Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
15
Dýrasaga
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstœðisflokksins í Reykjavík
__________Bækur_______________
Eðvarð Ingólfsson
Margrét E. Jónsdóttir:
Dýrin í garðinum.
Teikningar: Anna V. Gunnars-
dóttir.
Selfjall 1990.
Margréti E. Jónsdóttur er mjög
umhugað um dýr. Að minnsta kosti
velur hún sér það svið að skrifa
sögur um þau fyrir börn. Tvær
fyrstu bækur hennar fjölluðu um
músina Skottu og nú hefur hún
sent frá sér þriðju bókina með nýj-
um sögupersónum, garðdýrum í
húsagarði í Reykjavík.
Aðalpersónur bókarinnar eru
starrinn Trausti og auðnutittlingur-
inn Depill en sá síðarnefndi er
nokkru aðsópsmeiri en hinn, galsa-
fenginn á köflum og spaugsamur.
„Fram, fram fylking. Kettir oss vilja
ráðast á,“ syngur hann inn í eyra
veikrar lóu, sem liggur í garðinum
hjá þeim, í von um að geta komið
henni á fætur. Þrastarhjón tilheyra
líka þessu dýrasamfélagi. Stundum
eru þau ósammála hvort öðru og
þá liggur þeim hátt rómur. „Við
erum ekkert að rífast,“ svara þau
þegar hinir fuglarnir finna að því.
hnyttin samtöl styrkja góða en
átakalitla sögu. Höfundurinn lýsir
atferli og hegðun garðdýra af mik-
illi kunnáttu. Fuglamir og Silli mús
rata í nokkur ævintýri og við það
myndast spenna og smáflækjur.
Það veikir hins vegar söguna svolít-
ið hve fljótt leysist úr þeim. Það
hefði alveg mátt draga spennuna á
langinn. En þó að ýjað sé að þessu
atriði þá er hér um að ræða
skemmtilega sögu sem óhætt er að
mæla með handa ungum lesendum.
Margar myndir eftir Önnu Vil-
borgu Gunnarsdóttur prýða bókina.
Kápumyndin er hins vegar fulldökk.
Stór hrafn í forgrunni og myrkur
himinn í bakgrunni renna næstum
því saman.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum f vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 1. desember verða til viðtals Páll Gíslason, 1. varaforseti borgarstjórnar, formaður
stjórnar veitustofnana, formaður byggingarnefndar aldraðra, og Ingólfur Sveinsson, í stjórn heilsu-
' gæsluumdæmis austurbæjar nyrðra, heilbrigðisnefnd.
w W* S/- V
ir 9* S1' 9'
/ y y y y
Margrét E. Jónsdóttir
„Við erum bara að skiptast á skoð-
unum!“ Hér skírskotar höfundur
skemmtilega til viðkvæða foreldra
er börnin finna að þessu sama.
Fuglarnir eru ekki lausir við ríg
fremur en mannfólkið. Fljótlega
kastast í kekki milli lóunnar og
þrastarins því að þau telja sig bæði
vera hinn eina, sanna vorboða og
vitna í kunn kvæði máli sínu til
stuðnings. Hver kannast ekki við
hrepparíg í mannfélaginu?
Silli hagamús, nýjasti íbúinn í
garðinum, er eftirtektarverður.
Hann hefur reynt margt um ævina
og er óþreytandi að segja frá. Einn-
ig fáum við að kynnast páfagaukn-
um Rósalind. Hún á sér draum um
frelsi en þegar hann rætist loks
snýst henni hugur. Hún saknar ör-
yggisins sem hún hafði í búrinu
sínu; þar gátu stórir og ljótir fuglar
ekki gert henni mein .og hún fékk
alltaf svo góð korn að éta. Þegar
allt kom til alls var best að vera á
gkmla, góða staðnum og láta aðra
hugsa um sig. Þar sannast hið forn-
kveðna að enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur.
Sagan af dýrunum í garðinum
er í raun dæmigerð fyrir mannlegan
veruleika — eins og dýrasögur eru
oft. Heimur dýranna er skoðaður
með mennskum augum. Þess vegna
á sjálfur ógnvaldurinn, kisan Bella,
sér uppreisnar von í lokin. Fuglam-
ir vorkenna henni í sorg hennar
þegar kettlingar, sem hún á, eru
teknir frá henni.
Dýrin í garðinum er lipurlega
rituð bók. Málfarið er vandað og
MÝTT SÍMANIÚNAER
PRENTMVNDAGERÐAR'-
iHE33
fW#r0itsi&líí&ffr