Morgunblaðið - 29.11.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1990 •
CFE-samningiirinn:
60.000 sovéskar vígvélar
austur fyrir Uralfjöll
Brussel. Reuter.
SOVÉTMENN hafa flutt 60.000 skriðdreka, stórskotaliðsbyssur
og brynvagna austur fyrir Úralfjöll til að undanskilja þennan
vopnabúnað í CFE-samningnum svonefnda sem undirritaður var
í París fyrir skömmu.
Vigleik Eide, formaður hermál-
anefndar Atlantshafsbandalags-
ins, (NATO) greindi frá þessu á
fundi með fréttamönnum í höf-
uðstöðvunum í Brussel á þriðju-
dag. Sams konar fullyrðingar hafa
komið fram áður en þetta er í
fyrsta skiptið sem embættismenn
NATO hafa nefnt tölur í þessu
viðfangi. Þær tölur sem birst höfðu
í vestrænum fjölmiðlum voru mun
lægri.
Vopnabúnaðurinn og vígvélarn-
ar voru fluttar frá Evrópu áður
en leiðtogar NATO og Varsjár-
bandalagsins undirrituðu CFE-
samninginn í París í síðustu viku
en hann kveður á um stórfelldan
niðurskurð á sviði hefðbundinna
vopna frá Atlantshafi til Úral-
fjalla.
Eide kvaðst ekki eiga von á því
að flutningurinn á hergögnunum
myndi tefja fyrir staðfestingu
CFE-sáttmálans og sagði ráð fyrir
því gert í samningum að unnt yrði
að gera nauðsynlegar leiðrétting-
ar.
Kosningaspjald með mynd af Oskar Lafontaine, kanslaraefni jafnaðarmanna.
Vandræði þýskra jafnaðarmanna:
Vel klœdd kona
í fötum frá
ARA MODEN
tískuverslun,
Kringlunni, sími 33300
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Fyrrverandi leiðtogi dregur
getu Oskars Lafontaines í efa
MUnchen. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni
FÓLKIÐ bar barmmerki með
nafninu Oskar og myndir af
Oskar Lafontaine skreyttu salinn
þar sem jafnaðarmenn í Miinchen
héldu lokafund sinn fyrir kosn-
ingarnar á sunnudag. Hans-Joch-
en Vogel, formaður flokksins,
var aðalræðumaðurinn. Honum
var vel fagnað enda var hann
borgarstjóri í Miinchen allan sjö-
unda áratuginn og til 1972. Eftir
Morgunblaðsins.
fundinn sá hann ástæðu til að
taka fram á fundi með erlendum
blaðamönnum að hann hefði
nefnt Oskar Lafontaine 10 til 11
sinnum í ræðu sinni.
Fyrir skömmu birtist viðtal við.
Helmut Schmidt, fyrrum leiðtoga
jafnaðarmanna og kanslara til
1982, í hollenska blaðinu Algemeen
Dagblad. Þar var haft eftir honum
að Lafontaine myndi ekki vinna í
komandi kosningum enda ætti hann
það ekki skilið. Þessi ummæli hafa
vakið reiði meðal jafnaðarmanna
en Schmidt segir að þau hafi ekki
verið ætluð til birtingar, hann hefur
hins vegar ekki dregið þau til baka.
Lafontaine hefur hins vegar bannað
blaðamönnum frá Algemeen Dag-
blad að sækja fundi sína.
Eftir fundinn í Múnchen var
Vogel spurður álits á ummælum
Danmörk:
Stj órnmálaferill
Glistrups á enda?
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
STOFNANDI Framfaraflokksins í Danmörku, Mogens Glistrup, hef-
ur gefist upp við að safna nauðsynlegum fjölda undirskrifta kjós-
enda, um 19.000, til að nýr flokkur hans, Velmegunarflokkurinn, fái
að bjóða fram í kosningnum 12. desember.
Glistrup klauf sig nýlega út úr
Framfaraflokknum. Hann hefur
reynt að koma á kosningabandalagi
við Preben Moller Hansen, fyrrver-
andi kömmúnista og leiðtoga
flokksins Fælles kurs, en samningar
hafa ekki enn tekist. Glistrup getur
enn reynt að halda í þingsætið með
því að bjóða sig fram utan flokka
en þá þarf aðeins undirskriftir 150
Mogens Glistrup.
kjósenda sem hann þarf að skila
fyrir nk. laugardag.
