Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 31
sérstaklega fyrir aðila sem ræður
yfir heilli deild á sviðinu, og hefur
engan annan sér til fulltingis. Við
erum ekki vissir um að mönnum
sé þetta ástand ljóst, en þetta er
staðreynd á fornleifadeild Þjóð-
minjasáfnsins. í ljósi þessa má einn-
ig spyrja hvernig þeim peningum,
sem renna til fornleifarannsókna,
er best varið.
I ritverkinu íslensk þjóðmenning,
1. bindi, stendur að deiidarstjóri
hafi fil.kand.-gráðu. Það er alveg
rétt, en hann er ekki fil.kand. í forn-
leifafræði. Hann er ekki fil.kand. í
neinu sérstöku. Fil.kand. segir að-
eins að viðkomandi hafi lokið 120
einingum í hvaða kúrsum sem er
við sænskan háskóla. Það gæti allt
eins verið stutt nám í 10 mismun-
andi fræðum, og í óskyldum grein-
um svo sem sanskrít eða viskipta-
fræði. Viðkomandi lauk þessu fyrir
1976, en þá var þessu breytt í
Svíþjóð og framvegis krafist loka-
ritgerðar á þriðja stigi. Deildarstjór-
inn hefur því aðeins lokið 2 stigum
í fornleifafræði.
Nu bregður svo við að í umsókn
deildarstjóra til fornleifadeildar um
rannsóknarleyfi í Flatey á Skjálf-
anda dags. 29. júní 1990, segist
deildarstjóri hafa lokið 3. stigi í
fornleifafræði við Uppsalaháskóla.
Hann tekur reyndar fram að loka-
ritgerðin („Fridlysta fornlámningar
i Borgarfjörðurs harad, Island“) sé
í prentun. Þetta er alrangt. Engin
slík ritgerð er eða hefur verið í
prentun hjá Uppsalaháskóla. Hins
vegar er deildarstjóri enn að vinna
að slíkri ritgerð (upplýsingar fengn-
ar frá fornleifafræðideild Uppsala-
háskóla um mánaðamótin nóv./des.
1990). Deildarstjóri stundar því enn
grunnnám í fomleifafræði við Upp-
salaháskóla 21 ári eftir að hann hóf
nám. Námið tekur venjulega 3-5 ár.
Niðurlag
í ljósi þess, sem hér að framan
hefur verið sagt, viljum við skora
á deildarstjóra að setja kröfur sínar
skynsamlega fram í nánustu
framtíð, sérstaklega meðan verið
er að byggja upp íslenska fornleifa-
fræði. Sömuleiðis teljum við hann
tilneyddan að gangast að sam-
þykktri tillögu meirihluta fornleifa-
nefndar, sem óskað hefur eftir
ráðningu annars deildarstjóra við
fornleifadeild Þjóðminjasafnsins. Sú
tillaga er bæði raunhæf og eðlileg
enda eru það ekki aðeins nefndar-
menn sem óskað hafa þess. Vera
kann að mörgum þyki hart að orði
kveðið og hart að sér vegið í grein
þessari, en undirstrika ber að við
höfundarnir höfum engan annan
ásetning með grein okkar en að
benda hreinskilnislega á það sem
miður hefur farið í íslenskri forn-
leifafræði á seinni árum og að
ieggja til nokkuð sem gæti verið
til bóta. Ekki hefur reynst unnt að
ræða málin á málefnalegan hátt,
og deildarstjóri fornleifadeildar,
Guðmundur Olafsson, hefur oftlega
látið allt annað í ljós en það sem
nú er fram komið. Vegna greinilegs
óöryggis með stöðu sína, sem alls
ekki er til komið okkar vegna, hef-
ur hann fengið ritaða og lögfræði-
lega staðfestingu úr ráðuneyti á
starfi sínu fram til ársins 2018. í
öðru samhengi hefur hann lýst sig
viljugan til að deildarstjórastaða
hans væri skipt á milli manna til
þriggja eða ijögurra ára í senn, til
að dreifa ábyrgð og til að menn
gætu lokið við verkefni sín. Allar
slíkar yfirlýsingar falla um koll
þegar deildarstjórinn lýsir því yfir,
að hann sé mótfallinn fjölgun deild-
arstjóra og raunhæfs mannafla á
fornleifadeild. Lítilsvirðing hans á
einstaklingsframtaki fólks með
brennandi áhuga á að efla íslenska
fornleifafræði og neikvæðni hans í
garð bestu eiginleika nýrra forn-
minjalaga og í garð fornleifanefnd-
ar, sem hann þó situr sjálfur í, er
óskiljanleg. Ef íslensk fornleifa-
fræði á að eflast og komast með
tærnar þar sem aðrar þjóðir hafa
hælana er ekki raunhæft að halda
fast í viðteknar venjur og hindra
framfarir.
Höfundar eru fornleifafræðingar
ogstunda doktorsnám við
háskólimu í Gautaborg og
Árósum.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
31
Unnið við sjóvarnar-
garðinn á Eyrarbakka
Eyrarbakka.
FRAMKVÆMDIR við sjóvarn-
argarðinn á Eyrarbakka hófust
á ný fyrir skömmu.
Garðurinn er hlaðinn úr stór-
grýti og grafinn niður á fast, mjög
traustvekjandi að sjá. Löngum var
haft orð á því hve handbragð
gömlu gijóthleðslumannanna væri
meistaralegt, þegar menn virtu
fyrir sér gamla sjóvarnargarðinn.
Ekki er síðra handbragð þeirra er
nú hlaða veggi með stórvirkum
vinnuvélum.
- Oskar
Vinnuvél við hleðslu á sjóvarnargarði. M»gu„biaðið/óskar Magnússon
S'&SS
67.950.
^3.765,-
Kr' 139.900 -
13.9oo
kr 1S-900'-
kr 16-900'-
kr S631'~
Kr' 4.900.
Komið og kynnið ykkur
jólatilboð Einars J. Skúlasonar hf.
á tölvnm, prenturum og hugbúnaði
Greiðslusamningar
\æ\ m q
Einar í. Skúiason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
Gleðileg jól
augljós 28.208