Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
51
gerðir og þjónustu, sem m.a. er
greitt fyrir með fiski. Þannig fá
þeir afla í gegnum vinnslustöðvar
sínar og fiskmarkaði. Þa_ð er ekkert
sem réttlætir að við íslendingar
getum ekki gert það sama. Danir
hafa lýst því yfir að það sé stefna
þeirra að verða miðstöð sjávarút-
vegsviðskipta á Norður-Atlants-
hafssvæðinu árið 2000, ekki aðeins
með afla, heldur unnar afurðir,
tæki, búnað og ráðgjöf á sjávarút-
vegssviði. Allt bendir til að þeim
takist þetta. Hvað ætlum við að
gera? Sitja hjá upptekin af innbyrð-
is deilum um skiptingu takmark-
aðra auðlinda, í stað þess að stækka
þær?
A síðasta ársfundi Utflutnings-
ráðs benti Magnús Gunnarsson,
stjórnarformaður Útflutningsráðs,
á að íslendingar ættu að setja sér
það markmið að verða miðstöð
slíkra viðskipta, eins konar miðstöð
á Norður-Altlantshafssvæðinu eins
og Rotterdam er miðstöð olíuvið-
skipta í Evrópu. Til að slíkt megi
verða þurfa íslenskur sjávarútvegur
Dg tækjaframleiðendur að tileinka
sér meiri alþjóðahyggju. Það væri
gott og mjög tímabært skref til
aukinnar alþjóðahyggju í sjávarút-
vegi að breyta þessum lögum.
Hvesu umfangsmikil
viðskipti er um að ræða?
Þetta er erfitt að meta, því ekki
liggur fyrir nákvæm skráning á
veiðum eða ferðum erlendra fiski-
skipa, utan fiskveiðilögsögu ís-
lands. Þjóðir sem stunda reglulegar
veiðar utan við lögsögunar er helst-
ar Færeyingar, Norðmenn, Græn-
lendingar og Sovétmenn. Einnig er
vitað um óreglulegar veiðar eða
ferðir fiskiskipa frá ýmsum öðrum
þjóðum s.s. Belgíu, Frakklandi,
Spáni, Bretlandi, Búlgaríu, Póll-
andi, Þyskalandi, Rúmeníu og Jap-
an.
Við höfum reynslu af viðskiptum
við Grænlendinga, en þeir hafa ver-
ið á undanþágu nú um nokkurt
skeið sem veitir þeim leyfi til að
landa hér á landi rækju 6 mánuði
á ári. Á árinu 1988, þegar þessi
viðskipti fóru fram á ísafirði, er
talið að þau hafí numið hátt í 200
millj. kr. á verðlagi þess árs. í það
minnsta eru þau það mikil að Isa-
fjörður og Hafnarfjarðarbær hafa
bitist um þau. Miðað við reynsluna
af þeim viðskiptum má ætla að hér
sé um upphæðir að ræða sem hlaupi
á hundruðum milljóna króna.
Einhverjir telja eflaust að hér
geti ekki orðið um svo mikil við-
skipti að ræða. Sé það reyndin má
á móti benda á, að þá eru skipin
fá og því lítil áhætta að breyta lög-
unum.
Nokkur dæmi eru um viðskipti
erlendra skipa sem hafa slæðst inn
fyrir „múrinn“ á síðustu árum og
keypt. vörur og þjónustu. í mörgum
tilvikum hefur það komið mönnum
á óvart hversu umfangsmikil við-
skiptin voru. Mörg fyrirtæki á
landsbyggðinni munar töluvert um
þau viðskipti, sem þau hafa nú af
þeim skipum sem hingað koma
annaðhvort í leyfisleysi eða á und-
anþágu. Dæmi eru um að fyrirtæki
hafi fengið undanþágu til að selja
erlendu skipi olíu, með því skilyrði
að það taki ekki lengri tíma en 6
klst. Japanskur verksmiðjutogari
kom inn til hafnar fyrir nokkrum
árum og keypti fyrir tugi milljóna
olíuvörur, varahluti, kost og margt
fleira og svona mætti lengi tína til.
