Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐÍD FIMMTUDAGÚR W NÓVEMBER 1990 28 Guðrún Guðlaugsdóttir Þórarinn Tyrfingsson Lífssaga Þórarins Tyrfingssonar ÖRN og Örlygur hafa gefið út lífssögu Þórarins Tyrfingssonar yfirlæknis SAA sem nefnist Það hálfa væri nóg. Guðrún Guðlaugs- dóttir blaðamaður skráði. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Þórarinn Tyrfingsson er mörgum kunnur. Hann var á árum áður í hópi þekktustu handknatt- leiksmanna okkar en hin síðari ár er hann einkum þekktur fyrir störf sín á vegum SÁÁ. Hann hefur rétt mörgum illa stöddum drykkju- manni hjálparhönd. Hann veit líka af eigin raun hvert böl ofdrykkjan er þeim sem í klóm hennar lendir. Saga Þórarins er samofirt sögu SÁÁ. Hann kom til liðs við sam- tökin skömmu eftir að þau hófu rekstur fyrstu sjúkrastöðvar sinnar og hefur verið í fylkingar- brjósti þessara samtaka um árabil. Endurminningar Þórarins Tyrf- ingssonar munu vafalaust kalla fram kraftmikinn endurhljóm meðal kynslóða eftirstríðsáranna. íþróttamönnum eldri sem yngri mun þykja fróðlegt að kynnast íþróttaferli hans og síðast en ekki síst munu allir þeir sem áhuga hafa á áfengismálum sækja mik- inn fróðleik í þessa bók.“ Bókin er 167 blaðsíður. Ný unglingabók eft- ir Eðvarð Ingólfsson Eðvarð Ingólfsson Auk Sextán ára í sambúð má nefna metsölubækurnar Fimmtán ára á föstu og Meiriháttar stefnu- mót, en hún hlaut verðlaun Skóla- málaráðs Reykjavíkur sem besta frumsamda barnabókin 1988. Bókin Haltu mér — slepptu mér, er 197 bls. Hún er prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Al- menna auglýsingastofan sá um útlit bókarinnar og káputeikningu. Útgefandi er Æskan. (Úr fréttatilkynningu) ÚT ER komin unglingabókin Haltu mér — slepptu mér eftir Eðvarð Ingólfsson. Sagan er um Eddu og Hemma. Hún er sextán, hann sautján. Þau hafa kynnst nánast af tilviljun. Það verður ást við fyrstu sýn. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Edda verður ófrísk og þau ákveða að hefja sambúð. Lífíð brosir við þeim. En við nánari kynni og fæðingu barnsins breyt- ist margt. Þeim finnst' þau bundin í báða skó og hafa glatað frelsi unglingsáranna. Veikindi barns- ins, peningaáhyggjur og ósam- komulag setja mark sitt á sambúð- ina. Sumir dagar eru góðir, aðrið' slæmir. Stundum sjá þau ekki só- lina hvort fyrir öðru, stundum tal- ast þau ekki við. Þegar á reynir kemur fyrst í ljós hve sterkt sam- bandið er. Það verður ekki bæði sleppt og haldið.“ Haltu mér — slepptu mér er þrettánda bók Eðvarðs Ingólfsson- ar og áttunda unglingabók hans. V^terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Erfidrykkjur í hlýlegu og notalegu umhverfi Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfidrykkjur fyrir allt að 300 manns. I boði eru snittur með margvfslegu áleggi, brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur, rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl. Með virðingu, FLUGLEIDIR HÓTEL LOFTLEIÐIR REYKJAVÍKURFLUGVELLI. 101 RFYKJAVlK SlM1: 9 I ■ 2 2 3 2 2 Ný útgáfa á Innlöndum eftir Hannes Pétursson IÐUNN hefur gefið út að nýju fjórðu Ijóðabók Hannesar Pét- Gunnar Dal urssonar skálds, Innlönd, sem fyrst kom út árið 1968. