Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 1
68 SIÐUR B
272. tbl. 78. árg.________________________________FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Nýr forsætisráðherra tekur við í Bretlandi:
Major stokkar
upp í stjórninni
Heseltine verður umhverfisráðherra
London. The Daily Telegraph.
JOHN Major, hinn nýi forsætisráðherra Breta, tilkynnti í gær. tölu-
verðar breytingar á ríkisstjórninni. Michael Heseltine, sem laut í
lægra haldi fyrir Major í leiðtogakjöri breska íhaldsflokksins á
þriðjudag, verður umhverfisráðherra og mun meðal annars hafa það
verkefni með höndum að endurskoða nefskattinn svokallaða. Dougl-
as Hurd, sem einnig var í framboði í leiðtogakjörinu, verður áfram
utanríkisráðherra. Kona var í forsæti bresku ríkisstjórnarinnar í
hálft tólfta ár eins og kunnugt er en nú bregður svo við að einung-
is karlar eru í henni.
Major tók við embætti forsætis-
ráðherra í gær. í stuttu ávarpi fyr-
ir utan embættisbústað í Down-
ingstræti 10 hyllti hann Margaret
Thatcher forvera sinn sem yfir-
burða forsætisráðherra. Hann sagð-
ist staðráðinn i að sameina íhalds-
flokkinn og skapa stéttlaust þjóðfé-
lag í Bretlandi. „Ég vil að við byggj-
um þjóðfélag sem er ánægt með
sjálft sig, fullt sjálfstrausts og
reiðubúið að bæta kjör þegnanna.“
Einnig mátti ráða af orðum hans
að fylgt yrði aðhaldssemi í ríkisfjár-
málum og samruna Evrópu yrði
mætt með opnum huga.
Það einkennir breytingar Majors
á ríkisstjórninni að nánustu aðstoð-
armenn hans í baráttunni um leið-
togaembættið í flokknum komast
nú til meiri metorða. Norman Lam-.
ont aðstoðarijármálaráðherra tekur
við embætti fjármálaráðherra, en
því starfí gegndi Major áður. Chris
Patten umhverfisráðherra verður
formaður íhaldsflokksins. Kenneth
Baker lætur af formennsku og verð-
ur innanríkisráðherra. Cecil Parkin-
son, einn helsti stuðningsmaður
Thatcher, sagði af sér í gær en
hann gegndi embætti samgöngu-
málaráðherra. Annar stuðnings-
maður hennar, David Waddington,
hverfur úr embætti innanríkisráð-
herra og verður leiðtogi lávarða-
deildarinnar.
Sjá umfjöllun um forsætisráð-
herraskiptin í Bretlandi á bls.
32-33.
Reuter
John Major býður fyrrum keppinaut sinn, Michael Heseltine, velkom-
inn í ríkisstjórnina á tröppunum við Downingstræti 10.
Evrópubandalagið:
Fiskveiði-
stefnan
gjaldþrota
Brusscl. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
MANUEL Marin, framkvæmda-
stjóri fiskimála innan Evrópu-
bandalagsins (EB), sagði við blaða-
menn í Brussel í gær að ef frani-
kvæmd fiskveiðistefnunnar yrði
ekki breytt blasti við hrun fiski-
stofna bandalagsins.
Sóknargeta fiskveiðiflota EB er
af sérfræðingum áætluð 40% um-
fram mögulegt þol fiskistofna og
sókn í þorsk og ýsustofna í Norð-
ursjó er fjórum sinnum meiri en
stofnarnir eru taldir þola. Marin seg-
ir að til greina komi að banna veiðar
á hrygningarsvæðum í Norðursjó á
tímabilinu nóvember til mars. Óhjá-
kvæmilegt sé að stækka möskva á
þorsk- ogýsuveiðum í 120 millimetra
en nú eru þeir 60-90 millimetra.
Þýskaland:
Neyðaraðstoð við Sovét-
menn hleypt af stokkunum
Moskvu. dpa. Reuter.
UMFANGSMESTU áætlun Þjóð-
verja á seinni árum um neyðar-
aðstoð við erlent ríki var hrund-
ið af stað í gær. Þýska sjónvarp-
Kröfur í Svíþjóð:
Carlsson birti
bréf til íraka
Stokkhólmi. Helsinki. Reuter. Frá Lars Lundsten, fréttarilara Morgunblaðsins.
ÞESS var krafist í Svíþjóð í gær að stjórnvöld birtu opinberlega
bréf sem Ingvar Carlsson forsætisráðherra sendi Saddam Huss-
ein íraksforseta í því skyni að fá leysta úr haldi 58 Svía sem þar
eru í gíslingu. Talið er að bréfið, sem lesið var upphátt á lokuð-
um fundi íraska þingsins, hafi valdið því að ákveðið var að Svíarn-
ir fengju fararleyfi.
„Hvað stóð eiginlega í bréfi
Carlssons til Saddams Husseins?"
spyr Svenska dagbladet sem er
hægrisinnað. „Verði leyndinni ekki
aflétt munu grunsemdir um að
Ingvar Carlsson hafi skaðað álit
Svía á aiþjóðavettvangi vaxa.“
Leiðtogar sænska Vinstriflokksins,
áður kommúnista, hafa tekið undir
kröfurnar og segjast telja að það
muni ekki valda neinum skaða að
birta bréfið. Stjórn jafnaðarmanna
er háð stuðningi Vinstriflokksins á
þingi.
