Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 27
bæði strengja- og lúðrasveit sem hafa komið fram fyrir skólans hönd við ýmis hátíðleg tækifæri í bænum. Strengjasveitin hefur einnig boðið til sín nemendum úr öðrum skólum hér á suðvesturhorninu og stilltu þessir nemendur saman strengi sína á aðventunni í fyrra undir nafninu Suðvesturstrengir. Ákveðið er að framhald verði á þessari samvinnu og heimsóknum strengjaleikara í tónlistarskólunum. Næsta vor ætlar lúðrasveit skól- ans að hleypa heimdraganum og heimsækja frændur okkar í Noregi og Danmörku, en í sveitinni eru nú 23 hljóðfæraleikarar. Að lúðrasveit- inni stendur mjög öflugt foreldrafé- lag sem hefur veitt skólanum ómet- anlega aðstoð við uppbyggingu sveitarinnar. Það er ómetanlegt fyr- ir nemendur skólans að taka þátt í samspili og þegar leikið er í stórri hljómsveit læra nemendur að taka tillit til annarra og vera í takt við félaga sína. Tónlistarskólinn í nýtt húsnæði! Þrátt fyrir að starfsemi tónlistar- skólans hafi vaxið með slíkum hætti sem raun ber vitni verður því ekki neitað að hann hefur ávallt átt við erfiða starfsaðstöðu að glíma og nánast hrakist úr einu húsnæði í annað í gegnum tíðina. Því var það kenhurum og nemendum skólans mikil gleðifregn þegar núverandi bæjarstjórn samþykkti 25. apríl 1989 erindi skipulagsnefndar þess efnis að efna til samkeppni um hönnun safnaðarheimilis og tónlist- arskóla sem verði staðsettur í ná- grenni Hafnarfjarðarkirkju. Sér- stök dómnefnd sem fjallar um ágæti tillagnanna mun senn skila niður- stöðum. Bæjarstjórnin hyggst ekki láta þar við sitja því hlerað hefur verið að hafist verði handa við byggingu skólans strax og allri nauðsynlegri undirbúningsvinnu er lokið. Engan þarf því að undra þótt meðal kenn- ara og nemenda gæti nú bjartsýni og eftirvæntingar þar sem núver- andi bæjarstjórn er þekkt að öðru en að láta sitja við orðin tóm. Hvers virði er þá góður tónlistarskóli? Eflaust eru einhveijir þeirrar skoðunar að tónlistarskólinn sé að- eins skóli fyrir „tónlistarséní" og að þar leyfist aðeins að spila verk gömlu meistaranna. Svo er alls ekki. Miklu heldur er reynt að kynna fyrir nemendum hinar marg- víslegu stíltegundir tónlistarinnar og vekja hjá þeim löngun til að njóta þess sem þar hefur best verið gert. Það er heldur ekki hlutverk tón- listarskólans að steypa alla nem- endur í eitt mót né njörva þá niður í sama plógfarið. Hlutverk skólans er miklu heldur að gera nemendur færa um að dæma hvað sé góð tón- list og slæm, greina kjamann frá hisminu. I grein í afmælisriti skólans sem Egill Rúnar Friðleifsson skrifar seg- ir á einum stað: „Faguruppeldi er mikilvægur en því miður vanræktur þáttur í skólakerfinu. Börn og ungl- ingar eru opin og áhrifagjöm fyrir tískusveiflum, jafnt í tónlist sem öðra. Músíkiðnaðurinn, sem háður er hörðum lögmálum markaðarins, hefur lengi af þessu vitað og beitir kænlegum brögðum til að heija á viðkvæmar sálir og gera þær háðar sljóvgandi lágkúru síbyljunnar. Tónlistarkennsla er því mótafl gegn þeirri óvirkni sem svo mjög ein- kennir samtímann.