Landssamband iðnaðarmanna
hefur fengið ófonnlegar fyrirspurn-
ir frá sovéskum útgerðarfyrirtækj-
um um hvort þeir megi koma með
10-15 fyrirfram nafngreind skip inn
til tilfallandi þjónustu. Margir telja
eflaust að slík viðskipti séu ekki
æskileg, vegna greiðsluerfiðleika
Sovétmanna. Útgerðarfyrirtæki í
Sovétríkjunum eru hins vegar mörg
hver ágætlega stödd og hafa leyfi
til að ráðstafa sjálf hluta þess gjald-
eyris sem þau afla, auk þess sem
þau gætu komið afla í verð hér
heima. í það minnsta ætti það að
vera viðskiptaleg ákvörðun ís-
lenskra fyrirtækja hvort þau vilja
eiga slík viðskipti hverju sinni,
fremur en að því sé miðstýrt með
um 70 ára gömlum lögum.
Höfundur er verkfræðingur hjá
Landssambandi iðnaðarmanna.
SIEMENS
Við bjóðum gott úrval af símtækjum lf|
frá Siemens.
Siemens tryggir gœði, endingu og
fallegt útlit!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
MASTERHECES
01'
20thCENTURY
m/.VTING
QVEDtÁ
Q1 |K’ * '.'j jW
-rtAT’.ni
i ^rtBOOkor»aci
[_jb\kin(.S®?h
rmEPaWORLD
ISKIINGÍii
r—Tiit——
Living wori.1)
ERLENDAR GJAFABÆKUR
í JÓLAPAKKANN
Verð á tilboðsbókum
Complete book of Sportfishing 2.990
World Atlas of Skiing 1.990
Living World 2.990
Pictorial Guide to Cat Care 1.490
Pictorial Guide to Dog Care 1.490
Stargazers Companion 1.490
World of Wine 2.990
Masterpieces of 20th Century P. 1.990
World Guide to Automobile M. 2.590
New York 2.990
Lore of Flight 2.990
Complete Course in Magic 1.990
Encyclopedia of White Magic 1.590
Encyclopedia of Black Magic 1.590
Great Book of Wine 2.990
French Family Cooking 1.290
Larousse Dict. of Painters 3.990
Great Book of Baking 1.990
Classic Poster Book, Psychedelica 990
Cont. Atlas of China 1.990
Encyclopedia of World Airlines 2.990
Eatcare
Metsölulisti New York Times
IflEST SELDU KILJURDRR
Skáldsögur
Vikur
á listanum
Dawn eftir V.C. Andrews. Skólastúlka
í Virginíu verður fyrir skelfilegum
ásóknum
Daddy eftir Danielle Steel.
Reasonable Doubt eftir Philip Friedman.
The Dark Half eftir Stephen King.
The Captive eftir Victoria Holt. 5
The Great and Secret Show
eftir Clive Barker. 2
Sorceress of Darshiva eftir David Eddings. 4
The Bad Place eftir Dean R. Koontz. 1
Oldest Living Confederate Widow Tells All
eftir Allan Gurganus. 9
Defcon One eftir Joe Weber. 3
The Secret Diary of Laura Palmer
eftir Jennifer Lynch. 8
So Worthy My Love
eftir Kathleen E. Woodiwiss. 20
The Minotaur eftir Stephen Coonts. 8
Exiles, Strak Trek Next Generation
eftir Howard Weinstein. 3
Poodle Springs eftir Raymond Chandler og
Robert B. Parker. 1
IIKVHUfOft
í wrslnnnm EymonÉson
EYMUNDSSON
AUSTURSTRÆTI - VIÐ HLF.MM - MJÓDD - KRINGLUNNI - EIÐISTORGI
91-18880 91-29311 91-76650 91-687858 91-611700