Sænska sjónvarpið og dagblöð
segja að írösk yfirvöld hafi túlkað
bréfíð svo að Svíar heiti því að
taka aldrei þátt í vopnuðum átök-
um við Persaflóa. Svíar styðja við-
skiptabann Sameinuðu þjóðanna á
írak vegna innrásar Saddams í
Kúvæt og hafa gefið í skyn að
þeir væru reiðubúnir að leggja til
hermenn í lið SÞ ef nauðsyn krefði.
Aðstandendur þeirra níu Finna
sem enn eru í haldi hjá írökum
krefjast nú aðgerða af hálfu
Mauno Koivisto Finnlandsforseta
til þess -að gíslarnir komist úr
landi. Finnum hefur gengið mun
verr að ná sínum ríkisborgurum
út en t.d. Svíum. Telst þetta stafa
af því að Finnar eiga sæti í Örygg-
isráði SÞ og hafa þar stutt refsiað-
gerðir gegn írökum. Paavo Váyr-
ynen, fyrrum utanríkisráðherra,
og Ulf Sundqvist, sem meðal ann-
ars hefur gegnt embætti mennta-
málaráðherra, hafa undanfarna
daga dvalið í Bagdad en þeim hef-
ur gengið illa að fá gíslana lausa.
Sjá „Úrslitakostir..“ á bls. 33.
ið var með beina útsendingu frá
Leníngrad, en þær er mikill
matarskortur eins og víðast
hvar í Sovétríkjunum. Helmut
Kohl kanslari og Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra
ávörpuðu þýsku þjóðina og
hvöttu hana til að koma Sovét-
mönnum til bjargar. Fulltrúi
Kohls er nú í Moskvu til þess
að skipuleggja neyðaraðstoðina.
Sovéska fréttastofan Tass
skýrði frá því í gær að Gor-
batsjov hefði ákveðið að aflýsá
ferð til Noregs þar sem hann
átti að veita friðarverðlaunum
Nóbels viðtöku 10. desember
næstkomandi. Var skýringin
sögð sú að ástandið í landinu
væri svo slæmt að forsetinn
ætti ekki heimangengt.
Gorbatsjov hitti Horst Teltschik,
háttsettan aðstoðarmann Kohls, í
Moskvu í gær til að skipuleggja
aðstoð Þjóðverja. Að sögn Teltsch-
iks munu tíu til fimmtán þýsk ráðu-
neyti taka þátt í að stjórna neyðar-
aðstoðinni sem er einkum fólgin í
peningagjöfum og sendingu mat-
arpakka til Sovétríkjanna. Teltsch-
ik er í Moskvu ásamt sendinefnd
til þess að tryggja að aðstoðin
berist í réttar hendur og fá sem
nákvæmastar upplýsingar um það
hvernig Þjóðverjar geti hjálpað
Sovétmönnum að rétta efnahaginn
við. Teltschik sagði að rætt yrði
um hvernig hægt yrði að auðvelda
tollskoðun, tryggja viðunandi
geymslu matvæla og að Þjóðverjar
fái að fylgjast með dreifingu hjálp-
argagna. Að hans sögn hafa Sovét-
menn lagt til að háttsettir embætt-
ismenn beggja ríkja hittist á tíu
Reuter
Kartöflusekkir þessir í Rostock í Þýskalandi bíða þess að þeim verði
skipað um borð í skip áleiðis til Sovétríkjanna.
daga fresti til að bera saman bæk-
ur sínar.
Þýskalandsdeild alþjóðlegu
hjálparstofnunarinnac Care ætlar
að útbúa 20.000 matarböggla á
næstu vikum sem sendir verða með
flutningabifreiðum til Sovétríkj-
anna.
Fyrsta flugvélin með matvæli
fer frá Hannover í dag. Rauði
krossinn ætlar að senda bifreiða-
lest til Moskvu á morgun. Matvæl-
unum verður dreift í næstu viku
með hjálp starfsmanna Rauða
krossins í Moskvu og þýskra að-
stoðarmanna. í Hollandi er einnig
að hefjast peningasöfnun fyrír
Sovétmenn.
Geir Lundestad, forseti norsku
Nóbelsstofnunarinnar, sagði í gær
að erfitt yrði að breyta dagsetn-
ingu afhendingar friðarverðlaun-
anna að ósk Gorbatsjovs. Verð-
launin væru alltaf afhent 10. des-
ember á dánardægri Alfreds Nob-
els. Sovéskir heimildarmenn Reut-
ers-fréttastofunnar benda á að
leiðtogafundur Varsjárbandalags-
ins og miðstjórnarfundur sovéska
kommúnistaflokksins fari fram um
sama leyti og kynni það að hafa
haft áhrif á ákvörðun Gorbatsjovs.
Hið ótrygga ástand í Sovétríkj-
unum er talið skýringin á þeim
ummælum Dimitríjs Jazovs varn-
armálaráðherra á þriðjudag að
herinn hefði rétt á því að veija sig
fyrir árásum óbreyttra borgara.
Leiðtogar þings Litháens for-
dæmdu yfirlýsingu þessa í gær og
sögðust líta á hana sem dulda ógn-
un við sig.