Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990 25 Vandaður gæðagripur Hljómplötur Guðjón Guðmundsson POINT Blank er fyrsta sólóplata Friðriks Karlssonar og er skemmst frá því að segja að allir gömlu félag- arnir úr Mezzoforte fylgja honum á frumsmíð hans. Ef til vill er það af þeim sökum sem platan ber töluverð- an keim af fyrri afrekum félaganna. Tónsmíðamar eru allar eftir Friðrik, vönduð tónlist í rómantískum anda, eins og t.d. Sin Ti og Savannah Colada, en síðara lagið réttlætir eitt og sér að fullu að menn festi kaup á Point Blank, en þar er einnig að finna harðan blús og fönk í anda Mezzoforte. Friðrik hefur fengið til liðs við sig slagverksleikarana Manolo Badrena, sem um skeið lék með Weather Rep- ort, Jeroen De Rijk og Danny Gottli- eb, auk Marks Egans bassaleikara, en þeir tveir síðastnefndu hafa leikið með sveit Pats Methenys. Þá leggja Sigurður Flosason og Kjartan Valdi- marsson sitt af mörkum á þessum gæðagrip, sem er vitnisburður vinnu- brögð á heimsmælikvarða. Road to Salsa er fönkuð tónlist og í anda fyrri tónsmíða Friðriks, með sterkri laglínu og vel uppbyggðum einleiksköflum. Hrynsveitin stendur þétt að baki eins og á öllum lögum plötunnar. Back to Basics er raf- magnaður blús með þungu slagverki þar sem Badrena klappar á kongot- rommur. Eyþór skapar stórsveit- arblæ með synthesizernum og keyrslan er hröð. Cloud er létt og þægileg melódía líkt og skýjaslæða að vorkvöldi á Esjunni þar sem bass- inn tiplar í ómstríðum hljómagangi meðfram laglínunni. Skemmtilega á óvart kemur lagleg útsetning á Hvert liggur þín leið? Ellen Kristjánsdóttir syngur spænsk- an texta sem Tómas R. Einarsson hefur gert við lagið sem nefnist nú Sin Ti. Grípandi og falleg tónsmíð undir latínskum áhrifum og söngur Ellenar er smekklegur. Synthesizer Eyþórs hljómar eins og trompet méð mút og hrein unun er að hlusta að einleikskafla Friðriks. Titillag plötunnar Point Blank er hugljúf ballaða af Pat Metheny-skó- lanum. Intróið hefst á synthesizer Eyþórs sem nú hljómar eigi ólíkt rödd Pedro Aznar og fjarlægt gítar- sánd Friðriks vekur upp minningar um Letters from Home. Þá er ógetið einnar perlunnar, Savannah Colada, undurfallegrar melódíu sem hljómar lengi í vitundinni eftir að armurinn hefur yfirgefið vinylinn. Á Point Blank gætir áhrifa úr ýmsum áttum, einkum í „sándi“, og skýtur áhrifavöldum eins og Pat Metheny og Lee Ritenour upp í hug- ann, en þetta er tónlist Friðriks sem hann virðist hafa lagt mikið upp úr að kæmist sem best til skila, enda árangurinn eftir því. Þetta er sóló- plata Friðriks í bókstaflegri merk- ingu því gítarinn er í hásessi og ekk- ert annað hljóðfæri heyrist í einleik. Point Blank hefur allt til að bera til að spjara sig á innlendum sem er- lendum tónlistarmarkaði. Greiðir þú eignaskatt Ýmsar eignir eru undanþegnar eignaskatti, t.d. innstœða á BAKHJARLI sparisjóðsins. BAKHJARL sparisjóðsins hentar þeim mjög vel sem vilja njóta hagstæðustu ávöxtunarkjara hjá sparisjóðnum. BAKHJARL ber háa vexti umfram verðtryggingu, nú 6.5%, og er aðeins bundinn í 24 mánuði. Með BAKHJARLI opnast einnig ýmsar leiðir hjá sparisjóðnum til hagsbóta fyrir þig og þína. Jafnframt er vert að hafa í huga að talsverður munur getur orðið á skattbyrði þeirra sem eiga um áramót inneign á BAKHJARLI, og hinna sem eiga á sama tíma álíka fjárhæð í verðbréfum og svipuðum eignum. Athugaðu kostina sem fylgja því að ávaxta fé þitt á BAKHJARLI sparisjóðsins. Hafðu sparisjóðinn að bakhjarli SPARISJÖÐURINN SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR, SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS, SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS, SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA. af sparifé þínu Sjónvarpstœki Sjónvarps- myndavélar Hljómtœkja- samstœöur Ferðaviðtœki Útvarpsvekjarar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Ásklifhlisiiw'llll iT {iMW
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.