Morgunblaðið - 29.11.1990, Qupperneq 24
24
oeei aaaMavövi .es auoAauTMMia GiciAjaMuoaoM
MOEGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990
1
Áhrif smáþjóða við ákvarðana-
töku innan Evrópubandalagsins
Athugasemdir við grein Hannesar Jónssonar
eftir Sigurrós
Þorgrímsdóttur
Hannes Jónsson, fyrrverandi
sendiherra, ritaði grein í Morgun-
blaðið 20. nóvember sl. undir heit-
inu „Vægi íslands við ákvarðana-
töku 18 Evrópuríkja yrði 1/96“.
Ýmislegt fróðlegt kemur fram í
þessari grein, en í hana vantar
nokkur mjög veigamikil atriði. Þar
kemur m.a. fram að „Ráðherramir
12 [í ráðherraráði EB, innskot S.Þ.]
hafa ekki í atkvæði hver heldur
samtals 76 misþung atkvæði.
Stærstu ríkin hafa 10 atkvæði,
minnsta ríkið 2, miðlungsríki 5 at-
kvæði“. Þetta er rétt svo langt sem
það nær. En hér sleppir Hannes
þeim mikilvæga þætti að í mörgum
þýðingarmiklum málum geta ríkin
beitt neitunarvaldi.
Ákvarðanataka í
Evrópubandalaginu
í Rómarsáttmála, sem er stofn-
samningur Evrópubandalagsins, er
þess getið að ákvarðanir í ráðherra-
ráðinu skulu teknar samhljóða en
jafnframt að þessu ákvæði sáttmál-
ans skuli breytt í áföngum í meiri-
hlutaákvæði. Þegar framkvæma
átti meirihlutaákvæðið, árið 1966,
fengu Frakkar því framgengt að
aðildarríkin féllust á hina svoköll-
uðu „Lúxemborgarsamþykkt".
Megininntak þeirrar samþykktar
var að allar ákvarðanir í ráðherra-
ráðinu skyldu teknar áfram sam-
hljóða og fékk þá hvert aðildarríki
í raun neitunarvald.
Einingarlögin
Leiðtogaráð EB ákvað, árið
1985, að stefnt skyldi að því að
koma á óskiptum innri markaði
aðildarríkja fyrir árslok 1992.
Til þess að unnt yrði að ná þessu
markmiði var nauðsynlegt að hraða
ákvarðanatöku um málefni innri
markaðar. Til að geta breytt
ákvarðanaferli bandalagsins var
nauðsynlegt að endurskoða Rómar-
sáttmála.'I kjölfar þessa voru sam-
þykkt lög 1987 sem eru viðbót við
stofnsamninga bandalagsins. Þessi
lagabálkur er kallaður einingarlög
Evrópu (The Single European Act).
„í samningaviðræðum
EFTA og EB um evr-
ópskt efnahagssvæði
mun án efa vera lögð
áhersla á að hvert af
þeim 18 ríkjum, er
mynda EES, geti haldið
vörð um þjóðarhags-
muni sína með neitun-
árvaldi.“
Með einingarlögunum var því
komið á að margar ákvarðanir, sem
áður þurftu einróma samþykki, er
nú nægjanlegt að samþykkja með
meirihluta. Þetta á sérstaklega við
um lög og reglugerðir er snerta
stofnun innri markaðar. En í eln-
stökum málum er snerta þjóðar-
hagsmuni einstakra ríkja áskilja
ráðherrar aðilidarríkjanna sér
rétt til að beita neitunarvaldi.
Leiðtogaráðið
Hannes segir í grein sinni að
Það kemst
ekki hvaða naut
sem er inn
íArgentínu.
Fimmtudagskvöld eru
prime ribs" kvöld.
Naut kvöldsins.
Kom í heiminn:
Undan:
Þyngd:
Eigandi:
Heimahagar:
Slátraö:
Sláturhús:
Flokkur:
12. janúar1988
BautaogLjómalind
222,5 kg
ÁstþórTryggvason
Rauðafell, A-Eyjafjöllum
12. nóvember1990
ÞríhyrninguráHellu
UNIIF
Verkandi: Kjöthf., JónasÞór
Sýrustig: 5,56
Matreitt: (kvöld á Argentínu
kAtamaskínan/hvItahúsið/sIa
kVægi íslands við ákvarðana-
Ftöku 18 Evrópurflqa yrði 1/96 I
aðalstofnanir Evrópubandalagsins
séu fjórar: Ráðherraráðið, Fram-
kvæmdastjórnin, Evrópuþingið og
Evrópudómstóllinn, en nefnir ekki
á nafn eina af meginstofnunum EB,
Leiðtogaráðið (The European
Council).
í ráðinu sitja þjóðarleiðtogar að-
ildarríkja EB en auk þess sitja ut-
anríkisráðherrar landanna fundina
ásamt forseta og varaforseta fram-
kvæmdastjómarinnar.
