Morgunblaðið - 18.12.1990, Page 58
,po r
p?.
58
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
Minning:
* ___________
Asthildur Thor-
*
'steinsson — Agústa
Brynjólfsdóttir
Fædd 1. desember 1946
Dáin 5. desember 1990
Fædd 10. september 1972
Dáin 6. desember 1990
Vertu sæl litla systir mín
sumarið er horfið langt á braut.
Allir söngfuglar þess, öll gullvængjuð ský
þess.
(Jóhann Jónsson)
Ég kynntist Ásthildi 1959 þegar
ég var fjórtán ára og hún þrettán.
Mér verður hugsað til þess er .ég
leit út um gluggann, þar sem ég
bjó í Vesturbænum og sá hana
labba fram hjá og við tókum tal
saman. Það var upphaf ævilangrar
vináttu okkat'._
Foreldrar Ásthildar, Friðþjófur
og' Túlla, voru ákaflega elskulegt
fólk og alltaf gott að koma til þeirra.
Gott var líka að koma inn á hlýlegt
og fallegt heimili Ásthildar. Hún
veitti mér mikinn stuðning á þeim
erfiða tíma er maðurinn minn lést
í fyrra, þá va_r hún mér eins og
besta systir. Ég gleymi því ekki
hvað Ásthildur var hrifín af barna-
börnunum sínum, Sunnu, og hvað
hún var stolt þegar Ágústa átti
Emelíu litlu.
Eins og ég kynntist Ágústu var
hún ljúf og gott að tala við hana.
Dugleg var hún með barnið sitt
þrátt fyrir ungan aldur.
Lífið verður aldrei eins án þeirra.
Elsku Diddo, Maggi, Svala og
Emelía, ég og fjölskylda mín send-
um ykkur innilegar samúðarkveðj-
ur. Hvíli elsku Ásthildur og Ágústa
mín í friði.
Anna, Gauti og Sævar
•
Miðvikudagskvöldið 5. desember
síðastliðinn var óvenju fagurt í
Reykjavík. Nýfallin mjöllin lýsti upp
umhverfið. Við hjónin vorum á
heimleið og höfðum á orði hve jóla-
legt væri um að litast enda skammt
til hátíðarinnar miklu þegar mann-
kyn fagnar fæðingu frelsarans,
hátíðar ljóss og friðar, hátíðar barn-
anna eins og oft er sagt með sanni.
Við ókum austur Suðurlandsbraut
og sáum í fjarska, inn við Elliðaár,
mikinn og ógnvænlegan ljósagang
og augljóst var að þar hafði orðið
slys. Þar nær dró mættum við
tveimur sjúkrabifreiðum sem voru
um það bil að yfirgefa vettvang.
Og við hugsuðum bæði það sama.
Þarna hafði þessi sami snjór sem
rétt áður hafði fyllt hugi okkar jóla-
stemmningu og friði orðið orsök enn
eins hræðilegs atburðar í umferð-
inni.
Ekki vissum við þá hversu átak-
anlega þessi atburðarás átti eftir
að snerta elskulega vini okkar sem
við höfðum þekkt í mörg ár. Daginn
eftir fréttist að mæðgur hefðu lát-
ist í umferðarslysi. Ekki veit ég
hvers vegna, en strax óttast ég um
afdrif Ásthildar og Ágústu sem ég
fékk síðan staðfest um hádegisbil
þennan sama dag.
Og hvílík sorg. Skammt er stórra
högga á milli hjá þessari elskulegu
fjölskyldu, réttur mánuður síðan
þær mæðgur fylgdu föður Ágústu
til grafar og nú er enn höggvið í
sama knérunn. Minningarnar
hrannast upp og valda sársauka.
Aðeins fimm dögum áður hitti ég
Ágústu framan við Litlu-Grund þar
sem hún hafði unnið um einhvern
tíma og þar í nepjunni minntumst
við föður hennar sem svo nýlega
hafði kvatt þennan heim eftir mjög
skamma legu á sjúkrahúsi.
Ágústa var svo fullorðinsleg og
sterk. Þarna stóð lífsreynd falleg
ung kona sem framtíðin virtist
brosa við. Við kvöddumst og báðum
t
Eiginmaður minn,
ÁGÚST H. KRISTJÁPJSSON
fyrrverandi lögregluþjónn,
Akralandi 3,
lést 14. desember.
Jóna Guðrún Jónsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR,
Einigrund 36,
Akranesi,
lést í Sjúkrahúsi Akraness 14. desember.
Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju, Reykjavík, föstudaginn 21.
desember kl. 10.30.
