Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUR 29. NÖVEMBER 1990 John Major tekur við embætti forsætisráðherra Bretlands Þykir raunsær, hagsýnn og sveigjanlegri en forverinn Lundúnum. The Daily Telegjaph. JOHN Major hefur á undraskömmum tíma hafist til æðstu metorða í breskum stjórnmálum og í gær gekk hann á fund drottningar til að taka við stöðu forsætisráðherra. Ærin verkefni blasa við honum, stríð virðist yfirvofandi við Persaflóa og staðan í breskum efnahags- málum er erfið nú um stundir. Leiðtogakjörið þykir hafa sýnt og sannað að Major er líkt og Margaret Thatcher maður baráttuglað- ur þó hann sé af flestum talinn mun sveigjanlegri og hag sýnni en „Járnfrúin". Kjör Johns Majors er að sönnu sögulegt. Hann tekur við embætti flokksleiðtoga og forsætisráðherra af Margaret Thatcher, sem þykir einn merkasti forsætisráðherra Bretlands á þessari öld. Hann er aðeins 47 ára gamall og yngri maður hefur ekki sest að í embætt- isbústað forsætisráðherra að Dow- ningstræti tíu frá því jarlinn af Rosebery komst til valda árið 1894. Staða Majors var í upphafi barátt- unnar ekki sérlega sterk. Hann átti við öfluga andstæðinga að etja. Michael Heseltine nýtur virðingar í Ihaldsflokknum og styrkur hans var mikill eins og í ljós kom í fyrstu umferðinni er hann hlaut 152 at- kvæði. Þá hefur Douglas Hurd ut- anríkisráðherra sýnt og sannað að hann er mjög hæfur maður og margir þingmenn höfðu á orði að hann væri einmitt leiðtoginn sem þörf væri á í ljósi óvissunnar við Persaflóa. Enginn vafí leikur á því að Thatcher studdi Major en sá stuðningur hefði getað reynst tvíbentur ekki síst þar sem þær raddir tóku að heyrast að Thatcher ætlaði sér með þessu að tryggja áframhaldandi áhrif sín í breskum stjómmálum. Hurd og Heseltine höfðu báðir meiri reynslu af setu í ríkisstjóm en engu að síður hlaut Major skýrt og afdráttarlaust um- boð til að taka við íhaldsflokknum og forsætisráðuneytinu. Sigurinn er ekki síst sögulegur fyrir þær sakir að hann sigraði báða þessa öflugu frambjóðendur í fyrstu til- raun, skilaboðin frá þingflokknum voru skýr og vel skipulögð barátta Majors skilaði tilætluðum árangri. Skjótur frami Fyrir einu og hálfu ári var John Major gjörsamlega óþekktur utan Bretlands og ekki verður sagt að London. Reuter. MARGARET Thatcher yfirgaf bústað breska forsætisráðherr- ans í Downingstræti 10 í hinsta sinn í gær er hún hélt á fund Elísabetar drottningar til þess að biðja formlega um lausn frá störfum. „Við fömm nú héðan eftir yndis- lega dvöl í hálft tólfta ár og ánægð yfir því að konungdæmið er mikið betur á sig komið en þegar við fluttum inn,“ sagði Thatcher við fréttamenn er hún og eiginmaður hennar Denis lokuðu dymm for- sætisráðherrabústaðarins í síðasta sinn. „Nú hefst nýr kapítuli og ég óska John Major velfamaðar í starfi og vona að gæfa heimsins gangi í lið með honum. Hann hefur allt til að bera til þess að verða stórkostlegur forsætisráðherra og ég er viss um að það mun fljótlega sýna sig,“ bætti Thatcher við. Heimildarmenn segja að hún hafí hringt í nokkra þingmenn er bar- áttan um íeiðtogasætið stóð sem hæst og hvatt þá til að kjósa Major. hann hafi verið