Morgunblaðið - 18.12.1990, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990
73
Hreppsfundur í Reykholtsdalshreppi:
Áhugi á að kaupa
plastverksmiðju
Kleppjárnsreykjum.
FJÓRÐA desember var haldinn almennur hreppsfundur í Reyk-
holtsdalshreppi á Logalandi. Fundurinn var vel sóttur og kom í
ljós áhugi hreppsbúa á málefnum hreppsins. Aðalmál fundarins
var framtíð Reykholtsskóla, merkjamál á Arnarvatnsheiði og kynnt
var niðurstaða á arðsemisathugun á kaupum á plastverksmiðju.
í upphafí gerði. oddviti, Þórir
Jónsson, nokkra grein fyrir stöðu
mála eins og þau eru í dag. Aðal-
verkefni hreppsnefndarinnar er
vegna nýrra reglna um skiptingu
verka milli ríkis og sveitafélaga.
Einnig hefur miklum tíma verið
varið í að finna lausn á skiptingu
Andarkílsárvirkjunar á milli
hreppa, en 1992 eru fimmtíu ár
liðin frá stofnun Andakílsárvirkj-
unar og í stofnsamningi var gert
ráð fyrir því að ekki skyldi borgað-
ur arður af virkjuninni fyrstu
fimmtíu árin. En nú hafa komið
upp hugmyndir um stofnun orku-
bús Borgarfjarðar og gæti það
lagað rekstrarstöðu hitaveitu Akr-
aness og Borgarness sem er slæm,
en ekki eru_ allir sáttir við þessa
hugmynd. Árið 1987 samþykkti
atvinnumalanefnd tillögu þess efn-
is að athuga hvort ekki væri
grundvöllur fyrir byggingu þjón-
ustumiðstöðvar sem mundi hýsa
hreppskrifstofur, dagheimili, póst-
hús, banka, heilsugæslustöð, apó-
tek, verslun og þjónustumiðstöð
fyrir ferðafólk og í tengslum við
þessa þjónustumiðstöð mundi vera
rekið tjaldstæði sem er mikil þörf
fyrir, en ekki hafa heilsugæslan
og Póstur og sími getað gert það
upp við sig ennþá hvort þeir vilja
vera með í þessari byggingu. Það
er mjög brýnt að fara að taka
ákvarðanir í þessu máli sagði odd-
vitinn.
Mikil óvissa er um framtíð Hér-
aðsskólans í Reykholti, til greina
hefur komið að loka skólanum
næsta vetur, er það mjög alvarlegt
mál þar sem um fjörutíu aðilar
hafa beint eða óbeint atvinnu við
skólann og útsvarstekjur hrepps-
ins eru um þriðjungur frá þessum
aðilum. Nokkrar hugmyndir hafa
komið upp um framtíð hans á síð-
ustu misserum, eins og að gera
skólann að menntaskóla með húm-
anískar greinar og geta þá útskrif-
að stúdenta, hótelskóla, fjölbraut-
askóla í samvinnu við Fjölbrauta-
skóla Vesturlands. Skóli fyrir
norræn fræði í tengslum við hina
nýju Snorrastofu sem er að rísa í
Reykholti. Og síðast en ekki síst
hefur verið skipuð nefnd til að
kanna möguleika á að flytja Fé-
lagsmálaskóla alþýðu að Reyk-
holti.
Atvinnumálanefnd hefur verið
að gera arðsemisathuganir á
kaupum á plastverksmiðju Sjálfs-
bjargarí samvinnu við iðnráðgjafa
Vesturlands. Hafa niðurstöðuat-
huganir verið það jákvæðar að
áfram verður unnið að máli þessu,
aðal framleiðslan mundi vera dósir
undir matvæli. í dag eru allar
dósir undir smjör og skyr fluttar
inn og gæti þetta framtak verið
liður í atvinnusköpun og gjaldeyr-
isspamaði. Nokkuð var fjallað um
umhverfismál og hugmynd þess
efnis að koma á fót vinnuskóla
fyrir unglinga að vori komandi,
vinnuskóli þessi hafi það verkefni
að fegra umhverfið og með að
aðstoða bændur og aðra sem ekki
hafa mannafla heima til að sinna
þessum umhverfisverkefnum.
í lok fundarins lýstu fundar-
menn yfir einróma ánægju þess
efnis að bæði Snorrastofa og ný
Reykholtskirkja væru komnar
undir þak.
- Bernhard
NYJASTA ENSKA ORÐABOKIN
1.116 blaðsíður - handhæg og notadrjúg.
Kynningarverð
til áramóta
kr. 1.600.
ORÐABOKAUTGAFAN
É
■ . ■.
im