Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 26

Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 26
26 ------MQRGGNBLAÐIÐ MvIÐJUDAGUR-4-8. -DESEMBER 199» — sígildar sagnaperlur Stefáns Júlíussonar. í tilefni af 75 ára afmæli Stefáns Júlíussonar og 50 ára afmæli Kára litla hafa Kárabækumar þrjár verið endurútgefnar. Þetta eru bækumar Kári litli og Lappi. Kári litli í skólanum og Kári litli í sveit. Af sama tilefni em Kárabækumar nú einnig boðnar í fallegri öskju. Kárabækumar hafa margsannað gildi sitt sem „tæki til að létta bömunum lestramám“, eins og höfundur stefndi að. ÆSKAN Staðreyndir um endurreisn Þjóðleikhússins: Slúðurtölur eða eðli- leg- endurbygging eftir Arna Johnsen Ríkisendurskoðun gerir því skóna að kostnaður við endurbygg- ingu Þjóðleikhússins hafi farið 40% fram úr kostnaðaráætlun þegar tölur byggingarnefndar sýna að rétt tala á þeim tímapunkti sem greinargerð Ríkisendurskoðunar er gerð er 7,6% sem er töluvert innan eðlilegs fráviks í slíkri fram- kvæmd. Mismunurinn á tölum byggingarnefndar og Ríkisendur- skoðunar byggist fyrst og fremst á þremur atriðum. í fyrsta lagi miðar Ríkisendurskoðun við frum- kostnaðaráætlun upp á 540 millj. kr. í september 1989 og framreikn- ar hana hráa í nóvember 1990 án þess að taka tillit til eðlilegrar framvindu málsins. Hins vegar tekur Ríkisendurskoðun kostnað- artölu í dag, samkvæmt verksamn- ingi, og kallar síðan mismuninn á þeirri tölu og frumkostnaðaráætl- un, umfram kostnaðaráætlun. Þetta er kynlegur leikur og til þess eins að vekja tortryggni á við- kvæmu framkvæmdastigi. Draugagangur í prósentureikningi Staðreynd málsins er einföld. 540 nillj. kr. kostnaðaráætlun á þávirði crónunnar miðaði við tvær lotur í 'ramkvæmd endurreisnar Þjóðleik- hússins. Hluti 1. lotu af 540 millj. kr. var um 340 millj. kr. í ágúst 1990 þegar verksamningur var gerður og tekin hafði verið ákvörð- un um efnisval, tæknibúnað, lagna- kerfí og flest alla þætti verksins var þessi 340 millj. kr. tala komin upp í 491 millj. kr., framreiknuð með raunhæfum kostnaði tækni- búnaðar sem er stærsti liður verks- ins og með virðisaukaskatti sem ekki var gert ráð fyrir í 540 millj. kr. áætluninni þar sem ekki lá ljóst fyrir hvort af þeirri skattheimtu yrði og stærstu þættir endurreisn- arinnar voru ekki söluskattsskyldir. Þegar Ríkisendurskoðun skilar sinni niðurstöðu hefur henni því hreinlega láðst þegar prósentan er reiknuð út að taka tillit til 151 millj. kr. hækkunar í eðlilegri fram- vindu málsins fram að fram- kvæmdastigi og ca. 35 millj. kr. virðisaukaskatti vegna 2. lotu, alls Árni Johnsen um 180 millj. kr. gat, og er ekki að furða að prósentutölur um um- framkostnað fari á flug þegar slíkur draugagangur er í kerfinu. Staðreyndirnar þegar „sjúklingurinn var opnaður" Fjaðrafokið í ýmsum áttum eftir að búið var að taka ákvörðun af ríkisstjórn og Alþingi um endur- byggingu Þjóðleikhússins, hefur kostað mikla peninga, tíma og kjaftæði, en menn skulu minnast þess að yfir 90% af kostnaði verks- •ins er beinlínis vegna endurbygg- ingar lagna- og tæknikerfís hússins sem var í einu orði sagt, hand- ónýtt. Innan við 10% af kostnaði er vegna breytinga af hálfu arki- tekta til þess að gera Þjóðleikhúsið að mun betra leikhúsi, en hver ein- asti maður sem hefur komið í Þjóð- leikhúsið að undanförnu til þess að kynna sér málið hefur sannfærst um að þar er verið að vinna gott mál. Þótt menn geti greint á um hvprt það eigi að vera Þjóðleikhús á íslandi eða ekki, þá eru flestir sammála um að Þjóðleikhús Is- lands, sem er staðreynd og eitt af menningarakkerum þjóðarinnar, skuli vera í þokkalegu ásigkomulagi og til sóma en ekki vansæmdar. Endurreisn hússins er dýrt verk og vándasamt og sumir kostnaðarliðir, eins og til að mynda hönnun, eru í hærri kantinum vegna þess að hluta hönnunar þarf að vinna á framkvæmdatímanum sem er mjög skammur. Fjáiveitinganefnd Alþingis fylgdi þessu verki úr hlaði. Það hefur vissulega farið í hærri kantinn en ekki lægri miðað við það sem menn vonuðu áður en „sjúklingurinn var opnaður" til aðgerðarinnar en að mestu leyti er það vegna uppsafn- aðs 60 ára vanda og slugs í við- haldi mannvirkisins allt frá því að húsið var vöruskemma breska hers- ins um árabil. Þjóðleikhúsið verður opnað 15. mars nk. frágengið í aðalsal, Krist- alssal á 2. hæð og samliggjandi göngum, en 1. hæð með göngum og fatahengi verður á smíðastigi. Byggingarnefnd leggur til að lokið verði við ganga 1. hæðar, lyftu fyr- ir hreyfihamlaða, fatahengi undir aðalsal og anddyri næsta sumar áður en nýtt leikár hefst, en loka- framkvæmd þess verks sem ákveðið hefur verið að verði unnin sumarið 1992 á eðlilegum lokunartíma Þjóð- leikhússins, en þá fyrst kemst stór hluti nýja lagnakerfisins á full not. í Þjóðleikhúsið koma að jafnaði yfir 100 þúsund íslendingar árlega og það er ástæða til þess að brýna menn til baráttu fyrir eðlilegum verklokum. í stöðunni mæðir mest á Svavari Gestssyni menntamála- ráðherra og Ólafí Ragnari Grímssyni fjármálaráðherra og sem betur fer eru þeir ekki vanir að hopa þótt á gangi með pusi, en fjár- veitinganefnd hefur lengi haft það að kjörorði að ljúka við mikilvæg verk fljótt og vel og ég efa ekki að hún leggur kapp á það þótt knappur sé stakkurinn, enda lá ljósts fyrir frá upphafi að úr því að farið var í þetta verk verður að ljúka því hið snarasta. Höfundur er formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins. ■ HÉRAÐSBÓKASAFN Rangæinga hefur nú breytt opnun- artíma. I vetur verður safnið opið sem hér segir: Mánudaga frá 13-17, þriðjudaga frá 19-21 og föstudaga 13-17. 15. desember til 15. janúar er sektarlaust tímabil. yv 1 /f / -Wt/;

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.