sviðsljósi fjölmiðla í heimalandi sínu. Það var Margar- et Thatcher sem fyrst veitti Major athygli og hann á ævintýralegan feril sinh vissulega henni að þakka. Á það hefur hins vegar verið bent að þau embætti sem Thatcher fól Major vom erfið og ekki líkleg til að afla honum vinsælda. Honum tókst hins vegar að leysa þau þann- ig af hendi að hann kallaði ekki yfir sig óvildarmenn og lenti ekki í illvígum deilum á leið sinni upp metorðastigann. Major varð nánasti aðstoðarmað- ur þáverandi fjármálaráðherra Bretlands, Nigels Lawsons, 1987 og hafði það starf einkum með höndum að glíma við ráðuneytis- stjóra sem sífellt leituðust við að fá auknar fjárveitingar til þeirra málaflokka er undir þá heyrðu. Hann hafði áður verið formaður þingflokksins, sem þykir góður skóli, og gegnt ýmsum minniháttar embættum á vettvangi félagsmála en Major var fyrst kjörinn á þing árið 1979 er Margaret Thatcher varð forsætisráðherra. í júlí í fyrra gerði Thatcher breytingar á ríkisstjórn sinni og kom það mönnum gjörsamlega í opna skjöldu er uppvíst varð að John Major hefði tekið við embætti utanríkisráðherra af Sir Geoffrey Howe. Major gegndi þessu emb- ætti aðeins í þrjá mánuði og sjálfur hefur hann sagt að honum hafi tæpast gefíst tími til að átta sig á hvar í veröldinni Burkina Faso væri áður en hann var kallaður á fund forsætisráðherrans og til- kynnt að honum byðist að taka við fjármálaráðuneytinu af Nigel Law- son. Varla jafn hægrisinnaður og Thatcher Þótt fullvíst sé að Thatcher hafí talið John Major heppilegasta manninn til að taka við stjórn íhaldsflokksins og fullyrt hafi verið að stjórnmálaskoðanir þeirra fari saman í flestum meginatriðum þykja bæði yfirlýsingar og gjörðir Majors gefa til kynna að hann sé ekki jafn afdráttarlaus hægri mað- ur og forsætisráðherrann fyrrver- andi. í embætti ijármálaráðherra þótti hann jafnan sýna varfærni og sveigjanleika og ferill hans allur þykir hafa leitt í ljós að hann sé fyrst og fremst maður raunsær og hagsýnn. Það þykir hafa komið í ljós að fyrsta fjárlagafrumvarp hans hafí verið skynsamlegt en er það var lagt fram höfðu menn uppi efasemdir um að nýi íjármálaráð- herrann væri það hörkutól sem þyrfti til að gegna þessu embætti. I haust tókst Major síðan að telja Thatcher á að skipta algjörlega um stefnu er forsætisráðherrann féllst á að miða bæri gengi sterlings- pundsins við meðalgengi helstu Evrópumynta, taka að nokkru leyti þátt í EMS-samstarfinu. Ræðu hans á síðasta flokksþingi breskra íhaldsmanna var vel tekið sem þyk- ir heyra til tíðinda þegar fjármála- ráðherra á í hlut. Hann þykir frjáls- lyndur og víðsýnn á vettvangi trú- mála og hefur jafnan lýst yfír and- stöðu við dauðarefsingar. EB-málin I öðrum aðildarríkjum Evrópu- bandalagsins binda menn ótvíræð- ar vonir við John Major en færð hafa verið rök að því að ósveigjan- leiki Margaret Thatcher á þessum vettvangi hafi orðið henni að.falli. Um miðjan næsta mánuð kom leið- Thatcher yfírgefur Downingstræti 10 Reuter Margaret Thatcher ræðir við blaðamenn er hún yfirgefur Downing- stræti 10 í gærmorgun. Að baki stendur eiginmaður hennar, Denis. Stjórnmálaólgan í Búlgaríu: Stjóm