Guðmundur Júlíus Einarsson,
Magnús Einarsson, Helga Steinarsdóttir,
Garðar Þröstur Einarsson, Ása Karlsdóttir,
Sverrir Einarsson, Ingunn Vigdís Sigmarsdóttir,
Guðrún Margrét Einarsdóttir
og barnabörn.
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KRISTINN VIGFÚSSON,
Skálagerði 5,
Reykjavík,
andaðist mánudaginn 3. desember á hjartadeild Landspítalans.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jóna Kristjánsdóttir,
Haukur Már Kristinsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Jóhanna S. Kristinsdóttir, Sigmundur Þór Friðriksson,
Birna H. Kristinsdóttir, Jakob Kristinsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir,
SVAVA SVEINSDÓTTIR,
sem lést sunnudaginn 9. desember sl., verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. desember nk. kl. 13.30.
Magnús G. Kristjánsson,
Ásgeir H. Magnússon, Jóna Sigurðardóttir,
Jón Hákon Magnússon, Áslaug G. Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR STÍGSDÓTTUR,
ferframfrá Kópavogskirkju miðvikudaginn 19. desemberkl. 10.30.
Sigurður Ingi Sigmarsson, Fanney Stefánsdóttir,
Magnea Sigmarsdóttir, Karl Martinsson,
Guðlaug Sigmarsdóttir, Hafliði Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐVEIG MAGNÚSDÓTTIR,
Hringbraut 99,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá nýju kapellunni, Fossvogi, fimmtudaginn
20. desember kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er vinsamlegast bent á
líknarstofnanir.
Hulda Sergent, Artines Sergent,
Hrafnhildur Jakobsdóttir, Magnús Ólafsson,
Bragi Jakobsson, Sigurbjörg Nielsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Minningarathöfn- um móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
UNNI BJÖRNSDÓTTUR,
frá Þórshamri, Skagaströnd,
Bræðratungu 19, Kópavogi,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 14. desember, verður í
Fossvogskapellu fimmtudaginn 20. desember kl. 11.30.
Jarðsett verður frá Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 21.
desember kl. 14.00.
Björn Kristjánsson, Lovísa Hannesdóttir,
Elísabet Kristjánsdóttir, Gunnar Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar, t
GUNNAR NÍELS SIGURLAUGSSON
frá Grænhóli,
Hlégerði 2, Kópavogi,
er lést 11. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 20. desember kl. 13.30.
Fanney Sigurlaugsdóttir,
Tryggvi Sigurlaugsson.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts
föður okkar, tengdaföður og afa,
VALDIMARS RANDRUPS.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á elliheimilinu Grund.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Við þökkum þá samúð og vinarhug, sem okkur var sýndur við
fráfall sonar okkar og bróður míns,
ÞÓRIS AÐALSTEINSSONAR.
Aðalsteinn Þórðarson,
Sigríður Þórisdóttir,
Ólöf Aðalsteinsdóttir.
fyrir kveðjur, hún til dóttur minnar
en þær höfðu þekkst lengi og ég
bað fyrir kveðjur heim til hennar,
bað að heilsa mömmu hennar og
systkinum, þeim Magga og Svölu
litlu, og síðan gengum við hvor sína
leið.
Og nú eru aðeins minningarnar
einar eftir. Góðar minningar og
væntumþykja sem ná út yfir gröf
og dauða og alla leið inn í himin
Guðs sem gaf og tók.
Og samt skiljum við ekki hvers
vegna og enn síður tilgang Guðs.
En hann veit og hann leggur líkn
með þraut, því verðum við að trúa.
Ásthildi Thorsteinsson kynntist
ég fyrir mörgum árum gegnum
sameiginlegan vin og fyrrum eigin-
mann hennar, Árna Ágúst Einars-
son, sem hún reyndist sem besti
vinur. Það kom best í ljós þegar
hann lést fyrir tveimur og hálfu
ári. Þá var söknuður hennar sár og
einlægur.
Og nú er allt svo hljótt. Líf þess-
ara kæru mæðgna orðnar minning-
ar einar saman og börnin þeirra líta
fram til hátíðar barnanna, móður-
laus en í góðum höndum ættingja
og vina. Hugur okkar dvelur hjá
þeim og bænir okkar fylgja þeim
fram á veginn. Hann sem öllu ræð-
ur verndi þau og varðveiti og gefi
þeim blessunarrík jól og bjarta
framtíð. Á kveðjustund er sjaldnast
mikið sagt en því meira hugsað og
því sárari sem kveðjustundin er því
meiri er tilhlökkunin að hitta ást-
vini aftur.
Megi góður Guð hugga og milda
söknuð ættingja og vina sem syrgja
ástkæra móður, ömmu og systur,
í Guðs friði.'
Guðjón Jónasson og fjölskylda
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á þyí vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og ska! þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú régla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.