Morgunblaðið - 29.11.1990, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
Fegnrð einfaldleikans
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jakobina Sigurðardóttir: Vegur-
inn upp á fjallið, smásðgur
Útg. Mál og menning 1990
Form smásögunnar, agað og
knappt, fellur vel að þeim stíl sem
Jakobína Sigurðardóttir hefur tam-
ið sér. Ég er ekki frá því nema
þessar smásögur séu besta verk
sem ég hef lesið eftir hana. Þó er
ekki svo að skilja að hér sé farið
inn á nýjar brautir, söguefni eða
tök höfundar á þeim eru hvorki
absúrd né frumleg. Þau eru raunar
• ákaflega hefðbundin ef ég mætti
leyfa mér að nota það orð.
„Undir sverðsegg" gerist á Gol-
gata; Jesús hefur verið hengdur upp
á krossinn ásamt ræningjunum og
María móðir hans er nærri. Hún
fylgist með þjáningum þessa sonar
síns og rifjar upp lífshlaup hans,
sérstætt og furðulegt í augum
hennar og Jósefs, foreldra hans.
Þau hafa elskað hann eins og lífið
í bijóstinu, kannski er hún sú sem
hefur komist næst því að skilja
hann. Og nú þegar flestir hafa snú-
ið við honum bakinu eða afneitað
honum, þá stendur hún við kross-
inn.„Því hún, hún ein bíður krafta-
verksins. Allir hinir, þeir sem æpa,
þeir sem þegja, þeir sem gráta hafa
sleppt tökum á voninni um krafta-
verkið. Hún ein bíður. Vegna þess
hefír hún fylgt honum alla þessa
löngu þjáningarleið."
Jósef maður hennar hefur reynt
að kaupa son þeirra lausan en til
einskis og nú hefur hann flúið og
er einn með kvöl sinni. Hjá henni
er Jóhannes næstelsti sonur þeirra,
sem hefur hlúð að bróður sínum og
verndað og mun veita móður þeirra
styrk þegar stundin kemur. En
dauðinn nálgast og þegar Jesús
segir „Kona. Sjá, þar er sor.ur
þinn ... Sjá, þar er móðir þín.“
furðar hún sig á því hann ávarpi
sig á þennan hátt. Eða er eitthvað
annað sem býr að baki þessara
orða? Þegar öndin hefur yfirgefið
líkama sonarins og hún gerir sér
ljóst að kraftaverkið sem hún trúði
á verður ekki, skilur hún hvað Jes-
ús átti við með orðum sínum. Og
„í myrkvuðu hugskoti hennar
Jakobína Sigurðardóttir
mwíÁmm
ísMxmA'f/yi
*
Um næstu helgi munum við flytja verslun okkar yfir
götuna að Lágmúla 8. Til þess að auðvelda okkur
burðinn munum við bjóða vörumar í verslun okkar
til sölu út þessa viku með 15-50% afslætti.
Komið og gerið stórgóð kaup, því svona tækifæri
gefst ekki hvenær sem er.
Allt á að seljast hvort sem það heitir
ÞVOTTAVÉL-BRAUÐRIST-ELDAVÉL-SKRÆLINGARHNÍFUR
BORVÉL EÐA STEIKINGARPANNA
*
SJAUMST!
*
15-öjx ^sumji
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 9, sími 38820
bjarmar örlítið af annarlegu ljósi.
Lífið veitir henni enga undankomu-
leið. Nú veit hún það.“ Þetta er ljóð-
ræn saga og tær, fágætlega vel
unnin.
„Hvísl í grasi gróinnar slóðar“
er sambland harmljóðs og prósa um
lífið á afskekktum stað áður og
fyrrum, líf sem nú er ekki því hark-
an í lífsbaráttunni í aldanna rás
rændi mennina getu og gleði. Þetta
er að mínum dómi ófullgerð saga
og mér þykir höfundur ekki með á
hreinu hvað hann vill sagt hafa.
