Morgunblaðið - 18.12.1990, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
+
Einar Svansson framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks:
Enginn hefur neitað að greiða fyrir af-
not af kvóta þegar búið er að hagræða
„Út í loftið að Fiskiðjan hafi notað fé úr opinberum sjóðum til kvótakaupa“
rs c
„ENGINN í sjávarútveginum hef-
ur néitað að'greiða fyrir afnot
af aflakvóta þegar búið verður
að hagræða í greininni og menn
fara ekki að negla niður gengið
til lengdar og verðbólgan fer ekki
upp úr öllu valdi,“ segir Einar
Svansson framkvæmdastjóri
Fiskiðju Sauðárkróks hf. í sam-
tali við Morgunblaðið. „Það verð-
ur aldrei hægt að krefjast neins
afgjalds af kvóta fyrr en fyrirtæk-
in eru búin að hagrræða og það
er eina vitið að negla kvótakerfið
niður til langframa. Meira að
segja veiðileyfasérfræðingarnir
hafa talið það skynsamlegast til
að ná hagræðingu."
Skúii Alexandersson, þingmaður
Alþýðubandalagsins, sagði fyrir
skömmu í utandagskrárumræðu á
Álþingi um úthlutun á aflakvóta til
smábáta frá næstu áramótum að
Fiskiðja Sauðárkróks hefði fengið
68 milljónir úr Atvinnutrygginga-
sjóði og sérstakt 45 milljóna króna
hagræðingarlán. Skúli visaði þar til
ummæla Brynjars B. Péturssonar í
Grindavík á fundi smábátaeigenda á
Reykjanesi, sem haldinn var í
Keflavík fyrir skömmu, um að Fisk-
iðjan hefði keypt smábátinn Auð-
humlu KE af útibúi íslandsbanka í
Keflavík fyrir 12 milljónir en Brynj-
ar hefði boðið 10 milljóna stað-
greiðslu fyrir bátinn.
„Það er alveg út í loftið að við
höfum notað peninga úr opinberum
sjóðum til að kaupa aflakvóta," seg-
ir Einar Svansson. „Ég hef það ekki
hvað menn hafa fengið í skuldbreyt-
ingarlán úr Atvinnutryggingasjóði
en við höfum fengið 5 milljónir til
hlutafjárkaupa. Hagræðingarlánið
hefur ekki komið neitt nálægt Fisk-
iðjunni. Um er að ræða hlutafjár-
aukningu í Skagfirðingi hf., sem er
útgerðarfyrirtæki. Það eru ekki pen-
ingar, sem hafa komið hér inn í Fisk-
iðjuna og þessar milljónir í skuld-
breytingu er bara skuldbreyting, þár
sem menn greiða eitt lán með öðru,“
segir Einar.
Fyrirtæki sameinuð
„Fyrirtæki hér voru endurskipu-
lögð og sameinuð og það voru aðal-
TC*_______I_________________________
Hegranes SK, einn af togurum Skagfirðings hf.
lega hluthafar í Skagfirðingi hf., sem
fengu lán en ekki við. Skagfirðingur
hf. tengist ekki Fiskiðjunni nema
að því leyti til að hún er hluthafi í
Skagfirðingi. Það er búið lána 4,8
milljarða úr Atvinnutryggingasjóði.
Við höfum ekki fengið nema lítið
brot af því og höfum alltaf staðið í
skilum með öll lán í meira en 30 ára
sögu Fiskiðjunnar.
Fyrst að menn eru að tala um
hagræðingarlán, þá er þó að verða
hagræðing hér, sem ekki er annars
staðar. Hér voru 4 fyrirtæki fyrir
þrem árum en nú stefnir allt í að hér
í Skagafirði verði tvö fyrirtæki til
framtíðar. Menn tóku útgerðina og
endurskipulögðu hana og hlut-
hafamir, m.a. bæjarfélagið, fengu
lán til að hlutafjáraukningar í henni
en þeir peningar eru greiddir til
baka. Við þekkjum enga styrki hér
í Skagafirðinum. Það eru aðrir stað-
ir hér í kring, sem hafa lent í því.
Megnið af því, sem menn fengu
til hlutafjáraukningar í Skagfirðingi
var fengið að láni á síðasta ári, þann-
ig að menn eru að draga saman lán,
sem 2-3 fyrirtæki hér í Skagafirðin-
um hafa fengið á síðustu þrem árum.
