Morgunblaðið - 25.10.1990, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990
59
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
AMERÍSK ANDASÁPA
MJÖG VANDAÐIR
MOKKAJAKKAR
DÖMU OG HERRA
SENDUM MYNDALISTA - SENDUM í PÓSTKRÖFU
Til Velvakanda.
Við félagarnir hlökkuðum ekki
svo lítið til að sjá loksins íslenska
þáttaröð í Sjónvarpinu um hina ís-
lensku þróun Nýaldarhreyfíngar-
innar eins og sumir kalla hana. Því
meiri urðu vonbrigðin þegar svo
færi gafst á að líta á þessa Bjarma-
landsför ísfilms hf. sáluga. Fíaskó
er orðið sem notað er yfir svona
hörmung.
Það er eins og alla yfirsýn hafi
skort við gerð þessara þátta í um-
sjá íslensku hreyfimyndastofnunar-
innar sem ísfilm var fengið til að
gera fyrir Sjónvarpið. Og ekki er
heldur hægt að átta sig á því með
nokkru móti í hvaða smiðju Jón
Proppé heimspekingur (???) hafi
gengið er hann samdi handritið að
þáttaröðinni. Varla nokkru.
Fyrir nú utan alla tæknilegu
hnökrana á gerð þáttanna þá vant-
ar nánast alla faglega vinnu við
úttektina. Einhæft val viðmælenda
í undarlegu ljósi á skjánum, líkam-
legar hreyfingar með eða án sverðs
eða kodda, eða gosdósa, og mikið
orðskrúð um fáa hluti gerðu það
að verkum að héildaryfirlit áhorf-
enda yfir fyrirbærið varð nánast
ekkert. Fáum alvarlegum spurning-
um hreyfingarinnar er velt upp,
hvað þá að bjóða uppá smáskilning
í víðu samhengi á viðfangsefninu.
Svo eftir stendur enn stærri og
dýpri gjá iðkendanna og andmæ-
lendanna ef eitthvað er.
Hreyfing þessi sem reynt er að
fjalla um í þáttunum er þó í 'raun
miklu eldri og merkilegri hér á ís-
landi en flestir halda í fyrstu. Menn
mega alls ekki gleyma frumkvöðl-
um spíritistahreyfingarinnar og öll-
um þeim mótbyr sem þeir höfðu í
fangið lengst af. Og ekki síður
hversu afar margar og merkilegar
tilraunir þeir gerðu í gegnum tíð-
ina. Á það var vart minnst einu
orði í þáttunum.
Því miður er mestallri þeirri til-
raunastarfsemi lokið þar á bæ þótt
það sé aftur annað mál, og alls
ekkert einkamál Sálarrannsóknafé-
lagsins. En það hefði eigi að síður
átt að segja frá því starfi þar í
gegnum árin í stuttu máli og
árangrinum af því. Að mörgu öðru
ógleymdu sem ekki síður er merki-
legt í þessu samhengi og nauðsyn-
legt hefði verið að gera a.m.k. ein-
hver skil.
En alls þessa var bara alls ekki
getið frekar en flests annars sem
ekki hefur verið flutt inn tollfrjálst
og milliliðalaust beint frá Amer-
íkunni nú sl. misseri í stórgámainn-
flutningnum mikla. Ekki einu orði
í þáttunum.
Ég veit það vel að margir fussa
hér og sveia og segja sem svo að
t.d. spíritisminn sé alls ekki hluti
Nýaldarhreyfingarinnar, né nokkuð
annað honum skylt. En þetta er
bara alls ekki rétt.
Spíritisminn, Guðspekifélagið og
hreyfingar Nýjalssinna eru einn
merkilegasti hluti þessarar hreyf-
ingar í heild sinni, hvað sem mönn-
um annars finnst persónulega um
þau mál. í reynd miklu merkilegri
en fiest allt sem sumir nærsýnir
Nýaldarsinnar nýkomnir frá Amer-
íkunni flokka undir „The New Age
Movement", eða Hreyfingu hinnar
nýju aldar uppá íslensku, þótt þessi
fyrirbæri hafi undir ýmsum öðrum
fánum siglt í gegnum tíðina.
