Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 22
GRAFÍT
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER 1990
v&rðíækkun
ÁLAMBA-
• MMMMMM
B WJ
til
MÁNAÐA-
ILL ii/_Lr_i
Nú gefst þér tækifæri til að
spara, svo um munar, í matar-
innkaupum til heimilisins.
Um er að ræða takmarkað magn
af fyrsta flokks lambakjöti
úr A-flokki frá haustinu ’89.
Notaðu tækifærið
-áður en það verður um seinan
SAMSTARFSHOPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS
Aukatónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands:
Minningar úr
heimsstyrjöld
eftir Rafn Jónsson
Nú er loksins komið að þvfl
Fimmtudaginn 29. nóvember flytur
Sinfóníuhljómsveit íslands ásamt
bassasöngvurunum úr Fóstbræðr-
um, Karlakór Reykjavíkur og bresk-
um bassasöngvurum 13. sinfóníu
Sjostakóvítsj, auk tveggja annarra
verka, í minningu Benjamins Britt-
en fyrir hljómsveit og klukkuspil
eftir eistlenska tónskáldið Arvo
Párt og Söngva og dansa dauðans
eftir Modest Mussorgskí. Þessir
tónleikar koma í stað áskriftartón-
leika, sem fella vað niður í fyrra
af óviðráðanlegum orsökum. Tón-
listarunnendur hafa beðið þessara
tónleika og áskrifendur frá fyrra
ári hafa fengið senda miða á þá.
Flytjendur og stjórnandi eru þeir
sömu og áður: Einsöngvari verður
Aage Hauland og hljómsveitarstjóri
Eri Klas.
Babí Jar
Stærsta verkið á tónleikunum er
tvímælalaust 13. sinfónía Sjost-
akovítsj, Babí Jar, sem nú verður
frumflutt hérlendis. Þetta er eins
konar kórakantata, byggð á ljóðum
Évgénis Évtúsjekos. Þau fjalla með-
al annars um fjöldamorð nasista á
rússneskum gyðingum í seinni
heimsstyijöldinni, við Babí Jar, sem
er gil í nágrenni Kíevborgar, þar
sem nasistar myrtu nokkrar tug-
þúsundir gyðinga á meðan umsátrið
um Kiev stóð. Efnið er drungalegt.
Tónlistin kallar fram andrúmsloft
þess tíma, þar sem eyðileggingin
ein ræður ríkjum, en einnig vonina
sem lifir með fólkinu um betri tíma.
I Ijóðinu um Babí Jar segir m.a. í
þýðingu Geirs Kristjánssonar:
Yfir Babí Jar þýtur í óræktargrasi.
Trén horfa ógnandi á svip, horfa einsog dómarar
Og alit er eitt þögult óp.
Þegar ég tek ofan hattinn,
finn ég hár mitt smám saman grána.
Og ég er eitt þögult óp
ýfir þeim þúsundmðigu sem hér liggja grafnir;
ég er sérhver öldunpr sem var drepinn hér,
sérhvert bam sem var drepið hér.
13. sinfónían var frumflutt í Len-
ingrad 1962. Khrústsjov gagnrýndi
verkið óvænt og kvartaði yfír því
að athyglinni væri um of beint að
gyðingum sem fórnarlömbum nas-
ista, en gleymst hefði að geta Úkra-
ínubúa, sem urðu einnig fyrir barð-
inu á nasistum. Texta verksins var
breytt til að koma Úkraínubúunum
að. Þetta var ekki í fyrsta skipti
sem Sjostakovítsj var gagnrýndur
af sovésku valdhöfunum; hann átti
f eilífri baráttu við Stalín og óttað-
ist um tíma að verða hreinsunum
hans að bráð.
Klukkuspil
Önnur verk á tónleikunum eru í
minningu Benjamins Britten fyrir
hljómsveit og klukkuspil eftir
eistlenska tónskáldið Arvo Párt.
Hann fæddist í bænum Paide 1935
og hlaut tónlistarmenntun sfna í
Tallin í Eistlandi. Hann var um
árabil starfsmaður tónlistardeildar
Eri Klas hljómsveitarstjóri
eistlenska útvarpsins, uns hann
fluttist til Vestur-Berlínar, þar sem
hann býr nú í sameinaðri Berlín.
Klukkuspil, eða Glockenspiel, eins
og hljóðfærið heitir á frummálinu,
er hljóðfæri með misstórum stál-
plötum, sem slegið er á með
trésleglum, ekki óáþekkt sílafón.
Þriðja verkið á tónleikunum er
söngvaflokkurinn Söngvar og dans-
ar dauðans eftir rússneska 19. aldar
tónskáldið Modest Mussorgskí og
syngur Aage Haugland einnig
einsöng í þessu verki. Þetta verk
er einn þriggja söngvaflokka sem
tónskáldið skrifaði, og eru merkileg
dæmi um geysilega frumlegan stíl
þess og hæfileikann til að tjá trega
í tónlist. Eins og títt er um marga
listamenn hlaut Mussorgskí ekki
verðskuldaða viðurkenningu fyrr en
eftir lát sitt 1881 og flestir þekkja
tónverk hans í útsetningu
Rimskíj-Korsakovs og Ravels. Þó
gætir þeirrar tilhneigingar nú að
flytja verk hans í eigin útsetningu.
Stjórnandinn og einsöngvarinn
Hljómsveitarstjóri á tónleikunum
verður Eistlendingurinn Eri Klas.
Það er orðið
jjólalegt
á Strikinu
Komdu til Kaupmannahafnar fyrir jólin og upplifðu
jólastemmninguna á Strikinu. Flogið er út á laugardagsmorgni
og aftur heim eftir kvöldmat á mánudegi.
Þú nýtir báða dagana vel til innkaupa og skoðunarferða.
Gisting á hóteli í sérflokki.
SAS ROYAL HOTEL
kr. 29.970
SAS FALKONER
kr. 27.530
SAS SCANDINAVIA
kr. 28.370
SAS GLOBETROTTER
kr. 27.310
Verö miðast viö tvo í herbergi.
Innifalið í veröi er flug og gisting I tvær nætur ásamt morgunverði.
Flugvallaskattur er ekki innifalinn.
Allar nánari upplýsingar veitir SAS og ferðaskrifstofurnar.
M/S4S
Laugavegi 3, sími 62 22 11