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Skáldið glímir markvisst við að túlka þá skynjun sem dýpst og innst stendur í persónuleikanum og á rætur í æsku og heimkynnum. Um Innlönd sagði Hjörtur Páls- son í ritdómi að í heild væri bókin skáldskapur „sprottinn úr og bak- tryggður með nákominni, persónu- legri reynslu og viðhorfum skálds sem varðveitir upprunalegt eðli sitt og tilfinningalíf í heimi nútímans, sem er margt betur gefið en þyrma slíku að fyrra bragði.“ Bókin er prentuð í Odda hf. Hannes Pétursson Verðmæti loðnu- afians komið í 2,6 safn íjóða eft- milljarða króna í ár ir Gunnar Dal ÚT ER komin bókin, Raddir morgunsins úrval ljóða eftir Gunnar Dal, skáld og heimspek- ing. Höfundur er þjóðkunnur fyrir ljóð sín, frumsamin og þýdd, skáldsögur og heimspeki- rit. Eftir hann hefur komið út fjöldi bóka. Hin fyrsta var ljóða- bókin Vera, 1949. Gunnar hefur ort jöfnum höndum undir hefðbundnum hætti og órím- að og lætur hvort tveggja vel. í aðfararorðum segir Ólafur Haukur Árnason: „Tíðum er skammt milli heimspeki og skáld- skapar og er ekki undarlegt. Gott heimspekirit getur nálgast að vera góður skáldskapur og góður skáld- skapur, jafnvel vel ort ferskeytla, getur verið_ ágæt og fullboðleg heimspeki. Ég hygg að hvergi fall- ist heimspeki Gunnars og skáld- skapur hanns innilegar í faðma en í ýmsum ljóðum hans órímuðum. Af þeirri snertingu kviknar lifandi skáldskapur þegar best lætur tær og skýr og hefur yfir sér heiðríkju heilbrigðrar lífssýnar." Bókin Raddir morgunsins er 192 blaðsíður. Hún er prentuð í Prent- smiðjunni Odda hf. Filmuvinnu ann- aðist Offsetþjónustan hf. _ Sína Gunnarsdóttir sá- um útlit. Útgef- andi er Æskan. ■ / TILEFNI af 60 ára afmæli Landspítalans verður opið hús föstudaginn 30. nóvember kl. 14-17 e.h. í Lágmúla 9, 5. hæð, þar sem göngudeild Landspítalans fyrir blóðþrýstings- og blóðfitumælingar er til húsa. Almenningi gefst þar kostur á að kynna sér starfsemi deildarinnar og fá blóðþrýstings- og blóðfitumælingu. Deildin var opnuð í apríl 1977 og auk þess að sinna mælingum og meðferð á blóð- þrýstingi og blóðfitu éí þar rekin rannsóknarstarfsemi á þessum sviðum. Heildarverðmæti loðnuaflans á þessu ári er komið í 2,574 milljarð- ar króna. Búið er að veiða um 60 þúsund tonn af loðnu á þessari haustvertíð fyrir 252 milljónir króna en loðnuverksmiðjurnar hafa greitt 4.200 krónur fyrir loðnutonnið á þessari vertíð. Þar sem lítið hefur veiðst af loðnu í haust bendir allt'til að heildarverð- mæti loðnuaflans í ár verði mun minna en meðalaflaverðmæti síð- ustu fimm ára, miðað við fast verð- lag. Mikið hefur verið af smáloðnu í afla loðnuskipa út af Langanesi undanfarið og því var svæði lokað þar fyrir loðnuveiðum síðastliðinn mánudag í eina viku. íslensk skip veiddu um 610 þús- und tonn af loðnu á síðustu vetrar- vertíð fyrir 2,323 milljarða króna, eða 3.808 króna meðalverð fyrir tonnið. Þar af voru tæp 579 þúsund tonn brædd og 2.553 tonn heilfryst fyrir 2,225 milljarða og rúmlega 97 milljónir fengust fyrir 1.946 tonn af loðnuhrognum, eða 50 þúsund krónur að meðaltali fyrir tonnið. Þá var 24.463 tonnum landað er- lendis á vertíðinni fyrir um 120,8 milljónir króna, eða 4.937 króna meðalverð fyrir tonnið, en 1.634 tonn af loðnu fóru í meltu. Síldarverksmiðjur ríkisins greiddu 3.736 .krónur að meðaltali fyrir tonnið af loðnu til bræðslu á síðustu