Morgunblaðið - 18.12.1990, Side 33

Morgunblaðið - 18.12.1990, Side 33
MORGUNBI>AÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 33 Halldór Árnason „Ríkissjónvarpið hefur hlutleysis- og upplýs- ingaskyldu að gegna og mun vonandi fjalla eft- irleiðis með faglegri hætti en gert hefur ver- ið í þessum þáttum, um hagsmuni og valkosti Islendinga í samskipt- um við önnur ríki.“ ir séu fyrir hendi sem gætu gert aðild óaðgengilega fyrir norskan sjávarútveg. í fyrrgreindum þætti var sagt að breytingar þær sem gerðar voru á sjávarútvegsstefnu banda- lagsins 1983 ættu að tryggja að önnur ríki fái ekki veiðiheimimldir hér við land, ef ísland gengi í EB. Fyrir 1983 byggðist sjávarútvegs- stefna EB á Rómarsáttmálanum. Ekki mátti mismsuna aðildarríkj- unum og'því gátu fiskiskip veitt hvar sem var innan lögsögu EB- ríkja. Árið 1983 komu aðildaríkin sér hins vegar saman um að afla- kvótum skyldi úthlutað til einst- akra ríkja bandalagsins; í fyrsta lagi miðað við afla þeirra síðustu árin, í öðru lagi miðað við mikil- vægi sjávarútvegsins í viðkomandi ríki og í þriðja lagi skyldi tekið mið af aflatapi vegna almennrar útfærslu landhelginnar í 200 sjóm- ílur, en í raun er kvótanum skipt miðað við afla ríkjanna árið 1982. Stjórnandi þáttanna segir að ef íslendingar gangi inn í bandalag- ið, þá megi vænta þess að fyrsta atriðið tryggi að þeir haldi hlut- deild sinni í aflanum hér við land, ekki sé um það að villast að sjávar- útvegurinn sé mjög mikilvægur á íslandi og að síðasta atriðið myndi vart hafa áhrif á aflakvóta. Reynd- ar fylgi sá ókostur síðasta atriðinu að við getum ekki farið fram á veiðiheimildir við strendur annarra aðildarríkja! Þessi niðurstaða er vafasöm, svo ekki sé meira sagt, enda verð- ur hún ekki áreiðanlegri en þær veiku forsendur sem hún byggir á. Það er ekki nægilegt eða ráð- legt í jafn mikilvægu máli eins og þessu að gefa sér að sjávarútvegs- stefna EB verði óbreytt á komandi árum og þessi niðurstaða er hæpin þó svo ólíklega færi að sjávarút- vegsstefna EB yrði óbreytt. í því sambandi má nefna svokallað kvótahopp þ.e. skráningu fiski- skipa í öðrum bandalagsríkjum til þess að veiða úr kvótum þeirra, en landa aflanum í heimahöfn. Einnig er líklegt að sjávarútvegs- fyrirtæki í EB, sem njóta mikilla opinberra styrkja, myndu kaupa upp íslensk sjávarútvegsfyrirtæki vegna þess að fiskimið þeirra hafa verið lögð í rúst með gengdar- lausri ofveiði. Nauðsynlegt er að skoða þróun sjávarútvegsstefnunnar og reyná að sjá fyrir hvernig hún kann að breytast og afleiðingar þess. Margt bendir til þess að sjávarút- vegsstefna EB muni breytast á komandi árum. F., mlega verður hún endurskoðuð að tveimur árum liðnum og samkomulag aðild- arríkja EB um hana rennur út árið 2002 og tekur þá eldra fyrir- komulag aftur við, hafi aðildam'k- in ekki náð samkomulagi um ann- að. Ekki er síður mikilvægt í þessu sambandi að nokkur dómsmál sem bíða úrskurðar eru líkleg til að valda róttækum breytingum á sjávarútvegsstefnunni þ.e. að ríkj- akvótum verði hætt eða að meira tillit verði tekið til sjávarútvegsins í bandalagsríkjunum í heild, þann- ig að Spánveijar og Portúgalir fái stærri hlutdeild af heildarkvótum bandalagsins. Peter 0rebech er einn af virt- ustu lögfræðingum Norðmanna í hafrétti. Hann hefur rannsakað áhrif þess á norskan sjávarútveg ef Norðmenn gengju í EB. hann telur að áhrif einstakra ríkja á sjáv arútvegsmál bandalagsins muni minnka á komandi árum og rikjakvótar og skiptingu fiskimiða milli einstakra ríkja verði hætt. Einstök aðildarríki geti aðeins haft undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu bandalagsins til ársins 2002; eftir það taki fjór- frelsi innri markaðar EB við og óheimild verði að mismuna með- limum bandalagsins eftir þjóðerni, einnig í sjávarútvegi. Þessi þróun sé í fullu samræmi við þróun band- alagsins í átt til meiri efnahags- legrar og pólitískrar einingar — Bandaríkja Evrópu. Þessi niður- staða 0rebech er í samræmi við niðurstöður SAS, sem Magnús Gunnarsson kynnti í ræðu á síð- asta aðalfundi Samtaka fiskvinnsl- ustöðva og Morgunblaðið hefur margsinnis gert að umtalsefni. Ýmis önnur atriði í þætti Ingi- mars Ingimarssonar og málflutn- ingi Gunnars H. Kristinssonar er vert að gagnrýna en það væri of langt mál að fara út í þá sálma. Hér er um of mikilvægt málefni að ræða til þess að kastað sé til þess hendinni með einhliða mál- flutningi.. Ríkissjónvarpið hefur hlutleysis- og upplýsingaskyldu að gegna og mun vonandi fjalla eftir- leiðis með faglegri hætti en gert hefur verið í þessum þáttum, um hágsmuni og valkosti Islendinga í samskiptum við önnur ríki. Höfundur er starfsmaður Samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi. IXIORDMENDE • / á jólatilboðsverði IMORDMEIMDE Galaxy-36 er 14" vandaö litasjónvarp með þráðl. fjarstýringu, sjálfvirkri stöðvaleit, 40 stöðva minni, beintengingu o.m.fl. Jólatilboð aðeins 31.900,- eða IMORDMEIMDE Galaxy-51 er 20" vandað litasjónvarp með þráðl. fjarstýringu, sjálfvirkri stöðvaleit, 40 stöðva minni, beintengingu o.m.fl. Jólatilboð aðeins 44.900,- eða 59.900,- stgr. IMORDMEIMDE Color-3035 er 25" vandað litasjónvarp með skörpum Black Matrix skja, þráðl. fjarstýringu, sjálfvirkri stöovaleit, 40 stöðva minni, beintengingu o.m.fl. Jólatilboð aðeins 66.900,- eða 59.900,-, IMORDMEIMDE Spectra SL-63 er 25" vandað litasjónvarp með skörpum Black Matrix glampalausum skjá, stereo, barnalæsingu, þráðl. fjarstýringu, sjálfvirkri stöðvaleit, 40 stöðva minni, tveimur beintengingum o.m.fl. Jólatilboð aðeins 99.900,- eða 89.900,-, IMORDMEIMDE Prestige 72 pip er 29" litasjónvarp með einstaklega vönduðum Super Planar myndlampa, Black Matrix glampalausum skjá, mynd í mynd, stereo, bamalæsinqu, práðl. fjarstýringu, sjálfvirkri stöðvaleit, 40 stöðva minni, beintengingu o.m.fl. Jólatilboð aðeins 159.900,- eða 145.900,-. r EUROQARD ********* T -0 MUNALÁN greiöslukjör til allt aö 12 mán.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.