuárum mínum í
Hafnarfirði þegar við bjuggum í
návist við afa og ömmu á „Skúló“,
sem við nefndum eftir heimili þeirra
á Skúlaskeiði 10.
Það var alltaf gaman að koma í
heimsókn til afa og ömmu og þar
var oft glatt á hjalla. Afi hafði
gaman að tónlist og hann lék á
harmonikku. Þegar fjölskyldan kom
saman dró afi oft fram „nikkuna"
sína og við krakkarnir hoppuðum
og dönsuðum meðan kraftar entust
til. Sjálfur hafði afi líka gaman af
að dansa og hann og amma tóku
saman snúning hvenær sem tilefni
gafst til.
Og það var ekki aðeins heima á
Skúló sem við nutum návistar afa.
Oft tók hann okkur systkinin í
sunnudagsferðir í bílnum með
ömmu. Hann var ræðinn og hafði
gaman af að spjalla við fólk hvar
sem við stöldruðum við f þessum
ferðum.
Afi var afkastamikill og naut sín
í starfi. Ég hef haft gott samband
við Hallberu, systur hans, sem búið
hefur í Bandaríkjunum um árabil.
Við höfum oft haft gaman af sögun-
um sem hún á um afa og þeim
systkinunum frá yngri árum.
Ég veit að afa leið illa undir lok-
in. Honum fannst erfitt að þurfa
að vera meira og minna rúmfastur
og háður öðrum um flesta hluti.
Afi er nú loksins fijáls aftur. Hlýjar
minningar um hann verða með okk-
ur um ókomna tíma.
Þuríður Erla Halldórsdóttir
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN EGILSSON
vélstjóri
frá ísafirði,
verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 27. október
kl. 14.00.
Hulda Jónsdóttir, Garðar Hinriksson,
Egill Jónsson, Gunnhildur Birna Friðriksdóttir,
Jón Ásgeir Jónsson, ' Jónína Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILJA SIGURÐARDÓTTIR,
Ásvegi 17,
Akureyri,
sem lést 19. október, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 26. október kl. 13.30.
Ágúst Ólafsson,
Rannveig Ágústsdóttir, Þórður Hinriksson,
Ólafur Ágústsson, Guðríður Þorsteinsdóttir,
Þórarinn Ágústsson, Þorbjörg Þorsteinsdóttir,
Ingibjörg Sigríður Ágústsdóttir, Erlingur Bergvinsson
og barnabörn.
t
Systir mín, mágkona og frænka,
ODDBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hátúni 10,
verður jarðsungin föstudaginn 26. október kl. 13.30frá Fossvogs-
kapellu.
Kristín H. Guðjónsdóttir, Ragnar Þ. Guðlaugsson,
Guðjón Ragnarsson, Hanna G. Ragnarsdóttir,
Halldóra G. Ragnarsdóttir og fjölskyldur.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma,
ERLA EYJÓLFSDÓTTIR,
Engjaseli 84,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. október
kl. 10.30.
Viðar Magnússon, Bettý Guðmundsdóttir,
Reynir Magnússon, Magnea Aradóttir,
ívar Magnússon, Sigrún Kjærnested,
Smári Emilsson, Nanna K. Magnúsdóttir.
Gyða Eyjólfsdóttir,
Svana Eyjólfsdóttir,
Trausti Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.