vetrarvertíð. SR á Siglufirði greiddi 3.910 krónur, SR á Raufar- höfn 3.820, SR á Seyðisfirði 3.583 og SR á Reyðarfirði 3.533 krónur. Á • vetrarvertíðinni árið 1989 greiddu SR að meðaltali 3.797 krónur fyrir tonnið. SR á Siglufirði greiddi 4.243 krónur, SR á Raufar- höfn 3.938, SR á Seyðisfirði 3.662 og SR á Reyðarfirði 3.648 krónur. Um 2,6 milljarðar króna voru greiddir fyrir um 667 þúsund tonn af loðnu til bræðslu og frystingar, svo og loðnuhrogn, árið 1989, eða 3.947 krónur fyrir tonnið, en 2,7 milljarðar fyrir 909 þúsund tonn árið 1988, eða. 2.991 króna fyrir tonnið, 1,9 milljarðar fyrir 803 þús- und tonn 1987, eða 2.338 krónur fyrir tonnið, 1,8 milljarðar fyrir 895 þúsund tonn 1986, eða 2.009 krón- ur fyrir tonnið og 1,8 milljarðar fyrir 993 þúsund tonn árið 1985, eða 1.820 krónur fyrir tonnið. I lögum um stjórn fískveiða, sem taka gildi um áramótin, segir m.a. að sé fyrirsjáanlegt að verulegar breytingar verði á aflatekjum milli veiðitímabila af veiðum á öðrum tegundum, sem sæta ákvæðum um leyfilegan heildarafla, en botnfiski og úthafsrækju er ráðherra heimilt að skerða eða auka tímabundið botnfiskaflamark þeirra fiskiskipa, sem aflahlutdeild hafa af þeirri teg- und, sem breytingum sætir. Verúleg telst breyting á aflatekj- um af sérveiðum í þessu sambandi ef hún veldur því að heildarverð- mæti skipa, sem viðkomandi sér- veiðar stunda, hefur að mati ráð- herra vikið meira en 20% að meðal- tali frá meðalaflaverðmæti síðustu fimm ára, miðað við fast verðlag. Tímabundin breyting botnfiskafla- marks skal koma til hlutfallslegrar hækkunar eða lækkunar á botnfisk- veiðiheimildum annarra fiskiskipa. Heildarverðmæti loðnu til bræðslu og frystingar, svo og loðnu- hrogna, var að meðaltali 3,368 milljarðar króna árin 1985-’89, mið- að við verð á loðnu árið 1989. Verð- mæti loðnuaflans var hins vegar 2,404 milljarðar á síðustu vetrar- vertíð, miðað við verð á loðnu árið 1989. Þar sem nú eru greiddar 4.200 krónur fyrir tonnið af loðnu til bræðslu þurfa loðnuskipin að veiða um 230 þúsund tonn af loðnu á þessari haustvertíð til að verð- mæti loðnuaflans í ár verði 80% af meðalaflaverðmæti síðustu 5 ára, miðað við verð á loðnu 1989, eða 170 þúsund tonnum meira en þau hafa þegar veitt á þessari vertíð. Ný bók eftir Guð- mund Olafsson VAKA-Helgafell hefur gefið út barnabókina Emil, Skundi og Gústi eftir Guðmund Ólafsson rithöfund og leikara og er þetta þriðja bók Guðmundar. í káputexta .segir m.a.: „Emil, Skundi og Gústi er sjálfstætt fram- hald hinnar geysivinsælu bókar um Emil og Skunda sem fékk Islensku barnabókaverðlaunin 1986, en framhaldsmynd byggð á verðlauna- bókinni verður sýnd á Stöð 2 um næstu jól. Gústi er nýr vinur Emils og Skunda og saman lenda þeir í ýmsum skemmtilegum ævintýrum í nýju bókinni. Þeir njóta lífsins uns í ljós kemur að Gústi býr yfir hræði- legum leyndardómi sem enginn nema Emil fær vitneskju um. Emil og Gústi taka höndum saman þegar á móti blæs og Skundi hjálpar til á sinn hátt. Sagah er fjörleg og hlý en sýnir lesandanum jafnframt inn í dapurlegri heim á áhrifamikinn hátt.“ Kápumynd bókarinnar er eftir Búa Kristjánsson en Ritsmiðjan sf. sá um kápuhönnun. G. Ben. prent- stofa prentaði og annaðist bókband. Guðmundur Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.