Schmidts. Hann var ómyrkur í
máli. Schmidt hefði ekki rétt flokks-
bræðrum sínum hjálparhönd með
þessum orðum. Það væri regla
meðal jafnaðarmanna að kanslara-
efni þeirra ætti að njóta stuðnings
flokksins alls. Þannig hefði verið
staðið að málum þegar Schmidt
hélt sjálfur um stjórnvölinn. Með
þessum orðum skaðaði Schmidt
mest sjálfan sig, gamlir og hollir
vinir hans gætu ekki fylgt honum
í þessu máli. Ekki mætti gleyma
því að Schmidt hefði verið særður
er hann fór frá fyrir sjö árum. All-
ir vissu að í köldu veðri tækju sár
sig oft upp að nýju, það hefði gerst
hér. Þá sagðist Vogel vilja láta þess
getið þar sem hann væri í Bæjara-
Iandi að á sínum tíma hefði öflugur
leiðtogi hér (Franz Josef Strauss)
sagt, að Helmut Kohl væri óhæfur
til að vera kanslari. Hann væri þó
enn kanslari.
Með því að tala um sár Schmidts
vísar Lafontaine meðal annars til
þess að hinn síðarnefndi gagnrýndi
stjórnarhætti Schmidts og gaf til
kynna að þeir ættu betur við i
fangabúðum en í stjórnmálaflokki.
Þá var Lafontaine andvígur stefnu
Schmidts í varnar- og öryggismál-
um á þeim tíma þegar harðast var
barist um meðaldrægu eldflaugarn-
ar sem Lafontaine var á móti.
SIEMENS uppþvottavélar éru velvirkar,
hljóðlátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verð frá 57.330,- kr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI28300
Bretland:
Hverfa tveggja hæða strætis-
vagnar af götum Bretlands?
St. Andrcws. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TALSMENN breskra strætisvagnaeigenda óttast, að framkvæmd-
astjórn Evrópubandalagsins (EB) selji viðmiðanir um hæð strætis-
vagna, sem útiloki tveggja hæða vagna.
Rauðir tveggja hæða strætis-
vagnar hafa lengi verið eitt af
einkennistáknum Bretlands og
Lundúnaborgar sérstaklega. Nú
liggja fyrir framkvæmdanefnd EB
tillögur um, að lofthæð í öllum
strætisvögnum í löndum EB skuli
vera 1,90 metrar, svo að flestir
farþegar geti gengið um þá án
þess að beygja sig.
í breskum tveggja hæða vögn-
um er efri hæðin lægri en þetta.
Tveggja hæða vagnar eru um fjór-
ir metrar á hæð. Þegar búið er
að gera ráð fyrir gólfi og lofti þá
verður efri hæðin að vera lægri
en 1,90. Það er ekki heldur hægt
að hækka vagnana vegna breskra
reglna um leyfilega hæð bifreiða,
sem allar brýr eru miðaðar við.
í EB gildir meirihluti atkvæða
í ákvörðun um þetta efni. Spán-
verjar og Frakkar þrýsta á um
ákvörðun. í öllum öðrum löndum
EB hefði ákvörðun um þetta efni
hverfandi áhrif. En í Bretlandi er
fjórðungur allra strætisvagna
tveggja hæða og ákvörðun, sem
jafngilti banni á þeim, hefði mikil
áhrif á bresk strætisvagnafyrir-
tæki.
Samræming hæðar strætis-
vagna er hluti af þeirri samræm-
ingu, sem fer fram vegna sameig-
inlegs innri markaðar EB. Til-
gangurinn með henni er að auð-
velda framleiðslu og sölu á stræt-
isvögnum innan EB.
Talsmaður Breska strætis-
vagnaráðsins, sem er hagsmuna-
samtök strætisvagnaeigenda í
Bretlandi, hefur krafíst þess, að
breskir samningamenn komi í veg
fyrir samþykkt þessarar tillögu.
Lítil von er þó talin til þess að
koma í veg fyrir samþykktina
vegna meirihlutareglunnar. Einn-
ig virðist EB vera flest mögulegt.
Nýlega samþykkti þetta voldug-
asta kansellí samtímans, að gulr-
ætur væru ávextir en ekki græn-
meti, af því að þær væru notaðar
í sultur. Það ætti því ekki að veij-
ast fyrir því að ákveða, að tveggja
hæða strætisvagnar séu engir
strætisvágnar.