Peningarnir, sem komu út úr þessum1
skuldbreytingum, fóru náttúrulega
beint til þeirra, sem áttu skuldirnar
og við sáum þá peninga aldrei. Það
eru kannski 1-2 ár síðan, þannig að
það getur náttúrulega á engan hátt
tengst kvótakaupum á þessu ári.“
Einar segir að þegar menn hafi
keypt aflakvóta á þessu ári hafi
þeir tekið peningana að láni í við-
skipabönkum sínum og út úr rekstri
fyrirtækjanna. „Menn hafa ekki not-
að þá peninga til kvótakaupa, sem
þeir notuðu í skuidbreytingar. Það
er það langt um liðið síðan menn
fengu þessar skuldbreytingar og
menn bíða ekki með peningana inni
á bankabók í tvö ár til að kaupa
aflakvóta," segir Einar.
Fiskiðjan alltaf haft
góða eiginfjárstöðu
Hann fullyrðir að Fiskiðjan hafi
alltaf verið með góða eiginfjárstöðu
og sé núna með eigið fé upp á 200
milljónir, eða rúmlega 30% og vænt-
anlega verði það meira í árslok.
„Fiskiðjan á um helming í Skagfirð-
ingi hf. og Sauðárkróksbær um 25%.
Fiskiðjan er með þrjá togara í Skag-
firðingi hf., Hegranes SK, Skafta
SK og Skagfirðing SK. Við erum
búnir að sameina allt skrifstofuhald
og stjórnun og ég er framkvæmda-
stjóri bæði Fiskiðjunnar hf. og Skag-
firðings hf.,“ segir Einar. Hann seg-
ir að velta þessara fyrirtækja sé um
einn milljarður á þessu ári og verði
væntanlega 1,3-1,4 milljarðar á
næsta ári.
Einar segir að togarar Skagfirð-
ings hf. séu allir ísfisktogarar. „Við
höfum aldrei viljað vera með frysti-
hús úti á sjó, þar sem við erum með
nóg af þeim í landi. Fiskiðjan ér
með stórt hús á Sauðárkróki, svo
og frystihúsið á Hofsósi, þannig að
vinnsíugetan er nóg,“ segir Einar.
Hann upplýsir að aflakvóti Skafta
SK, Hegraness SK og Skagfirðings
SK sé samtals 6.500 tonn í þorsk-
ígildum. „Fiskiðjan, sem fyrirtæki,
hefur aukið sitt hráefni á síðustu
árum, vegna sameiningar fyrirtækj-
anna, svo og höfum við aukið veiði-
heimildir okkar með því að kaupa
bæði skip og kvóta. Við vorum til
dæmis með 3.100 tonna kvóta árið
1988 en erum með 6.000 tonna
kvóta á þessu ári og verðum væntan-
lega með um 8.000 tonna kvóta á
næsta ári.
Þetta er reglulega mikil hagræð-
ing og fyrirtækið verðúr alveg ör-
ugglega mjög sterkt ef okkur tekst
að stjórna því sæmilega. Smábáta-
kvóti er hins vegar einungis lítill
hluti af þeim aflakvóta, sem við
höfum keypt á þessu ári. Við keypt-
um til dæmis Sandgerðing frá Sand-
gerði á þessu ári en hann var með
600-700 tonna kvóta. Sandgerðing-
ur er á línu hérna og heitir núna
Ólafur Þorsteinsson. Það má segja
að allar trillurnar, sem við höfum
Léttir - mjúkir - sveigjanlegir
Nú fást þessir vinsælu dönsku vinnuklossar einnig með
sveigjanlegum sóla. Nýju gá-let fótlaga klossarnir eru enn
mýkri, léttari og þægilegri. Gá-let þola, bensín, sýrur o.fl.
Verða ekki hálir.
Komdu og prófaðu gá-let, finndu muninn. RV býður einnig
uppá hvít og græn vinnustígvél með grófum sóla sem ekki
verður h'áll. Spáðu í verðið - líttu á gæðin.
Lever-Otarés
*jU#aAaA'
Kreditkorta-
þjónusta
Réttarhálsi 2-110 R.vík - Símar: 31956-685554 - Fax: 687116
Pennavinir
Sextán ára sænsk stúlka með
áhuga á íslenskum hestum og tón-
list:
Helena Ohmark,
Box 59,
91100 Vannas,
Sweden.
Þrettán ára katalónskur piltur
vill eignast pennavini eða -vinkonur
á sínum aldri:
Enric Casanovas I Vila,
C/Maximi Fornes 24,
08191 Rubi,
Barcelona,
Spain.
Eistneskur hagfræðistúdent, 21
árs, með áhuga á tónlist, útivist,
ferðalögum, tölvum o.fl.:
Toivo Kuver,
Laane 203014,
Estonia.
