Morgunblaðið - 18.12.1990, Síða 47

Morgunblaðið - 18.12.1990, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 47 Sjávarútvegsráðherra neitar enn að afhenda kvótalista: Oeðlilegt að afhenda almenn vinnugögn HALLDÓR Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra hefur enn hafnað beiðni þingmanna um að fá í hend- ur gögn um úthlutun kvóta til smábáta. Kemur það fram í bréfi sem ráðherra skrifaði Jóni Helga- syni forseta efri deildar sl. föstu- dag. Jón Helgason kom í síðustu viku bréflega á framfæri við sjávarút- vegsráðherra beiðni fimm þing- manna sem sitja í sjávarútvegsnefnd efri deildar, um að fá afhentan um- ræddan lista sem trúnaðarmál. I svarbréfi Halldórs Ásgrímssonar kemur fram að þær upplýsingar, sem beðið sé um afhendingu á, séu vinnu- gögn, sem varði tilraunaúthlutun á aflamarki til smábáta. Þessi tilrau- naúthlutun hafi verið send útgerðum smábáta en frestur til að gera at- hugaseindir sé enn ekki liðinn og því séu ekki nægilegar upplýsingar fyrirliggjandi til að byggja á endan- legar tillögmFum úthlutun. „Er augljóst að vinna við væntan- Iega úthlutun er á mjög viðkvæmu stigi, og með öllu óeðlilegt að al- menn vinnugögn varðandi hana séu afhent aðilum utan ráðuneytisins á því stigi. Ljóst er og að umbeðinn listi gefur allskostar ófullnægjandi og stundum villandi mynd af for- sendum tilraunaúthlutunarinnar varðandi einstaka báta vegna þess að fjölmörg önnur vinnugögn er máli skipta liggja ekki fyrir varð- andi marga bátana. Ráðuneytið telur sér því ekki fært að verða við fram- angreindri beiðni þingmanna um afhendingu listanna," segir síðan í bréfinu. Halldór Blöndal alþingismaður, FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 17. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 108,00 89,00 99,01 18,018 1.783.915 Þorskur(óst) 80,00 70,00 79,22 2,244 177.759 Smáþorskur(ósL) 71,00 71,00 71,00 0,495 35.145 Smáþorskur 84,00 82,00 83,05 0,743 61.704 Ýsa 121,00 90,00 111,91 9,091 1.017.386 Ýsa (ósl.) 115,00 69,00 92,52 6,962 644.154 Smáýsa (ósl.) 54,00 54,00 54,00 0,472 25.488 Karfi 45,00 25,00 40,69 1,119 45.530 Ufsi 30,00 30,00 30,00 0,725 21.750 Ufsi (ósl.) 20,00 20,00 20,00 0,058 1.160 Steinbítur 65,00 60,00 62,67 0,531 33.280 Steinbítur(ósL) 60,00 60,00 60,00 0,613 36.780 Lýsa (ósl.) 54,00 30,00 38,68 0,260 10.056 Langa 70,00 70,00 70,00 1,403 98.210 Langa (ósl.) 56,00 56,00 56,00 0,193 10.808 Lúða 445,00 300,00 374,42 0,907 339.604 Gellur 260,00 260,00 260,00 0,099 25.740 Keila 46,00 46,00 ‘ 46,00 0,146 6.716 Keila (ósl.) 44,00 35,00 41,24 2,126 87.685 Skötuselur 150,00 150,00 150,00 0,008 1.200 Samtals 96,60 46,213 4.464.070 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavik Þorskur 115,00 70,00 91,48 72,948 6.673.320 Þorskur(ósL) 104,00 61,00 96,39 10,576 1.019.390 Ýsa 141,00 . 73,00 115,77 14,556 1.685.180 Ýsa (ósl.) 115,00 86,00 99,77 7,264 724.747 Karfi 72,00 34,00 48,44 33,852 1.639.729 Ufsi 48,00 38,00 46,44 27,575 1.280.622 Steinbítur 100,00 55,00 72,17 1,238 89.351 Langa 73,00 50,00 72,33 0,930 657,269 Lúða 415,00 270,00 362,46 0,502 181.955 Lýsa 50,00 45,00 47,13 0,717 33.795 Skarkoli 103,00 50,00 89,75 0,028 2.513 Kinnar 290,00 290,00 290,00 0,035 10.179 Keila 47,00 38,00 45,79 0,943 43.178 Hnýsa 6,00 6,00 6,00 0,039 234 Gellur 400,00 400,00 400,00 0,029 11.840 Blandað 44,00 20,00 25,80 0,091 2.348 Blandað 59,00 59,00 59,00 0,061 3.599 Undirmál 79,00 45,00 72,84 10,648 775.635 Samtals 415,00 6,00 78,25 182,033 14.244.886 Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síöustu tíu vikur, 5. okt. -14. des., dollarar hvert tonn 425“ GASOLÍA 300 275 250 225“ 200“ 175“ ■i—I—I—I—I—I—I—I—I—I—h 5.0 12. 