Á fundum leiðtogaráðsins eru
teknar mikilvægar pólitískar
ákvarðanir og sumir telja að .það
sé orðið æðsti ákvörðunaraðili innan
Evrópubandalagsins. í þessu ráði
gildir sú regla að til þess að það
geti tekið ákvörðun þarf að liggja
fyrir samhljóða samþykki allra
leiðtoganna.
Hvert ríki, óháð stærð þess, hef-
ur því eitt atkvæði í ráðherraráð-
inu, þegar fjallað er um mál er
varða þjóðarhagsmuni einstakra
ríkja. Einnig hefur hvert ríki eitt
atkvæði í leiðtogaráðinu óháð mál-
efnum. Valdastaða ríkisstjóma að-
ildarríkja Evrópubandalagsins er
því nokkuð sterk og er ekki vert
að gera lítið úr því atriði.
Ákvarðanataka innan EES
Eitt mikilvægasta samningamál s-
EFTA-ríkjanna og Evrópubanda- 1
lagsins um myndun evrópsks efna-
hagssvæðis (EES) er hvernig
ákvarðanatöku skuli háttað. Báðir
samningsaðilar, EFTA-ríkin og EB,
leggja áherslu á að sjálfstjóm þeirra
verði tryggð í þeim samningum sem
gerðir verða á milli bandalaganna.
Ekkert er enn ákveðið um hvern-
ig þessari ákvarðanatöku verður
háttað. Það kemur fram í grein
Hannesar Jónssonar, að vægi ís-
lands í ákvarðanatöku hins sameig-
inlega Evrópumarkaðar verði 1/96
ef reglur EB verða lagðar til grund-
vallar í ákvarðanatöku EES.
Ósennilegt er að EFTA-ríkin sam-
þykki að áhrif þeirra í sameigin-
legri ákvarðanatöku EES verði svo
lítil. EFTA-ríkin hafa lagt á það
áherslu í þessum samningaviðræð-
um að þátttaka þeirra verði sem
mest í ákvarðanamótun og sameig-
inlegri ákvarðanatöku innan EES.
Líklegra er að þau fari fram á að
geta beitt neitunarvaldi í málum er
varða þjóðarhagsmuni hvers ríkis,
eins og tíðkast í ráðherraráði EB.
Aftur á móti væri vel hugsanlegt
að ákvarðanir er snerta innri mark-
að EES verði teknar með meiri-
hlutasamþykki innan sameiginlegs
ráðs þessara 18 ríkja. Þá er óráðið
hvert vægi íslands yrði í slíkri meiri-
hlutasamþykkt.
Eitt megin hagsmunamál hvers
ríkis er tekur þátt í samstarfi við
önnur ríki er að vera þátttakandi í
ákvarðanaferlinu. í fjölþjóðasam-
tökum er íbúafjöldi og stærð ríkja
oft ólíkur. Nauðsynlegt er að
tryggja „smáríkjum" í slíkum sam-
tökum hlutfallslega mikið vægi í
töku ákvarðana.
í fyrmefndri grein Hannesar
Jónssonar fjallar hann einungis um
meirihlutaákvarðanir en gerir enga
grein fyrir öðrum atriðum varðandi
ákvarðanir innan ráðherraráðsins
eins og t.d. neitunarvaldi. Þetta
gefur nokkuð villandi mynd af
ákvarðanaferlinu, því mikilvægi
neitunarvaldsins er töluvert og þá
sérstaklega fyrir smáþjóðir. Neitun-
arvald innan ráðherraráðs Evrópu-
bandalagsins er m.a. til að tryggja
að þjóðarhagsmunir smáríkjanna
innan EB verði ekki fótum troðnir.
í samningaviðræðum EFTA og EB
um evrópskt efnahagssvæði mun
án efa vera lögð áhersla á að hvert
af þeim 18 ríkjum, er mynda EES,
geti haldið vörð um þjóðarhagsmuni
sína með neitunarvaldi.
Höfundur er
stjórnmálafræðingur.
Ég sendi öllum þeim, sem glöddu mig og mína
fjölskyldu á einn eÖa annan hátt, með heim-
sóknum og heillaóskum á 60 ára afmœlisdegi
mínum.
Innilegar þakkir og bestu kveÖjur.
Jóhann Líndal Jóhannsson,
Njarðvík.
Er meistarmn þinn
meistari?
Fagleg og ábyrg
vinnubrögð.
Spyrjið um
meistaraskírteinið.
MEISTARASKÍRTEINI
Jón Jónsson
Múrarameistari
Agata 100
100 Reykjavík
___MÚRARAMEISTARAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Z M.w.R ÁlMEISTARA- OG VERKTAKASAMBAND BYGGINGAMANNA
\ 1,1 V P / SKIPHOLTI 70- 105 REYKJAVÍK - SÍMl 91-36282