Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 49
49
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKU'íl/iHVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 18. DESÉMBER 1990
Utanríkismál
*
Tengsl Islands við Frakk-
land hagstæð vegna EB?
í SLENDIN G AR og Frakkar
þurfa að efla með sér verslun
og viðskipti. Nánari tengsl þess-
ara landa yrðu ekki síst hagstæð
fyrir Island vegna áhuga íslend-
inga á traustum viðskiptum al-
mennt við ríki Evrópubandalags-
ins. Þetta kom fram hjá Jacques
Mer, sendiherra Frakklands á
Islandi, er hann flutti framsögu
og svaraði fyrirspurnum á
stjórnarfundi Fransk-íslenska
verslunarráðsins 5. desember sl.
Jacques Mer taldi verslun millí
Frakklands og íslands alltof litla.
Viðskipti landanna hefðu verið lengi
svipuð, en þó mætti geta þess að
útflutningur íslendinga til Frakk-
lands hefði tvöfaldast á allra síðustu
árum. Hann sagði Frakka jafnt sem
aðrar Evrópubandalagsþjóðir vera
þessa dagana upptekna af mögu-
leikum á viðskiptum við þjóðir
Austur-Evrópu. Hann taldi þetta
þó aðeins timabundið ástand og
sagði að sjálfur ynni hann að því
að vekja áhuga franskra fyrirtækja
á íslenska markaðnum. Jaques-Mer
taldi frönsk fyrirtæki hafa litla af-
sökun fyrir að vanrækja ísland
vegna þess hve markaðurinn hér
væri smár. „Ekki láta t.d. Bretar
og Japanir þetta atriði á sig fá,
heldur gera þeir góð vipskipti á
íslandi," sagði hann.
Sendiherrann taldi öflugt starf
félaga eins og Fransk-íslenska
verslunarráðsins geta leitt til hag-
stæðra viðskipta á nýjum mörkuð-
um. Auk þess sem sterkari við-
skiptatengsl milli íslands og Frakk-
lands geti leitt til áhrifa á fleiri
sviðum, sem m.a. gætu verkað já-
kvætt á stöðu íslands gagnvart
evrópskum viðskiptaþjóðum.
Fransk-íslenska verslunarráðið
var stofnað 29. ágúst sl. Markmið
þess er að vinna að eflingu við-
skiptatengsla landanna tveggja.
Bæði íslensk og frönsk fyrirtæki
starfa innan ráðsins. Formaður er
Magnús Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sölusambands íslenskra físk-
framleiðenda.
Fyrirtæki
Hans Peter-
sen með
umboð fyr-
ir Canon
HANS Petersen tók nýlega við
umboði og dreifingu á Canon
myndavélum og myndbandsupp-
tökuvélum á Islandi. I fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu kemur
fram að Canon hefur verið leið-
andi fyrirtæki á ljósmyndavöru-
markaðinum ásamt því að bjóða
mikið úrval myndbandsupptöku-
véla.
Canon býður fjölbreytt úrval af
myndavélum, allt frá einföldum og
ódýrum vélum upp í háþróaðar
myndavélar fyrir atvinnumenn. í
fréttatilkynningunni segir að mynda-
vélar frá Canon hafí undanfarin ár
fengið ýmsar alþjóðlegar viðurkenn-
ingar. Á þessu ári var Canon EOS
10 myndavélin valin myndavél ársins
í Þýskalandi og Canon Epoca var
valin merkasta nýjungin í myndavél-
um.
Baldvin Einarsson hjá Beco
myndavélaviðgerðum mun áfram sjá
um viðgerðir á Canon myndavélum.
/ ••
BILDSHOFÐI
JÓLASENDINGAR
Frá 17. desember til jóla lengjum við afgreiðslutíma
millilandaafgreiðslu Flugleiða Frakt að Bfldshöfða 20.
Opið verður á virkum dögum sem hér segir:
Kl. 9.00 - 12.00 og 13.00- 18.00.
Einnig er tekið við innanlandsfrakt í afgreiðslunni
að Bfldshöfða.
GLEÐILEG JÓL
BÍLDSHÖFÐI - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
frásagnarlist
VEGURINN UPPÁ FJALLIÐ eftir Jakobínu Sigurðardóttur.
Kjarngott mál, Ijóslifandi persónur, verðug viðfangsefni og hlý kímni eru sem fyrr
aðalsmerki höfundar.
Þessar nýju smásögur Jakobínu sæta tíðindum.
SVEFNHJÓLIÐ eftir Gyrði Elíasson.
Þetta er önnur skáldsaga Gyrðis en hann hlaut Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar
1989. Þessi saga er í senn kátleg, ævintýraleg og ógnvekjandi. skrifuð af þeirri
málsnilld sem höfundur hefur þegar getið sér orð fyrir.
HELLA eftir Hallgrím Helgason.
Óvenjuleg saga um unglingsstúlku í litlu þorpi úti á landi. Lýsingar höfundar á löndum
sínum eru bæði fyndnar og glöggar og auga hans fyrir náttúrunni einstakt.
Með Hellu er sleginn nýr tónn í íslenskum bókmenntum.
MÝRARENGLARNIR FALLA eftir Sigfús Bjartmarsson.
Þetta eru fyrstu sögur Sigfúsar Bjartmarssonar sem áður hefur vakið mikla athygli fyrir
Ijóðabækur sínar. Fimm samtengdar sögur úr íslenskri sveit sem snúast um hringrás
mannlífs og náttúru. Orðfærið er auðugt og sérkennilegt, sprottið úr þeim heimi sem
sögurnar lýsa svo eftirminnilega.
jjji.,.-*.
Bœkur eru ódýrari
Laugavegi 18. Sími 15199 - 24240. Síðumúla 7 - 9 Sími 688577.