19. 26. 2.N 9. 16. 23. 30. 7.D 14. sem mest hefur beitt sé fyrir að kvótalistarnir verði afhentir, sagði við Morgunblaðið að þessi svör ráð- herra kærnu honurn ekki á óvart. „Halldór Ásgrímsson rr búinn að bíta það í sig að við eigum ekki rétt á þessum upplýsingum þó svo að iög um stjórn fiskveiða geri ráð fyrir mjög mikl.u samráði við sjávarút- vegsnefndir og þó svo að hann hafi reynslu fyrir því að við bijótum ekki trúnað. Þessar upplýsingar eru opin- berar og engin ástæða til að halda þeim leyndum, og við munum halda áfram að vinna í málinu þar til við fáum þær í hendur,“ sagði Halldór. Á myndinni er stjórn Skógræktarfélags Kópavogs og aðilar úr stjórn Sunnuhlíðar, sem veittu jólatrénu viðtöku. Færðu Sunnuhlíð jólatré ári frá stofnun heimilisins fært hjúkrunarheimilinu jólatré að gjöf, sem staðsett er í garðinu sunnan við Sunnuhlíð til yndisauka fyrir sjúklinga. Við athöfnina söng barnakór undir stjórn Vigdísar Ezradóttur við undirleik Þórunnar Björnsdóttur. SKOGRÆKTARFELAG Kópa- vogs færðu Sunnuhlíð jólatré sem kveikt var á við hátíðlega athöfn sunnudaginn 9. desember sl. Baldur Helgason formaður skóg- ræktarfélagsins flutti ávarpsorð, en skógræktarfélagið hefur á hveiju Heimsmeistaraeinvígið í Lyon: Karpov lenti í svikamyllu Skák Karl Þorsteins Vonir áskorandans Anatoiy Karpovs um endurheimt heims- meistaratitilsins eru hverfandi eftir glæsilegan sigur heimsmeist- arans, Garrí Kasparovs, í tuttug- ustu einvígisskákinni á laugar- daginn. Staðan í einvíginu er núna 11—9 fyrir Kasparov sem nægir tvö jafntefli í síðustu fjórum skák- unum til þess að halda heims- meistaratitlinum. Byijunin var spánskur leikur og sautján fyrstu leikjunum var leikið með hraði, enda komu þeir allir fyrir í fjórðu einvígisskákinni í New York. Kasparov breytti þá loks útaf og í næstu leikjum not- aði Karpov dijúgan tíma til um- hugsunar. Hann var í vígahug þrátt fyrir að hann stýrði svörtu mönnunum. Hann ákvað að þiggja peð af heimsmeistaranum sem sjaldan veitir slíkar gjafir án nok- kurrar þóknunar. Með hveijum leiknum í áframhaldinu bætti Kasparov líka vígstöðuna og stillti öllu liði sínu til sóknar á kóngs- væng. Biskupar miðuðu beint á skjólið fyrir svarta kónginn, ridd- ararnir voru tilbúnir til áhlaups og einnig hrókarnir og drottning- in. Samt kom riddarafórnin í 26. leik öllum viðstöddum i opna skjöldu. Líklega einnig Karpov sem settur var í mjög aðþrengda aðstöðu. Hann ákvað að drepa ekki riddarann til baka heldur ásældist biskup heimsmeistarans sem líklega var gagnrýnisvert því Kasparov lét sér fátt um finnast og jók sóknarþungann um allan helming, biskupnum fátækari. Karpov var í gífurlegri tíma- þröng undir lok setunnar og það hagnýtti heimsmeistarinn til fullnustu og hápunkturinn var án efa þrítugasti og fjórði leikur Kasparovs. Þá lét hann drottning- una af hendi fyrir eitt einasta peð, en í næstu fjórum leikjum hirti hann til baka drottninguna ásamt biskup og hrók andstæð- ingsins og allt með skák sem minnti helst á fullkomna svika- myllu. Aðstaða Karpovs var von- laus eftir það og hann gafst upp eftir fertugasta og fyrsta leik hvíts. Heimsmeistarinn, Garrí Kasp- arov, var að vonum ánægður með sigurinn og kvaðst að lokum hafa unnið skák í einvíginu á sinn gamla máta. Eftir skákina dvöldu skákmeistararnir nokkra stund á sviðinu og skeggræddu möguleik- ana í viðureigninni. Kasparov kaus að fresta 21. einvígisskák- inni sem átti að teflast í gær- kvöldi. Hún verður tefld á mið- vikudagskvöldið og Karpov stýrir þá hyítu mönnunum. Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Spánskur leikur 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 - Be7, 6. Hel - b5, 7. Bb3 - d6, 8. c3 - 0-0, 9. h3 - Bb7, 10. d4 - He8, 11. Rbd2 - Bf8, 12. a4 — h6, 13. Bc2 — exd4, 14. cxd4 - Rb4, 15. Bbl - c5, 16. d5 - Rd7, 17. Ha3 - f5!? Þannig tefldi Karpov einnig í fjóðu einvígisskákinni í New York. Þá svaraði Kasparov með 18. exf5 - Rf6, 19. Re4 - Bxd5, 20. Rxf6 - Dxf6, 21. Bd2? - Dxb2! 22. Bxb4 — Bf7! og svartur stend- ur til vinnings. í tímahraki náði Kasparov þráskák og jafntefli var samið eftir rúmlega fjörutíu leiki. Kasparov er ekki fyrstur til þess að leika hróksleiknum í næsta leik. Þannig tefldi Timman í 9. einvígisskákinni gegn Karpov í Kuala Lumpur fyrr á árinu. Þá svaraði Karpov með 18. — f4. 18. Hae3 - Rf6?! 19. Rh2! Riddaraleikurinn gefur línurnar varðandi áframhaldið. Svartur getur núna unnið peðið strax eft- ir 19. — fxe4, 20. Rxe4 — Rbxd5 en eftir 21. Hg3 er kóngsstaðan ótrygg. 19. - Kh8, 20. b3 - bxa4, 21. bxa4 — c4, 22. Bb2 — fxe4, 23. Rxe4 - Rfxdö, 24. Hg3 - He6, 25. Rg4 - De8. og svo 27. Rf6!?. Þá gengur ekki 27. - Rxf6?, 28. Hxe8 - Rxe8, 29. Dd2! og hvítur hótaði bæði 30. Dxh6 og 30. Dxb4. En 27. — Dd8! er sterkara mótsvar. Eftir 28. He8 — Dxe8, 29. Rxe8 — Hxe8, 30. Bcl er staðan mjög tvíeggjuð. Að lokum er 27. Rxd6 sá möguleiki sem fyrst kemur í hugann. Eftir 27. — Dxel+! (Ekki 27. - Dd7? 28. Dg4! - Dc7, 29. Re8 og vinnur) 28. Dxel — Hxd6, 29. De4 — Rd3 er staðan mjög flókin og einnig eftir 28. De5 — c3, 30. De4! - Hh6, 31. Hg6. Af þessari samantekt er ljóst að sóknarfæri hvíts eru mjög hættu- leg þrátt fyrir að rakinn vinriingur sé hvergi sjáanlegur. Staðan á taflborðinu er svo flókin að ómögulegt er að_ reikna öll af- brigðin til enda. Ég er þess full- viss að Karpov hefur fremur treyst á innsæi sitt en útreikninga þegar hann lék peðsleikinn. 27. Rf5 - cxb2, 28. Dg4 - Bc8, 29.Dh4+ Kasparov fellur ekki í gildruna 29. Rxg7? — Hxe4! Þrátt fyrir að hvítur sé manni undir er engin vörn sjáanleg fyrir svartan. 29. — Hh6, 30. Rxh6 — gxh6, 31. Kh2! - De5, 32. Rg5 - Df6, 33. He8! - Bf5. m'wkwm.. mm... ýffifr//// V///////// '//*£r^y/ « m 'wm,. wrn mm o wm. H 'wm a wm -m &J ý/,^=-Æk.iÉlt 26. Rxh6! Ótrúlegur leikur! Það skiptir engu þótt peðið sé tryggilega valdað, Kasparov drepur það samt. 26. - c3? Karpov átti tvo valkosti. Annaðhvort að drepa riddarann á h6 eða ýta c-peðinu og loka þann- ig skálínunni al — h8 og setja um leið á biskupinn á b2. Líklega valdi Karpov síðri kostinn. Eftir 26. — Hxh6! á hvítur fjölmarga möguleika. 27. Rg5 er þá svarað með 27. — Dh5! en ekki 27. — Dd7? 28. Dg4! - Dxg4, 29. Rf7+ — Kg8, 30. Rxh6+ — gxh6, 81. Hxg4+ - Kf7, 32. Bg6+ Kg8, 33. Bg5+ - Kf7, 34. Be6+ og næst 35. Bxd5+ og vinnur. 27. Rc5!? kemur einnig vel til álita 34. Dxh6!! Stórkostlegt! Staðan minnir á svikamyllu. Kasparov lætur drottninguna af hendi fyrir eitt peð, en vinnur þvingað til baka drottningu, biskup og hrók and- stæðingsins og allt með skák. Urslitin eru ráðin. 34. - Dxh6, 35. Rf7+ - Kh7, 36. Bxf5 - Dg6, 37. Bxg6+ 37. Hxg6! - Hxe8, 38. Hg4 mát hefði fullkomnað verkið. Það er fullkomlega ástæðulaust að gagnrýna leik heimsmeistarans enda þarf aðeins einfalda liðstaln- ingu til þess að fullvissa sig um úrslitin. Aðeins tímahrak kemur í veg fyrir uppgjöf Karpovs. 37. - Kg7, 38. Hxa8 - Be7, 39. Hb8 - a5, 40. Be4 - Kf7, 41. Bxd5+ Svartur gafst upp. Eftir 41. — Rxd5, 42. Hxb2 er taflið vonlaust.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.