50. leikvika -15. des. 1990
Röðin : XX2-12X-221 -1XX
HVER VANN ?
1.422.844- kr.
12 réttir: O röö kom fram og fær hún : O-kr.
11 réttir: 2 raöir komu fram og fær hver: 124.817-kr.
10 réttir: 44 raöir komu fram og fær hver: 5.673-kr.
Þrefaldur pottur - næst!
keypt, séu gerðar út, þannig að við
erum ekki búnir að taka neinn kvóta
af þeim. Við keyptum smábátinn
Auðhumlu frá Keflavík af íslands-
banka fyrir 12 milljónir og sá bátur
er á línuveiðum."
Keyptum Auðhumlu KE fyrir
12 milljónir staðgreitt
Einar segir að Brynjar B. Péturs-
son í Grindavík tali um að hann
hafi boðið 10 milljónir staðgreitt í
Auðhumlu KE og að Fiskiðjan hafi
yfirboðið hann. „Hins vegar var búið
að bjóða upp undir 12 milljónir í
bátinn þegar við buðum í hann. Við
hefðum aldrei farið að bjóða 12 millj-
ónir ef næsta boð fyrir neðan hefði
verið 10 milljónir. Við keyptum Auð-
humlu fýrir 12 milljónir staðgreitt,
sem var mjög temmilegt verð,“ full-
yrðir Einar.
„Það kaupir enginn skip án þess
að yfirbjóða einhvern. Það hafa allt
að 30 aðilar boðið í skip, sem verið
hafa til sölu. Ég held hins vegar að
við höfum ekki keypt nein skip á
uppsprengdu verði hingað til. Þeir,
sem standa yfirleitt sterkast að vígi
í kvótakaupum, eru þeir sem eru
bæði með veiðar og vinnslu, eins og
frystitogararnir og við, sem erum
með báðar hliðar.
Kvótakaupin skapa viðbótarfram-
lag bæði í veiðum og vinnslu. Síðustu
krónurnar, sem koma inn í svona
fyrirtæki þegar búið er að borga
allan fastan kostnað, eru yfirleitt
það mikilvægar. Yfirleitt kemur bara
hreinn hagnaður út úr viðbótarkvót-
anum ef menn geta nýtt hann bæði
á sjó og landi, eins og við gerum.
Við getum þá borgað meira, því við
fáum hreinlega meira út úr þessu á
hverju ári. Maður sem á smábát, eða
sá sem er eingöngu með vinnslu eins
og Skúli Alexandersson, á náttúru-
lega í meiri erfiðleikum með að
greiða niður fjárfestinguna af því
að hún skilar minnu en hjá okkur á
liveiju ári.
Aflakvótakaup eru mjög hag-
kvæm fjárfesting þegar menn eru
með fjárfestinguna klára, bæði skip
og vinnslu, og þurfa ekki að bæta
neinu við, eins og í okkar tilfelli.
Þeir, sem standa á bak við okkur,
t.d. okkar viðskiptabanki, Búnaðar-
bankinn, myndu ekki styðja okkur í
þessum kvótakaupum, nema þeir
teldu þau vera skynsamleg. Það er
hins vegar útilokað að menn geti
keypt viðbótarkvóta eingöngu með
lánum. Við fórum út í það að fá
aukið hlutafé inn í fyrirtækið og
taka alla peninga út ur rekstri, sem
við gátum. Þessi kvótakaup hafa
gengið hjá okkur með öllum þessum
leiðum samanlagt,“ segir Einar.
Bandarískur frímerkja- og póst-
kortasafnari:
Henry Atten,
Apartment 3A,
801 North Riverside Drive,
Pompano Beach,
Florida 33062-3901,
U.S.A.
Fimmtán ára franskur piltur með
áhuga á íþróttum o.fl.:
Frederik Kowalczyk,
21 Rue du Marche,
78110 Le Vesinet,"
France.
Nítján ára norsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Reidun Kveen,
Heggeriset,
2440 Engerdal,
Norway.
Frá Póllandi skrifar 28 ára karl-
maður með áhuga á ferðalögum,
útivist og landafræði. Hann hefur
verið í pólsk-íslenska félaginu í
Varsjá í sex ár:
Henryk Zelaskiewiez,
50953 Wroclaw 46,
Skrytka Poczt.,
Box 1825,
Poland.
Frá Ghana skrifar 26 ára karl-
maður með áhuga á ferðalögum og
tónlist:
Peter Lartevi,
c/o Samuel Adarkwah,
P & T. Corporation, Te-
legraph office,
Koforidua E/R,
Ghana.
■+