Titilsaga bókarinnar er um mæðgin
- hann snýr heim eftir langa úti-
vist, kærulaus, óábyrgur og hefur
aldrei gert annað en notfæra sér
fólk og misnota tilfinningar þess.
Hann er kannski breyttur núna?
Það má alltaf leyfa sér að vona.
Einhvern tíma lærist þeim sem lif-
ir, eða hvað. Óekki. Hann er kom-
inn til að leggja veg upp á fjallið
hennar af því þar á að setja upp
radarstöð. Hún á ekki kosta völ,
semji hún ekki með góðu verður
landið hennar tekið eignarnámi.
Það eru samskipti mæðginanna sem
er þungamiðja sögunnar og þeim
kemur Jákobína til skila með hóg-
værð en tilfinningahita. Slíkt er á
fárra færi.
„Opnaðu munninn" segir frá
gömlu þjökuðu og þjáðu fólki, aldur
og kröm hefur svipt það virðingu
sinni og getu og það á allt undir
annarra náð og miskunn. Efni sög-
unnar er í sjálfu sér fýsilegt en það
hefði mátt vinna meira úr því, sag-
an verður veigaminni en efni standa
til. I „Skrifað stendur" er drengur
að vitja eldgamals, farlama og
blinds langafa, uppnuminn af hetju-
sögunni, samtalsbókinni sem var
að koma út um ævi hans. Og þó.
Var einhver að skrifa ævisögu hans?
Og ef svo var hvernig bar það að
og hvenær og hvemig fór það fram
og hvað er satt af því sem stendur
i þeim heilmikla doðranti. Það örlar
á háði og glettni í frásögninni sem
Jakobína mætti leika sér oftar með.
Þessi glettni en líka meira hlýja
er í sögunni „Hann mælti svö fyrir"
sem er „ævisaga" heimaalningsins
Gimlu sumartíð. Innsæi höfundar
og lifandi lýsing, einföld og skír,
gerir þá sögu óviðjafnlega aflestr-
ar. „Beðið eftir morði“ er nokkuð
glúrin saga um aldurhnigna konu
sem situr við sjónvarpið og bíður
eftir að eitthvað gerist, líklega
morð því það var tekið fram í dag-
skránni að í henni væru atriði sem
börnum og veikluðu eða viðkvæmu
fólki væri ekki hollt að horfa á. En
svo er ekkert morð, bara einhveijar
samfarasenur sem sú gamla getur
að sönnu dæst yfir en komast ekki
í hálfkvisti við ef það hefði nú ver-
ið eins og eitt morð. Síðasta sagan
„Systur" er í nokkuð annarri tón-
tegund en hinar, f henni meiri
fjálgni og jafnvel beiskja þegar far-
ið er höndum um samband systr-
anna sem halda að þær þekkist og
skiiji hver aðra. En verða þess
áskynja hver með sínu móti að sá
skilningur og kannski væntumþykj-
an er einhvers staðar víðs fjarri.
Flestar sögurnar bera vott um
vönduð og skáldleg vinnubrögð, það
er ekki ærslum í máli fyrir að fara.
Það er Hamsunskur tónn í þessari
bók, einfaldleiki sem hrífur og sest
að í sálinni.
■ BL ÚSKVÖLD verður á Tveim-
ur vinum fimmtudaginn 29. nóv-
ember að venju. Að þessu sinni er
mjög sérstakt tríó sem skemmtir.
Það er skipað þeim Kristjáni
Kristjánssyni á gítar, munnhörpu
og þar að auki sér hann um söng,
Þorleifi Guðjónssyni á bassa og
Reyni Jónassyni á harmónikku.
Um helgina skemmta íslandsvinir
en þeir hafa ekki skemmt í
Reykjavík í 2 mánuði. Sunnudag
og mánudag skemmtir ný hljóm-
sveit. Hún heitir Tvöfalda beat-ið
og hana skipa Stefán Hilmarsson
úr Sálinni, Eiður Arnarsson úr
Stjórninni, Jón Ólafsson, Stefán
Hjörleifsson og Ólafur Hólm úr
Nýdönsk.
(Fréttatilkynning)