í ljósi sögulegrar þróunar hér á
íslandi í gegnum aldirnar, s.s. álfa-
sagnanna og huldufólkssagnanna,
og nú á tuttugustu öldinni meints
sambaíids við látna íslendinga í
öðrum heimi á öðrum tilverustigum
(eða á öðrum hnöttum eins og Nýj-
alssinnar segja að næsta líf okkar
verði) verður ekki vikist undan því
að viðurkenna þá staðreynd að
gagnrýnin á hina þurru efnishyggj-
ulegu hlið tilverunnar í íslensku
þjóðfélagi hefur átt sér höfuðvígi
þar og hvergi annars staðar, og á
sér það mjög líklega enn þrátt
fyrir allt. Þetta ættu allir að geta
fallist á sem kynnt hafa sér máiin
nokkuð.
Hins vegar eru höfuðstöðvar
innihaldslausu og sálarlausu efn-
ishyggjunnar á íslandi í dag án
efa í Háskóla íslands og í blindum
og innisæislausum fylgjendum
hans. En það er aftur annað mál
og óskiljanlegra og miklu flóknara
en öll Nýaldarhreyfingin í heild
sinni annars er.
Magnús H. Skarphéðinsson
MENGUN
Til Velvakanda.
Það lítur út fyrir að álver verði
reist hér á landi en þessir góðu
menn hugsa ekkert um hvernig
landið okkar lítur út eftir nokkur
ár, bæði loft og sjór í hættu. Af
hverju vilja aðrar þjóðir losna við
þessi álver? Af því að þeir eru
búnir að fá nóg af mengun af
þeim og vilja koma þeim í hreint
og ómengað land. Svo hafa þeir
komist að því að ráðamenn okkar
eru nýjungagjarnir og gleipa
viðjþessu.
Eg hef nú heyrt að ráðherrann
Jón Sigurðsson eigni sér þessa
blessun. En hann fær ekkert hrós
frá mér. Ef ráðherrann hefði
stungið upp á annarri atvinnu-
grein sem hefði orðið þjóðinni til
heilla þá hefði hann fengið hrós
fyrir. Eg er nú ekki.búinn að sjá
mikinn hagnað af álveri ef það
verða 10 til 20 ár þangað til að
raforkan fer að skila hagnaði, þá
verður álið orðið einskis virði og
annað efni komið á markaðinn.
Það er ekki gott að láta aðrar þjóð-
ir eiga eignir hér á landi. Við eig-
um að hlynna að afurðum okkar
til sjós og lands, því við eigum
fagurt og gott land og líklega
besta land í heimi.
Ingimundur Sæmundsson
Þessir hringdu . .
Reiðhjól í óskilum í
Sæviðarsundi
Kona hringdi og vildi láta vita
af tveimur reiðhjólum sem eru
í óskilum hjá henni, eri hún býr
i Sæviðarsundi. Bæði hjólin eru
drengjahjól. Annað er nýlegt,
svart og bleikt, en hitt gult
eldra hjól. Upplýsingar í síma
30593 eftir kl. 19.
Dikk Treisi kallar a Gomes
Dikk kallar á Gö-Gó Gómes
Gó-Gó ertu þarna?
Hann er ekki her!
Gð-Gó er farinn til Parísar
að sjá Kan-Kan stúlkurnar í
Rauðu Myllunni, enda verðið
aðeins frá kr. 25.280.
FLUGLEIÐIR
Fljótari en
VKA
Safalinn, Laugavegi 25, 2. hæð. Sími 17311
Ungan mann til ábyrgðar!
VID KJÓSUM
Cuðmund Magnússon í
6. sætið.
Stuðníngsmenn.
Kökubasar
Kvenfélagið Heimaey heldur sinn árlega köku-
basar laugardaginn 27. október kl. 14.00 á
Hallveigarstöðum.
Móttaka á basarinn verður föstudaginn
26. október kl. 1 7.00-19.00 og laugardaginn
27. október frá kl. 10.00 fyrir hádegi.
Stjórnin
h'EtfyMNl^URENT
snyrtivörukynningar
★ Bylgja, Hamraborg 14 a, Kópavogi, fimmtud. 25. okt. kl. 13-18.
★ Snyrtivörubúðin, Laugavegi 76, föstud. 26. okt. kl. 13-18.