“ Orð Egils eru þörf áminning til þeirra sem að þessum málum standa. Tónlistin er eitt göfugasta list- form sem maðurinn hefur tileinkað sér. Allt frá upphafi hefur hann nýtt sér tónlistina sem leið til tján- ingar og í aldanna rás skapað slík meistaraverk að ekkert fær á skyggt. Það er því einlæg von mín að Tónlistarskóli Hafnarfjarðar sé og verði þess megnugur að leiða nemendur sína til þess þroska að þeir fái þeirra notið. Höfundur er skólastjóri Tóntístarskólans í Hafnarfirði. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990 „Frá torfbæ til tölvu aldar“ eftir Stefán Bjarnason frá Flögii Egilssiöðum. FRÁ torfbæ til tölvualdar á 50 árum nefnist nýútkomin bók eft- ir Stefán Bjarnason bónda í Flögu í Skriðudal á Fljótsdals- héraði. Stefán hefur um langt skeið hald- ið dagbækur um markverða atburði í sínu lífi og á Héraði. Einnig hefur hann skrifað þætti í Múlaþing, rit sem Múlasýslur gefa út, og frétta- bréf úr Skriðdal sem um langt skeið hafa birst í vikublaðinu Austra. Auk þessa hefur Stefán skrifað fjöldann allan af minningar- og afmælis- greinum um samferðarfólk sitt. Stefán gefur sjálfur út bókina sem prentuð er í Héraðsprenti á Egils- stöðum. Bókin er 253 blaðsíður prýdd fjölda mynda. Stefán Bjarnason fyrrum bóndi í Flögu er nú aldurhniginn en ljón- frískur maður. Hann var sveitar- höfðingi sem gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir sveitunga sína. Stefán skrifar látlaust og gott mál og á þessu máli skýrir hann frá reynslu sinni, vonum og störfum á 50 ára búskaparferli. Á síðunum Stefán Bjarnason birtist einnig fjölskylda hans og fjöl- margir sveitungar og samferðar- menn við störf og skemmtan. Stundum berst sagan út fyrir Skriðdalinn niður til Reyðarfjarðar suður á land og til Svíþjóðar. í bókinni er rakin þróunarsaga af vænu býli austur á Héraði. Fram- faraskref eru tímasett og skýrt með hveijum hætti þau voru stigin. Einnig er áhugavert að fylgjast með höfundi, fólki hans og sveitungum á þessum siðum. Þarna segir frá fólki sem skapar sér sjálft lífsnautn- ir og gagnsemdir. Gerir vísur, leikur og syngur, snýst við sauðkindur, kýr og hesta. Einnig segir frá inn- reið tækninnar í íslenskan landbún- að. Frá torfbæ til tölvualdar er því búskaparsinfónía með upplyftingu. Bókin frá torfbæ til tölvuualdar er seld í bókaverslunum á Austur- landi frá Þórshöfn til Hafnar. Einn- ig fæst hún í Hagkaupum og versl- unum Máls og menningar í Reykjavík. - Björn ÍSLENSKT TAL Það eru leikararnir Magnús Ólafsson, Þórhallur (Laddi) Sigurðsson, Eria Ruth Harðardóttir og Sigurður Sigurjónsson sem Ijá persónunum raddir sínar. Myndin er tekin er upptökur fóru fram. Vandaðar og bráðskemmtilegar teiknimyndir. Pantið strax í dag. Greiðsluskilmálar. ISLENSKT TAL míkur GALLVASKI 6 mmmm FÁST EINNIG HJÁ: HAGKAUP DREIFING — S A F N I Ð — © 1990 Frón-Vídeó Allir muna eftir Ástríki gallvaska, Steinríki og, honum Sjóðríki seiðkarli eða þá hinum sívinsæla Lukku Láka. Nú eru komin út 5 ný barnamyndbönd með þessum vinum okkar og eru þau öll með íslensku tali og söng. Fylgist með þeim lenda í hinum ótrúlegustu ævintýrum. Hver mynd er um 70 mín. eða samtals um sex klukkustunda skemmtun. Þessi frábæru myndbönd verða aðeins seld beint til heimila, en verða ekki til útleigu á myndbandaleigum eða sýnd í sjónvarpi. Tilvalin gjöf í jólapakka barnanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.