Andrejs Lúkan- ovs hyggst segja af sér Sofíu. Reuter. STJÓRN Andrejs Lúkanovs, forsætisráðherra Búlgaríu, sem er skipuð fyrrum kommúnistum, tilkynnir afsögn sína bráðlega til að bráðabirgðastjórn geti tekið við, að sögn búlgörsku fréttastof- unnar BTA í gær. Stjórnin hafði sætt harðri gagnrýni vegna alvar- legs matvæla- og eldsneytisskorts í landinu. Hún hefur verið und- ir miklum þrýstingi að segja af sér frá því efnt var til allsherjar- verkfalls í landinu á mánudag. Fréttastofan hafði eftir nánum samstarfsmanni Zhelyns Zhelovs, forseta Búlgaríu, að samkomulag milli helstu stjómmálaflokka landsins væri í sjónmáli. Sam- kvæmt því segði stjóm Andrejs Lúkanovs af sér og forsetinn skip- aði nýja stjórn til bráðabrigða. Fréttastofan sagði að nýi forsætis- ráðherrann kæmi hvorki úr Sósíal- istaflokki Lúkanovs, sem hét áður Kommúnistaflokkurinn, né helsta stjómarandstöðuflokknum, Sam- ERLENT bandi lýðræðisafla. Ekki var ljóst í gær hvort boðað yrði til nýrra kosninga. Allsheijarverkfallið varð til þess að forystumenn Sósíalistaflokksins efndu til viðræðna við stjórnarand- stöðuflokkana um það hvemig binda mætti enda á ólguna í landinu. Sósíalistaflokkurinn vann yfir- burðasigur í fijálsum kosningum í júní eftir að harðlínukommúnistan- um Todor Zhívkov hafði verið steypt fyrir ári. Flokkurinn hlaut 210 þingsæti af 400 og Samband lýðræðisaflanna 145. Hann er eini fyrrum kommúnistaflokkurinn í Áustur-Evrópu sem haldið hefur völdum eftir frjálsar kosningar. Almenn óánægja með bágan efna- hag landsins varð hins vegar til þess að fylgi flokksins minnkaði verulega samkvæmt skoðanakönn- unum og hefur hann verið sakaður um að hafa ekki sagt skilið við kommúnismann. Ef marka má kannanimar nýtur nú Samband lýðræðisaflanna mestra vinsælda og hefur flokkurinn ítrekað hafnað tilboðum Lúkanovs um myndun samsteypustjórnar undir forystu hans. Samband lýðræðisaflanna ákvað á föstudag að taka ekki þátt í störfum búlgarska þingsins eftir að vantrauststillaga á stjórn Lúkanovs hafði verið felld. Reuter Búlgarskar námsstúlkur afhenda lögreglumönnum blóm á mótmæla- fundi í Sofíu í gær. Óeirðalögreglan í borginni átti í átökum við mótmælendur, sem kröfðust þess að stjórn landsins, sem er skipuð fyrrum kommúnistum, segði af sér. Líbería: Vopnahlé í borgarastríðinu Óljóst hvort Taylor fellst á yfirráð bráðabirgðastjórnar Bamako, Abidjan. Reuter. CHARLES Taylor, leiðtogi upp- reisnarmanna í Líberíu, féllst í gærkvöldi á tafarlaust vopnahlé í borgarastríði sem staðið hefur frá áramótum. Samkomulag um vopnahlé í Líberíu náðist eftir tveggja sólar- hringa samningaumleitanir leið- toga 16 vestur-afrískra ríkja sem aðild eiga að efnahagsbandalagi Vestur-Afríku (ECOWAS). Dawda Jawara, forseti Gambíu, sagði að fullt samkomulag hefði náðst um framkvæmd vopnahlés og friðaráætlun fyrir Líberíu. Hins vegar er óljóst hvort Taylor fellst á yfirráð bráðabirgðastjórnar sem tók við völdum í Monróvíu, höfuð- borg landsins, í síðustu viku. Þá þykir óvíst að vopnahléð haldi þar sem leiðtogar ýmissa uppreisnar- hópa hafa ekki fallist á pólitíska lausn deilumála.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.